Morgunblaðið - 19.09.1978, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 19.09.1978, Blaðsíða 26
30 MORGU'NBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 1978 Minning: Jón A rnfinnsson garðyrkjumaður Fa-ddur 1G. janúar 1900. Dáinn 11. septembcr 1978. Jón Arnfinnsson, garðyrkju- maður er látinn. Hann fæddist 16. janúar árið 1900 að Lambadal í Dýrafirði og var því 78 ára að aldri, er hann hné í valinn. Foreldrar Jóns voru hjónin Arnfinnur bóndi í Lambadal og á Dröngum í Dýrafirði Jónssonar bónda á Kirkjubóli í Bjarnadal í Önundarfirði og Ingibjörg Sigur- línadóttir bónda í Botni í Dýra- firði. Stóðu að Jóni vestfirzkir ætt- stofnar og bar hann mjög svipmót ættmenna sinna og þeirra góðu áhrifa, er hann naut á uppvaxtar- árunum í föðurgarði og við móður- kné. Snemma mun hafa komið í ljós, að hinn ungi sveinn bæri í brjósti þrá til þess að fræðast og afla sér menntunar og áhugi hans beindist fljótt að öllu lífi í náttúrunni. Blóm og grös urðu virktarvinir Eiginmaöur minn ELÍAS KRISTJÁNSSON, Kleppsvegi 52, er látinn. Hallfriöur Jónasdóttir. t Eiginmaöur minn og faöir okkar, GRÍMUR ÁSMUNDSSON, Neöra-Apavatni, lést hinn 14. september. Útförin fer fram frá Stóru-Borgarkirkju, fimmtudaginn 21. september kl. 14. Jarðsett veröur að Mosfelli. Ingibjörg Ebba Magnúadóttir, Sigurbjörg Grímsdóttir, Magnús Grímaaon, Guörún Áaa Grímadóttir, Sigurlín Grímadóttir. t Konan mín og móðir okkar, / BRYNDÍS BOGADÓTTIR, Langholtavegí 85, lést í Borgarspitalanum 15. sept. s.l. Sigurjón Á. Siguröaaon og börn. Ástkær dóttir okkar INGIBJORG SOLVEIG HLÖDVERSDÓTTIR lést af slysförum laugardaglnn 16. sept. Birna Júlíuadóttir, Hlööver Oddaaon. t Eiginmaöur minn, SVEINBJÖRN KLEMENZSON. vélatjóri, andaöist aö heimili sínu, Sólbaröi, Bessastaöahreppi 14. september. Margrét Sveinadóttir. t Eiginmaöur minn, HELGI KRISTINSSON, Vallargötu 31, Keflavík, veröur jarösettur frá Keflavíkurkirkju miövikudaginn 20. sept. kl. 13.30. Inga Nielaen og fjölakylda. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúð og vináttu viö andlát og útför eiginmanns míns og fööur okkar GUNNARS SIGURJÓNSSONAR málara Jórufellí 2. Hildigunnur (Stella) Gunnaradóttir, Gunnar Gunnaraaon, Kriatinn Gunnaraaon, Anna Gunnaradóttir, Áadía Gunnaradóttir, hans og undi hann sér löngum meðal þeirra og við íhugun á öllu er fyrir augu bar í náttúrunni. Á uppvaxtarárum hans stofnaði séra Sigtryggur Guðlaugsson á Núpi skólann þar og veitti hollum menningarstraumum um héraðið og efldi menntaþrá ungmenna þar og víðar. Árið 1916 fer Jón í skólann að Núpi og naut þar handleiðslu, fræðslu og leiðsagnar sr. Sigtryggs og samstarfsmanna hans um tveggja vetra skeið eða skólaárin 1916—1918. Að námi loknu í Núpsskóla gerðist Jón að áeggjan og að tilstuðlan sr. Sigtryggs heimiliskennari í Mýraskólahéraði í Dýrafirði á árunum 1918—1920 en þá um haustið hóf Jón nám í Samvinnuskólanum í Reykjavík og sat þar skólaárin 1920—1922. Báðar þessar skólagöngur veittu honum gott veganesti og urðu honum notadrjúgar á æfinni. Var hann síbyggjandi á þann grunn, sem þarna var lagður á þroskaár- um hans, sem ásamt meðfæddum hæfileikum auðveldaði honum öll störf, sem hann tók að sér þó ríkust væru í huga hans ræktunar- störfin, tengslin við móður jörð, grös hennar og blóm, ræktun hennar og virðing fyrir sköpunar- mætti hennar. Árin 1930—1931 var Jón kennari í Hálsaskólahéraði í Borgarfirði og mun honum hafa farið það einnig vel úr hendi, því rík var hneigð hans til fræðslu annarra og leiðbeiningar þeim sem vildu fræðast. Hinn ríki áhugi hans á allri ræktun, gróðri og blómskrúði og fjölbreytilegu lífi í náttúrunni olli því að hann hóf nám í garðyrkju hjá Einari Helgasyni í Gróðrar- stöðinni við Laufásveg og síðar meir sótti hann enn frekara nám í garðyrkjustörfum, er hann sótti námskeið í þeirri grein í Englandi og Danmörku á árunum 1932 — 1934. Stundaði hann síðan garðyrkju- störf, sem aðalstarf um æfina og margan garðinn hefur hann ann- ast, sáð til margra blóma og jurta, eigendum garðanna til yndis og ánægju og sjálfum sér til fróunar í starfi við rækt og annarri virkt við lífmyndir móður jarðar. Aukið þátt í æfistarfið einnig með því að kenna öðrum og segja til um hversu skyldi farið með og hlúð að. Nærgætni og alúð, næmt skyn fyrir öllu lífrænu og vaxtarbrodd- um þess lífs, sem náttúran skreyt- ir sig með, blómabeðum, grasteig- um, fuglum sumarsins, hljómhviðu vorlífsins veitti honum unað og sælukennd. Hann undi sér vel í kyrrð og ró friðsællar óspilltrar náttúrunnar og var sívökull varð- maður hennar, sem heyrði jafnvel grösin gróa, svo samhljóma var hann allri náttúrunni. Vinur alls þess, sem fagurt var í náttúrunnar ríki og gekk oft á vit hennar sér til ánægju og endurnæringar. Átti vini um holt og móa og í klettaborgum. Orti um það frá- sagnir og lifði sig inn í þá huldu heima, sem hann einn sá og naut, sem hann, ungur drengur kynntist heima í þröngum dal vestur í Dýrafirði, svo sem segir í smá- sögusafni hans „Úr huldum heimi", sem útkom 1952. Fleiri smásögur birtust eftir hann í tímaritum og ýmsar greinar þar og í blöðum um íslenzka náttúru, töfra hennar og yndi. Jón var meðalmaður á hæð. Samsvaraði sér vel, sívalur á vöxt og nokkuð þykkur undir hönd. Kvikur í spori, eilítið smástígur, léttur og hlýr í viðmóti. Ræðinn var hann og aldrei skorti hann umræðuefni, enda áhugamálin rík í huga hans og hann hafði þörf fyrir að miðla öðrum af þekking sinni og reynslu. Allt satt, gott og fagurt átti hug hans óskiptan, hvort sem hann naut þess hið innra með sjálfum sér eða var honum augnayndi. Nú er þessi nærgætni vinur blóma og grasa, hollvinur móður náttúru og alls þess, sem hrærðist í hennar ríki, horfinn. Hann fölnaöi á áliðnu sunri, þegar vinir hans, blómin og grösin, byrja að taka á sig haustlitina og sól hnígur vestur. Ný störf bíða hans á grænum grundum þar sem vinir bíða í varpa og taka á móti honum og leiða hann sælan í lundum nýrra heima í eilífðarskini alls þess, sem fagurt er og gott. Mikiðgæfuspor var það Jóni, er hann kvæntist eftirlifandi konu sinni, 16. janúar 1936 Guðbjörgu Kristinsdóttur Kjartanssonar smiðs á Bíldudal og Reykjavík og Svanfríðar Jónsdóttur Eiríkssonar íshússtjóra á Bíldudal. Guðbjörg er kona mikillar gerð- ar, hreinskiptin og stórbrotin drengskaparkona, sem bjó manni sínum og dætrum bjart og hlýtt heimili að Baldursgötu 4, þar sem Ingimunda Guðmunds■ dóttir - Minningarorð Fædd 31. októbcr 1897 Dáin 10. september 1978 I dag, 19. september, verður borin til hinstu hvílu Ingimunda Guðmundsdóttir, Urðarstíg 7a, er lést að Hrafnistu 10. þ.m. Ingimunda fæddist 31. 10. 1897 að Kambi í Holtum. Foreldrar hennar voru hjónin Guðfinna Sæmundsdóttir húsfrú og Guð- mundur Árnason bóndi í Kambi. Ingimunda var önnur í röð fimm systkina en þau voru: Katrín og Guðfinna sem báðar eru látnar, Árni búsettur í Reykjavík og Jóhann er lést í bernsku. Auk þeirra var Guðrún Runólfsdóttir alin upp í Kambi sem eitt systkin- anna. Guðrún lifir enn í hárri elli. Ingimunda vandist snemma á að taka til hendi við margvísleg störf bæði utan húss og innan. Gekk hún til útiverka með föður sínum og mynduöust þá þau sterku bönd miili þeirra er héldust meðan bæði lifðu. Um tvítugsaldur flutti Ingi- munda til Reykjavíkur. Var hún fyrstu árin við heimilisstörf á ýmsum stöðum. Er. foreldrar hennar brugðu búi fluttust þau til Reykjavíkur og reistu sér hús að Urðarstíg 7a. Fór þá Ingimunda til þeirra og bjó þar til æviloka að undanskildum fjórum síðustu ævi- árum sínum er hún dvaldist að Hrafnistu. Er Guðfinna syStir hennar giftist, reisti hún ásamt manni sínum efri hæð hússins að Urðar- stíg 7a. Þó að íbúðirnar væru nú tvær var það sem eitt heimili. Kærleikar miklir voru með þeim systrum alla ævi og reyndist Ingimunda þeim hjónum sönn hjálparhella og börnum þeirra var hún sem önnur móðir. Er við frænkurnar sátum við dánarbeð Mundu komu upp í hugann minningar liðinna ára, ljúfar minningar um góða konu, sem helgaði sínum nánustu alla krafta sína. Starfsþrek og vinnu- geta Ingimundu var með ólíkind- um. Gekk hún til ýmissa starfa sem mörgum meðalmanni hefði reynst ofviða. Reyndist hún heil og óskipt í starfi og daglegu lífi. Er litið er til baka minnumst við hve oft var gestkvæmt á Urðar- þau bjuggu allan sinn búskap. Dætur þeirra eru Kristín Bergljót, gift Helga Sigvaldasyni verkfræð- ingi, og Arndís, ekk'ja Karls heitins Guðmundssonar viðskipta- fraeðings. Guðbjörgu frænku minni og dætrum hennar sem og öllum öðrum aðstandendum sendum við hjónin kveðjur hluttekningar og samúðar. Megi minningin um góðan dreng ylja þeim um ókomin ár. Baldur Eiríksson. Það varou dapurlegar fréttir sem biðu okkar systranna er við komum heim úr skólanum mánu- daginn 11. september. Hann afi var dáinn, en hann varður til moldar borinn í dag. Afi okkar, Jón Arnfinnsson, var fæddur og uppalinn í Dýrafirðin- um í fallegu umhverfi og hafði hann alla tíð síðan miklar mætur á náttúru landsins. Stundaði hann nám í héraðsskólanum á Núpi og síðar í Samvinnuskólanum en náttúran og fegurð hennar heill- uðu hann og lagði hann um síðir leið sina til Danmerkur og Eng- lands þar sem hann stundaði nám í garðyrkjuskólum. Mikla ánægju hafði afi af ferðalögum um landið og vorum við systurnar ekki háar í loftinu þegar hann fór að leyfa okkur að koma með sér í slíkar náttúru- skoðunarferðir. Nutum við þess óspart að tölta með honum um holt og móa, setjast síðan niður á eina þúfuna og láta hann fræða okkur um hinar ýmsu jurtir og annað sem fyrir augu bar. Frá- sagnargleðin var afa líka í blóð borin og nutum við þess í ríkum mæli. Það var heldur ekki óalgeng sjón, þegar ekið var eftir Baldurs- götunni, að sjá afa sitja á tröppunum á húsi númer fjögur með hóp af börnum í-kringum sig. Börnin í hverfinu sóttu ákaft í það að heyra sögurnar hans afa og ekki ósjaldan laumaði hann sætum mola í munna þeirra. Litlu fuglarnir í hverfinu nutu líka góðvildar hans, því að á veturna gætti hann þess vel að alltaf væri fæða fýrir þá á blettinum í garðinum bak við húsið. Oft mátti sjá þar hópa af fuglum að snæðingi þegar'Htið var um fæðu að fá. Afi var mikill trúmaður þótt hann talaði venjulega ekki mikið um slík mál. Hann treysti Guði sínum af öllu hjarta og var öruggur um það hvað við tæki handan móðunnar miklu. I hryggð okkar í dag þökkum við algóðum Guði fyrir að hafa fengið að njóta samfylgdar með svo góðum afa, því betri afi en hann var er vandfundinn. Blessuð sé minning hans. Allý og Ilelga. stígnum og áttu ýmsir þar sitt annað heimili. Var það ekki síst Mundu að þakka. Ingimunda var annáluð hann- yrðakona og eiga ættingjar hennar margir hverjir ýmsa hluti er bera vott um fallegt handbragð hennar. Með þessum fátæklegu orðum viljum við þakka elsku Mundu alla þá ástúð og hjálpsemi sem hún sýndi okkur og okkar fólki. Við kveðjum hana með þeirri vissu, að nú líði henni vel í hópi ástvina sinna. Guðfinna Inga Guðmundsdóttir Rósa Maria Guðmundsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.