Morgunblaðið - 21.11.1978, Side 1
48 SIÐUR MEÐ 4 SIÐNA IÞROTTABLAÐI
266. tbl. 65. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Sadat vill
dagsetningu
París, 20. nóvember. Reuter.
ANWAR Sadat íorseti sagði í dag að hann mundi ekki undirrita
íriðarsamning við ísrael nema hann væri tengdur nákvæmri
dagsetningu upphafs sjálfstjórnar Palestínumanna á vesturbakkanum
og Gazasvæðinu.
Hann sagði að hann vildi að
sjálfstjórn hæfist þegar lokið væri
fyrsta þætti brottflutnings ísra-
elsmanna frá Sinai. Þetta ætti að
gerast ekki miklu seinna en sex til
níu mánuðum eftir undirritun
samningsins.
Forsetinn sagði þetta í viðtali
við franska sjónvarpið. Viðtalið
var tekið í Kaíró og birtist í
sjónvarpinu í kvöld.
I Jerúsalem batt Menachem
4 fórust í
sprengingu
Tel Aviv, 20. nóvember. AP.
ELLEFU manns voru enn á
sjúkrahúsi í dag eftir að
áætlunarbíll á leið til Jerúsal-
em var sprengdur í loft upp í
gær og fjórir menn fórust, að
því er fréttir hermdu í dag.
Af hinum látnu þekktust
aðeins þrír þeirra, belgískur
ferðamaður, 18 ára gamall, og
tveir ísraelskir borgarar. Ann-
ars voru flestir farþegar bílsins
erlendir, frá Svíþjóð, Kanada
og Bretlandi flestir.
Þessi sprenging er ein
þriggja í gær en þá var liðið
nákvæmlega eitt ár frá hinni
sögulegu ferð Sadats til Jerú-
salem.
Begin forsætisráðherra vonir sín-
ar við það í dag að klukkan yrði
færð aftur til þess tíma áður en
viðræðurnar við Egypta komust í
ógöngur vegna ágreinings um
tímasetningu brottflutnings ísra-
elsmanna.
Begin lýsti því yfir í gær að
hann væri reiðubúinn að sam-
þykkja samningsdrög sem Banda-
ríkjamenn höfðu samþykkt eins og
þau hefðu verið 11. nóvember.
Þetta merkir að sögn embættis-
manna að Begin sé nú reiðubúinn
að undirrita samningsdrög sem
hann taldi óviðunandi fyrir níu
dögum.
Egypzka sendinefndin í friðar-
viðræðunum í Washington var
ekki farin að krefjast kosninga um
heimastjórn á vesturbakkanum og
Gaza sex mánuðum eftir gerð
friðarsamnings þegar viðræðurnar
komust í sjálfheldu 11. nóvember.
Begin tók fram að ísraelsmenn
gætu ekki sætt sig við tímasetn-
ingu Egypta og heldur ekki
málamiðlunartillögu Bandaríkja-
manna um að kosningar fari fram
að 12 mánuðum liðnum.
Begin sagði að hann gæti fallizt
á drögin frá því fyrir 11. nóvem-
ber, jafnvel þótt þar væri tvennt
sem ísraelsmenn hefðu mótmælt
til þessa — um að samningurinn
verði grundvöllur framtíðasamn-
inga við Arabaríki og ófullnægj-
andi orðalag um Gaza.
Ljósm. Mbl. Árni Johnsen. — símamynd AP
Jónína Sigmarsdóttir flugfreyja á Joseps Fraser einkasjúkrahúsinu í Colombo í gær, þar sem hún
nýtur góðrar umönnunar og er óðum að hressast, en viðtal við Jónínu og hinar flugfreyjurnar þrjár
birtist á baksíðu.
Harald Snœhólm í samtali viðMorgunblaðið:
„Rankaði við mérklemmdur undir tré
og eldtungurnar teygðu sig að mér”
Frá Árna Johnsen, blaðamanni Mbl. í Colombo í gær.
Colombo, 20. nóv. 1978.
„ÞETTA ER búin að vera meiri martröðin,“ sagði Harald
Snæhólm flugstjóri í samtali við Mbl. í gærkvöldi.
„Aðflugið virtist allt vera í lagi og ég skil ekki, hvað
getur hafa skeð. Ég hélt hann væri alveg að snerta
brautina, því það var búið að draga það mikið úr afli
hreyflanna, hjólin komin niður, flapsar á og vélin búin
að lækka sig það lengi.
Skyndilega þegar ég hélt, að
hann væri að lenda, gaf hann á
fullt og þá sagði ég við Ernu,
sem ég sat hjá í aftureldhúsinu:
„Nú er eitthvað að ske,“ og rétt í
því var eins og vélin skylli
harkalega niður á hjójin og ég
hélt það væri á brautinni. En
eftir höggið hoppaði vélin upp og
niður og kastaðist til vinstri.
Við Erna vorum þá búin að
leysa beltin, en um leið og vélin
skall á jörðina með feikilegu
braki og brestum, hentist ég í
vegginn á móti eldhússætunum,
og þá sá ég að vélin hafði
brotnað að framan og eldur var
kominn upp í miðri vélinni, á
sama tíma og vélin plægði
jörðina áfram. En þá rotaðist ég
og rankaði við mér aftur þar sem
ég var klemmdur undir tré. Þar
urðu sprengingar og eldtungur,
fólk grátandi og veinandi allt um
kring og eldtungurnar teygðu sig
í átt að mér, en ég var lamaður í
fótunum og rétt gat krafsað mig
frá eldinum. En síðan komu
tveir innfæddir og hjálpuðu mér.
Ég gat heldur ekki hrópað, því
ég fékk það mikið högg fyrir
bringspalirnar.
Það var engin ókyrrð eða neitt
Harald Snæhólm
slíkt í loftinu. Þegar vélin hafði
verið í 7000 feta hæð var ég
frammi í og sá þá í radarnum, að
það voru smá þrumuhnoðrar allt
í kring, en slíkt er ekki óalgengt.
Annars get ég sagt þér undar-
legan draum, sem vinur minn
sagði mér rétt áður en ég fór út.
Hann Árni Þormóðsson á Nes-
kaupstað hitti mig, sagðist hafa
dreymt mig svo mikið og því
hefði hann látið ráða drauminn.
Hann spurði mig, hvort það væri
ákveðið, að ég yrði flugstjóri á
DC 10, en ég sagði það ekki
ákveðið. Þú verður fyrir happi
bráðlega, mjög miklu happi,"
sagði hann. Og ég tel, að svo hafi
verið, að lenda hérna megin út
úr þessu hræðilega slysi. Ég þarf
að þakka Árna fyrir drauminn."
Rændu fer ju
á Bosporus
Istanbul, Tyrklandi. 20. nóv, AP
ÖRYGGISVERÐIR handtóku í
dag að minnsta kosti 400
manns og bundu þannig endi á
ferjurán á Bosporus-sundi.
Eltu öryggisverðirnir ferjuna á
tveimur lögreglubátum um allt
Bosporus, en ferjunni var siglt
fram og aftur um sundið meðan
á eltingarleikum stóð.
Um borð í ferjunni voru um
750 farþegar og voru allir
karlmenn færðir til yfirheyrslu,
en konum og börnum sleppt
þegar skipinu var snúið til
hafnar í Istanbul.
Embættismenn sögðu að „her-
skáir Mao-istar“ hefðu rænt
ferjunni í hefndarskyni fyrir að
vera ekki leyft að sækja jarðar-
för eins félaga þeirra í bænum
Morgue.