Morgunblaðið - 18.07.1978, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JULI 1978
43
Tiltektir hjá
Kýpurforseta
Níkósiu-Kýpur, 17. júlí, AP.
Spyros Kyprianou, forseti Kýp-
ur, lýsti því yfir í dag að tekizt
hefði að ráða niðurlögum sam-
særis gegn stjórn eyjarinnar og
rak hann jafnframt úr embætti
aðalsamningamann sinn í sátta-
viðræðum við Tyrki. Ekki er þó
vitað til að beint samband hafi
verið á milli þessara aðgerða.
I uppsagnarbréfi sínu til Tasos
Papadopoulos, talsmanns Grikkja
í deilu þeirra og Tyrkja, sakaði
forsetinn hann um „blinda og
sjúklega metorðagirnd, öfund og
hatur“. Lét Kyprianou enn fremur
í ljós von um að Papadopoulos ætti
eftir að skilja hörmuleg mistök
sín, nýleg sem gömul, ög að hann
myndi iðrast og betrumbæta
afstöðu sína, sem stefnt hefði
Svo kann að fara að fastafulitrúi Bandaríkjanna hjá Sameinuðu
þjóðunum. Andrew Young, segi af sér, vegna þess að honum finnst
staða sín ekki eins eftirsóknarverð og hún var, er hann tók við henni.
Young hefur verið harðlega gagnrýndur, þann tíma er hann hefur
verið fastafulltrúi og nú síðast var hann gagnrýndur fyrir að láta
hafa eftir sér að „hundruð ef ekki þúsundir pólitískra fanga væru
í Bandaríkjunum." Þessi mynd var tekin nýlega af Young ásamt
eiginkonu sinni og syni.
Engin afstaða
tekin til Kúbu
Khartoum. 16. júlf. Reuter.
Utanríkisráðherrar
landa, sem aðild eiga að
einingarsamtökum Afríku-
ríkja, neituðu á sunnudag
að taka afstöðu til þeirrar
kröfu Sómala að reka
Kúbumenn úr samtökum
hlutlausra ríkja sökum
tengsla þeirra við
Sovétmenn.
Ráðherranefnd samtakanna,
sem nú fundar í Khartoum, ræddi
um helgina sameiginlega stefnu-
mörkun til undirbúnings ráðstefnu
hlutlausra ríkja, sem á að hefjast
þann 25. júlí. Krafa Sómala kom
fram á sama tíma og yfirvöld í
Eþíópíu vöruðu nágranna sína við
að svo kynni að fara að næsta
styrjöld út af Ogaden-svæðinu
yrði ekki háð þar heldur Sómalíu-
megin landamæranna gerðu Sóm-
alar áfram kröfur til eyðimerk-
unnar. Kúbanskir hermenn og
sovéskir skriðdrekar voru í
fremstu víglínu Eþíópa, er Sómal-
ar voru reknir á flótta úr Ogaden
í marz. Búizt var við að 30
leiðtogar Afríkuríkja, að minnsta
kosti, myndu sækja ráðstefnu
einingarsamtakanna sem byrjar
formlega í dag, þriðjudag.
Rússar
skjóta
þyrlur
niður
Teheran, íran 17. júlí. AP.
HIN opinbera fréttastofa
írans, Pars, skýrði frá því
í dag að tvær íranskar
þyrlur hefðu verið skotn-
ar niður í sovéskri loft-
helgi hinn 21. júní síðast-
liðinn.
Allir um borð í annarri
þyrlunni létust, en áhöfn
hinnar særðist aðeins.
Samkvæmt fréttum
Pars villtust þyrlurnar
vegna mikillar þoku.
Þyrlurnar voru skotnar
niður skammt frá borg-
inni Sabzevar, sem er í
Norðaustur-íran.
Báðar voru þyrlurnar
óvopnaðar og að sögn
Pars voru þær í æfinga-
flugi er þær villtust af
leið.
Háttsettur Rússi á
fund feðra sinna
Moskva 17. júlí. AP. Reuter.
Fyodor Kulakov, einn
þeirra sem álitinn var
Eitursnákar
í bögglapósti
Istanbúl, 16. júlí. AP.
TYRKLAND logaði áfram í
óeirðum síðustu helgi. Fyrrver-
andi leiðtogi verkalýðsfélags
fékk böggul með eitursnákum
sendan í pósti og tveir menn
létu lífið í vopnaátökum í
Ankara á laugardag.
Samkvæmt frásögnum blaða
mun verkalýðsleiðtoginn Ilhami
Gencalp ekki hafa beðið tjón af
sendingunni og var hann snögg-
ur að pakka henni saman aftur
er hann barði innihaldið augum.
Tók lögregla við bögglinum til
rannsóknar. Ennfremur herma
fréttir að unglingur hafi látið
lífið samstundis er hægrisinn-
aðir öfgamenn réðust í almenn-
ingsgarð í útborg Ankara. Ann-
ar mun hafa látið lífið eftir að
hafa orðið fyrir skothríð
óþekktra launsátursbófa á af-
skekktum þjóðvegi nærri An-
kara.
Snáksendingin er síðasta
merki þess að hryðjuverkamenn
eru nú að gera tilraunir með ný
ógnarbrögð. Nýlega varð það
verkamanni að aldurstila að
hann kveikti í sígarettu, sem
útbúin hafði verið með sprengi-
efni.
Kýpur og hellenskri menningu í
voða og höggvið að rótum ríkisins.
Ekki er vitað til að óeirðir hafi
orðið eftir að ákörðunin var
kunngerð.
I annarri tilkynningu forsetans
kom fram að samblástur útlendra
sem innlendra aðila til höfuðs
stjórninni hefði mistekizt og að
forsetinn myndi ávarpa þjóðina í
sjónvarpi næstkomandi miðviku-
dag. Það vakti hins vegar athygli
að ríkisstjórnin lét undir höfuð
leggjast að tilkynna handtökur eða
aö styðja samsærisásakanir rök-
um. Var þess m.a. krafizt í blöðum
á Kýpur að sökudólgarnir yrðu
teknir höndum og þeim refsað
tilbærilega.
ERLENT
Veður
víða um heim
Amsterdam 18 skýjaó
Apena 35 bjartvióri
Berlín 15 skýjaó
BrUssel 19léttskýjað
Chicago 28 bjartvióri
Frankfurt 22 skýjað
Gent 25 léttskýjað
Helsinki 14 rigning
Helsinki 14 rigning
Jóh.b. 16 léttskýjaó
Kaupmh. 17 skýjaó
Lissabon 32 léttskýjað
London 21 léttskýjaó
Los Angeles Madríd 32 bjartvióri
40 léttskýjaó
Malaga 24 heióskírt
Miami 30 rigning
Moskva 23 bjartvióri
New York 23 rigning
Ósló 18 léttskýjað
Palma, Majorca 26 léttskýjaó
París 23 skýjað
Reykjavík 10 alskýjaó
Róm 31 léttskýjað
Stokkh. 17léttskýjaó
Tel Aviv 29 bjartvióri
Tokýó 31 bjartviðri
Vancouver 18 skýjað
Vfn 22 hélfskýjaó
Kommúnist-
ar í forsæti í
San Marino
líklegur til að taka við af
Leonid Brezhnev, leiðtoga
Sovétríkjanna, lézt í dag úr
hjartaslagi. Hann var
sextugur að aldri.
Kulakov var einn fjórtánmenn-
inganna í stjórnmálaráði
Sovétríkjanna, en stjórnmálaráðið
fer með æðstu völd í Sovétríkjun-
um.
Tass skýrði svo frá að Kulakov
hefði þjáðst af krónískri lungna-
bólgu. Hann sást síðast opinber-
lega fyrir tæpum tveimur vikum,
en þá sat hann fund hjá æðsta
ráðinu.
Fráfall Kulakovs hefur enn
orðið til þess að erfiða vestrænum
stjórnmálaskýrendum að spá hver
verði næsti formaður
kommúnistaflokksins og þá um
leið leiðtogi Sovétríkjanna.
Líklegastir nú eru taldir þeir
Vladimir Shcherbitsky og Grigory
Romanov, en þeir eru báðir yngri
en Kulakov. Þá er núverandi ritari
kommúnistaflokksins Andrei
Kirilenko einnig talinn koma til
greina, en hann er mun eldri en
hinir tveir, eða 71 árs að aldri.
San Marino 17. júlí. Reuter.
EINA stjórn Evrópu, þar
sem kommúnistar eru í
forsæti, tók við völdum í
San Marino í dag. Stjórnin,
sem er samsteypustjórn
kommúnista og sósíalista,
var mynduð 28. júní, mán-
uði eftir almennar þing-
kosningar í ríkinu.
Kommúnistaflokkur San
Marino er á sömu línu og
ítalski kommúnistaflokkur-
inn og aðrir kommúnista-
flokkar Vestur-Evrópu.
Hefur flokkurinn lýst því
yfir að hann sé með öllu
óháður stjórninni í Moskvu.
Síðast fóru kommúnistar
með völd í ríkinu árið 1957,
en þeir voru hraktir frá
völdum í blóðlausu valda-
ráni.
Stjórnarsamvinnan í San
Marino er af mörgum talin
vera prófsteinn á það hvort
sams konar samvinna gæti
gengið á Ítalíu, en San
Marino er lítið ríki innan
landamæra Ítalíu.
Ný sjón-
varpsstöð í
Bretlandi?
BREZKA blaðið „The
Observer" greinir frá því á
sunnudag að brezka stjórn-
in muni mæla með fjórðu
sjónvarpsstöðinni í Bret-
landi í hvítbók, sem birta á
í næstu viku. Sjónvarpsstöð
þessi mun verða styrkt með
opinberu fé og auglýsingum.
Sjónvarpsstöðin nýja segir blað-
ið að muni að öllum líkindum lúta
stjórn sérstaks ráðs, sem kallað er
„open Broadcasting Authority".
Mun stöðin reka sína eigin frétta-
þjónustu og birta efni hvaðanæfa
að.
Timman
og Ribli
í forystu
Amsterdam, 16. júll. Reuter.
HOLLENDINGURINN
Jan Timman var efstur
ásamt Ungverjanum
Zoltan Ribli, þegar þrjár
umferðir höfðu verið
leiknar á IBM skákmót-
inu í flokki stórmeistara.
I þriðju umferð skák-
mótsins, sem tefld var á
laugardag, gerði Ribli
jafntefli við landa sinn
Adorjan, en Timman
vann Bandaríkjamann-
inn Walter Browne og
var það eina vinnings-
skákin í umferðinni.
í stórmeistaraflokki
var því staðan þessi: Ribli
og Timman höfðu tvö og
hálfan vinning, Adorjan,
Dzindzhindashvili og
Ljubojevic tvo, Langeweg
og Anderson, einn og
hálfan, Nikolac og Hort
einn og biðskák, Miles,
Romanishin, Ree og
Pfleger einn en Browne
rak lestina vinningslaus.