Morgunblaðið - 19.09.1978, Page 40
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 1978
STJÓRN HSÍ bauö til blaðamannafundar í gærdag og
kynnti þar ýmsar nýjungar sem verða á döfinni
varðandi handknattleikinn í vetur. A fundinum kom
meðal annars fram að allverulegar breytingar verða á
fyrirkomulagi Islandsmótsins í handknattleik varð-
andi niðurröðun leikja og tekjuskiptingu. Þá kom
fram, að samið hefur verið um hvorki meira né minna
en 45—55 landsleiki næstu tvö ár. Ljóst er því, að
íslenska landsliðið í handknattleik fær meiri verkefni
en nokkru sinni fyrr.
Þá tilkynnti nýi landsliðsþjálfarinn og einvaldur
þess, Jóhann Ingi Gunnarsson, fyrsta landsliðshópinn
sem hann velur í ár. Alls hefur Jóhann Ingi valið 22
leikmenn tii æfinga og af þeim eru 13 nýliðar.
Nýtt fyrirkomulag á
íslandsmótinu
íslandsmótið í handknattleik verður í vetur látið
ganga eins snurðulaust fyrir sig og frekast verður
unnt. Leikmenn æfa með félögum sínum, og æfa
aðeins með landsliði nokkra daga fyrir hvern
landsleik. Sagði iandsiiðsþjálfarinn, að félögin ættu
að sjá um grunnþjálfun leikmanna. Sú nýjung verður
tekin upp að aðeins einn 1. deildarleikur fer fram á
hverju kvöldi, og settir verða leikir í kvennaflokkum
og yngri flokkum með. Þá er stefnt að tekjuskiptingu
á milli félaganna eftir hvern leik, en ekki eins og
tíðkast hefur, að allt hefur farið í einn sameiginlegan
pott og gert hefur verið upp að loknu keppnistímabili.
. Þessi nýjung á eftir að fá samþykkt á ársþingi HSÍ, en
Sigurður Jónsson, formaður HSI, tjáði blaðamönnum
að öll 1. deildar félögin væru þessu sammála.
Verður þessi nýjung ábyggilega öllum ti! góðs. Ætti
þetta að ýta undir keppni milli félaga um að fá sem
flesta áhorfendur á leiki sína og fá þar af leiðandi
meiri tekjur. Þá á þetta eftir að lífga upp á
kvennahandknattleikinn og skemmtilegt verður fyrir
yngri kynslóðina að fá að leika fyrir áhorfendur.
íslandsmótið í handknattleik hefst sunnudaginn 22.
október. Þá leika að Varmá í Mosfellssveit kl. 2
nýliðarnir í 1. deild, HK og Víkingur, í Hafnarfirði kl.
5 FH og ÍR, og kl. 8.30 Fram og Haukar í
Laugardalshöll.
________Samið um 45—55 landsleiki________________
Á alþjóðahandknattleiksþinginu sem fram fór hér
náðist samkomulag um alls 45—55 landsleiki á næstu
tveimur árum. Aldrei fyrr hefur landsliðið fengið jafn
viðamikið verkefni til að vinna að. Fyrstu landsleik-
irnir verða við Færeyinga í Færeyjum 29. og 30. sept.,
síðan verður leikið víð Færeyinga hér heima um
miðjan okt. Leikir þessir eru liðir í undirbúningi
Færeyinga undir C-keppnina sem fram fer í Sviss í
haust.
Um miðjan nóvember verður leikið við Austur-Þjóð-
verja hér heima og í lok mánaðarins verður haldið til
Frakklands tii þátttöku í móti sem í taka þátt auk
Islands Frakkland A —B, Túnis, Kína og Pólland. Nú
um miðjan desember sækja okkur heim erkifjendur
vorir Danir og leika hér tvo landsleiki þann 16. og 17.
des. Milli jóla og nýárs verður svo bandaríska
„Reyndur leikmað-
ur á við tvo npa"
• Mbl. hafði í gær samband við Geir Halisteinsson, einn reyndasta
leikmann íslensks handknattleiks fyrr og síðar, og spurði hann
álits á hinum nývalda landsliðshópi.
Geir Hallsteinsson sagði. — Mér finnst ekki tfmabært að kasta svo
mörgum gömlum og reyndum leikmönnum út úr landsliðshópnum.
Við megum ekki gleyma því, að reyndur leikmaður er á við tvo
nýliða. Það er sjálfsagt að gefa ungum mönnum tækifæri, ég var
einu sinni ungur og skil það mæta vel, en það verður að fara að öllu
með gát. Ég skil Jóhann Inga að vissu leyti, hann er að hugsa um
framtíðina. En það á ávallt að velja sterkasta liðið hverju sinni.
Svona hóp má reyna á móti Færeyingum en það þýðir lítið að vera
með hann á móti liðum eins og Austur-Þjóðverjum og liðum af
svipuðum styrkleika, sagði Geir að lokum. — ÞR.
landsliðið á ferðinni. Strax í byrjun janúar, þann 6. og
7. janúar, verður leikið við Pólverja hér heima. Síðan
tekur við keppni í Danmörku. Verður þetta geysilega
sterkt mót, sem í taka þátt allar fresmtu handknatt-
leiksþjóðir heims. Fyrsti leikur íslands verður í
Randers þann 10. janúar og þá verður leikið við Dani.
Sagði iandsliðsþjálfarinn þetta vera sálfræðilega
mikilvægasta leik Islands fyrr og síðar. Þarna hefði
verið leikið í HM-keppninni og þá varð stórt tap uppi
á teningnum. Daginn eftir verður ekki ráðist á
garðinn þar sem hann er lægstur, þá leikið við sjálfa
heimsmeistarana, Vestur-Þjóðverja. 12. janúar mætir
ísland svo Póllandi. Liðin sem eru í hinum riðli
mótsins eru ekki af lakara tagi, þau eru Sovétríkin,
Svíar, Danir B og Austur-Þjóðverjar. Um miðjan
febrúar eru svo fyrirhugaðir tveir landsleikir við
Sovétmenn hér heima.
Forkeppni Ólympíuleikanna fer fram á Spáni og
hefst 22. febrúar. Ekki verður ljóst fyrr en 21.
nóvember hverjir verða mótherjar Islands, en ljóst er
að leikið verður um öll sætin 12 í keppninni. Stefnt
verður að því að allur undirbúningur íslenska liðsins
verði sem bestur fyrir forkeppnina. Og á upptalning-
unni hér á undan má sjá, að verkefnin verða næg. Alls
leikur liðið 22 landsleiki áður en B-keppnin hefst.
Þá hefur verið samið við Tékka, Vestur-Þjóðverja,
Ungverja, Spánverja, Svía o.fl. um landsleiki á
tímabilinu 79—80.
13 nýliðar í
landsliðshópnum
A blaðamannafundinum tilkynnti Jóhann Ingi 22
manna hóp sem hann hefur valið til æfinga. Það
verkur mikla athygli að í hópnum eru 13 nýliðar og
aðeins fjórir leikmenn sem voru þátttakendur í
HM-keppninni í Danmörku. Þá vakti það undrun að
Ólafur Benediktsson, markvörðurinn snjalli í Val,
skuli ekki vera í hópnum. Jóhann Ingi sagði, að hópur
þessi væri ekki endanlegur, hann myndi nota
landsleikina við Færeyjar tii þess að prófa menn.
Sagðist Jóhann bera fullt traust til þeirra leikmanna
sem hann hefði valið. Fyrirliði iandsliðsins undanfar-
in tvö ár, Jón H. Karlson, er ekki í hópnum. Heyrst
hefur að honum hafi verið boðið liðsstjórastaða með
iiðinu, en hann hafi sagt, að hann stefndi að því að
komast í í sjálft liðið en ekki í liðsstjórastöðu. Geir
Hallsteinsson mun ekki gefa kost á sér fyrst um sinn
vegna annríkis, en vonandi sér hann sér fært að leika
með liðinu í vetur. Eftirtaldir leikmenn eru í
hópnum:l Markmenn: Jens Einarsson ÍR, Sverrir
Kristjansson FH, Brynjar Kvaran Val, Þorlákur
Kjartansson Haukum. Aðrir leikmenn: Arni Indriðar-
son Vík., Sigurður Gunnarsson Vík., Páll Björgvinsson
Vík., Viggó Sigurðsson Vík., Ólafur Jónsson Vík.,
Bjarni Guðmundsson Val, Steindór Gunnarsson Val,
Stefán Gunnarsson Val, Hilmar Sigurgíslason HK,
Guðmundur Magnússon FH, Ingimar Haraldsson
Haukum Andrés Kristjánsson Haukum, Þórir
Gíslason Haukum, Konráð Jónsson Þrótti, Gústaf
Björnsson Fram, Birgir Jóhannsson Fram, Friðrik
Jóhannsson Árm., Símon Unndórsson KR.
Hörður Sigmarsson Haukum, var valinn í hópinn en
gaf ekki kost á sér vegna náms. — ÞR.
ELIAS FJORÐI
ITUGÞRAUTVN
FJÖGURRA þjóða tug-
þrautakeppni sem íslend-
ingar voru þátttakendur í,
lauk með sigri Svisslend-
inga, en keppt var í Frakk-
landi. Svisslendingar hlutu
21957 stig. Frakkar urðu í
öðru sæti með 21256 stig,
Bretar í þriðja sæti með
21025 stig, þá íslendingar
með 21004 stig. íslendingum
hefur þó greinilega farið
fram, því að aldrei fyrr
hefur ísland hlotið 7000 stig
að meðaltali. Besta árangr-
inum náði Elías Sveinsson,
sem varð fjórði með 7218
stig. Þráinn varð í níunda
sæti með 7024 stig, Stefán
varð nr. 13 með 6762 stig og
Pétur varð nr. 14 með 6651
stig.
Elías Sveinsson
Fjögur ný
ísl. met
í flokki
pilta
Á INNANFÉLAGSMÓTI hjá
frjálsíþróttadeild FH um helg-
ina setti Guðmundur Karlsson
fjögur ný íslandsmet í pilta-
flokki. Á laugardag setti hann
met í kúluvarpi með 5,5 kg kúlu,
kastaði 12.06 metra og í spjót-
kasti kastaði hann 44.51 metra
með karlaspjóti. Á sunnudag
bætti hann svo spjótkastmetið
aftur, kastaði 46,26 metra, og
kastaði sveinakúlu, sem er 4,0 kg
á þyngd, 14.23 metra.
Lofar þessi árangur Guð-
mundar góðu, en Guðmundur er
eitt mesta kastaraefni sem
komið hefur fram hér á landi.