Morgunblaðið - 26.09.1978, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1978
KVARTMÍLUBRAUT — Örvar Sigurðsson, formaður Kvartmíluklúbbsins, er hér á hinni nýmalbikuðu
kvartmílubraut, en fyrsta keppni á brautinni er ráðgerð um miðjan október ef tilskilin leyfi fást.
Kvartmílumenn hafa aflað fjár til brautargerðarinnar með ýmsum hætti og lagt fram vinnu.Ljósm.
Kristinn.
Byssumaður hand-
tekinn á Akureyri
DRUKKINN maður vopnaður
stórum riffli var handtekinn í
miðbæ Akureyrar um kl. 23 í
fyrrakvöld. Rifflinum hafði mað-
urinn stolið úr verzlun skömmu
áður en ekki athugað að hann var
óhlaðinn.
Vegfarendur í miðbæ Akureyrar
urðu skelfingu lostnir í gærkvöldi
þegar þeir sáu drukkinn mann
brjóta rúðu í Sportvöruverzlun
Brynjólfs Sveinssonar hf. við
Skipagötu með fótasparki, snarast
inn um gluggann og koma út aftur
með stóran riffil. Riffillinn var
Vöruskiptajöfnuður lands-
manna varð óhagstæður f ágúst-
mánuði um rúmlega einn millj-
arð, en á sama mánuði í fyrra var
hann hagstæður um 847 m.kr.
Mánuðina janúar til ágúst er
vöruskiptajöfnuðurinn óhag-
stæður um 12 milljarða og 648
milljónir, en var á sama tíma I
fyrra óhagstæður um 6 milljarða
og 290 milljónir.
Innflutningur í ágúst nam sam-
tals 15.385 m.kr. þar af til íslenzka
járnblendifélagsins 377 m.kr. og
með sjónauka 243 kaliber. Maður-
inn mun hafa ætlað að grípa með
sér pakka af skotfærum í leiðinni
en greip óvart kassa með byssu-
bláma í staðinn, sem muh vera
ætlaður til að bera á skotvopn.
Fjöldi fólks var á götunum þegar
þetta vildi til enda margir að koma
úr kvikmyndahúsunum um þetta
leyti. Mikil hræðsla greip um sig
meðal fólksins og margir urðu
samtímis til að kalla í lögregluna.
Byssumaðurinn hljóp nú suður
Skipagötu og síðan austur fyrir
húsaröðina og niður að Bifreiða-
íslenzka álfélagsins 1,16 m.kr.
Utflutningurinn nam 14.343 m.kr.,
þar af ál og álmelmi 1.526 m.kr.
Við samanburð utanríkis-
verzlunartölur 1977 verður að hafa
í huga að meðalgengi erlends
gjaldeyris í janúar — ágúst er
talið vera 37% hærra en það var í
sömu mánuðum 1978. Sé vöru-
skiptajöfnuður á tímabilinu
janúar — ágúst 1977 því færður til
sama gengis og 1978 má því segja
að hann hafi verið óhagstæður um
8,6 milljarða.
stöðinni Stefni þar sem hann
skreið undir vörubíl og hreiðraði
þar um sig í skotstöðu. Þar gekk
lögreglan að honum og handtók
hann fyrirhafnarlítið. — Sv.P.
Árlegur
merkjasöludagur
ÁRLEGUR merkjasöludagur
Menningar- og minningarsjóðs
kvenna verður n.k. miðvikudag,
en t.ilgangur sjóðsins er að vinna
að menningarmálum kvenna,
m.a. með því að styðja kónur til
framhaldsnáms, ritstarfa o.fl.
Menningar- og minningarsjóð-
ur kvenna er stofnaður af Bríeti
Bjarnhéðinsdóttur og er stofn-
dagur hans 27. september 1941.
Hafa 512 konur hlotið styrk úr
sjóðnum frá stofnun. Merkjasal-
an er eina fjáröflunarleiðin og
hefur verið mörg undanfarin ár,
auk þess sem hann hefur nokkrar
tekjur af sölu minningarspjalda.
Vöruskiptajöfnuðurinn:
Óhagstæður um rúman
milljarð í ágústmánuði
Hvar er kjötið mitt?
Mánaðar birgðir
hurfu á 10 dögum
— IIVAR er kjötið mitt? hafði
kjötkaupmaður einn í Reykja-
vík eftir viðskiptavini sínum og
kom spurningunni áleiðis f
Morgunblaðinu. Blaðið hand-
langaði spurninguna áfram til
Agnars Guðnasonar, blaðafull-
trúa hagsmunasamtaka land-
búnaðarins og bað hann að
leysa úr henni.
„Ég held að það sé ekkert
óeðlilegt við það hversu ódýra
kjötið hvarf snögglega af mark-
aðinum," svaraði Agnar. „En
það er alveg rétt — allt bendir
til þess að rösklega eins mánað-
ar birgðir hafi selzt upp á tíu
dögum. í byrjun ágúst voru til
um 1700 tonn af þessu gamla
kjöti og samkvæmt gamalli
reynslu sýnir það sig að neyzlan
í ágústmánuði er um 600 tonn.
Hinn 1. september voru þannig
eftir um 1100 tonn, og við
skulum reikna með því að
fyrrihluta september hafi selzt
um 300 tonn. Þá eru enn eftir
um 800 tonn, en þar fór um
helmingurinn til Reykjavíkur,
og þetta kjöt er allt búið, en ég
veit ekki hvað er enn til úti á
landi.“
Agnar sagði, að af þessu
magni hefðu einungis um 50
tonn verið seld til Færeyja, svo
að skýringanna á bráðu hvarfi
kjötsins væri ekki að leita þar,
eins og sumir ætluðu. Hins
vegar mætti geta sér þess til að
vinnslustöðvarnar hefðu haldið
einhverju eftir af þessu ódýra
kjöti til vinnslu en annað hefði
farið út á markaðinn og selzt
jafnhratt og raun ber vitni.
Veiðar Norðmanna
eru alvarlegt mál
— segir Kjartan Jóhannsson
NORÐMENN hafa lagt stund á
loðnuveiðar við Jan Mayen í
auknum mæli og hefur það valdið
nokkrum áhyggjum meðal ráða-
manna hér á landi en flest bendir
til að loðnan þar sé af sama stofni
og loðnan sem veiðist hér við
land. Mbl. spurði Kjartan
Jóhannsson sjávarútvegsráð-
herra hvort og þá hvernig brugð-
ist yrði við þeim af hálfu íslands.
— Við teljum þessar loðnu-
veiðar við Jan Mayen alvarlegt
mál er hyggja þurfi að og þarf
utanríkisráðuneytið að kanna
réttarstöðu okkar í þessu máli.
Fyrirhugað er að málið verði tekið
upp á vettvangi norrænnar sam-
starfsnefndar í Bergen 10. og 11.
október n.k. Þá er og athugandi
hvort ekki eigi að fjalla um þetta á
vegum alþjóðlega hafrannsókna-
ráðsins og má taka það fram að við
ætlum okkur að bregðast við þessu
af fullri ákveðni.
Sjálfsagt að ræða
málið en engar
ákvarðanir strax
— sagði menntamálaráðherra um Víðishúsið
— ENN heíur ekki gefizt
ráðrúm til þess að íhuga
tilboð er barst frá Karna-
bæ um kaup á Víðishúsinu,
sagði Ragnar Arnalds
menntamálaráðherra í
samtali við Mbl. er hann
var spurður hvað liði svari
við tiiboði Karnabæjar.
— Við höfum ekki tekið
upp neinar viðræður við
Karnabæ og verður það varla
strax, en það er sjálfsagt að
athuga það mál, það þarf að
finna það út hvort betra er að
skipta á þessu húsnæði fyrir
Fresta fundi
SAMBAND grunnskólakennara
hélt fund í gærkvöldi þar sem
rædd var deilan um æfingakennsl-
una, en á fundinum var ekkert
ákveðið og honum frestað þar til í
dag.
annað hentugra eða leggja út
í þær innréttingar sem þarf
til þess að breyta iðnaðarhúsi
sem Víðishúsið er í skrif-
stofuhús. Alþýðubandalagið
gagnrýndi þessi kaup á þeim
forsendum að húsið væri of
dýrt miðað við gæði og ekki
hentugt þeirri starfsemi sem
þar ætti að vera.
Varð irndir
dráttarvél
BÓNDI að bænum Brekku á
Hvalfjarðarströnd meiddist nokk-
uð er hann varð undir dráttarvél
sinni í gær, en hann var að
gangsetja vélina er hún hrökk
skyndilega í gang og fór af stað.
Varð maðurinn undir vélinni og
meiddist nokkuð og var hann
fluttur á Sjúkrahús Akraness.
Glófaxi er mikið
skemmdur af eldi
MÓTORBÁTURINN Gló-
faxi VE 300 skemmdist
nokkuð af eldi í gærmorg-
un, en eldur varð laus í
bátnum um kl. 5 er hann
var staddur 7—8 mflur
austur af Bjarnarey. Lóðs-
inn kom honum til aðstoð-
ar og var hann dreginn til
hafnar í Vestmannaeyjum.
Reynt var að hefja
slökkvistarf strax, en því
lauk ekki fyrr en eftir að
báturinn var kominn til
hafnar, eða um kl. 11 í
3 prósent hækk-
un gefur níu
milljarða króna
í auknar tekjur
VERÐI sjúkratryggingagjald
hækkað úr 2% í 5% eins og
Morgunblaðið skýrði frá á laugar-
dag, að til athugunar væri hjá
stjórnvöldum, gefur það á næsta
ári um 9 milljarða króna í auknar
tekjur fyrir ríkið. Láta mun nærri
að hvert prósentustig þessa
brúttóskatts gefi 3 milljarða
króna.
gærmorgun. Báturinn er
mikið skemmdur, einkum í
vélarrúmi og borðsal. Ekki
er vitað nánar um eldsupp-
tök. Ljóst er að báturinn
verður frá veiðum í nokkrar
vikur meðan viðgerð fer
fram og kemur það sér illa á
þessum tíma þegar síldveið-
in stendur yfir.
Skipstjórinn
á Ingólfi fékk
2,4 millj. sekt
SKIPSTJÓRINN á togaranum
Ingólfi Arnarsyni, sem staðinn
var að veiðum innan friðaða
svæðisins norður af Kögri fyrir
helgina hefur vcrið dæmdur í 2,4
milljóna króna sekt, afli var
gerður upptækur og hluti veiðar-
færa.
Að sögn Þorvarðar K. Þorsteins-
sonar bæjarfógeta á ísafirði er hér
um að ræða lágmarkssekt og sagði
hann að ekki hefði verið litið á
brot skipstjórans sem algjört
fiskveiðilagabrot, og tillit hefði
verið tekið til þess í dóminum.