Morgunblaðið - 26.09.1978, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1978
7
„Meðvitaöur
um þjóö-
félagslegt hlut-
verk sitt“
Eitt einkenni kommún-
ista, marxista,
dalakofa-sósíalista er
Það, aö Þeir horfa á allt
og alla gegnum rauð
gleraugu. Beri einhverja
stofnun á góma, fara Þeir
óðar aö velta Því fyrir sér
hvernig megi misnota
hana pólitískt. Og sá sem
Þaö gjörir er „meövitaður
um Þjóöfélagslögmálin**
eða „meövitaöur um
Þjóöfélagslegt hlutverk
sitt“. Þetta er aö vísu
vond íslenzka. Sýnu verri
er Þó sá hugsunarháttur,
sem í Þessu felst.
Jón Viðar Jónsson er
ungur maöur og skrifar
um leikrit í Þjóðviljann.
Hann kemst svo að oröi í
ritdómi um „Son
skóarans og dóttur
bakarans": „Möguleikar
Þess (leikritsins) eru
ótvíræöar, og ég er sann-
færður um að í leikhúsi,
meövituðu um Þjóö-
félagslegt hlutverk sitt,
mætti bera Þaö fram til
mikils sigurs.“
Sveinn Einarsson Þjóö-
leikhússtjóri hefur
skrifaö ritstjóra Þjóö-
viljans bréf, Þar sem
hann segir fróölegt aö
vita, hvaö greinarhöfund-
ur eigi viö.
Leikhús fyrir
suma
Jón Vióar Jónsson
svarar í iangri grein í
laugardagsblaöi Þjóö-
viljans. Segja má, aö
kjarni hennar felist í
Þessum oróum: „Leikhús
sem er meövitað um
Þjóöfélagslegt hlutverk
sitt veit HVAÐ Það vill
segja og vió HVERJA".
Annars vegar er hér
sett fram sú krafa, aó
pólitísk markmiö séu aö
baki leikritavals. En Það
er gagnrýnandanum ekki
nóg. Þeir, sem taka Þátt í
flutningi Þess, veróa lika
að hafa ákveðnar póli-
tískar skoöanir, vera
kommúnistar, marxistar,
dalakofa-sósíalistar: „í
leikritinu er ráðist á
kapítalískt Þjóöfélag af
mikilli heiftrækni og Þaö
hlýtur aó vera lágmarks-
krafa aö um Það séu
látnir fara höndum menn
sem eru sama sinnis og
skáldið, menn sem eru
fullir metnaöar aó draga
fram boðskap verksins,
neyóa honum upp á
áhorfendur gerist slíks
Þörf.“
Hér kemur sama
hugsunin fram og áöur,
að Þjóðleikhúsið á ekki
að vera fyrir alla, enda
talar gagnrýnandinn í
öóru samhengi um
„sinnulausa áhorfendur".
Þjóóleikhúsið megi ekki
falla í Þá gryfju aö gjöra
slíku fólki til geös.
Ekki efast sá, sem
Þannig skrifar, um sitt
eigiö ágæti. Og engu
líkara en hann sját sjálfan
sig sem skömmtunar-
stjóra á andlegt fóöur
handa íslendingum.
Ekki bara hér
í Morgunblaðinu bírtist
sl. laugardag viðtal viö
Toril Gording, norska
leikkonu, sem hér var
fyrir skömmu. Þar kom
fram, að 23 leikarar hefðu
nýlega sagt sig úr sam-
tökum leikara í Noregi og
stofnaö sjálfstæöan hóp.
Toril Gordin var ein
Þeirra og gaf Þessa skýr-
ingu á Því:
„Ástæöan fyrir Þessari
úrsögn var óánægja meö
Það, hvað samtökin voru
farin að ræða mikió hvers
kyns pólitísk mál, en
minna mál, sem beint
snertu leikarastéttina og
hagsmunamál hennar. í
lögum félagsins var Það
tekió fram, að Þaó skyldi
vera ópólítískt og fyrst og
fremst koma fram sem
hagsmunasamtök leik-
ara. Þessum lögum hefur
nú verið breytt og félagið
tekur pólitíska afstööu til
atburöa í Þjóðfélaginu,
kjaramála, verkfalla
o.s.frv. Þessi 23 manna
hópur vill einbeita sér aö
hagsmunamálum leik-
ara.“
Þetta talar sínu máli og
lýsir vel Þeirri pólitísku
mengun, sem hvarvetna
kemur frá kommúnistum,
marxistum, dala-
kofa-sósíalistum.
Gáfnakomplex
Ein skýringin á ofstæki
hinnar pólitísku prenn-
ingar, sem áður var getiö,
er sú, aö fólk, sem sé
Þessarar skoöunar, hafi
gáfnakomplex; menn
purfi ekki annaö en ger-
ast kommúnistar til að
vera óskaplega gáfaóir.
Þannig segir Guðrún
Helgadóttir í Þjóöviljan-
um fyrir skömmu: „Og
allir Þekkja baráttuaö-
feróir Morgunblaósins,
sem eru Þær aó halda
fólki frá Því aó hugsa. Þar
hefur aldrei fariö fram
umræöa af neinu tagi, og
ef til vill nægir að geta
Þess, aö enn Þá birtast
reglulega hugarórar Billy
Grahams í Þessu blaði,
sem er aö minni hyggju
botninn í mannlegri
hugsun.“
Á sunnudag segir Guð-
rún Helgadóttir svo frá
Því, aó hún hafi lært að
lesa tveggja ára og í
framhaldi af Því: „Viölíka
snillingar fundust annars
staöar. Þetta var skratti
mikill skellur. Og áfalliö
var tvöfalt: Um leið og ég
missti trúna á sjálfa mig,
missti ég líka trúna á
Guó.“
Sölvi Helgason var
mikill heimspekingur og
orti:
Ég er gull og gersemi,
gimsteinn eöalríkur.
Eg er djásn og dýr-
mæti,
Drottni sjálfum líkur.
nMRVSn 128, framhjóladrifinn með framúrskarandi akatura-
■■IflUIV eiginleika 6 slsemum vegum.
nfnffiVn 128, hlýr og notalegur bíll. Glæailega innréttaður
iHniMV með mjúkum atólum frammí og rúmgóðu afturaæti.
ASMnpnKCJV 128, kjörinn bíll fyrir pá sem vilja fá mikið
InbHuXUÍ tyrir peninginn.
I3IVIIF1V7 128, með atóra glugga sem gera bílinn bjartari að
fHHBXIff innan með mikið og gott útaýni sem tryggir öryggi.
L
FÍAT EINKAUMBOÐ Á ISLANDI
DAVÍÐ SIGURÐSSON hf
SfÐUMÚLA 35. SÍMI 85855.
BALLETTSKÓLI
EDDU
SCHEVING
Skúlagötu 34.
Kennsla hefst í byrjun október. Innritun og uppl. í síma 76350 kl.
2—5 e.h.
Ath. Kennt veróur í Félagsheimili Seltjarnamess i yngri
aldursflokkum.
^^danskennarasambanMswwos
Innritun , kl. 14—17 J daglega í % síma 4 72154 ’ L
BflLLETSKÓU 5IGRÍÐAR ÁRmnnn SKÚLAGÖTU 32-34 <►<><►
Utanhússmálningin
Perma-Dri
Þetta er
olíulímmálning
sem flagnar ekki, 12 ára ending og
reynsla á íslandi.
Nokkrir litir eru til á gömlum veröum.
Verömismunur
er
allt
aö
Geriö góö kaup strax í dag.
Greiösluskilmálar
Sendi í póstkröfu
Sigurdur Pálsson bygg.m.
Kambsvegi 32, R. símar 38414 og 34472.