Morgunblaðið - 19.09.1978, Síða 16

Morgunblaðið - 19.09.1978, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 1978 Blaðamenn Mbl. voru á Grensásdeild Borgarspítalans er Þar var verið aö undirbúa göngu Þá sem fatlaðir efna til í dag, og ræddu Þeir við tvo sjúklinganna, Þá Steinunni Bjarnadóttur og Óskar Benediktsson. „Fólk nœr hér miklum framförum ástuttum tíma” Stcinunn Bjarnadóttir. STEINNUNNI Bjarnadóttur hittum við einnifí á Grensás- deildinni. Steinunni fannst hún ekki vera rétta manneskjan til að tala við. „Ég er ekkert fötluð eins og þið -sjáið, éf; er bara hér vegna brjóskloss í baki, en það er einnig verið að reyna styrkja annan handlegginn og rannsaka hann. Ég hef verið hér í 6 mánuði, mun lengur en áætlað var, og ég veit ekki hvenær ég fer héðan. Ætli maður verði bara ekki að lifa með handlegg- inn hálf lítilfjörlegan." Ætlar þú að taka þátt í jafnréttisgöngunni? „Já, og ég held að þátttakan verði mjög almenn. Mér finnst, að fatlaðir eigi að njóta sömu réttinda og aðrir en ekki meira. Hér hafa t.d. verið drengir sem eru svo mikið lamaðir að þeir geta ekki einu sinni unnið með fingrunum. Þeir fá því inni í Hátúni og verða náttúrulega að borga fyrir sig með örorkubót- unum. En það sem mér finnst verst er hvað hlutirnir eru seinir að fara af stað í kerfinu, einkum í sambandi við bifreiðaslys. Það er ekki neitt sem getur létt undir með fólki þangað til það fær út úr tryggingunum en það getur oft tekið mjög langan tíma. Það vantar eitthvað þarna á milli.“ Hvernig hefur þú komist af fjárhagslega? „Ég er nú fráskilin og á mörg börn svo þetta hefur verið nokkuð erfitt, en börnin hafa bara tekið þessu nokkuð vel. Ég hafði unnið hjá ríkinu nokkuð lengi og fékk þess vegna fullt kaup fyrstu 3 mánuðina en ‘/2 kaup næstu þrjá. Svo vona ég bara að ég fari að geta unnið sjálf hvað úr hverju.“ Hvernig er andrúmsloftið á stofnun eins og Grensásdeild- inni? „Það má hrósa þessari stofn- un mikið og það er alveg sérstakt fólk sem vinnur hér. Það drífur mann áfram með festu og er ákveðið — maður verður að hjálpa sér sjálfur. Það eru mjög góðir þjálfarar hér. Við höfum einnig kvöldvökur á fimmtudagskvöldum og þang- að hafa komið ýmsir skemmti- kraftar og skemmt okkur en ekki tekið neitt fyrir það. Það er alveg óskapleg upplyfting fyrir fólk sem ekkert kemst. Það talar um það alla vikuna. Það sem hefur haft mestu áhrifin á mig síðan ég kom hingað er að sjá hversu fólk fær mikinn bata á stuttum tíma,“ sagði Steinunn að lokum. „Það eina sem við getum látið á móti hinni góðu umönn- un er bjartsgni. ” Óskar Benediktsson Á Grensásdeild Borgarspítal- ans dvelst maður að nafni Oskar Benediktsson. Óskar var skorinn upp við brjósklosi báðum megin hryggjar fyrir 6 mánuðum og hefur nú verið á Grensásdeild- inni í 5 mánuði eftir eins mánaðar legu á Borgarspítalan- um. ( „Þegar ég var skorinn upp var ég lamaður frá mitti og niður úr að aftanverðu. Brjósklosið var vegna gamalla meiðsla en síð- ustu tvö árin þurfti ég mikið að vera við rúmið, yfirleitt á um tveggja mánaða fresti. Þar til allt í einu að sjúkdómurinn tóL þá stefnu að ég lamaðist. Þá var ég skorinn upp. Eftir uppskurðinn gat ég alls ekki gengið en nú get ég staulast um með eina hækju. Það er mjög gott andrúmsioft hér á Grensásdeild og fyrst maður þarf á annað borð að vera á þannig stofnun þá finnst mér maður megi þakka fyrir að hafa stofnun á borð við Grensásdeild- ina. Það reiknar aldrei neinn með því að lenda á þannig stað en þegar að því kemur þá lítur maður á hlutina frá allt öðru sjónarhorni. Það er mín skoðun að í raun og veru geti enginn sett sig inn í þessi mál án þess að hafa verið á stofnun eins og Grensásdeildinni og því finnst mér að yfirmenn heilbrigðis- mála ættu að koma og vera hér í svo sem einn dag til þess að kynnast hlutunum. Það hafa allir gott af því að koma hingað og sjá það sem fer fram innan veggja. Þetta er alveg sérstakur staður og sérstakt fólk sem hér vinnur." Hvert er þitt sjónarmið í sambandi við aðgerðir fatlaðra sem nú standa fyrir dyrum? „Fólk, sem er fatlað, gleymir kannski sinni fötlun þegar það er innan um fólk sem líkt er á komið fyrir en í raun þá finnst því það vera sett til hliðar. I sambandi við aðgerðirnar þá leggjum við áherslu á aðstæð- urnar sem langlegusjúklingar og fatlað fólk býr við. Það vantar til dæmis ennþá sund- laug hér á Grensásdeildina og við verðum að fara í sundlaug- ina við Háaleitisbraut eða á Hótel Loftleiðum. Það þarf einnig að skapa vinnuaðstöðu handa fólki sem er fatlað t.d. er það tilvalið fyrir fólk í hjólastólum að vinna skrifstofustörf en það eru ekki aðstæður fyrir hendi á venjuleg- um skrifstofum." Hefur þú hugsað um hvað þú munir taka þér fyrir hendur þegar þú ferð af Grensásdeild- inni? „Ég var nú eiginlega spurður þessarar sömu spurningar strax og ég kom hingað. Þá gat ég aðeins gengið um 20 metra fram og til baka í göngugrind og gat því ekki svarað spurningunni þá. Ég sagði að fyrst þyrfti ég að hugsa um að endurhæfa mig og síðan hvaö ég ætlaði að gera á eftir. Við konan mín höfum talað nokkuð um þetta undanfarið og við höfum hugsað okkur að ég verði heima og hugsi um heimil- ið en hún fari út að vinna. Við eigum þrjú börn, 15 ára stúlku, 13 ára strák og 16 mánaða strák, og við höjdum að það muni koma sér betur að ég verði heima til þess að sjá um litla guttann. Við höfum haft 100 þúsund krónur á mánuði til þess að lifa af síðan ég veiktist. Ég var bílstjóri og átti sendiferðabíl en ég varð að selja hann til þess að standa við skuldbindingar svo að nú erum við bíllaus. Ég var svo barnalegur að halda þegar ég var skorinn upp að strax eftir uppskurðinn kæmi mátturinn í fæturna og lömunin hyrfi. En það var nú öðru nær. Hvernig tók fjölskyldan þess- um veikindum þínum? „Hún tók þessu bara vel. Ég var búinn. að eiga í þessu svo lengi að þetta kom henni ekkert á óvart. Það var líka best fyrir okkur að við vissum ekki hversu langvinnt þetta yrði annars hefðum við sennilega ekki hald- ið svo góðu andlegu jafnvægi." Ertu bjartsýnn á framtíðina? „Það eina sem við getum látið á móti hinni góðu umönnun sem við fáum hér er bjartsýni og ástundun við æfingar,“ sagði Óskar að lokum og fór niður í æfingaherbergið þar sem sjúkraþjálfararnir voru farnir að undrast um hann. Varnarvika gegn reykingum SAMSTARFSNEFND um reyk- ingavarnir gengst um þessar mundir fyrir upplýsingaherferð um skaðsemi tóbaksreykinga með svipuðu móti og gert hefur verið áður hér á landi. Verða birtar upplýsingar og auglýsingar í blöðum, útvarpi og sjónvarpi á vegum nefndarinnar og er þess vænst að landsmenn íhugi það vandamál, sem skapast hefur í þjóðfélaginu vegna reykinga, segir í frétt frá nefndinni. Stendur varnarvika þessa viku og lýkur henni sunnudaginn 24. september. Þá segir í frétt frá samstarfsnefndinni: Nýleg könnun borgarlæknisem- bættisins í Reykjavík á reykingum nemenda í grunnskólum borgar- innar sýndi að mjög mikil breyting hefur þar orðið á til batnaðar frá því að skipulögð fræðslu- og upplýsingastarfsemi varðandi reykingar hófst í skólunum, en mikið vantar á að hinir fullorðnu taki jafn afdráttarlausa afstöðu gegn reykingum og unga fólkið. Þorbjörg sýnir íEden Þorbjörg Sigrún Harðardóttir, opnaði málverkasýningu í Eden í Hveragerði s.l. laugardag. Þetta er önnur einkasýning Þorbjargar og sýnir hún 17 verk, unnin á s.l. tveimur árum. Verkin sem eru olíumálverk og teikningar eru öll til sölu. Sýningunni lýkur sunnu- daginn 24. september.. Námskeið í jóga FÉLAGAR úr Ananda Marga gangast fyrir námskeiði í jóga, hugleiðslu og afslöppun og verður það haldið á fimmtudagskvöldum næstu sex vikurnar og ef þörf krefur verður haldið annað nám- skeið á mánudagskvöldum. Nám- skeið þetta er ókeypis og fcu þeir, sem hafa áhuga á að taka þátt í því, beðnir að skrá sig í síma 17421 milli kl. 13 og 17 dagana 18. til 21. september. Lítil loðnuveiði: Ellefu skip með 5220 lestir LÍTIL loðnuveiði var um helgina og frá því á laugardag hafa aðeins 11 skip tilkynnt um afla. samtals 5220 lestir, og fengu flest skipanna loðnuna á laugardags- kvöld og sunnudag. Síðan hefur sáralítil veiði verið á miðunum. íslenzki loðnuflotinn er nú dreifð- ur á stóru sva“ði undan Norður- landi og Vestfjörðum og síðan á svæðinu milli Jan Mayen og Grænlands frá 70. til 71.30° N.br. Skipin, sem hafa tilkynnt um loðnuafla frá því á laugardag, eru þessi: Gullberg VE 590 lestir, Loftur Baldvinsson EA 580, Kap 2. VE 550, Hrafn GK 470, Grindvík- ingur GK 630, Keflvíkingur KE 300, Fífill GK 450, Árni Sigurðsson AK 680, Albert GK 320, Eldborg GK 430 og Bergur 2. VE 220 lestir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.