Morgunblaðið - 18.07.1978, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 18.07.1978, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 1978 41 1 u . ú VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 0100 KL 10 — 11 FRA MÁNUDEGI ut/jrvrz^ajz'uu óska eftir vinstri stjórn þá telja þeir að rússneskt réttarfar sé æskilegt hér á landi. Verði þeim að góðu hið rússneska frelsi! „Herstöðvarandstæðingar er smáhópur af fólki sem ráfar um blindandi, en hugsar ekki um afleiðingarnar. Einhvern tíma hljóta augu þeirra að opnast og þá sjá þeir hvað það er þjóðinni til skammar. Fólk sem berst gegn öryggi landsins hlýtur að mega kalla landráðafólk.“ (H.H.) Glæsilegasta afrek ríkisstjórn- arinnar á liðnu kjörtímabili og það sem lengst mun halda nafni hennar á lofti og ávallt mun í heiðri haft sem einn mikilsverð- asti þáttur Islandssögunnar bæði í nútíð og framtíð, er auðvitað hinn mikilsverði landhelgissamningur við Breta og Vestur-Þjóðverja er var undirritaður eins og áður segir 1. júní 1976 í Óslóborg. Og þarna á landhelgisgæzlan einnig sinn stóra hlut að málum, sem seint eða aldrei verður fullþakkaður því öll frammistaða hennar gegn of- beldisárásum Breta og vígdrekum þeirra var alveg frammúrskarandi og hrífandi góð. Og að lokum urðu Bretar að lúta í lægra haldi því stríðsgæfan brást Islendingum ekki í þessu mikilsverða þorska- stríði. íslenzka 200 mílna landhelgin, þetta mikla og mikilsverða haf- svæði og lífbelti íslands eins og forseti Islands sagði eitt sinn á skemmtilegan hátt um íslenzku landhelgina, sannara réttnefni verður ekki fundið. Nú kemur til kasta íslendinga sjálfra að hag- nýta þetta lífbelti okkar í framtíð- inni á skynsamlegan hátt og réttan, þjóðinni allri til heilla og hamingju og góðra nytja. Því „íslands Hrafnist.umenn eru haf- sæknir enn, ganga hiklaust á orrustuvöll. Flytja þjóðinni auð, færa barninu brauð, færa björgin í grunn undir framtíðarhöll." (Örn Arnarson) Þorkell Hjaltason.“ Þessir hringdu . . . • Skemmtilegar sýningar U ms jónarf óstrur: Undanfarið hafa þau Jón E. Guðmundsson og Sigríður Hannesdóttir haldið brúðuleiksýn- ingar á gæzluleikvöllum Reykja- víkurborgar. Þykja sýningar þess- ar hafa tekizt fádæma vel, enda hrifning almenn og á það við jafnt unga sem aldna. Fer nú sýningum þessum senn að ljúka og er full ástæða til að hvetja foreldra og aðra aðstandendur barna til að láta sýningar þessar ekki fara framhjá sér. Upplýsingar um tíma og staðsetningu sýninga veita starfsstúlkur gæzluvallanna. • Ekið út af hringtorgum Ökumaður í Reykjavík vildi að minnst yrði á akstur út úr hringtorgum í Reykjavík, en hann sagði að það væri engu líkara en margir ökumenn hefðu enga hug- mynd um að í hringtogum væru tvær akreinar alveg eins og í þeim götum sem liggja að torgunum. — Eg hef margoft rekið mig á það, sagði þessi ökumaður, að SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson A alþjóðlega skákmótinu í Hastings um síðustu áramót kom þessi staða upp í áskorendaflokki í viðureign þeirra Bakers, Englandi, og Schlenkers, V-Þýzkalandi 25. Ra4! — Bxa4 (Eftir 25.... Bf8 fær hvítur auðunnið endatafl) 26. Hc7+! Kxc7 27. De7+ og svartur gafst upp. Eftir 27. ... Kb8 28. Dd6+ — Kc8 29. Hcl+ — Bc6 30. Hxc6+ bxc6 31. Ba6 er hann mát. Balshan, ísrael vann áskorenda- flokkinn og teflir hann því í aðalmótinu að ári. menn sem eru e.t.v. í innri hring í torginu færa sig yfir á ytri akreinina þegar þeir aka út úr torginu og valda með því truflun fyrir þá sem fyrir eru á þeirri ytri akrein. Menn verða að hafa hugann við aksturinn og sé það ekki gert kemur það mjög oft fyrir að menn „svindla" þannig á akreinum. Finnst mér þetta mjög hvimleiður háttur mjög margra ökumanna og vildi að menn gæfu þessu gaum þegar þeir áka næst um hringtorg. Hægt væri að minnast á ýmis önnur atriði sem ábótavant er í akstri hjá mörgum, en við þetta atriði verður stað- næmst að sinni. RÆKJUBÁTURINN Ilaraldur frá Dalvík fékk nýlega trollið í skrúfuna og varð að fá varðskipið Ægi sér til aðstoðar. Kiifuðu stýrimennirnir Þorvaldur Axelsson og Jón P. Ásgcirsson til að ná trollinu úr sem þeim tókst eftir nokkra stund. Ljósm.i Ingólfur Kristmundsson. Frá námskeiði presta og organista á Hólum Dagana 5.-7. júlí s.l. var á Ilúlum í lljaltadal haldin ráðstcfna t)g námskcið fyrir presta og organista á vegum Prestafélags Hólastiftis. í undirhúningsnefnd námskeiðsins voru sr. Pétur Sigurgeirsson vígslubiskup. Ilaukur Guðlaugsson söngmálastjóri þjóðkirkjunnar og organistarnir Jakoh Tryggvason og Guðmundur Þorsteinsson. Umra'ðuefni ráðstefnunnar var „samstarf presta og organista í virkri þátttöku safnaðarins við messugjörðir með sérstöku tilliti til safnaðarsöngs". Framsöguerindi fluttu sr. Sigurður Guðmundsson grófastur á Grenjaðarstað og Jón Tryggvason bóndi og organisti í Artúnum í A-IIún. í lok umræðna voru þrjár ályktanir samþykktar svohljóð- andi: 1) „Organistar og prestar í Hólastifti hinu forna á námskeiði heima að Hólum dagana 5.-7. júlí 1978 beina þeirri hvatningu til safnaðarfólksins, að það taki rheiri þátt í kirkjusöngnum en nú gerist. Þátttakendur námskeiðsins telja að ákveða ætti sérstakan dag eða daga kirkjuársins, sem helgaðir væru eflingu safnaðarsöngsins og fara þess á leit við biskup Islands og söngmálastjóra þjóðkirkjunnar, að þeir vinni að framgangi þessa máls.“ 2) „Organistar og prestar samankomnir á Hólum í Hjaltadal' 5.-7. júlí óska eindregið eftir því við forráðamenn Ríkisútvarps, að tekinn verði upp í hljóðvarpi og sjónvarpi fastur sálmasöngsþáttur undir umsjá söngmálastjóra Þjóð- kirkjunnar. Þættinum verði eink- urn ætlað það hlutverk að kynna sálma og fá fólk til aukinnar þátttöku í sálmasöng“. 3) Organ- istar og prestar úr Hólastifti hinu forna beina þeim eindregnu tilmælum til kirkjumálaráðherra, að hann beiti sér fyrir því, að — Skátasirkus Framhald af bls. 11 kvæmdum yrði.var sótt um undan- þágu frá greiðslu skemmtana- skatts, sem var veitt með venjuleg- um ákvæðum um, að öllum ágóða yrði varið til æskulýðsheimila á vegum ekáta, þegar lögleg yfirvöld hefðu fjallað um málið. Eins og skýrt er frá annars staðar hafa þeir reikningar nú verið endurskoðaðir og lagðir fyrir tollstjórann í Reykjavík til úr- skurðar. Fjármál áhugamannafélaga og ekki síst æskulýðsfélaga hafa ávallt verið þung í skauti forustu- manna þeirra. Þetta á líka við um B.Í.S., sem hefur reynt að halda uppi starfi til að edla ekátastarfið í landinu. Þetta kostar mikið fé og hefur vegna verðbólgu í landi voru vaxið meir heldur en tekjur. Við höfum því reynt að fara inn á nýjar leiðir í fjáröflunum með komu sirkusins og svo með því að hefja sölu „lukkumiða", sem er smámiðahappdrætti. Skátastarf stendur víða á mjög föstum grunni, svo sem á ísafirði, Tónskóli Þjóðkirkjunnar fái stoð í lögum og honum tryggð örugg starfsskilyrði með nægum fjár- veitingum og starfskröftum“. Auk umræðna á námskeiðinu fór þar fram raddþjálfun presta og organista, orgeltímar með organ- istum og æfingar í söngstjórn og kórþjálfun. Kennslu og leiðbein- ingar veittu Haukur Guðlaugsson söngmálastjóri, Guðrún Tómas- dóttir söngkona og organistarnir Jakob Tryggvason og Guðni Þ. Guðmundsson. Ennfremur var eitt kvöldið efnt til almenns safnaðar- söngs í Hóladómkirkju og helgi- stundir voru þar haldnar kvölds og morgna. Þátttakendur á námskeiðinu voru auk leiðbeinenda 10 prestar og 13 organistar. Stjórnandi var sr. Pétur Sigurgeirsson. Þetta er í annað skipti sem Prestafélag Hólastiftis efnir til kirkjulegs námskeiðs á Hólum. Á síðasta ári var þar haldið námskeið í leik- mannastarfi innan kirkjunnar fyrir sóknarnefndamenn, safnað- arfulltrúa, meðhjálpara og fleiri. (fréttatilkynning). en annars staðar eru skátafélögin mjög þurfandi fyrir utanaðkom- andi aðstoð, sem B.Í.S. þaf að veita. Þyrfti sú aðstoð að vera ennþá meiri en nú er, en slíkt kostar fé, sem stjórn B.Í.S. þarf að útvega. Flest skátafélög eru þann- ig stödd fjárhagslega, að þau geta ekki greitt hærri skatt til B.Í.S. en nú er gert, en hann er 500 kr. á hvern skáta á landinu. Við hörmum allar þær rang- túlkanir, sem komið hafa fram í blöðum og útvarpi á viðtölum við einstaka stjórnarmenn, en vonum, að birting reikninga og annarra gagna megi verða til að upplýsa málið og sýna, að ekki var um nein óheiðarleg viðskipti að ræða. Að sjálfsögðu munu þessi mál öll ásamt margvíslegum atriðum um starfsemi þessa og næsta árs verða rædd á félagsforingjafundi, sem haldinn verður 16. og 17. september n.k. I þessu máli sannast, að „ein lítil fjöður getur hæglega orðið að fimm hænsnum“ eins og segir í ævintýri H.C. Andersens. Með skátakveðju, f.h. stjórnar Bandalags íslenskra skáta, Páll Gíslason.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.