Morgunblaðið - 21.11.1978, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 1978
Hluti aí áhöfn Dagfinns Stefánssonar flugstjóra við brottförina frá flugstöðinni í Colombo en önnur frá hægri er
Katrín Fjeldsted læknir, sem fór á vegum Flugleiða til Sri Lanka til að annast um hina slösuðu úr áhöfn vélarinnar
sem fórst og fjórða frá hægri er Kristín Kristleifsdóttir flugfreyja sem slapp ómeidd úr slysinu og fékk að fara
heim með áhöfninni. Ljósm. mw. Ámi johnsen.
Sker ríkisstjórnin tvö
núll aftan af krónunni?
ákvörðun á þessu ári ef taka hina nýju mynt í notkun
mögulegt ætti að vera að í byrjun árs 1980.
Eimskip hækkaði flutningsgjöldin aftur:
Viðræður hafnar við Bifröst
um gagnkvæm hlutabréfakaup
Þung
færðá
vegum
MIKIL snjókoma var á Suöurlandi
í gærkvöldi og var færð víða farin
að spillast. Hellisheiðin var orðin
mjög þungfær og sömuleiðis var
þungfært orðið á Keflavíkurvegin-
um og þar var mikil hálka.
Snjóþungt hefur verið víða um
land að undanförnu og er víða
algerlega ófært orðið að sögn
vegaeftirlitsins.
Rannsóknar-
nefndin hefur
byrjað störf
Colombo, 20. nóvember.
Frá Árna Johnsen, blaóamanni Mbl.
UNNIÐ er af krafti að hreinsun á
slysstaðnum þar scm Flugleiða-
vélin fórst. Rannsóknarnelndin
hefur þegar byrjað störf sín, en
margar vikur munu liða þar til
niðurstaða liggur fyrir.
Lík eru ennþá að finnast, og
fundust til að mynda þrjú í gær og
tvö í dag, en á morgun stendur til
að lyfta flakinu.
Nú hafa alls 173 lík verið send
til Indónesíu. Fyrir liggur að 36
manns sluppu ómeiddir en 39 hafa
verið í sjúkrahúsum til meðferðar
eða á hótelum svo að enn er
nokkurra saknað.
Hér var flaggað í hálfa stöng á
opinberum byggingum fjóra fyrstu
dagana frá slysinu, og forsætisráð-
herra Sri Lanka hefur heimsótt
sjúkrahúsið þar sem flestir hinna
slösuðu liggja.
NOKKRIR jarðskjáiftar urðu á
Suðurlandi um hclgina og er
þetta snarpasta hrina sem þar
hefur orðið í 9 ár, að sögn
Ragnars Stefánssonar
jarðskjálftafræðings.
Fyrsta skjálftans varð vart um
hálftólfleytið á laugardagskvöldið
og annar kippur kom klukkan 6.50
á sunnudagsmorguninn. Báðir
þessir skjálftar voru um 3 stig á
Richterkvarða. Klukkan 7.25 kom
ÞEIM dagvistunarstofnunum í
Reykjavík, sem átti að opna eða
byrja á í haust, hefur öllum verið
seinkað utan dagheimilinu við
Suðurhóla. sem verður fullbúið
um næstu mánaðamót. En félags-
málaráð gekk í málið, þegar því
hafði líka verið seinkað. Dag-
heimili við Ilagamel og skóladag-
heimili við Völvufell hefur verið
seinkað fram í aprfl á næsta ári.
Og tvær stofnanir sem átti að
bjóða út í haust, dagheimili og
leikskóli við Iðufell og önnur
samstæða við Fálkabakka verða
ekki boðnar út á þessu ári. Þetta
kom fram i greinargerð um
framkvæmdir á árinu, sem borg-
VIÐRÆÐUR hafa farið
fram milli ríkisstjórnarinn-
ar og Seðlabankans um
hugmyndir þær sem banka-
stjórnin kynnti s.l. vor um
snarpasti kippurinn og mældist
hann 4.2 stig. Annar 3 stiga
skjálfti mældist klukkan 5.30 í
gærmorgun og inn á milli hafa
mælst smærri skjálftar.
Upptök skjálftanna virðast hafa
verið skammt vestur af Arnesi í
Þjórsá. Varð þeirra vart í ná-
grenninu og snarpasti skjálftinn
fannst frá Landi yfir á Skeið og
eitthvað niður í Flóa, að sögn
Ragnars.
arstjóri lagði fram á borgar
stjórnarfundi í síðustu viku.
Markús Örn Antonsson borgar-
fulltrúi sagði í umræðum, að þessi
skýrsla staðfesti að forysta meiri-
hlutans hefði gjörsamlega gengið
á bak orða sinna, en hún hefði í
kosningabaráttunni sagst ætla að
láta dagvistunarstofnanir hafa
forgang umfram annað í borginni.
Sagði Markús Örn, að þegar
sjálfstæðismenn voru í meirihluta
hefði verið unnið markvisst að því
að taka þrjár dagvistunarstofnan-
irnar í notkun á þessu ári, við
Suðurhóla í haust og við Hagamel
og Völvufell fyrir áramót. Nú væri
í greinargerðinni gert ráð fyrir að
að skera tvö núll aftan af
krónunni.
„Við reiknum með því að
ríkisstjórn taki einhverja
ákvörðun um þetta um næstu
mánaðamót," sagði Jóhannes
Nordal seðlabankastjóri í
samtali við Mbl. í gær.
Viðræður hafa farið fram um
málið milli bankastjórnar og
viðskiptaráðherra en ríkis-
stjórnin mun síðan taka um
það ákvörðun hvort af þess-
ari breytingu verður eða ekki.
í tillögum Seðlabankans
var ráð fyrir því gert að
gjaldmiðilsbreytingin tæki
gildi um áramótin 1979/1980,
ef samþykkt yrði, þar sem
hún þarf töluvert mikinn
undirbúning. Sagði í tillögum
bankans að taka þyrfti
Hagamelsheimilið kæmist í notk-
un í apríl og Völvufellsheimilið um
mánaðamót marz og apríl. Þá
hefði verið ákveðið að tvær nýjar
stofnanir við Iðufell og Fálka-
bakka, dagheimili og leikskóli á
hvorum stað, væru boðnar út í
haust, enda samþykktar teikning-
ar í lok síðasta kjörtímabils og
áætlaðar 46 millj. fyrir byrjunar-
framkvæmdum á þessu ári. Nú
væri sagt að þau yrðu boðin út um
áramót, en þar sem byggingartími
væri reiknaður 12—14 mánuðir og
varla byrjað fyrr en í vór, yrði
sérstakt lán ef hægt yrði að ljúka
framkvæmdum fyrir ársbyrjun
1980.
VIÐRÆÐUM milli forráðamanna
Eimskipafélagsins og Skipa-
félagsins Bifrastar um einhvers
konar skipti á eignarhlutdeild
verður fram haldið síðar í þessari
viku, en fyrir helgina fóru fram
viðræður um þetta efni í kjölfar
yfirlýsingar Eimskipafélagsins
að það hefði hækkað flutnings-
gjöld sín á varningi fyrir varnar
liðið á nýjan leik og til jafns við
samsvarandi gjöld Bifrastar. í
sameiginlegri tilkynningu frá
skipafélögunum kemur fram að
þessar viðræður eru á algjöru
byrjunarstigi.
Forsvarsmaður Eimskipafélags-
ins, Óttarr Möller forstjóri, kvaðst
ekkert vilja frekar um málið segja
annað en það sem fram kæmi í
fréttatilkynningunum. Morgun-
blaðið spurði hins vegar Þóri
Jónsson, formann stjórnar Bif-
rastar, að hvors frumkvæði —
Eimskipafélagsins eða Bifrastar
— þessar viðræður hefðu verið
hafnar en hann svaraði því til að
farið hefðu fram milli þessara
aðila viðræður um flutningsgjöld-
in, og þá hefði brátt fléttast inn í
þær viðræður ýmis atriði varðandi
hvernig ná mætti sáttum í far-
gjaldadeilu félaganna. Þórir hvað
algjörlega enn ómótað með hvaða
hætti hugsanleg eignaraðild yrði,
ef af yrði.
Þórir var að því spurður hvort
þetta táknaði, að Eimskipafélagið
væri að gleypa Bifröst en hann
kvaðst ekki geta séð að þetta væri
neitt í þá áttina. Að minnsta kosti
teldu forráðamenn Bifrastar svo
ekki vera — „og það er þá að okkar
eigin ósk ef svo er.“
í fréttatilkynningum félagana
kemur fram að Eimskipafélagið
hefur hækkað flutningsgjald sitt
fyrir 20 feta gám úr 1312.50
dollurum í 1750 dollara, sem er
síðasta skráða gjald Bifrastar á
varnarliðsflutningunum. Þá segir í
tilkynningunni um viðræðurnar,
að í þeim „hafa m.a. lauslega verið
nefndir möguleikar á að félögin og
/ eða einstaklingar innan þeirra
keyptu hlutabréf í hvoru félaginu
um sig.
Metsala
hjá Karls-
efniíHuIl
TOGARINN Karlseíni seidi
117,5 tonn af íiski í IIull í
gærmorgun og fékk fyrir afl-
ann 85.904 sterlingspund cða
rúmar 52 milljónir íslenzkra
króna. Meðalverðið er 443,80
krónur fyrir hvert kfló og er
þetta hæsta mcðalverð, sem
íslenzkur togari hefur fengið í
Bretlandi.
Uppistaðan í afla Karlsefnis
var þorskur, um 50 tonn, 23 tonn
var grálúða og 16 tonn ýsa.
Annað var karfi, steinbítur og
ufsi.
Sterlingspundið hefur lækkað
um rúm 5% gagnvart íslenzku
krónunni síðan í byrjun nóvem-
ber s.l. Þá var gengi sterlings-
pundsins 642 krónur en var
komið í 607,25 krónur í gær. Ef
fyrrnefnda gengisskráningin
hefði verið í gildi í gær hefði
Karlsefni fengið rúmar 55 millj-
ónir fyrir aflann og meðalverð
verið 469,40 krónur fyrir kílóið.
J arðsk j álftahrina
á Suðurlandi
Fyrirhuguðum dagheimil-
um í Reykjavík seinkað
Forysta meirihlutans hefur brugðist, segir Markús Örn Antonsson