Morgunblaðið - 26.09.1978, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 26.09.1978, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1978 27 smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar Ateiknaðar jólastjörnur og dúkar með blúndu. Frá- gengnir og áteiknaðir jóla- strengir, löberar og dúkar í Ijósum striga. Fjölbreytt úrval af annari jólahandavinnu. Hannyröaverzl. Erla, Snorra- braut. Munið sérverzlunina með ódýran fatnað. Verðlistinn, Laugarnesvegi 82, S. 31330. tilkynningar* Hilmar Foss lögg. skjalaþýð. og dómt. Hafnarstræti 11, sími 14824. Freyjugötu 37, sími 12105. Myntir og peningaseðlar til sölu. Pantanaeyðublöð og myndskýringar eru á sölulista. Mönstuen, Studiestræde 47, 1455 Köbenhavn, K, Danmark. Bandarískur lögfræðingur um fertugt sem býr í Wiscounsin óskar eftir að komast í bréfa- samband við einhleypa íslenska stúlku meö hjónaband fyrir augum. Vinsamlegast skrifiö til Thomas T. George, 905 Inwood way, Madison, Wiscounsin, U.S.A. Keflavík - Suðurnes Keflavík 140 fm efri haeð í tvíbýlishúsi og bílskúr. Glæsilegar innréttingar og teppi á gólfum. Allt sér. íbúö í sérflokki. 4ra herbergja íbúö meö bílskúr á góöum staö í Keflavík. íbúöin er í mjög góöu standi og er laus strax. Grindavík Glæsileg fokheld raðhús. 140 fm með 30 fm bílskúr. Verö 6.8 millj. Höfum kaupendur að ýmsum stærðum íbúða og einbýlishúsa. Ef þviö hafiö fasteign tii sölu þá komiö eða hringið. FASTEIGNIR S/F Heiðargarði 3 — Sími 2269. Keflavík Garður Til sölu nýstandsett lítil 3ja herb. íbúð með sérinngangi. Laus strax. Einnig höfum viö til sölu íbúöir og einbýlishús í Garðin- um. Fasteignasalan, Hafnargötu 27, Keflavík, sími 1420. Brotamálmur Er fluttur að Ármúla, sími 37033. Kaupi allan brotamálm langhæsta verði. Staögreiösla. Ungur maður óskar eftir vinnu hálfan eöa allan daginn S. 38057. I.O.O.F. 8 =1599278>/2 = R.k. I.O.O.F. Rb. 1E1289268V4 Nýtt líf Hamraborg 11, Kópavogi Al- mennur bibliulestur kl. 20.30 í kvöld þriöjudag. RÓSARKROSSREGLAN Fíladelfía Bænavikan heldur áfram i dag og næstu daga kl. 16 og 20.30. 1. október hefur Fíladelfíusöfn- uðurinn útvarpsuöþjónustu kl. 11 fh. i\ e r c V atlantis pronaos Pósthólf 7072, 107 Reykjavík. 2693331830. Aðalfundur félags Snæfellinga og Hnapp- dæla verður haldinn þriöjudag- inn 3. okt. n.k. kl. 20.30 í Domus Medicia. Dagskrá: Venjuleg aöalfundarstörf. Stjórnin. Al (il.VSINf.ASIMINN F.R: £ 22480 JHorjjimWnínti Björn Stefánsson Húsavík - áttræður Björn Gunnlaugur Stefánsson fæddist á Grásíðu í Kelduhverfi hinn 26. sept. 1898 og var yngstur 12 systkina. Tvö dóu á unga aldri, en önnur náðu fullorðinsaldri og urðu sum háöldruð. Foreldrar Björns voru sæmdar- hjónin Margrét Þórarinsdóttir á Grásíðu Þórarinssonar Þórarins- sonar Pálssonar Arngrímssonar sýslumanns á Laugum Hrólfsson- ar og Stefán Erlendsson Gott- skálkssonar Pálssonar á Fjöllum í Kelduhverfi. Ég læt þetta duga um ættfræðina nema get þess,. að móðir Björns og Jón Sveinsson, Nonni, voru systkinabörn og hefur Birni þótt svipa til hans um yfirbragð. Björn ólst upp á Grásíðu og síðan í Ólafsgerði, eftir að foreldr- ar hans fluttu þangað 1904. Þar vandist hann algengum sveita- störfum og gerðist fljótt vel liðtækur, enda bráðþroska og vel á sig kominn, hár og þrekinn og svaraði sér vel. Stefán, faðir Björns, var góður smiður og vann að byggingum fyrir sveitunga sína og þótti það verk vel af hendi leyst. Garðs- kirkja var byggð um síðustu aldamót og er enn hið reisulegasta hús. Stefán var vinsæll og eftir- sóttur til smíða. Hann hafði góða söngrödd, og söng og kvað við vinnu sína og vakti smekkvísi hans um val texta og laga athygli. Björni þótti skemmtilegur félagi og tók mikinn þátt í störfum ungmennafélagsins. Hann var söngvin og hafði ágæta bassarödd, hreina og djúpa, og starfaði mikið í kirkju- og karlakórum sveitar- innar undir stjórn Árna Björns- sonar tónskálds o.fl. Þegar Björn hafði aldur til fór hann í bændaskólann á Hvanneyri og útskrifaðist þaðan eftir tveggja vetra nám með ágætri einkunn. Seinna gerði hann sér ferð til Noregs og dvaldist þar einn vetur á búgarði til að kynna sér búskaparhætti og vinnubrögð frænda okkar Norðmanna. Eftir það bjó Björn ýmist í Ólafsgerði eða Garði og stundaði jöfnum höndum sauðfjárbúskap og vöru- flutningaakstur, en hann var meðal fyrstu bifreiðarstjóra í Kelduhverfi. Björn var hygginn í fjármálum og ráðdeildarsamur. Eins og þeir fleiri frændur kvongaðist Björn seint, en haustið 1940 gekk hann að eiga frændkonu sína og nágranna Vilborgu Þórar- insdóttur frá Kílakoti, systur Sveins málara, Björns og þeirra s.vstkina. Það var mál manna, að jafnræði væri með þeim hjónum, bæði nokkuð við aldur, vel að sér um margt, músikölsk og söngvin og hafði Vilborg ung lært á orgel og var organisti í Garðskirkju um alllangt árabil og stjórnaði kirkju- kórnum við góðan orðstír. Ætlan þeirra var að setjast að á förðuleifð Bjarnar, Ólafsgerði, hefja þar ræktun og gera jörðina að stórbýli, svo sem draumur flestra þeirra, sem hefja búskap. En hér fór öðru vísi en ætlað var. Vilborg veiktist af berklum og var flutt á heilsuhælið að Kristnesi, þar sem hún barðist hetjulegri baráttu við hinn skæða sjúkdóm í mörg ár. Fyrsta ár sitt þar ól Vilborg dóttur, Þórnýju. Guðný systir hennar og Þórarinn Jóhannesson í Krossdal tóku litlu stúlkuna til sín og önnuðust hana af rausnarskap og hjartahlýju, þar sem Björn hafði ekki aðstöðu til að hafa hana hjá sér. Vilborg náði það góðum bata á Kristneshæli, að hún gat flutzt heim og tekið dóttur sína til sín. Minnisvarði um Þor- stein Erlingsson MYNDASTYTTA af skáldinu Þor- steini Erlingssyni verður afhjúpuö við Skógaskóla laugardaginn 30. september kl. 3, í tilefni þess, að hinn 27. þ.m. verða 120 ár liðin frá fæðingu hans að Stóru Mörk undir Eyjafjöllum. Styttan er'eftir Ríkarð Jónsson myndhöggvara. Er hún gjöf til skólans frá syni skáldsins, Erlingi Þorsteinssyni, lækni. Auk hans flytja þar ræður m.a. séra Sváfnir Sveinbjarnarson, formaður skólanefndar, og Jón R. Hjálmarsson fræðslustjóri. Söngflokkur undir stjórn Þórðar Tómassonar safnvarðar mun syngja þar ljóð eftir skáldið. Vilborg hefur verið mikil garð- ræktar- og hannyrðakona. Veikindi Vilborgar höfðu þau áhrif, að búskapardraumar þeirra hjóna urðu að engu. Upp úr því fluttist Björn til Húsavíkur og lagði stund á vörubifreiðaakstur sem hann hélt áfram fram á síðasta ár og hafði þá ekið vörubifreiðum um nær hálfrar aldar skeið. Hann var vinsæll og vel látinn í sínu starfi sem bezt sést af því, að hann er heiðurs- félagi í Bifreiðaastjórafélagi Húsavíkur. Þórný giftist Sverri Jónssyni póstfulltrúa. Ungu hjónin hafa búið í nánu sambýli við þau Vilborgu og Björn og er óhætt að segja, að þau búi í skjóli þeirra við bezta atlæti og njóti góðrar elli, Ef vel er rakið á ég til frændsemi að telja við þau hjón bæði Vilborgu og Björn. Mikil vinátta og gagnkvæm var milli afa míns, Benedikts Sveinssonar, og þéssa frændgarðs af Víkinga- vatns- og Gottskálksætt norður í Kelduhverfi. Þessa hef ég notið i ríkum mæli, eftir að ég'fór að hafa afskipti af pólitískum málum norður þar. Sú hlýja og gróna vinátta, sem ég hef mætt frá afkomendum Stefáns á Grásíðu og Þórarins í Kílakoti líður mér seint úr minni. Og t.a.m. var heimsókn mín til þeirra Björns og Vilborgar meðai örfárra ánægjulegra endur- minninga úr síðasta kosningaslag, þegar margt gekk svo öndvért. Urn leið og ég árna Birni Stefánssyni og fjölskyldu hans heilla nú í dag, minnist ég Sigríðar s.vstur hans, sem lézt nú í vor. Frá henni stafaði til hinztu stundar sú innri hlýja, sem einkennir svo margt fólk úr Kelduhverfi. Ilalldór Blöndal. Dregið í Happdrœtti Hjartaverndar 1. Chevrolet Malibu 7. Litsjónvarp Toshiba Classic Sedan ‘78 nr. 65912. nr. 31158. 8. Litsjónvarp Toshiba 2. Litsjónvarp Toshiba nr. 71798. nr. 22132. 9. Litsjónvarp Toshiba 3. Litsjónvarp Toshiba nr. 78623. 22366. 10. Litsjónvarp Toshiba 1. Litsjónvarp Toshiba nr. 87023. nr. 30013. 11. Litsjónvarp Toshiba 5. Litsjónvarp Toshiba nr. 90061. nr. 33612. Vinninga má vitja á skrif- 6. Litasjónvarp Toshiba stofu Iljartaverndar. Austur- nr. 53112. stræti 17. 6. hæð. Fyrirlestur um skozk stjórnmál JOHN Simpson, lektor í skoskri sögu við Edinborgarháskóla, flyt- ur opinberan fyrirlestur í boði heimspekideildar fimmtudaginn 28. september 1978 kl. 17.15 í stofu 201 í Árnagarði. Fyrirlesturinn nefnist „Some aspects of Icelandic-Nordic studies in Scotland from the eighteenth century to the present“ og verður fluttur á ensku. Öllum er heimill aðgangur. Sigurður Hreins- son áttræður í dag Sigurður Hreinsson, Blönduhlíð 23, er fæddur 26. september 1898 og er því áttatíu ára í dag. Þá ég undirritaður hafði starfað nokkur ár í Sundhöll Reykjavíkur var Sigurður ráðinn starfsmaður þangað og hófust þar með kynni okkar. Betri samverkamann en Sigurð Hreinsson er vart hægt að hugsa sér. Hann var jafnan glaður og hress í anda, boðinn og búinn að leysa af hendi hvert það verk sem að kallaði. Lagði hann jafnan allan hug sinn í það að verkið væri svo vel af hendi leyst sem kostur væri á. Var hann niikill starfsmaður að hverju sem hann gekk, þótt kominn væri fram um sjötugt. Eftir að Sigurður hætti störfum hefir hann haldið tryggð við Sundhöllina og telja má að um áratuga skeið hafi hann daglega synt þar sína 200 metra eða meira. Hefir hann jafnan komið hjólandi, en hafi tíð verið risjótt eða færð svo slæm að hann hafi ekki getað hjólað hefir hann komið gangandi og þá ekki vílað fyrir sér þótt á móti blési. Telur hann að þetta hafi verið sú heilsulind er orskak- ar það að hingað til hefir hann ekki þurft að taka sterkari meðul en magnyl. Sigurðu Hreinsson er dreng- skaparmaður, flytur mál sitt á n undirmála af dirfsku og hrein- skilni, en heldur sig við það er hann veit sannast og réttast. Hann hefir verið og er gleðimaður í þess orðs bestu merkingu og kunnað að meta góð vín á góðri stund. Hans aldna húsfreyja, sem nú er mjög farin að heilsu og kröftum. hefir með dugnaði og myndarskap búið Sigurði fagurt og gott heimili. Sendi ég frú Halldóru mínar innilegustu hamingjuóskir og þakka-þeim báðum þá vináttu og traust er þau hafa jafnan sýnt mér. Hlýlegt viðmót Sigurðar, örlæti hans og höfðingslund gerir það að verkum að hann er vinmargur og ekki síður hjá miðaldra og ungum en hinurn öldnu. Vænti ég því að margir beini til hans hlýjum hugsunum í tilefni afniælisins og er það innileg ósk mín að þær hugsanir verki til gleði og farsæld- ar á líf hans í framtíðinni. Mér finnst vel við eigandi að færa Sigurði sérstakar afmælis- kveðjur og óskir mínar með orðum Hávamáia: „Glaðr ok reifr skyldi gumna hverr, unz sinn bíðr bana.“ Bárður Sveinsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.