Morgunblaðið - 21.11.1978, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 1978
11
Stúlkan og mávurinn, eftir Leo Laukkanen.
dapurlega, fyrir þá sök að vita
þennan kraftmikla mann og
vinnuþjark óstarfhæfan en auðsæ
var löngun hans og þrá til
listrænna athafna. Vinnustofan
bar þess ljósan vott að þar hafði
ekki verið tekið á verki um all
langt skeið og á gólfi fyrir neðan
bréfalúgu gat að líta stóra hrúgu
af pósti er ekki hafði verið hirt um
að opna. Með hinum mjúku en
kraftalegu lúkum sínum hélt hinn
nær blindi myndhöggvari þétt-
ingsfast utan um hvítvínsglas sitt,
— lúkum er minntu á teikningar
eftir Picasso á fjórða
áratugnum...
Taisto Martti Martiskainen er
aðeins 35 ára að aldri (f. 1943), en
hefur þó tekist á við ýmis stór og
viðamikil verkefni fyrir einstakl-
inga, stofnanir og opinbera aðila
og eru þau dreifð víða um Finn-
land. Hann beitir sígildum vinnu-
brögðum, alþjóðlegum og persónu-
legum í senn og í myndum hans
fara saman mýkt og harka. Þær
eru ekki ósvipaðar höfundinum
sjálfum, sem er grannur, saman-
rekinn og stæltur, — andlitsdrætt-
ir hvassir og harðir, en þó er yfir
allri persónunni eins konar fjaður-
mögnuð mýkt.
Viðkynningin við þessa tvo
ágætu og ábúðarmiklu mynd-
höggvara staðfestu enn einu sinni,
að það verður enginn stór í þessu
fagi án þrotlausrar vinnu né
heldur án tækifæra til að fá
athafnaþrá sinni útrás í hinum
margvíslegustu verkefnum.
Bragi Ásgeirsson.
Steinhögg, eftir Leo Laukkanen.
Lúxus iólakort
Jólakort sem gleður.
eftir
yðar eigin
litmyndum.
myndiðjan
KÁSTÞÓRP
Hafnarstræti 17. — Suðurlandsbraut 20.
á horni Skipholts og Nóatúns
sími 29800, (5 línur)
SÉRTILBOÐ
meöan
birgöir endast
Verð aðeins
TilKtssemi
kostar
ekkert