Morgunblaðið - 19.09.1978, Page 36

Morgunblaðið - 19.09.1978, Page 36
ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 1978 Tvítugur piltur frá Egilsstöðum beið bana í bílslysi Annar slasaðist mikið IÍÖSKLEGA tvítugur maður frá Egilsstöðum beið bana í bifreiðar- slysi á Jökuldalshciði í gær og annar maður, einnig rösklega tvítugur og frá Egilsstöðum, sem var í bílnum, slasaðist mikið, en hann var ekki talinn í lífshættu í gærkvöldi. Tilkynnt var um slysið frá Skjöldólísstöðum á Jökuldal skömmu fyrir ki. 13 í gær. en þangað hafði annar maðurinn komist í bil sem kom á slysstað. Læknar og sjúkrabíll frá Egilsstöðum fóru á slysstað en er þangað var komið var maðurinn látinn en hann hafði fests undir bflnum. Voru menn- irnir fluttir til Egilsstaða og þaðan var sá slasaði sendur með sjúkraflugvél til Reykjavíkur. Var hann í fyrstu talinn í nokkurri hættu, þar sem hann var slasaður á hrygg, en í gærkvöldi var hann ekki talinn í beinni hættu. Mennirnir fóru frá Egilsstöð- um í gærmorgun áleiðis í Möðrudal. beir voru staddir í Arnórsstaðamúla, sem er fremsti hluti Jökuldalsheiðar fyrir ofan Jökuldal þegar óhappið varð, en þeir lentu fram af brú. að talið er, og ofan í gil sem þar er. Ekki var -hægt að skýra frá nafni mannsins sem lézt í gærkvöldi. Járnblendiverksmiðian: Hluti af hafnarkrananum hafnaði á botni Norðursiávar ÞEGAR færeyska flutninga- skipið Ravnur var á leið til íslands um helgina með farm Banaslys á gangbraut: Ellefu ára telpa lést BANASLYS varð á Suður- landsbraut i Reykjavík á iaugardag. Ellefu ára gömul telpa varð fyrir Volkswagenbif- reið, sem var á leið til vesturs, en telpan var að fara yfir gangbraut á móts við Hótel Esju. Telpan var látin áður en komið var með hana á sjúkra- hús. Telpan hét Ingibjörg Sólveig Hlöðversdóttir til heimilis að Laugateigi 42 í Reykjavík. Ekki er vitað hvort telpan var á leið suður eða norður yfir gangbrautina, sem er sérstak- lega merkt og óskar lögreglan eftir því að sjónarvottar hafi samband við hana. I fyrir Járnblendiverksmiðj- una, fékk það á sig brotsjó I með þeim afleiðingum að stórt stykki úr uppskipunar- krana fyrir Járnblendifélagið fór fyrir borð. Ravnur var staddur undan Noregsströnd í 12 vindstigum þeg- ar brotsjór skall á skipinu með fyrrgreindum afleiðingum, en stykkið sem fór í sjóinn átti að vera botnstykki kranans og vegur það um 26 tonn. Skipverjar reyndu að koma taug í botnstykkið, en það var í þannig umbúðum að það flaut í fyrstu. I gærmorgun þegar birti var botnstykkið sokkið og Ravnur hélt þá inn til Færeyja, þar sem gert verður við skemmdir á skipinu, sem eru litlar. Að viðgerð lokinni er gert ráð fyrir að skipið haldi til íslands með það sem eftir er af farminum. Jón Sigurðsson forstjóri Járn- blendifélagsins sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að ljóst væri að vegna þessa óhapps myndi uppsetningu hafnarkranans seinka. „Hins vegar veit maður ekki enn hvort þetta óhapp getur haft einhver áhrif á gangsetningu verksmiðjunnar," sagði Jón. LjóMn. 01. K.M. Réttað var í Lögbergsrétt á sunnudaginn og fóru Reykvíkingar þangað í hópum til að fylgjast með. Margir höfðu á orði að fleira fólk en fé hefði verið í réttunum. „Ekkert hefur verid gert fyrir frystihúsin í Eyjum og á Sudurnesjum” - segir Stefán Runólfsson í Vestmannaeyjum „ÞAÐ hefur nánast ckkert verið gcrt enn fyrir frystihúsin hér í Eyjum og á Suðurnesjum, en við verðum að reyna að sýna þolinmæði og taka orð Kjartans Jóhannssonar sjavarútvcgsráð- herra alvarlega. Sjálfum líst mér það vcl á manninn og ég held að hann viti hvar skórinn kreppir og maður skyldi ætla að hann væri maður fyrir sinn hatt,“ sagði Stefán Runólfsson framkvæmda- stjóri Vinnslustöðvarinnar h.f. í Vestmannaeyjum þegar Morgun- blaðið ræddi við hann í gærkvöldi. „Frystihúsin sitja nánast í sarna farinu og áður en þau stöðvuðust og útlitið er allt annað en glæsilegt. Okkur í Eyjum og frystihúsamönnum á Suðurnesj- um, þar sem frystihúsin voru stopp, var sagt, aö Seðlabankinn myndi fjármagna húsin til að koma þeim af stað, á meðan verið v'æri að finna aðra lausn á málum frystihúsanna, en ekkert hefur gerzt," sagði Stefán ennfremur. Þegar Stefán var spurður hvort frystihúsin myndu þá stöðvast á ný ef engar ráðstafanir yrðu gerðar á næstunni sagði hann: „Maður má ekki hugsa út í það að þau stöðvist aftur. Sjálfur veit ég að það er ekki auðtekið á þessum málum, en við skulum samt vona að það sé einhver lausn framund- an.“ Þá reyndi Morgunblaðið að ná tali af Kjartani Jóhannssyni sjávarútvegsráðherra, en án ár- angurs. Hass: íslendmgur handtek- inn í V-Þýskalandi Sveinn Jónsson, aðstoóarseðlabankastjóri: Ríkið tekur nú aJlt ad 70 krónur af hverjum 100 Grundvöllur er fyrir stofnun varnarsamtaka skattgreiðenda „MEÐ þessari hækkun tekju- skattsins er hæsta próscnta, sem tekin er af þeim tekjum einstaklings, sem fara yfir visst mark, orðin tæplega 60% (tekjuskattur, útsvar, sjúkra- tryggingagjald og gjald til Byggingarsjóðs rikisins) og þar við bætist síðan 10% skyldusparnaður. sem ríkið geymir vinsamlegast í 5—6 ár, en skilar þá aftur með verðbót- um án nokkurrar vaxta- greiðslu. Þegar tekjur einstakl- ings eru komnar yfir visst mark, skal hann því gjalda keisaranum 700 krónur af hverjum 1.000 krónum, sem hann vinnur sér inn umfram þetta mark.“ Þetta segir Sveinn Jónsson, löggiltur end- urskoðandi og aðstoðarseðla- bankastjóri, í grein, spm birt er á bls. 101 Morgunblaðinu í dag. Sveinn Jónsson segir í grein- inni, að þegar farið sé að taka meira en 50 krónur til hins opinbera af hverjum 100 krón- um, sem aflað er, fari að hallast á þá sveifina, að tala megi um upptöku tekna eða jafngildi hennar í stað eðlilegrar skatt- lagningar. Með bráðabirgðalög- um ríkisstjórnarinnar fari þetta mark upp í 70 krónur og þá sé með góðri samvizku hægt að halda þessu fram. Hann bendir á að menn séu dæmdir fyrir misgjörðir ýmsar og beitt sé eignaupptöku. Nú fái tekjuöflun umfram ákveðið mark svipaða meðferð, litið sé á hana sem glæp gegn þjóðfélaginu, sem fá, eigi svipaða meðferð og smygl og landhelgisbrot. I lok greinarinnar segir Sveinn, að eftir þær viðbótar- álögur, sem nú hafi séð dagsins ljós, sé ágætur grundvöllur til stofnunar öflugra varnarsam- taka skattgreiðenda. — Söhiverðmæti hériendis talið nær 6 rniDj. króna TUTTUGU og fimm ára gamall Islendingur var 12. þessa mánaðar handtekinn í Vestur-Þýzkalandi með 4 kíló af hassi í fórum sínum, sem hann hafði keypt í Amster- dam fyrir 12.000 hollensk gyllini eða jafnvirði um 1,7 milljóna íslenskra króna. Áformaði hann, að því er segir í fréttatilkynningu frá Tollgæzlunni í Reykjavík, að smygla hassinu til Kaup- mannahafnar eða íslands. íslendingurinn hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald í bænum Lingen í Vest- ur-Þýskalandi. Eftir þeim upplýsingum, sem blaðið hefur aflað sér, er talið líklegt að söluverðmæti þess- ara 4 kíló af hassi hefðu þau verið seld hérlendis, hefði numið nær 6 milljónum króna. Samstarf hefur verið milli vestur-þýskra og ís- lenskra tollyfirvalda í máli þessssu. Alþingi til fundar 10. október ALÞINGI íslendinga, hið 100. í röðinni, hefur verið kvatt saman til fundar þriðjudaginn 10. október n.k. og verður Alþingi sett að lokinni guðs- þjónustu í Dómkirkjunni. Um langt árabil hefur Alþingi verið kvatt saman til reglulegra Tunda þennan dag. Af þeim 60 þingmönnum, sem sæti eiga á Alþingi, tekur nú 21 nýr þingmaður sæti á Alþingi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.