Morgunblaðið - 21.11.1978, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 1978
17
og að vita, hvaða þýðingu Breiða-
fjörður hefur sem uppeldisstöð
fyrir íslenska fiskistofna almennt,
og munu merkingar geta skorið úr
um það ...“
Á síðari árum hafa rannsóknir
að sjálfsögðu farið í vöxt. Nefna
má, að fyrir nokkrum árum var
ákveðið að setja á fót í Ólafsvík
útibú frá Haffannsóknarstofnun-
inni. Þótti það mjög við hæfi.
Hvammsfjörður er einn mesti
fjörður landsins, 45 km á lengd og
10—12 km á breidd, en mjög
misdjúpur. Margir hafa undrast
að þar skuli engan fisk að fá, en
fjörðurinn er lítt kannaður. I
Saurbæ við Gilsfjörð var talin
besta sölvafjara landsins. Þar átti
Hólmadómkirkja sölvaítak, meðan
sölvatekja var talin til meiri
háttar hlunninda.
Heita má, að æðarvarp sé horfið
úr Suðureyjum Breiðafjarðar. Til
þess liggja þrjár meginástæður: 1)
Eyjabyggðin leggst í eyði. Þá er
ekki hægt að sinna varpinu eins
vel, jafnvel þótt eyjarnar séu
nytjaðar frá landi. 2) Vargfugli
fjölgar gífurlega. Hann lifir góðu
lífi við verstöðvarnar á vertíðinni,
en flykkist í eyjarnar á vorin.
Svartbakurinn er hin versta plága
í æðarvarpi. 3) Minkurinn er og
hinn allra mesti vágestur í varp-
iöndum, sem engu lífi eirir. Hann
hefur ekki náð fótfestu í Vestur-
eyjum, en í Suðureyjum hefur
hann gert mikinn usla. Á stöku
stað hefur þó tekist að halda
minkaplágunni í skefjum með
veiðihundum. Ekki verður hjá því
komist að hefja harðari og sam-
ræmdari aðgerðir en hingað til
hefur verið beitt gegn flugvargi og
minkaplágu, ef æðurin á ekki að
verða aldauða á þessum slóðum.
Áhugi manna hefur vissulega
vaknað fyrir æðarrækt, þessari
nytsömu og þjóðlegu búgrein.
Æðarræktarfélag Islands var
stofnað 1969. Nefna má og, að
snemma á s.l. ári var stofnað
Æðvarverndarfélag Stykkishólms.
Fullrar aðgæslu er vissulega
þörf, þegar hafist er handa um >
nýtingu náttúruauðlinda, sem
áður hafa að mestu verið ónotaðar.
Má þar til nefna rækju og skelfisk.
Rækjuvinnsla hófst í Grundarfirði
vorið 1969. Á því ári fengust þar
um 100 tonn upp úr sjó. Að
undanförnu hafa rækjuveiðar leg-
ið niðri sökum þess, hve mikið af
fiski er í uppeldi á miðunum. Um
1970 hófust skelfiskveiðar á
Breiðafirði. Nú er skelvinnsla
orðin tin af höfuðgreinum at-
vinnulífs í Stykkishólmi. Á Al-
þingi 1970 flutti undirritaður,
ásamt fleiri alþm., tillögu til
þingsályktunar um rannsókn og
skipulag skelfisk- og rækuveiða á
Breiðafirði. Var hún samþykkt
sem þingsályktun 5. apríl 1971 og
hljóðar svo:
„Alþingi skorar á sjávarútvegs-
ráðherra að beita sér fyrir því, að
settar verði nú þegar reglur um
skelfisksveiðar á Breiðafirði. Jafn-
framt verði áhersla lögð á aukna
leit að rækju, skelfiski og öðrum
slíkum verðmætum á þessum
slóðum með skynsamlega hagnýt-
ingu fyrir augum.“
Segja má, að þessar tvær
atvinnugreinar hafi þróast með
eðlilegum hætti undir umsjá
ráðuneytis og Hafrannsóknastofn-
unar. Hefur í hvívetna verið farið
að ráðum þeirra, sem best vita og
þekkja til í þessum efnum.
Ekki má gleyma í þessu sam-
bandi að minnast örfáum orðum á
Þörungaverksmiðjuna á Reykhól-
um. Það fyrirtæki hefur átt við
mikla byrjunarörðugleika að etja,
en nú virðist vera að rofa til að því
er kunnugir telja. Við hráefnisöfl-
un og önnur umsvif slíkrar verk-
smiðju þarf að fara að öllu með
gát. Er mér og tjáð, að forráða-
menn hennar hafi sýnt fullan
skilning á þessum málum.
„Búsetan er besta verndin,"
segja ýmsir þeir sem vernda vilja
eyjarnar og umhverfi þeirra. Af
þessu leiðir, að reyna verður að
búa sem best í haginn hjá því fólki,
sem enn byggir eyjarnar. Eitt af
því, sem sérstaklega verður að
hafa í huga, er að auðvelda
eyjafólki að hafa samband við
umheiminn. Þar kemur til athug-
unar að bæta samgöngur á sjó og í
lofti, þar sem því verður við komið.
Flóabátur verður hér eftir sem
hingað til að halda uppi ferðum
frá Stykkishólmi yfir Breiðafjörð
um Flatey til Barðastrandar og
veita eyjabúum og öðrum íbúðum
Breiðafjarðarbyggða þá þjónustu,
sem best er unnt að láta í té með
viðráðanlegum hætti. Einnig verð-
ur að auðvelda hinum fjölmörgu
ferðamönnum, sem skoða vilja
eyjarnar og fjörðinn, að njóta
dásemda umhverfisins og komast
leiðar sinnar. Hyggja verður
vandlega að því, á hvern hátt
óbyggðar eyjar verða best vernd-
aðar gegn hverskonar ásælni og
eyðileggingu á komandi tímum.
Eins og áður segir má ljóst vera,
að lífríki Breiðafjarðar er bæði
fjölbreytt og þróttmikið. Hér að
framan hafa nokkur atriði verið '
nefnd, stiklað á stóru, numið
staðar við örfá kennileiti þessa
mikla og víðlenda ríkis. Þrátt fyrir
ýmsar gagnlegar athuganir og
rannsóknir á undanförnum árum
er margt ókannað enn. Nú er t.d.
verið að huga að kúfiskveiðum og
vinnslu í Stykkishólmi. Fleira
mætti nefna, sem of langt yrði að
telja að sinni.
Þegar horft er fram á vegirtn og
hugað að nýjum leiðum, verður
ævinlega að taka mið af þeirri
þekkingu og reynslu, sem tiltæk
er, og kosta jafnframt kapps um
að varðveita það, sem með engu
móti má glatast.
MES
Friðión Þórðarson:
Lífríki Breiðafjarðar
verði kannað og verndað
FRIÐJÓN ÞÓRÐARSON. annar
þingmanna Sjálfstæðisflokksins í
Vesturlandskjördæmi, hefur flutt
á Alþingi tillögu til þingsálykt-
unar um verndun og könnun á
lífríki Breiðafjarðart
„Alþingi ályktar að skora á
ríkisstjórnina að stuðla hið fyrsta
að því að hið fjölþætta lífríki
Breiðafjarðar verði kannað og
verndað eftir því sem þurfa þyki í
samráði við heimamenn og nátt-
úruverndarsamtök."
I greinargerð með tillögunni
getur flutningsmaður þess, að
Breiðafjarðarbyggðir hafi löngum
veerið lofaðar fyrir fegurð og
landkosti. Þetta þurfi ekki að
rökstyðja nánar því af nægum
heimildum sé að taka. Á undan-
förnum árum hafi athygli manna í
náttúruvernd beinst að Breiða-
fjarðarsvæðinu, og komið hafi
fram að æskilegt væri að sett væru
Friðjón Þórðarson.
sérstök lög um friðun Breiðafjarð-
ar þar sem hliðsjón yrði höfð af
friðun Mývatnssveitar sem gefist
hafi vel.
Er Friðjón fylgdi tillögunni úr
hlaði með ræðu í sameinuðu þingi,
gat hann þess, að nýlega var
haldinn fundur í Búðardal á
vegum Náttúrusamtaka Vest-
fjarða og Vesturlands, þar sem
málefni þetta hefði verið ítarlega
rætt. Ekki hefði verið talið að
háski vofði yfir Breiðafirði, en á
hinn bóginn væri talið eðlilegt og
sjálfsagt að athuga þessi mál í
tæka tíð og gera viðeigandi
ráðstafanir ef þurfa þykir.
í lok ræðu sinnar vitnaði þing-
maðurinn í lög um náttúruvernd,
þar sem fjallað er um hlutverk
náttúruverndar. Þar segir meðal
annars, að tilgangur laganna sé að
stuðla að samskiptum manns og
náttúru, þannig að ekki spillist að
óþörfu líf eða land né mengist sjór,
vatn eða andrúmsloft. Tryggja eigi
eftir föngum þróun íslenskrar
náttúru eftir eigin lögmálum, en
verndun þess, sem þar er sérstætt
eða sögulegt.
Framar öllu sé nauðsynlegt, að
saman geti farið hófleg nýting og
hófleg friðun, eðlileg og ræktarleg
samskipti manns og náttúru. Að
því ber að vinna, sagði flutnings-
maður, og kvað hann tillöguna
flutta til þess að efla gengi þessa
góða málefnis.
Ny reiknivel
byggð eftir forskrift Skrifstofuvéla hf.
Reynsta Skrifstotuvéla h.l. og óskir við-
skiptamanna okkar var höfð til hliðsjónar,
þegar hin nýja OMiC reiknivél var hönnuð.
Vlð lögðum áherslu á llpurt talnaborð,
hraðvlrka prentun, lausan strimil, greini-
legar Ijósatölur í grænum lit, tólf stata út-
komu, og sjálfstætt minni, auk allra nýjustu
tækniþátta.
(V
SKRIFSTOFUVELAR H.F.
^ + ~ ~ & Hyerfisgötu 33
S*m. 20560
Við byggjum upp framtíð fyrirtækis þíns.
312 Pog
312 PD
Utkoman er OMIC:
Lótt (2,1 kg) falleg og árelðanteg reiknivél
til fjölbreyttustu verkefna