Morgunblaðið - 21.11.1978, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 1978
13
Þangað til vona ég að það
verði smámál samanborið við
erfiðleikana sem við hefðum átt
við að stríða í þinginu án
samsteypustjórnar. Með því að
komast fyrst að samkomulagi
innan stjórnarinnar getum við
nú ráðið ferðinni þegar við
leggjum frumvörp okkar fram í
þinginu. Maður verður að hafa
hugfast þegar maður talar um
danska pólitík að það sitja 12
flokkar á þingi.
Samsetning atkvæðanna er
síbreytileg og leiðirnar sem
hægt er að fara eru jafnmargar
og spurningarnar $em þarf að
svara. Stjórnin er ekki meiri-
hlutastjórn en hún er stjórn sem
verður mjög erfitt að fá meiri
hluta á móti.“
„Við höium ekki
jafnað okkur eftir
efnahagskreppuna ...“
Efnahagsvandamál Dan-
merkur ættu kannski ekki að
vera svo mikil? Fyrirtækja-
rekstur gengur vel. bezt á
Norðurliindum. Þó eru 180.000
atvinnulausir.
„Við höfum ekki jafnað okkur
eftir efnahagskreppuna sem
herjaði alls staðar í heiminum.
Ekki fremur en nokkuð hinna
Norðurlandanna. Við höfðum
ekkert atvinnuleysi 1973 en tíðin
hefur ekki verið góð síðan þá.
Hvergi í heiminum.
Samhliða þessu hefur mann-
aflinn aukizt mjög í landinu —
ekki sízt vegna þess að konum
fjölgar stöðugt á vinnumark-
aðnum — Það er þróun sem á
sér stað á öllum Norðurlöndum.
Þetta kemur fram í atvinnuleys-
istölunum."
Atvinnuleysi meðal danskra
ungmenna er mikið. allt að
30.000 eru atvinnulausir.
„Samkvæmt tölum OECD er
atvinnuleysi minnst meðal
danskra ungmenna. Ég nefni
þetta því tölúrnar eru til. Mér
finnsta talan sannarlega allt of
há og áhyggjuefni fyrir sam-
félagið.
Eldra fólk sem er á leið af
vinnumarkaðnum veldur einnig
áhyggjum. Síðast liðið haust
tókum við upp nýja stefnu sem
er fólgin í því að greiða fólki yfir
60 ára 907/ af launum þess
þangað til það kemst á ellilíf-
eyri. Þetta hjálpar ungmennum
að finna laus störf.“
Munu Norðuriönd eiga við
erfiðleika að stríða í fram-
tíðinni?
„Ég er á þeirri skoðun að þau
vandamál sem við eigum við að
stríða nú (eða þróun ef maður
getur tekið þannig til orða)
verði ekki leyst á næstu árum.
Til að vandinn verði leystur
þurfa margar breytingar að eiga
sér stað í þjóðfélaginu. Atvinna
verður að skiptast á jafnari og
réttlátari hátt. Framleiðslu og
verzlun verður að endurskipu-
leggja svo við stöndum betur að
vígi í alheimsviðskiptum en nú.
Gamlir markaðir hverfa stöðugt
og nýir koma í staðinn því að
þarfir fólksins breytast.“
Anker Jörgensen var áður
fyrr mjög róttækur. Er hann
nú orðinn raunsærri og hlynnt-
ari hefðbundnum leiðum en
djörfum hugsjónum og stefn-
um?
„Ég hef aldrei verið mjög
róttækur — en ég er róttækur
og verð það alltaf. Ég fylgi
raunsærri jafnaðarstefnu hægt
og bítandi. En allir ábyrgir
stjórnmálamenn gera sér grein
fyrir að ekki er hægt að styðjast
við hugmyndir einar saman.
Efnahagsvandamál koma í veg
fyrir að maður lifi í skýja-
borgum. Erfiðleikarnir eru
staðreyndir sem krefjast mikils
tíma.
En hugsjónin má ekki
gleymast! Og það hefur hún
heldur ekki gert í samkomulag-
inu sem við komumst að við
Vinstri flokkinn.
Ég hef þegar nefnt stefnu
okkar í ellilifeyrismálum. Við
reynum að skapa vinnumarkað
fyrir ungmennin. A tímum
þegar viðskiptalífið krefst minni
fjárútláta hins opinbera drögum
við saman seglin en hlutverk
rikisins heldur þó áfram að
vaxa. í félags- og menningar-
málum er hlutverk hins opin-
bera stórt. Þegar stjórnin
ákveður að veita menntastyrki
er einnig um stefnu jafnaðar-
manna að ræða.“
Margir andstæðingar yðar
segja yður valdafíkinn.
„Sjálfs mín vegna er ég það
ekki. Hér er um baráttu fyrir
völdum flokksins að ræða svo að
réttri stefnu verði fylgt — ef
það er valdafíkn, þá viðurkenni
ég sekt mína með góðri sam-
vizku!"
ab
Útgeröarmenn
skipstjórar!
Höfum nú fengiö einkaumboö á íslandi fyrir hina þekktu
norsku átaksmæla og víralengdarmæla frá Promaco a.s.
Leggjum áherslu á góöa viðgeröar-
og varahlutaþjónustu.
RAT
Med leiguf lugi til
LONDON
27. nóv. og 3. des.
LONDON býður upp á flest allt sem hugurinn girnist
Hótel
Þú getur valióúr 3hótelum,sem ölleru
staósett viö OXFORDSTREET, fræg-
ustu verslunargötu í London.
Skoóunarferðir
Skipulagóar skoöunarferóir i báóum
feróum-íslensk fararstjórn.
Knattspyrna
Af hverju ekki aó bregóa sérá völlinn
og sjá knattspyrnu eins og hún gerist
best? «»
Fyrri feró: *
Chelsea — Bristol City
Tottenham—Arsenal
Síóari feró:
Chelsea — Aston Villa
Tottenham — Ipswich
Skemmtanir
í London er skemmtanalífió ótrúlega fjöl-
breytt og allir sem þangaó koma ættu
aó skreppa í leikhús.
Landbúnaðarsýning
Hin heimsfræga SMITHFIELD land-
búnaöarsýning stendur þeimtil boóa
sem velja síóari feróina.
ISamvinnufendir
AUSTURSTRÆTI 12 - SIMI 27077
9 LANDSYN
AUSTURSTRÆTI 12-SIMI 27077