Morgunblaðið - 21.11.1978, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 1978
7
Nú andar
suöriö í staö
austankaldans
Það er i margan hétt
tróðlegt að fylgjast með
ráðherraferli forvígis-
manna AlÞýðubanda-
lagsins í núverandi ríkis-
stjórn — í Ijósi fyrri
heitstrenginga og „hug-
sjónabaráttu". Þannig er
Það kyndugt að heyra í
fréttum aö Ragnar Arn-
alds, fv. formaður Al-
Þýðubandalagsins,
standi nú í Því sem
menntamálaráðherra aö
deila út vísindastyrkjum
Atlantshafsbandaíagsins
á íslandi. Þá kemur Það
spánskt fyrir sjónir að
lesa um vsentanlega för
Svavars Gestssonar, fv.
ritstjóra Þjóðviljans, á
ráðherrafund EFTA, en
vestrœn viðskiptabanda-
lög hafa ekki verið I
hávegum höfð í Þeim
herbúöum, svo ekki sá
meira sagt. Einhver kann
enn að undrast, að í
ráðherratíð Hjörleifs
Guttormssonar, samreið-
armanns Lúðvíks Jós-
epssonar, núv. form. Al-
Þýðubandalagsins, skuli
líkur á Því að varnarliðið
á Miðnesheiöi fái varma-
lögn frá hitaveitu á
Suðurnesjum. Einhvern
tíma hefur andað kaldara
í garð varnarliðsins
(austan kaldinn á oss
blés) frá Þessum róttæku
„Þinghetjum" Austur-
landsins. En allt er í
heiminum hverfult. — Og
Natóaðild og varnarsam-
starf er hvergi undanskil-
ið í stjórnarsáttmálum,
ekki einu sinni til mála-
mynda, eins og gert var á
fyrri tíð stjórnaraöildar
Þessa tvíbenta henti-
stefnuflokks.
Borgum niöur
eigiö kaup
Lárus Jónsson (S)
vakti athygli á Því við
fyrstu umræðu um fjár-
lagafrumvarp, aö Það fæli
í sér verulega hækkun
beinna skatta í tekjuöflun
ríkissjóðs, Þrátt fyrir boð-
aöa „tekjuskattsniðurfell-
ingu“ AlÞýðuflokksinsl.
Hækkun á innheimtum
tekju- og eignasköttum
1979, skv. frumvarpinu,
næmi hvorki meira né
minna en 16.000 milljón-
um króna. Þessi skatt-
aukning stafaði m.a. af
Því — og einkum af Því
— að ætlunin sé að láta
fólk greiða niður úr eigin
Ragnar
vasa eigið kaup, í formi
pessarar auknu skatt-
heimtu og niöur-
greiðslna, með ráögerð-
um vísitöluleik. Þar á
ofan mun svo meiningin
að launÞegar gefi eftir
nokkur vísitölustig til
viðbótar.
Það er út af fyrir sig
virðingarvert að hamla á
móti víxlhækkunum
kaupgjalds og verðlags
— og sízt skal mælt í mót
Þeírri viöleitni hér. En
Það er öngvu aö síður
kaldhæðni örlaganna að
sjá Þá, sem hæst töluðu
um „samningana í gildi“
fyrir kosningar, heimta
nú eftirgjöf umsaminna
verðbóta; og Þá sem
tönnluðust mest á „kaup-
ráni" pá, sækja nú fjár-
muni í launaumslög fólks
til að greiöa niður kaup
pess sjálfsl
Byggðastefnu-
og félags-
hyggjumenn
Ekkert er nauðsynlegra
við afgreiðslu fjárlaga-
frumvarps við ríkjandi
efnahagsaðstæður en aö
stuðla að sparnaði og
aöhaldi í ríkisfjármálum.
Skuldaniðurgreiðsla og
rtflegur afgangur í ríkis-
búskapnum er, eða á að
Svavar
vera, ein af samverkandi
aðgerðum til að hamla
gegn verðbólgu og koma
á jafnvægi og öryggi á
sviði atvinnu- og efna-
hagsmála pjóðarbúsins.
Engu aö síður er Þaö
eilítið lágkúrulegt að sjá
Þá Þingmenn, sem
skreyta sig oftast heitinu
„félagshyggjumenn", og
tíðast hjala um „byggða-
stefnuna", hafa af
byggðasjóöi heilan millj-
arö króna með pólitísk-
um sjónhverfingum;
skera niður fjárframlögin
til skólabygginga fyrir
Þroskaheft börn, til
íÞróttasjóðs, til bygg-
ingasjóös ríkisins — að
ekki sé talað um sveita-
rafvæðingu og jaröhita-
leit. Og Þetta gerist með-
an rekstrarkostnaður
ráðuneyta ráðherranna
sjálfra hækkar um allt að
116%, skv. frumvarpinu,
sem er hækkun sem
svarar ríflega tvöföldum
hraða verðbólgudraugs-
ins (hækkun frá
70—116%).
Það er ekki að furða pó
ekki sé samstaða í
stjórnarliðinu um fjár-
lagafrumvarp af Þessu
tagi — eða er samstaðan
e.t.v. til staðar, Þótt
A-flokkarnir Þurfi að
leika vissar „hunda-
kúnstir" framan í hátt-
virta kjósendur?
Hjörleifur
MARGRA ÁRA
REYNSLA
TRYGGIR GÓÐA
ÞJÓNUSTU......
NÍÐSTERK TEPPI í
MÖRGUM GERÐUM
OG LITUM.....
STUTTUR AFGREIÐSLUFRESTUR
GÓÐIR GREIÐSLUSKILMÁLAR,
GERUM TILBOÐ EF ÓSKAÐ ER,
LEITIÐ UPPLÝSINGA HJÁ
lÉPPfíLfíND
Grensásvegi 13,
símar 83577 — 83430.
Við Teppaleggjum
stigahúsið
Glugga- og
huróaþéttingar
Tökum aö okkur aö þétta opnanlega glugga, úti-
og svalahuröir.
Þéttum meö SLOTTLISTEN
innfræstum varanlegum þéttilistum.
Ólafur Kr. Sigurösson hf.
Tranavogi 1, sími83499.
Nýtt jólakort
eftir Jón EEngilberts
er komið út, hiö sjöunda í rööinni. Kortiö er unniö
eftir verki, sem Jón Engilberts nefndi „Trú, von og
töfra“. Kortiö er í sömu stærö og hin fyrri og aftan
á því er stutt æviágrip listamannsins á íslenzku
og ensku. Offsetprentun annaöist Litbrá h/f.
Kortin veröa til sölu í húsi listamannsins aö
Flókagötu 17. Sími 18369.
{ SNI D
OFNAR
Sniðnir eftir yðar pörfum
7 hæðir (frá 20—99 cm).
Allar lengdir.
Margra ára reynsla hér á landi.
Henta bæöi hitaveitu og olíukyndingu.
Sænskt gæðastál.
Stenst allar kröfur íslensks staðals.
Hagstætt verð.
Efnissala og fullunnir ofnar