Morgunblaðið - 30.07.1978, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR
162. tbl. 65 árg.
SUNNUDAGUR 30. JÚLÍ 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Hnakkrifist um
Kúbu í Belgrad
Belgrad — 29. júlí — Keuter.
BÚIST var við að fundur utanríkisráðherra hlutlausra ríkja í Belgrad
endaði í dag og stóð þegar síðast spurðist styr um rétt Kúbumanna til
áframhaldandi veru í samtökunum sökum hernaðaríhlutunar þeirra f
Afríku.
Það voru Sómalir, sem formlega báru fram uppástungu þess efnis að
Kúbu yrði vísað úr samtökunum. Studdu þeir tilmæli sín þeim rökum að
Kúbumcnn hefðu verið verkfæri Sovétmanna. Kambódíumenn. sem krafist
hafa að Vfetnömum yrði vfsað úr samtökunum. liggja hins vegar undir
ákúrum frá Hanoi fyrir að vera handbendi Kínverja og e.t.v.
Bandaríkjastjórnar einnig.
Til harðra orðaskipta kom á
ráðstefnunni í gær, er Sómalir helltu
úr skálum reiði sinnar vegna stuðn-
ings Kúbu við Eþíópíuher í Ogaden-
stríðinu. Hlaut málflutningur þeirra
óskiptan stuðning Egypta og
Marokkó og sendimenn Zaire sögðust
engan veginn mundu sækja fyrir-
hugaðan fund samtakanna í Havana
á næsta ári því það jafngilti því að
vera gestur Moskvuyfirvalda. Utan-
ríkisráðherra Kúbu, Isidoro Malmi-
erca, svaraði því hins vegar til að
land sitt hefði komið Afríkuríkjum
þeim til hjálpar, sem höllum fæti
stæðu vegna tangarsóknar heims-
valdasinna. Studdu sendimenn
Mosambique Malmierca eindregið og
kváðu andróður vissra afla gegn
Havanafundinum sprottinn af hatri
og til þess eins ætlaðan að rugla
aðildarríkin í ríminu.
Á fundinum í Belgrad, sem 84
þjóðir standa að, hefur mikið verið
rætt hvort Kúbumenn aðhyllast
„yfirráðastefnu" eða hvort andstæð-
ingar þeirra séu málpípur „nýlendu-
eða heimsvaldastefnu". Hin opinbera
kínverska fréttastofa „Nýja Kína“
komst svo að orði í dag að Kúba væri
„Trójuhestur" Sovétmanna í samtök-
um hlutlausra ríkja.
Benedikt Gröndal á leið til forseta íslands til þess að skila umboði sínu til
stjórnarmyndunar klukkan rúmlega 11 í gær.
Sjá frétt á baksíðu — Ljósm.i ól.K.M.
Portúgalsleiðtogar
vilja þingkosningar
Lissabon — 29. júlí — Reuter.
LEIÐTOGAR fjögurra stærstu
stjórnmálaflokka f Portúgal hafa
hreyft þeim möguleika að efna til
almennra þingkosninga f þvf skyni
að binda enda á núverandi stjórnar
kreppu.
Loftbelgsfararnir
í Brest í kvöld?
BRETARNU. tveir sem ætla sér
að verða f/rstir manna til að
fljúga yfii' Atlantshafið f loft-
belg, vovu í dag sagðir vera
staddir um 384 kílómetra norð-
vestur af Frakklandi og vonuðust
þeir tíl að lenda á Bretagneskaga
seint f kvöld.
Flugumferðarstjórar brezka
flughersins í Plymouth hafa verið
í stöðugu loftskteyasambandi við
Bretana, Donald Cameron og
Christopher Davey og að sögn
flugumferðarstjóranna ætti loft-
belgurinn að lenda skammt frá
Brest. Þá var veður sagt vera gott,
en flugumferðarstjórarnir vöruðu
við of mikilli bjartsýni, þar sem
veður eru válynd á þessum slóð-
um.
Talsmaður flugkappanna, John
Mansell, sagði að þeir væru
útkeyrðir af þreytu, hefðu aðeins
sofið þrjár klukkustundir síðustu
nótt og enn skemur næstu
næturnar tvær á undan.
Bretarnir lögðu af stað frá
Nýfundnalandi á miðvikudag.
Antonio Ramalho Eanes forseti
hitti f gær leiðtogana fjóra að máli
og ræddi við þá leiðir til myndunar
ríkisstjórnar, sem leyst gæti sex
mánaða gamla stjórn dr. Mario
Soaresar af hólmi. Búist var við að
forsetinn héldi könnunarviðræðum
sfnum áfram f dag og kæmi þá m.a.
að máli við foringja Almennu
iýðræðissamtakanna, öfgasinnaðs
vinstriflokks, en einnig leiðtoga
verkalýðsfélaga, iðngreina og land-
búnaðar.
Formaður sósíaldemókrata,
Francisco sa Carneiro, skýrði frá því
í dag að hann hefði hvatt Eanes
forseta til að kalla þing saman að
bragði og undirbúa þingkostningar
við fyrsta tækifæri. Portúgalska
þingið, þar sem enginn einn flokkur
hefur óskoraðan meirihluta, er í
sumarleyfi fram í október. Sa
Carneiro kvaðst vona að nýr for-
stæisráðherra yrði útnefndur í
næstu viku til að mynda níundu
ríkisstjórnina frá stjórnarbylting-
unni 1974.
Leiðtogi miðdemókrata, Diogo
Freitas do Amaral, kvað flokk sinn
ekkert hafa við kosningar að athuga,
þrátt fyrir óhagræði sem af þeim
kynnu að stafa í tilraunum vald-
hafa til að rétta við efnahag
landsins.
Kommúnistaleiðtoginn Alvaro
Cunhal gat þess einnig að kosningar
kynnu að vera lausnin tækist ekki að
ná meirihluta fyrir starfhæfa ríkís-
stjórn með öðrum hætti. Upplýs-
ingaráðherra jafnaðarmanna, Jao
Gomes, sagði fréttamönnum í vik-
unni að hann eygði engan valkost
annan en þingkostningar.
Féll 17hæðir
ogklessti bíl
New York — 29. júlí — AP.
HÁLFFERTUG kona féll a
sautjándu hæð háhýsis
Brooklyn í dag og klessti yfii
byggingu jeppabifreiðar í lenc
ingu. Konan, sem vegur meir
en 100 kíló, lifði af og va
málhress er lögregiuþjónar bií
uðu við að ná henni úr flakini
Enginn hefur gefið skýringu
hvernig konunni, Victoriu Larc
auðnaðist að sleppa með lítil
háttar meiðsli.
Ongþveiti í
flugumferð
París, 29. júlí — Reuter
MIKIÐ flugumferðaröngþveiti
ríkti á flugvöllum í Vest-
ur-Evrópu í dag, vegna þess að
flugumferðarstjórar í Frakk-
landi „fóru sér hægt“. Flugum-
ferðarstjórarnir hafa sagt að þeir
muni halda áfram uppteknum
hætti fram á mánudagsmorgun.
Tugþúsundir farþega reikuðu
um flugstöðvarbyggingar á öllum
helztu flugvöllum Vestur-Evrópu
og biðu þess að þeir kæmust „í
Jafntefli
Baguio. Filippseyjum, 29. júi(. Reuter.
ANATOLY Karpov og Viktor
Korchnoi sömdu í dag um
jafntefli í sjöttu einvígisskák
þeirra um heimsmeistaratitilinn
f skák. Þetta er fimmta skák
þeirra, sem lýkur með jafntefli,
en biðskák þeirra úr fimmtu
umferð verður tefld á morgun.
Báðir keppendurnir voru mjög
varkárir og eftir 23 leiki var
jafnteflið staðreynd. Heims-
meistarinn, Karpov, hafði hvítt í
skákinni. Sjá nánar bls 2.
loftið“. Sumir þurftu að bíða allt
upp í 15 klukkustundir eftir
flugfari, öðrum var sagt að flugið
hefði fallið niður.
,Sú ákvörðun frönsku flugum-
ferðarstjóranna „að fara sér hægt"
er tilkomin vegna þess að þeir
telja að þeir hafi of mikið að gera
og telja sig ekki geta annað öllum
verkum sínum. Þá krefjast þeir
einnig hærri launa og betri
vinnuskilyrða.
Morgunblaðið sneri til Arnar Ó.
Johnsons, eins af forstjórum
Flugleiða, og spurði hann hvort
uppátæki frönsku flugumferðar-
stjóranna hefði einhver áhrif á
flug flugfélagsins. Örn kvaðst ekki
telja svo vera, það væri einna helzt
að sólarlandaflug félagsins færi
eitthvað úr skorðum.
Hjá flugumferðarstjórn fékk
Mbl. þær upplýsingar að seina-
gangur flugumferðarstjóranna
bitnaði aðallega á flugi innan
Evrópu, en ekki Atlantshafsflugi.
Væri því ólíklegt að einhverjar
breytingar yrðu á flugi Flugleiða
til staða í Norður-Evrópu, en hins
vegar gætu sólarlandaflugáætl-
unin eitthvað breytzt.