Morgunblaðið - 17.10.1978, Blaðsíða 44
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1T. OKTÓBER 1978.
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 1978.
25
SPJALLAÐ VIÐ VERÐLAUNAMENN MORGUNBLAÐSINS
— segir Pétur Pétursson, markakóngur í knattspyrnu
— ÉG er mjög ánægður með það að hafa fengið þessa
verðlaunagripi Morgunblaðsins tvö ár í röð, þeir munu í
framtíðinni minna mig á þau góðu ár sem ég hef átt með
Akranesliðinu, sagði Pétur Pétursson í stuttu rabbi við
blm. Mbl. að lokinni verðlaunaafhendingunni á
föstudaginn. Pétur er nú farinn til Ilollands, þar sem
hann hefur sem kunnugt er gerst atvinnumaður með
hinu heimsfræga liði Feyenoord í Rotterdam.
— Éfí er mjöf; ánægður með
samning minn við Feyenoord,
satíði Pétur. Ér tók mér góðan
tíma til þess að huRsa um tilboð
félattsins, en eftir að ég hafði farið
út oíí séð aðstæður þar var ór
alvefí ákveðinn að taka tilboðinu.
Allar aðstæður eru hreint stór-
kostlefjar. Völlur félatísins tekur
65 þúsund manns að ég held, þar af
55 þúsund manns í sæti. Mjöf; vel
er huftsað um leikmennina ot; við
höfum allt til alls. Það eru jafnvel
sérstakar læknastofur fyrir áhorf-
endur ef þeir meiðast.
— Hvernig var þér tekið af
öðrum leikmönnum?
— Aiveg sérstaklet;a vel. Hver
einn of; einasti var mjöf; vint;jarn-
let;ur við mit;. Fe.venoord er að
byRKja upp nýtt lið. Elsti maður-
inn er Wim Jansen, 31 árs, þrír
leikmenn 26—27 ára en aðrir
leikmenn eru tvítuRÍr or þar undir.
Ér byrja strax að æfa þeRar ór
kem út en ór veit ekki hvenær éR
kemst í liðið. Framkvæmdastjór-
inn hr. Stephan hefur reyndar
saRt að ór verði strax settur í liðið
en ór tek því nú varlega. Það
kemur í ljós hvenær ór fæ mitt
tækifæri.
— Hvenær heyrðir þú fyrst frá
Feyenoord?
— Það var úti í Köln þegar
Akranesliðið var að leika þar í
Evrópukeppninni. Þjálfari liðsins
kom til mín eftir leikinn og ræddi
aðeins við mig. Ég sagði honum að
ég hefði áhuga á því að gerast
atvinnumaður í knattspyrnu, en ég
sagði honum jafnframt að ég
myndi ekkert gera í málinu fyrr en
eftir keppnistímabilið. Eftir lands-
leikinn í Austur-Þýzkalandi hófust
samningaviðræður fyrir alvöru og
með hjálp góðra manna fékk ég
samning, sem ég er mjög ánægður
með. (Pétur hefur ekki viljað gefa
upp einstök atriði samningsins en
Stephan hefur sagt að árslaun
knattspyrnumanna í Hollandi séu
á bilinu 15—45 milljónir íslenzkra
króna). Ég er sérstaklega ánægður
með þá aðstoð, sem Feyenoord
ætlar að veita Akurnesingum með
• Björn Jóhannesson tekur við verðlaunum sínum úr hendi Haralds Sveinssonar, framkvæmdastjóra
Arvakurs hf.
því að leika endurgjaldslaust hér
heima næsta sumar og svo það að
félagið ætlar að taka þjálfara að
heiman á námskeið og leyfa
efnilegum strákum að dvelja hjá
félaginu. Ég hef notið góðrar
aðstoðar við samningagerðina og
vil ég sérstaklega þakka þeim
George Kirby, Gunnari Sigurðs-
syni, Albert Guðmundssyni og
Gylfa Þórðarsyni.
— Ertu ánægður með árangur
þinn og Akranesliðsins í sumar?
— Mér gekk illa að skora fyrri
part sumars en seinni hlutann
gekk mér mun betur. Hins vegar
er ég óánægður með landsleikina
mína, ég átti að skora fleiri mörk
en þetta eina sem ég skoraði úr
vítaspyrnunni í Austur-Þýzka-
lsndi. Ég er einnig ánægður með
árangur Akranesliðsins í sumar.
Við töpuðum aðeins tveimur
leikjum, báðum gegn Val, og að
mínu mati töpuðum við báðum
leikjunum óverðskuldað.
— Hvaða leikur er þér minnis-
stæðastur frá sumrinu?
— Tvímælalaust bikarúrslita-
leikurinn gegn Val. Það var
takmarkið hjá okkur að vinna
bikarinn og það tókst. Markið sem
ég skoraði í þeim leik er vafalaust
mikilvægasta markið, sem ég hef
skorað á mínum knattspyrnu-
mannsferli.
— Heldurðu ekki að þú munir
sakna félaganna í Akranesliðinu
og Kirbys þjálfara?
— Alveg örugglega. Þau þrjú ár
sem ég hef verið í meistaraflokki
IA hafa verið mjög skemmtileg
ekki síst vegna þess að strákarnir í
liðinu hafa verið frábærir félagar.
Svo mun ég auðvitað sakna
Kirb.vs, hann hefur verið mér mjög
mikilvægur, bæði sem þjálfari og
félagi. Hann hefur gert mig að því
sem ég er í dag, kennt mér að
skapa tækifæri og nýta þau.
Pétur hefur leikið knattspyrnu
frá barnæsku. Hann hefur leikið í
öllum flokkum ÍA og ætíð sem
miðherji. Nú er að hefjast nýtt
tímabil hjá honum, tímabil
atvinnuknattspyrnunnar. Honum
fyl«ja"beztu óskir um gott gengi í
Hollandi.
- ss.
Pétur Pétursson.
Karl Þórðarson.
„Hef fullan hug á atvinnumensku"
— AUÐVITAÐ er ég mjög ánægður með að hljóta
þennan titil — sagði knattspyrnumaðurinn snjalli Karl
Þórðarson frá Akranesi, í viðtali eftir verðlauna-
afhendinguna. Karl setti nýtt met í meðaleinkunn
Morgunblaðsins, hann hlaut 60 stig í 18 leikjum, eða 3,3
stig að meðaltali. Það er auðvitað stórkostlegur árangur,
þó að almenningur deili um réttmæti einkunnagjafarinn-
ar. Og Karl var óumdeilanlega langbesti leikmaður
íslandsmótsins og sá sem mestum framförum hafði tekið
frá árinu áður.
— Það er mikið fylgst með
einkunnagjöfinni uppi á Skaga,
fólk er síreiknandi út og það er
gaman að því þegar maður á
möguleika á titlinum. Bikarinn er
eitthvað til að keppa að og er því
ekkert nema gott um hann að
segja, hann skapar keppni og góða
stemmningu. Ég er stoltur yfir því
að hafa tryggt mér hann, sagði
Karl enn fremur.
Karl hóf að leika með meistara-
segir Karl Þórðarson, leikmaður íslandsmótsins
„Erlendu þjátfararnir hleypa nýju blóði í handknattleikinn"
- ÉG ER mjög ánægður yfir að hafa hlotið þessi
glæsilegu verðlaun, sem Morgunblaðið veitir, þau eru
persónuleg og ekki er vafi á að þau eru íþróttamönnum
mikil hvatning. Það er ekki skrýtið að menn séu
stundum ósammála um einkunnagjöfina, hún er byggð á
mati og því ekki einhlít. En hvað um það, Mbl. á þakklæti
skilið fyrir að standa svona myndarlega að þessu.
— Ég var ekki að keppa að
markakóngstitlinum á síðasta
vetri. Það sést á leik manna ef svo
er. Hins vegar var ég markheppinn
og tók svo til öll vítaköstin se'm
Ármann fékk og það hjálpaði
myndarlega upp á sakirnar. Þá var
ég í góðri skotæfingu og um leið í
hörku sóknaræfingu, en áður fyrr
var meira litið á mig sem várnar-
leikmann.
— Mér finnst handknattleikur-
inn á Islandi vera á tímamótum.
Handknattleikurinn hefur verið á
niðurleið undanfarin tvö ár og er
það fyrst og fremst vegna þess að
forustan setti sér röng markmið
og hefur á vissan hátt brugðist
skyldu sinni. Það hefur gleymst að
reyna að útbreiða handknattleik-
inn. HSÍ hefur ekki sinnt upplýs-
ingaskyldu sinni nægilega vel, það
er ekki gott að sérsamband eins og
HSÍ hafi ekki blaðafulltrúa. En
vonandi verður breyting á þessu í
vetur, með starfi Jóhanns Inga
Gunnarssonar hjá sambandinu.
— Mér er efst í huga nú er við
stöndum á þessum tímamótum
sem ég talaði um, að sú breyting
sem gerð hefur verið á niðurröðun
íslandsmótsins í handknattleik
leggst ekki vel í mig, Það er hæpin
ráðstöfun að láta einn leik fara
fram í einu. Aðsókn að leikjum á
eftir að minnka, og þar með
áhuginn á boltanum um leið.
Félögin verða fyrir fjárhagstapi og
það kemur illa við þau.
Handknattleikurinn verður góð-
ur í ár að mínu mati og ekki verri í
2. deild en þeirri 1. Við í Ármanni
leikum í 2. deild og ég stend í
þeirri meiningu að keppnin þar
verði harðari og meiri en nokkuru
sinni fyrr. KR-ingar og Ármenn-
ingar verða í efstu sætunum en
mörg lið geta þó sett strik í
reikninginn og koma örugglega til
með að fylgja fast á eftir.
Ég hef þá trú að Valur og
Víkingar verði í efstu sætum 1.
deildarinnar í ár.
Við þurfum að fá betri þjálfara
til að annast yngri flokka félag-
anna þar er grunnurinn lagður, og
mikilvægt að vel takist til.
Þjálfaranámskeiðin sem HSÍ hef-
ur gengist fyrir í vetur eru spor í
rétta átt. Vonandi verður fram-
hald á því. Erlendu þjálfararnir
sem starfa hér núna hjá Víkingi og
FH eiga eftir að hleypa nýju blóði
í þeirra lið; það sést t.d. strax á
Víkingum hve góðri æfingu þeir
eru í og hvað þeir leika hraðan
handknattleik. Mér finnst sjálf-
sagt að ráða erlenda þjálfara þó
svo að ég telji það ekki allra meina
bót. Það er hins vegar ljóst að þeir
eiga betra með að halda aga.
í lok samtalsins báðum við
Björn að segja okkur frá því
hvernig hann gerði öll þcssi
mörk.
— Ég hef ekki neina sérstaka
formúlu fyrir markaskorun. Ég
spila fyrst og fremst fyrir liðið en
ekki sjálfan mig. Það var ekki lögð
nein sérstök áhersla á að gera mig
markhæstan.
Það fer eftir ýmsu hvenær
maður reynir skot í leikjum. Að
sjálfsögðu reynir maður að bíða
eftir sem bestu skotfæri þó oft
- segir Björn Jóhannesson, markakóngur í handknattleik
vilji brenna við að reynt sé að
skjóta of fljótt, það kemur einkum
fyrir þegar ég er orðinn þreyttur
og er ekki vel upplagður.
Það hefur mikið að segja að vera
vel upplagður í leikjum. Ég geri
ekki mikið af því að skoða
markverðina og athuga stíl þeirra.
Það er helst í vítaköstum, sem
maður reynir að sjá út handa-
hreyfingar þeirra og fótahreyfing-
ar.
Erfiðasti íslenski markmaður
sem ég hef leikið á móti er
tvímælalaust Gunnar Einarsson í
Haukum sem leikur nú í Dan-
mörku. Það er erfitt að eiga við
hann í vítaskotum jafnt sem
langskotum.
Það er alltaf ánægjulegt að sjá
knöttinn fara í netið, segja má að
því fylgi viss tilfinning, sagði
Björn að lokum.
- ÞR.
flokki Akraness aðeins 17 ára
gamall og sagði Karl að það hefði
verið mjög óvænt fyrir sig, — sá
leikur er mér minnistæðastur í
gegnum árin, en í sumar eru tveir
leikir ofarlega í huga. í deilda-
keppninni, leikur okkar gegn
Breiðabliki í Kópavogi og síðan
Evrópuleikurinn í Köln. Fyrri
leikurinn er mér minnisstæður,
einkum fyrir eigin frammistöðu,
en sá síðari frekar vegna frammi-
stöðu ÍA-liðsins í heild, en 1—4
tap gaf kolranga mynd af gangi
leiksins. Við vorum síður en svo
lakari aðilinn í leiknum og við
vorum mun betri þar heldur en
þegar við gerðum jafntefli við
Kölnara á Laugardaisvellinum
hálfum mánuði síðar.
Hvað um landsleikina í sumar
og haust? — Ég held að við getum
vel við unað þegar á heildina er
litið, — sagði Karl. — Þessar
þrautreyndu knattspyrnuþjóðir
hafa mun meiri snerpu og úthald
heldur en við og getum við því
verið ánægðir með að standa uppi
með ekki stærri töp á útivöllum.
Persónulega þykir mér skemmti-
legra að leika á útivöllum þegar
glímt er við erlendar þjóðir, það er
meiri stemmning auk þess sem
ferðalögin eru skemmtileg. Ég tel
að Islendingar muni ekki koma
stigalausir út úr Evrópukeppninni,
ég tel að sigurlíkur séu ekki litlar
gegn Austur-Þjóðverjum í Laugar-
dalnum og við ættum einnig að
geta velgt Svisslendingum undir
uggum.
Hvað um framtíð þína með
landsliðinu? — Ég get ekkert um
hana sagt, en ég vona auðvitað að
ég eigi eftir að leika sem flesta
leiki með íslenska landsliðinu í
framtíðinni.
Peter Stephan frá Feyenoord
gaf ótvírætt í skyn að hann hefði
hug á að bjóða þér til Feyenoord.
Fari svo, hver verða viðbrögð þín?
— Á þetta var lítillega minnst í
síðustu viku, en síðan ekkert meir.
Ef mér verður boðið til Feyenoord,
hefði ég mikinn hug á að fara og
kynna mér málin og ef mér yrði
boðinn samningur, er ekkert frá-
leitt að ég tæki honum, því að ég
hef mikinn hug á að komast í
atvinnumennsku.
En ef ekkert heyrist frá Feye-
noord? — Þá verð ég líklega eitt ár
enn uppi á Skaga og sé síðan til
hvort eitthvað liggur fyrir fyrir að
því loknu. Ég fékk boð frá belgísku
félagi, en það var ekki freistandi,
þó að um fyrstu deildar liðværi að
ræða. Ég fer ekki út í atvinnu-
mennsku nefna boðið sé gott, ég
flana ekki að neinu í þessu
sambandi, sagði Karl.
Mbl. spurði Karl hvort hann
teldi að í A-liðið gæti fyllt upp það
skarð sem eftir stæði við brottför
Péturs, ekki síst ef Karl hyrfi
hugsanlega sjálfur á braut. — Um
sjálfan mig vil ég sem minnst
segja, en skarð Péturs verður
erfitt að fylla, það segir sig sjálft.
Ég er samt ekki svartsýnn, Skaga-
menn hafa ótrúlega oft síðustu
árin átt markakónga Islandsmóts-
ins, Teit, Matthías, Pétur, þannig
að maður hefur komið í manns
stað. Það eru ýmsir efnilegir yngri
leikmenn á Skaganum og aldrei er
að vita nema heim komi leikmenn
sem leikið hafa með öðrum liðum,
t.d. Sigþór Ómarsson sem leikið
hefur með Þór að undanförnu, en
lék áður í liði Skagamanna. Þetta
verður tíminn einn að leiða í ljós,
en ég endurtek, að ég er ekki
svartsýnn.
Karl, sem er 23 ára gamall,
starfandi rafvirki hjá Þorgeir og
Ellert. á Akranesi, hefur verið
heiðraður uppi á Skaga, ekki síður
en hjá Mbl. I lok keppnistíma-
bilsins var hann kosinn íþrótta-
maður ársins á Akranesi og
félagar hans í Akranesliðinu kusu
hann knattspyrnumann ársins hjá
IA. Það allt undirstirkar, að réttur
maður hlaut útnefningu Morgun-
blaðsins sem leikmaður Islands-
mótsins.
— gg.
„Verðlaunin munu minna
mig á þau góðu ár sem ég
hef átt með Akranesliðinu"
Gunnar varð fyrir vaEnu
EKKI reyndist unnt að halda til streitu einkunagjöfunni á síðustu
handboltavertíð. þ.e. að verkfall hlaðamanna varð til þess að ekki
reyndist möguleiki að fylgjast með öllum leikjum mótsins. Ljóst
var þó hvert stefndi og Gunnar Einarsson markvörður úr
Haukum og nú með Aarhus KFUM. var kosinn handholtamaður
ársins 1977 —78. Var það samdóma álit fréttamanna blaðsins.
Nokkrir leikmenn veittu Gunnari mjög harða keppni og má þar
nefna Hauk Ottesen KR. Árna Indriðason Víkingi. Andrés
Kristjánsson Iiaukum. Jón Karlsson Val, Pál Björgvinsson
Víkingi og Jens G. Einarsson ÍR.
EFTIRTALDIR knattspyrnumenn hlutu besta meðaltal í
einkunagjöf Mbl. fyrir 1. deildar keppnina í sumar.
Karl Þórðarson ÍA
Atli Eðvaldsson Val
Dýri Guðmundsson Val
Arni Sveinsson ÍA
Janus Guðlaugsson FH
Sigurlás Þorleifsson ÍBV
Örn Óksarsson ÍBV
Sigurður Haraldsson Val
Pétur Pétursson ÍA
Þorsteinn Bjarnason ÍBK
Þorbergur Atlason KA
Guðmundur Þorbjörnsson Val
stig leikir meðalt.
60 18 3,33 stig
52 18 2,88 stig
48 17 2.82 stig
50 18 2,77 stig
49 18 2,72 stig
19 18 2,66 stig
48 18 2.66 stig
48 18- 2,66 stig
45 17 2.61 stig
45 17 2.61 stig
45 18 2,50 stig
45 18 2,50 stig
Markhæstir í handknattleik
EFTRITALDIR leikmenn urðu markha>stir í 1 deildarkcppni
íslandsmótsins í handholta 1977 — 78.
Björn Jóhannesson Ármanni 86
Andrés Kristjánsson Ilaukum 78
Jón Karlsson Val 78
Brynjólíur Markússon ÍR 76
Haukur Ottesen KR 69
Björn Pétursson KR 60
Páll Björgvinsson Víkingi 58
Janus Guðlaugsson FII 57
Gústaf Björnsson Fram 54
Viggó Sigurðsson Vfkingi 53
Símon Unndórsson KR 52
Markhæstir í knattsppu
EFTIRTALDIR leikmenn voru markhæstir í íslandsmótinu í
knattspyrnu síðastliðið sumar.
Pétur Pétursson ÍA 19
Ingi Björn Albertsson Val 15
Atli Eðvaldssor. Val 10
Sigurlás Þorleifsson ÍBV 10
Kristinn Björnsson ÍA 8
Steinar Jóhannsson ÍBK 8
Guðmundur Þorbjörnsson Val 8
Gunnar Örn Kristinsson Víkingi 8
VERÐLAUNAMENN
MORGUNBLAÐSINS
EFTIRTALDIR leikmenn hafa
hlotið titil Mbl.. leikmaður
íslandsmótsins. frá því að
einkunagjöf blaðsins hóf göngu
sína.
KNATTSPYRNA.
1971. Jón Alfreðsson ÍA
1972. Eyleifur Hafsteinsson ÍA
1973. Guðni Kjartansson og
Einar Gunnarsson ÍBK
1974. Jóhanncs Eðvaldsson Val
1975. Martcinn Geirsson Fram
og Jón Alfreðsson ÍA
1976. Ingi Björn Albertsson
Val
1977. Gísli Torfason ÍBK
1978. Karl Þórðarson ÍA
HANDKNATTLEIKUR.
1972. Geir Ilallsteinsson FII
1973. Ólafur II. Jónsson Val
1974. Viðar Símonarson FII
1975. Ilörður Sigmarsson
Ilaukum
1976. Pálmi Pálmason Fram
1977. Björgvin Björgvinsson
og Hörður Sigmarsson.
Víkingi og Haukum
1978. Gunnar Einarsson Ilauk-
um / Aarhus KFUM
Frá því Mbl. byrjaði að veita
markakóngi í íslandsmótinu í
handknattleik og knattspyrnu
verðlaun hafa þau fallið í hlut
eftirtalinna.
KNATTSPYRNA
1971. Steinar Jóhannsson ÍBK
1972. Tómas Pálsson ÍBV
1973. Ilermann Gunnarsson
Val
1974. Teitur Þórðarson ÍA
1975. Matthías Hallgrímsson
ÍA
1976. Ingi Björn Albertsson
Val
1977. Pétur Pétursson ÍA
1978. Pétur Pétursson ÍA
HANDBOLTI
1972. Geir Hallsteinsson FH
1973. Einar Magnússon
Víkingi
1971. Axel Axelsson Fram
1975. Hörður Sigmarsson
Ilaukum
1976. Friðrik Friðriksson
Þrótti
1977. Hörður Sigmarsson
1978. Björn Jóhannesson Ár-
manni