Morgunblaðið - 21.11.1978, Side 3

Morgunblaðið - 21.11.1978, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 1978 . 3 Engir dramatískir at- burðir munu gerast þrátt fyrir sigur minn segir Indira Gandhi í einkaviðtali við Morgunblaðið Jerúsalem, 20. nóv. 1978. Frá Jóhönnu Kristjónsdóttur, blm. Mbl. „ÉG GERI ekki ráð fyrir því, að neinir dramatískir atburðir gerist í bráð, þótt ég hafi unnið þennan sigur,“ sagði Indira Gandhi fyrrverandi forsætisráðherra í viðtali við blaðamann Mbl. á heimili sínu í Nýju Dehli. „Janatabandalagið hefur mikinn þingmeirihluta, sem er ekki í sýnilegri hættu. En Desai og stjórn hans eru hræddir. Þeir menn sem eru fullir haturs og vanmáttar magnast. Nei, ég dæmi ekki stjórn Desais né heldur spái ég henni neinu — hún sér fyrir því sjálf.“ „Ég varð ekki bitur yfir því, þegar ég tapaði á sínum tíma,“ segir hún aðspurð, „ég er alin upp samkvæmt Hindu — tek því sem að höndum ber með jafnaðargeði. Ég er svona oftast á miðlínunni og þess vegna er ég heldur ekkert ær af sigurgleði nú, þótt vissulega fagni ég. Ég hef þá trú og köllun, að ég geti unnið þjóð minni gagn. En ég neita því ekki, að ég og f jölskylda mín höfum orðið að þola miklar raunir sl. ár. Samt hef ég fundið velviljann líka.“ Ég spyr, hvort það hafi ekki verið næsta fífldjörf áhætta, sem hún tók þegar hún aflétti skyndilega undanþágulögum og öllu heila galleríinu, og ákvað að efna til kosninga á sínum tíma. „Það fannst mér nú náttúru- lega ekki,“ segir hún, brosir dauflega og strýkur hárið frá enninu. „Það er auðvitað aug- ljóst, að ég misreiknaði mig. Á undan var margt gengið, efna- hagskreppa hafði haldið heim- inum í heljargreipum, gjald- eyrismál flestra landa í ringulreið og olíukreppan, ókyrrð innanlands og sífelldar kröfur um launahækkanir, sem stjórn mín gekk að, væru þær sanngjarnar. Með setn- ingu laganna fékkst ráðrúm til að vinna. Það tókst að draga úr verðbólgu og atvinnuleysi og efla framleiðsluna. Allt kostar sitt, það vita þeir sem í stjórnmálum standa og þora að sýna ábyrgðartilfinningu og dirfsku fremur en fum og fát, sem gæti leitt til stundar- vinsælda. Þótt áróður væri mikill, taldi ég þetta réttan tíma vegna þess mér fannst ástandið svo miklu betra og svo mikið hefði áunnizt, því gekk ég til kosninga með góðri samvizku. Nú fór sem fór, ég fárast ekki yfir því frekar en ég fárast yfir sigri mínum núna. Nei, ég hef ekki augastað á leiðtogastöðu, hvað sem hver segir. Það sem hlýjar mér er fögnuður fólksins. Á hverjum degi síðan úrslitin voru ljós, hefur fólk þyrpzt að heimili mínu. Þetta hús er annars í eigu stjórnarinnar og ég flutti hingað eftir að ég hætti ráðherradómi og kannski sak- ar ekki að geta þess, að ég borga húsaleigu. Börn hafa komið og lagt blóm á stéttina hjá mér, konur og karlar hafa fært mér hvers kyns gjafir. Daginn eftir, að úrslitin voru ljós kom hingað fulltrúi verk- smiðjukvenna í sælgætisgerð til að bera mér kveðjur sam- starfsfólks síns. Þegar við vorum að rabba saman, greip hún allt í einu um magann og ég spurði, hvbrt hún væri að verða veik. „Þannig er mál með vexti,“ svaraði hún og hló við, „að forstjórinn varð svo glaður þegar úrslitin bárust, að hann bauð öllum að eta eins mikið sælgæti og þeir gætu í sig látið, og nú hef ég líklega borðað yfir mig.“ Indira Gandhi sagðist einu sinni hafa átt þess kost að koma til íslands, og hún harmaði, að þá hefði staðið svo á, að henni hefði verið það ógerningur. Hún sagðist hafa lesið margt um Island og dáðist að því, að svo fámenn þjóð á hjara veraldar hefði getað afrekað jafn mikið og hún vissi. „Ekki veit ég hvað þið hafið skrifað um mig þar, en ég er ekki sú járnkelling, sem press- an hefur reynt að gera mig að.“ I Delhi varð mikil stemning eftir sigur Gandhis. Desai og menn hans hafa viðurkennt þetta sem alvarlegt áfall og í næsta orði reynt að gera eins lítið úr mikilvæginu sem mögulegt er. Desai hefur sagt, að nú verði stjórnin að láta hendur standa fram úr ermum og jafna ágreining sem er gífurlegur innan bandalags- ins, þar er hver höndin upp á móti annarri. „Það var mikil andstaða gegn mér og and- stæðingar mínir hafa sakað mig um margt eins og þér ugglaust vitið. Samt staðhæfi ég, að ég hafi alltaf reynt að vinna í þeim anda, sem faðir minn innrætti mér, og enn hefur enginn sakað hann um svívirðu," sagði Indira Gandhi að lokum. Þaö er óþarfi aö fjölyröa um sífellt hækkandi benzínverð hér á landi. Síöustu spár gefa til kynna aö um næstu áramót veröi lítrinn kominn í 200 kr. Þaö er dýrt aö reka bíl meö því verði. DAIHATSU CHARADE er japanskur verölaunabíll, sem kallaöur hefur veriö rökréttur valkostur á tímum hækkandi eldsneytisverös og orkukreppu. DAIHATSU CHARADE sigraöi í sparaksturskeppni Bifreiöaíþrótta- klúbbs Reykjavíkur á sl. mánuði er hann fór 99.11 km á 5 lítrum af benzíni, sem þýöir aö hægt á aö vera aö aka á 35 lítrum austur á Langanes. DAIHATSU CHARADE er 5 manna, fimm dyra framhjóladrifinn fjölskyldubíll. Þriggja strokka fjorgengisvél tryggir hámarks orku og eldsneytisnýtingu. Hefur þú efni á aö kaupa bíl án þess aö kynna þér rökrétta valkostinn DAIHATSU CHARADE? Ný sending til afgreiöslu strax. SPARAKSTUR WWBIKRVm: Armúla 23 sími 81733 höfum viö 200 kr. benzínverði

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.