Morgunblaðið - 21.11.1978, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 1978
23
• Hannes Leiísson, Þór, Vestmannaeyjum, er einn af tveimur nýliðum sem fara með landsliðinu til
Frakklands. Myndin sýnir Hannes skora í leik gegn Þór frá Akureyri. Ljósm. Mbi: Sigurgeir.
Landsliðshópurinn í
handknattleik valinn
JÓIIANN Ingi Gunnarsson
landsliðsþjálfari og einvaldur
hefur valið 16 leikmenn í
æfinga- og' keppnisferð til
Frakklands. Ferð þessi er liður
í undirbúningi íslcnska lands-
liðsins fyrir forkeppni ÓMeik-
anna á Spáni sem fram fer 22.
febr.—5. mars.
Landsliðið heldur utan sunnu-
daginn 26. nóvember og kemur
heim aftur fimmtudaginn 3.
desember.
Eftirtaldir leikmenn hafa
verið valdir:
Fjöldi landsleikja
Markverðir:
Jens Einarsson ÍR 4
Ólafur Benediktss. Val 76
Kristján Sigmundsson
Víkingi 22
Aðrir leikmenn:
Arni Indriðason
Víkingi fyrirl. 39
Páll Björgvinsson Víkingi 26
Viggó Sigurðss. Víkingi 34
Ólafur Jónss. Víkingi 3
Ólafur Einarss. Víkingi 57
Stefán Gunnarsson Val 43
Þorbjörn Guðmundss. Val 35
Bjarni Guðmundsson Val 30
Steindór Gunnarss. Val 12
Þorbjörn Jensson Val 11'
Hannes Leifss. Þór, Ve 0
Hörður Harðarson, Haukum 0
Ólafur H. Jónsson
Grun Weiss Dankersen 101
Eins og sjá má er uppistaðan
úr tveimur félögum Val og
Víkingi, 6 úr hvoru liði. Eins og
fram hefur komið munu þeir
Axel Axelsson og Björgvin
Björgvinsson ekki gefa kost á
sér í liðið í vetur og Geir
Hallsteinsson gat ekki komið
því við að fara í Frakklandsferð-
ina. Talsverðar breytingar hafa
orðið á landsliðshópnum frá því
í fyrra, og verður fróðlegt að sjá
hvernig þessi nývaldi hópur
kemur út úr þeim landsleikjum
sem framundan eru.
þr.
ÍS vann í upp-
gjöri risanna
Blakrisarnir Þróttur og ÍS
mættust í fyrsta skipti í íslands-
mótinu í Vestmannaeyjum. Þetta
var fyrsti blakleikur sem fram
fer í Eyjum, en nýlega hófu
Eyjamenn þátttöku í 2. deild
íslandsmótsins. Leikur Reykja-
víkurrisanna var fluttur til Eyja í
von um að auka mætti áhuga á
blaki. Hvort það hefur tekist skal
ósagt um, en áhorfendur voru um
170 og er það meira en verið
hefur á nokkrum handboltaleikj-
um til þessa.
ÍS lagði Þrótt 3-2 í æsispennandi
2 klst. leik, þar sem liðin skiptust á
um að vinna hrinur. Þróttur vann
þá fyrstu 15-10, ÍS næstu 15-11, þá
Þróttur aftur 15-7, því næst IS
15-11 og loks vann ÍS síðustu og
úrslitahrinuna 15-12.
Tveir leikmenn, einn úr hvoru
liði léku líklega sína bestu leiki
Nýtt
mara-
Þonmet á
Skaga
Sú fjáröflunarleið að leika
maraþonknattspyrnu hefur gef-
ist vel og orðið vinsæl. Nú um
helgina tókst Skagamönnum að
bæta íslandsmet Kaflvíkinga með
því að leika samfellt í 26 klukku-
stundir og 45 mínútur. Áhorfend-
ur voru fjölmargir og hagnaður-
inn af keppninni nam um 1200
þúsund krónum.
Þeir sem tóku þátt í keppninni
voru Andrés Ólafsson, Sveinbjörn
Hákonarson, Sigprður Halldórs-
son, Kristinn Björnsson, Árni
Sveinsson, Jón Áskelsson, Sigurð-
ur Harðarson og Guðjón Tryggva-
son.
fyrr og síðar, en það voru þeir
Indriði Arnórsson hjá ÍS og
Guðmundur E. Pálsson hjá Þrótti.
Strax að loknum leik IS og
Þróttar, léku heimamenn gegn
Breiðabliki í 2. deild karla. Var
þetta jafnframt fyrri leikur ÍBV í
blaki. Breiðablik vann naumlega
3-2, hrinurnar enduðu 15-13,16-18,
15-10, 3-15 og loks 13-15.
Þá áttu einnig að leika um
helgina lið Mímis og Laugdæla,
sem bæði eru frá Laugarvatni.
Leiknum var frestað, en ætlunin er
að hann fari fram í kvöld klukkan
20.00. Fjórföld umferð er leikin í
blakinu og er staðan nú þessi.
ÍS 330 9-2 154-126 6
Þróttur 4 3 1 11-5 226-171 6
C-KEPPNINNI í handknattleik
lauk í Sviss um helgina, en þá
fóru þar fram 2 síðustu umferð-
irnar. 4 þjóðir tryggðu þar
farmiða sína til Spánar í
B-keppnina síðar í vetur, en þær
voru Sviss, ísrael, Noregur og
Austurríki. Úrslit leikja um
helgina urðu þessi.
Ítalía — Portúgal 25—23
Sviss — Austurríki 20—15
Noregur — ísrael 24—22
Austurríki — Portúgal 27—25
ísrael — Ítalía 26—19
Sviss — Noregur 25—20
Svisslendingar urðu í efsta
• Stúdentarnir (í dökkum bún.)
eru greinilega við öllu búnir,
enda má búast við knettinum yfir
á þeirra vallarhelming hvað úr
hverju. Ljósm. Mbl. Sigurgeir.
UMFL 2 1 1 4-4 96-104 2
Mímir 2 0 2 1-6 57-104 0
UMSE 3 0 3 1-9 113-141 0
sætinu, en Israelar sem komu liða
mest á óvart, komu þar næstir.
Norðmenn höfnuðu í þriðja sæti,
en voru ekki ýkja sannfærandi í
leikjum sínum, töpuðu m.a. fyrir
Portúgölum og Sviss. Austurríki
skipaði fjórða sætið. Það verða því
þessar fjórar þjóðir, sem bætast í
hóp Spánarfaranna, en róðurinn
verður þungur, því að 4 þjóðir falla
aftur niður í C-keppnina að
B-keppninni á Spáni lokinni.
Margar mjög sterkar þjóðir eru
meðal keppenda á Spáni, en þar
leika 12 þjóðir í fjórum þriggja
liða riðlum. Neðsta liðið í hverjum
riðli fellur.
GA/ —gg.
C-keppninni lokið:
B-keppnin
fullskipuð
FH-Víkingur
keppa í kvöld
Viðar Símonarson leikur með FH
í KVÖLD fara fram tveir leikir í
íslandsmótinu í handknattleik. í
íþróttahúsinu í Hafnarfirði leika
kl. 20.00 FH og Haukar í
meistaraflokki kvenna, og kl.
21.00 leika FH og Víkingur í
meistaraflokki karla.
Leikur FH og Víkings verður án
efa spennandi og er hann báðum
liðum mjög mikilvægur. FH hefur
tapað 2 stigum í mótinu en
Víkingur 1. Sigur í leiknum er því
mikilvægur fyrir liðin.
FH-liðinu hefur nú bætst góður
liðsauki, Viðar Símonarsson leikur
með liðinu, en hann sýndi það á
laugardag í leik með úrvalsliðinu á
móti landsliðinu að hann hefur
engu gleymt og kemur til með að
styrkja FH mjög mikið. Óvíst er
hvort Viggó Sigurðsson leikur með
Víkingi þar sem hann á við meiðsli
að stríða. — Þr.
Óskar setti
íslandsmet
Á LAUGARDAG var haldin bæjarkeppni í kraftlyftingum milli
Akureyringa og Vestmannaeyinga og fór keppnin íram á Akureyri.
Þetta var fyrsta sinni sem þessi keppni er haldin , en keppni þessi mun
verða árlegur viðburður héðan í frá. Það voru byggingaverktakarnir
Híbýli h.f. á Akureyri, sem gáfu glæsilega verðlaunagripi til
keppninnar. í þessari fyrstu keppni sigruðu Vestmannaeyingar.
I tengslum við bæjakeppnina fór fram árlegt minningarmót um
Grétar Kjartansson, en Grétar var frumkvöðull að reglulegum æfingum
í lyftingum með keppni fyrir augum. Grétar lést af slysförum 1974
aðeins 23 ára að aldri. í keppninni um Grétarsstyttuna sigraði Freyr
Aðalsteinsson annað árið í röð.
Á mótinu á Akureyri kepptu einnig tveir gestir, þeir Skúli Óskarsson
og Kári Elísson, en Kári hefir um skeið verið þjálfari Akureyringa.
Ekki tókst Skúla að bæta árangur sinn á þessu móti, en hins vegar
setti Kári Islandsmet í bekkpressu, lyfti 115 kg.
Þá er ógetið árangurs kempunnar Óskars Sigurpálssonar, en Óskar
setti glæsilegt íslandsmet í réttstöðulyftu, lyfti 325 kg, og einnig setti
Óskar met í samanlögðu, 825 kg. Óskar átti sjálfur fyrri metin 315, kg í
réttstöðulyftu og 800 kg í samanlögðu.
Árangur keppenda varð annars sem hér segir:
HB= hnébeygja, BP= bekkpressa, RL= réttstöðulyfta
60 kg. flokkur HB BP RL samanl.
Kristján Kristjánsson ÍBV 120 65 150 335
67.5 kg flokkur
Kári Elísson, ÁKM. 190 115 205 510
Haraldur Ólafsson, ÍBA 170 70 165 410
75 kg flokkur
Freyr Ólafsso, ÍBA 180 100 220 500
82,5 kg flokkur HB BP RL samanl.
Skúli Óskarsson, ÚIA 287,5 130 295 712,5
Gunnar Steingrímsson, IBV 210 130 270 610
Gunnar Halldórsson, IBV 165 100 195 460
Gísli Ólafsson, ÍBA 162.5 87.5 195 445
Jóhann Gíslason, ÍBV 160 92.5 190 442.5
90 kg flokkur
Gunnar Alfreðsson IBV 200 125 220 545
Sigmar Knútsson IBA 185 107.5 220 512.5
100 kg flokkur
Kristján Falsson, ÍBA 185 130 200 515
110 kg flokkur
Óskar Sigurpálsson ÍBV 320 180 325 825
Sigb. G.