Morgunblaðið - 19.09.1978, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 1978
15
Kjötið til Frakklands:
Framhaldið ræðst af
samningum um verð og
niðurfellingu tolla
..ÞESSI flutninKur á kjötinu til
Parísar gekk' í alla staði hið besta
og samkvæmt þeirri reynslu. sem
við fengum af þessu.t er séð að
tæknilega á ekkert að vera í
veginum fyrir því að halda
þessum flutningum áfram en hins
vegar kann framhaldið að ráðast
af þvf hvernig tekst að semja við
Frakana um verð og hugsanlega
niðurfellingu á aðflutningstoll-
um." sagði Jón R. Björnsson.
starfsmaður Markaðsnefndar
landbúnaðarins. sem um helgina
kom heim eftir að hafa fylgst með
sendingu á ófrosnu kjöti héðan til
Kaupmannahafnar og Parísar.
Kjötið. sem fór til Frakklands.
var að sögn Jóns sent frá París til
Suður-Frakklands og höfðu ekki í
gær borist fréttir af þvf hvað
hefði fengist fyrir það þar.
Kjötið. sem fór til Kaupmanna-
hafnar líkaði vel og er nú verið að
semja um hugsanlegt framhald á
útflutningi fersks kjöts þangað.
Jón sagði að Frakkarnir hefðu
verið mjög ánægðir með gæði
kjötsins og hrósað slátrun hér. Þá
hefðu umbúðirnar staðið sig og
engin vandræði hefðu komið upp
við flutning á kjötinu. Aðspurður
um framhald á þessum flutningum
fersks kjöts til Frakklands sagði
Jón að það kæmti til með að ráðast
af því hvort unnt væri að fá
felldan niður þann 20% innflutn-
ingstoll, sem er á kjötinu, auk
'þess, sem Frakkarnir væru með
sérstakan verndartoll sem væri
breytilegur á hverjum tíma eftir
ástandi markaðarins og væri hann
nú kominn upp í 7,65 franka á
hvert kíló og þá fengjust innan við
7 frankar cif í París.
Varðandi flutninga á fersku
kjöti til Danmerkur sagði Jón að
þeir flutningar hefðu í alla staði
gengið vel og sala á kjötinu hefði
hafist með því að einn dilkakjöts-
skrokkurinn var grillaður inni í
verzlun IRMA-fyrirtækisins, sem
keypti kjötið, og forráðamenn
fyrirtækisins síðan setzt að snæð-
ingi. Framhaldið væri undir því
komið hvernig tækist að semja um
verð fyrir kjötið en þeir samningar
væru nú í höndum Búvörudeildar
SÍS en hins vegar hefðu Danirnir
lýst áhuga sínum á að framhald
yrði á þessum kaupum.
Bridge
Úmsjón: ARNÓR
RAGNARSSON
Tafl- og
bridgeklúbburinn
Keppnisstaður: Domus Medica.
Keppnisstjóri: Agnar Jörgensen.
21. sept. Aðaltvímenningur
TBK.
28. sept. Aðaltvímenningur
TBK.
5. okt. Aðaltvímenningur
TBK.
12. okt. Aðaltvímenningur
TBK.
19. okt. Aðaltvímenningur
TBK.
26. okt. Hraðsveitakeppni.
2. nóv. Hraðsveitakeppni.
9. nóv. Hraðsveitakeppni.
16. nóv. Hraðsveitakeppni.
23. nóv. Hraðsveitakeppni.
30. nóv. Jóla-tvímenningur.
7. des. Jóla-tvímenningur.
14. des. Jóla-tvímenningur.
AÐALFUNDUR T.B.K. var
haldinn í Domus Medica þann
11. sept. og fóru þar fram
venjuleg aðalfundarstörf. Kom
þar fram gróskumikil starfsemi
á liðnu ári. Úr stjórn félagsins
áttu að ganga Kristján Jónasson
ritari, og Ingólfur Böðvarsson,
áhaldavörður, báðust þeir und-
an endurkjöri ásamt Guðmundi
Eiríkssyni og Reyni Jónssyni, og
þakka allir félagar T.B.K. þess-
um ágætu félögum fyrir vel
unninn störf í þágu félagsins.
Stjórn félagsins er þannig
skipuð:
Eiríkur Helgason, formaður,
Bragi Jónsson varaformaður,
Guðrún Jörgensen gjaldkeri,
Sigurður Ámundason ritari,
Guðmundur Júlíusson áhalda-
vörður, varamenn Friðrik
Karlsson og Sigfús Örn Sigfús-
son.
Vetrastarfið hófst fimmtu-
daginn 14. september, með eins
kvölda tvímenningskeppni. Úr-
slit urðu þessi:
A. riðill 10 pör meðalskor 108 st.
stig
1. Sigurður Emilsson og
Albert Þorsteinsson 121
2. Vigfús Pálsson og
Runólfur Pálsson 118
3. Ingvar Hauksson og
Orvell Uteley 117
B. riðill 14 pör, meðalskor 156 st.
1. Gunnlaugur Óskarsson og
Sigurður Steingrímsson 191
2. Steinberg Ríkarðsson og
Tryggvi Bjarnason . 175
3. Hilmar Ólafsson og
Ingólfur Böðvarsson 170
Aðaltvímenningskeppni
félagsiná 5 kvölda hefst í
Domus Medica fimmtudaginn
21. september, keppnisstjóri
verður Agnar Jörgensen, sími
37023 eftir kl. 19.
Lausn kennaradeilunnar bíð-
ur heimkomu ráðherra
EFTIR þeim upplýsingum, sem
Morgunblaðið fékk í gær hjá Ólöfu
Sighvatsdóttur í menntamála-
ráðuneytinu, er deila Sambands
grunnskólakennara og mennta-
málaráðuneytisins vegna röðunar
kennara í launaflokka enn óleyst
og hafa kennarar því ekki enn
tekið kennaranema á þriðja ári
KHÍ í æfingakennslu. Ölöf sagði
að þetta mál væri í athugun í
ráðuneytinu og frekari frétta af
því væri ekki að vænta fyrr en
Ragnar Arnalds, menntamálaráð-
herra, kæmi að utan um næstu
helgi. Valgeir Gestsson formaður
Sambands grunnskólakennara
sagði að stjórn Sambandsins héldi
í dag fund og þar yrði væntanlega
ákveðið að boða til fulltrúafundar
Sambandsins til að fjalla um þetta
mál.
Bifreiðastöður langferðabíla
í íbúðahverfum bannaðar?
ALBERT Guðmundsson hefur í
borgarráði Reykjavíkur lagt fram
tillögu um að frá og með 1. janúar
næstkomandi verði bann lagt við
stöðu langferðabifreiða, bæði
vöruflutningabíla og stærri fólks-
flutningabíla, í íbúðahverfum
borgarinnar. Bannið nái einnig til
vinnuvéla. Borgarráð samþykkti
að vísa tillögunni til umferðar-
nefndar, en tillagan gerði einnig
ráð fyrir að nefndin gerði tillögu
um stærðir þeirra bifreiða og
vinnuvéla, sem bannið næði til.
Boðið í á uppboði yíir íslenzka dýrasafninu.
r
Islenzka dýrasafnið
fór á 5 millj. kr.
UPPBOÐ á dýrum íslenzka
dýrasafnsins fór fram í
Tollstöðinni í Reykjavík á
laugardag og seldust dýrin
fyrir rúmar 5 millj. kr. Að
sögn Jónasar Gústavssonar
hjá borgarfógetaembætt-
inu, þá voru flest dýranna
slegin sama aðilanum frá
Selfossi, en alls keypti
hann fyrir 3.2 millj. kr.
Síðan keyptu einstaklingar
fyrir um 2 milljónir króna.
Það var Páll Lýðsson,
sem keypti fyrir Selfyss-
ingana, og er ætlunin að
koma dýrunum fyrir í
safnahúsinu þar.
Þessar þrjár
skáldsögur IndriÖaG.
Þorsteinssonar eiga
þaö sameiginlegt m.a.,
að þœr gerast allar á
mestu umbreytinga-
tímum sem yfir
íslendinga hafa
gengið og á þeim
sviÖum þar sem
mestu breytingarnar
áttu sér staÖ.
Land og synir
er hér fyrst i tímanum og gerist í sveitinni fyrir stríðið þegar
heimskreppa og lífsskoöun nýrra tíma nagar þúsund ára rætur
íslenzks bændaþjóöfélags.
Norðan við stríð
fjallar um hernámsárin og sýnir hvernig stríðið umturnar hinu
kyrrláta og formfasta lífi, breytir hægum skrefum í kapphlaup og
sjálfsöryggi borgarans í stríðsgróöafíkn.
Sjötíu og níu af stöðinni
er í rauninni eftirleikur breytinganna, fjallar um líf hins unga
sveitamanns í borginni árin eftir stríöið, baráttu hans þar og
vonbrigði. Hann reynir aö snúa til baka, en það mun aldrei takast.
Almenna bókafélagið
Austurstræti 16 — sími 19707
Skemmuvegi 36, Kópavogi — Sími 73055.