Morgunblaðið - 21.11.1978, Page 25
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 1978
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 1978
25
ort>
1 wöruwwilllMiin
llimqiéllf/ @/llMr//@iMir
KLAPPAriSTIG 44 SÍMI 11783,
STYIE 620
Allar íþróttavörur
á einum stað
ÆFINGA
BÚNINGAR
Vorum að fá mikið úrval af æfinga-
búningum úr 100% plyester. Buxur
m. vasa og beinum skálmum, jakkar
meö tveimur vösum.Verð frá kr.
8.450 —13.230
Póstsendum
Gústaf hefur
skoraö mest
Gústaf Björnsson úr Fram er
markhæsti leikmaður mótsins til
þessa, en óvenjulegt er að leikmað-
ur eins og Gústaf skipi þennan
sess. Yfirleitt er það einhver
bombuskyttan, en Gústaf skorar
mest úr hraðaupphlaupum, úr
hornunum, af línu, svo ekki sé
minnst á vítaköstin, en allt fram
að leik Fram og Fylkis, var Gústaf
einhver öruggasta vítaskyttan í 1.
deild. Baráttan um markakóngs-
titilinn er þó mjög hörð og margir
eru fast á hælum Gústafs.
Markhæstu leikmennirnir eru
nú þessir.
Gústaf Björns. Fram 27
(14 víti)
Geir Hallsteins. FH 26
(7 víti)
Hörður Harðar. Haukum 25
(8 víti)
Páll Björgvins. Vík 20
(4 víti)
Hilmar Sigurgísla. HK 19
Atli Hilmars. jfram 19
Guðjón Marteins, ÍR 19
(3 víti)
Björn Blöndal HK 18
Þorbjörn Guðmunds. Val 18
(9 víti)
Hörður Sigmars. Ha aukum 16
(5 víti)
Jón Pétur Jóns. Val 15
(1 víti)
Jón H. Karls. Val 15
(5 víti)
Þarna má sjá, að leikmenn eins
og Geir, Páll, Gústaf og Hörður
Harðar eiga eins og er, möguleika
á báðum titlum Mbl. þ.e.a.s.
markakóngur Islandsmótsins og
leikmaður Islandsmótsins.
• Páll stigahæstur
hans því að tvö önnur víti
Stjörnumanna fóru i markstang-
irnar, sem sagt 7 víti í súginn í
einum og sama leiknum. Magnús
Ólafsson, FH, Einar Þorvarðarson,
HK, Jens Einarsson og Ólafur
Benediktsson hafa allir varið tvö
vítaköst í haust.
FH-ingar oftast út af
Leikmenn félaganna eru mis-
jafnlega stilltir og prúðir og Mbl
fylgist vel með því hverjir eru
mestu tuddarnir. Einnig hvaða
félög sanka að sér flestum brottr-
ekstrum af leikvelli. Hér hefur FH
þann vafasama heiður að vera í
forystu. Munar þar mestu um, að
Gils Stefánsson er farinn að leika
með að nýju, en á sviði brott-
rekstra af leikvelli hefur hann
ávalt verið í fremstu röð. Alls
hefur Gils fengið að kæla sig í 8
• Gústaf markahæstur
KR, Breiðabliks, Þórs og jafnvel
Víkings. Staðan í fyrstu deild
kvenna og markhæstu konurnar
eru eftirfarandi.
Fram 5 4 0 1 58:40 8
FH 4 3 10 58:46 7
Haukar 5 3 0 2 41:58 6
Valur 3 111 35:37 3
Vík. 4 0 2 2 42:49 2
U.B.K. 3 10 2 23:35 2
Þór AK 2 0 0 2 16:24 0
KR 2 0 0 2 19:23 0
Mörk
Margrét Theeodórsd. Haukum 19
Ingunn Bernódusd. Vík. 17
Kristjana Arad. FH 15
Oddný Sigsteinsd. Fram 15
Guðríður Guðjónsd. Fram 15
Agnes Bragad. Vík. 12
Svanhvít Magnúsd. FH 12
Katrín Danivalsd. FH 12
Erna Lúðvíksd. Val 12
Hulda Halldórsd. Breiðab. 11
ElnkunnaglOfln
Valur gerði góða ferð
KÖRFUKNATTLEIKSMENN Vals gerðu góða ferð til Akureyrar á laugardag
pegar peir sigruðu Þórsara örugglega meö 83 stigum gegn 70 í
úrvalsdeildínni. ViQ pennan sigur Vals eru peir enn með í baráttunni um
tililinn, en Þórsarar verða að taka sig verulega saman í andlitinu, ef ekki á
illa að fara.
Mikiö jafnræði var með liðunum í
fyrri hálfleik þó svo Valsarar hefðu
oftast frumkvæðið. Aldrei skildi liðin
meira en fimm stig, en oftast var
munurinn þrjú stig og sá var
munurinn í hálfleik, 41 stig Vals gegn
38.
i síðari hálfleiknum tóku Valsarar
af skariö, sigu hægt og sígandi fram
úr og höföu um miðbik hálfieiksins
náð 14 stiga forystu, 66 stig gegn 52,
og sigur Vals var aldrei í hættu, 83
stig Vals gegn 70 Þórsara sem fyrr
greinir.
Valsarar voru vel að þessum sigri
komnir. Þeir voru greinilega sterkara
liðið í þessum leik, og munaöi þar
mestu að breiddin í liöi Vals mun
meiri en í liði Þórs. Þá var það einnig
áberandi í þessum leik að Valsarar
voru miklu sterkari og grimmari við
að hirða fráköstin. Það er raunar
áberandi hjá Þórsurum hversu lítið
þeir hirða af fráköstum, og stafar það
að nokkru leyti af því hversu lágir
flestir leikmanna Þórs eru.
Tim Dwyer var bestur Valsara að
þessu sinni. Þá var Kristján
Ágústsson og sterkur, einkanlega í
vörninni. Þórir Magnússon átti og
góða kafla, en týndist á milli. Þá ætti
jafn reyndur leikmaður og Þórir að
komast hjá kjánalegum útistöðum
við dómara leiksins, Þóri ætti aö vera
Ijóst að mótmæli við dómara eru
aldrei leikmanni né liði hans til góös.
Það stakk annars nokkuö í augun að
sjá hversu Torfa Magnússyni gekk
illa í þessum leik. Undirritaður
minnist þess ekki að sjá Torfa koma
frá leik án þess á skora stig.
Samkvæmt venju var Mark
Christensen bestur Þórsara. Þá átti
Eiríkur Sigurðsson ágætan leik, en
lenti í villuvandræöum þegar í fyrri
hálfleik, var kominn með fjórar villur
undir lok fyrri hálfleiks og gat ekki
beitt sér sem skyldi eftir það. Jóni
Indriðasyni viröist ganga afar illa að
hitta í leikjum sínum fyrir norðan.
Þannig skoraði Jón rúmlega 70 stig í
tveimur leikjum syðra á dögunum, en
á laugardag skoraði Jón einungis 6
stig.
Hörður Tuliníus og Þráinn Ólafsson
dæmdu leikinn og komust allvel frá
sínu þó svo nokkrir dómar þeirra hafi
orkað tvímælis.
Stig Vals: Dwver 30, Þórir 18,
Kristján 13, Ríkharður Hrafnkelsson
10, Hafsteinn Hafsteinsson 4, Lárus
Hólm, Siguröur Hjörleifsson, Óskar
Bandursson og Helgi Sigurðsson tvo
stig hver.
Stig Þórs: Mark 22, Eiríkur 18, Birgir
Rafnsson 9, Karl Ólafsson 8, Jón
Indriðason og Þröstur Guðjónsson 6
hvor, Ágúst Pálsson eitt stig.
IIÞPóHlrl
Gils sterkur í vörninni.
Björn Jóhannesson Ármanni 27
Konráð Jónsson Þrótti 26
Símon Unndórsson KR 22
Sigtryggur Guðlaugsson Þór A 21
Björn Pétursson KR 21
Jón Hauksson KA 21
3. deild.
Eftirfarandi leikir fóru frant í 3.
deild um helgina og urðu úrslit
þeirra þessi:
UBK-Njarðvík 29-26
Dalvík-IA 16-20
Keflavík-Aftureld. 16-18
Tvr VE
UBK
Afturelding
ÍA
Grótta
Njarðvík
Dalvík
ÍBK
Stewartlaus-
ir IR-ingar
sigruðu UMFN
ÞAÐ VAR æsispennandi síðari hálfleikur í leik ÍR og UMFN í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik á laugardaginn. Öllum á óvart var leikurinn mjög jafn, en almennt var
reiknað með, að ÍR-ingar án Paul Stewart yrðu Njarðvíkingum lítil hindrun. Sú varð
þó ekki raunin, ÍR-ingar mættu tvíefldir til leiks og gerðu sér lítið fyrir og sigruðu
UMFN með 95 stigum gegn 89 í vel leiknum og mjög skemmtilegum leik, eftir að
staðan í leikhléi hafði verið 50i45, UMFN í vil.
Á fyrstu mínútum leiksins var
fátt sem benti til þess, að úrglitin
myndu verða önnur en búist hafði
verið við. Þvert á móti virtust
Njarðvíkingar ætla að kafsigla
ÍR-inga. Um miðjan fyrri hálfleik
höfðu þeir náð 14 stiga forystu,
24:10, mest vegna þess, að IR-ingar
hittu mjög illa auk þess sem þeir
fóru oft illa að ráði sínu undir
körfu UMFN. Njarðvíkingarnir
gátu þó aldrei hrist IR-inga alveg
af sér, því að þeir vöknuðu smám
saman til lífsins og þegar flautað
var til leikhlés var munurinn
aðeins 5 stig, UMF'N í vil.
Njarðvíkingar mættu mjög
ákveðnir til leiks í síðari hálfleik
og virtust ætla að taka leikinn í
sínar hendur, en það var nú
eitthvað annað. IR-ingar létu
engan bilbug á sér finna og á 8.
mín komust þeir yfir í fyrsta sinn í
leiknum, 67:66. Upp frá þessu varð
leikurinn mjög skemmtilegur og
æsispennandi og var jafnt á
flestum tölum upp í 81:81. Þá
skoruðu IR-ingar 6 stig í röð, en á
þessum kafla lék ÍR mjög skyn-
samlega á meðan Njarðvíkingar
voru full bráðir í sókninni auk þess
sem þeir höfðu misst þrjá leik-
menn út af með 5 villur. Þessi sex
stiga munur reyndist UMFN
ofviða og ÍR-ingar stóðu því uppi
sem sigurvegarar og fögnuður
þeirra í leikslok var gífurlegur
eins og nærri má geta.
ÍR-liðið á allt hrós skilið fyrir
frammistöðu sína í þessum leik. Þó
að útlitið væri allt annað en
glæsilegt á kafla í fyrri hálfleik þá
gafst liðið aldrei upp. í síðari
hálfleik léku ÍR-ingar frábærlega
vel og skynsamlega, héldu boltan-
um og biðu eftir góðum færum,
sem síðan voru vel nýtt. Það
Körluknattlelkur
verður örugglega enginn móðgaður
þó að bræðurnir Kristinn og Jón
Jörundssynir séu nefndir fyrstir,
en þeir áttu báðir frábæran leik og
var hittni þeirra í síðari hálfleik
hreint ótrúleg. Kolbeinn Kristins-
son var einnig mjög góður að
vanda og ástæða er til að nefna
Erlend Markússon og Sigurberg
Bjarnason, sem báðir léku sinn
besta leik í vetur.
Njarðvíkingar hafa nú tapað
þremur af sex leikjum sínum í
úrvalsdeildinni og verða að fara að
taka á honum stóra sínum, ef þeir
ætla ekki að missa af lestinni.
Liðið virkar ekki eins sterkt og í
fyrravetur og manni virðist sem
leikmenn liðsins treysti ekki eins
mikið á sjálfa sig eftir komu Ted
Bee, og ætlist til að hann geri allt
þegar illa gengur. Það gengur að
sjálfsögðu ekki þó að Bee sé mjög
góður leikmaður. Hann var í
þessum leik langbestur Njarðvík-
inga eins og svo oft áður og gerði
marga mjög fallega hluti. Geir
Þorsteinsson átti einnig góðan leik
svo og Jónas Jóhannesson og
Þorsteinn Bjarnason, en tveir þeir
síðarnefndu voru alltof lítið með.
Leikinn dæmdu Jón Otti Ólafs-
son og Erlendur Eysteinsson og
gerðu það mjög vel.
• Njarðvíkingar sækja að körfu ÍR-inga.
Létt hjá
Fram í
Eyjum
UM HELGINA voru fyrirhugadir tveir
leikir í 1. deild íslandsmótsins í
körfuknattleik. Aðeins annar peirra
fór fram, leikur ÍV og Fram í
Vestmannaeyjum ð laugardaginn,
en leik Tindastóls og Ármanns, sem
vera átti ð Akureyri ð sunnudaginn,
var frestað vegna pess að ekki var
flugveður.
Svo við víkjum að leik ÍV og Fram
þau lauk honum með yfirburðasigri
Fram, sem skoraöi 102 stig gegn 59
stigum Vestmannaeyinga, eftir að
staðan haföi verið 51:26 í leikhléi,
Fram í vil. Leikurinn var heldur siakur
eins og oft vill verða þegar mikill
getumunur er á liðunum eins og í
þessu tilviki, en Vestmannaeyingar
eiga enn talsvert langt í land til þess
að komast í hóp þeirra bestu, en
Framarar myndu sóma sér vel í
úrvalsdeildinni. John Johnson var
langstigahæstur Framara með 46
stig, en hefur þó oft leikið betur. Hjá
ÍV var James Brooks stigahæstur
með 18 stig, en athygli vakti ungur og
efnilegur leikmaöur, Haraldur Hlöð-
versson. Meö sigri í þessum leik eru
Framarar komnir á toppinn í 1.
deildinni, en Vestmannaeyingarnir
hafa tapaö báöum sínum leikjum.
Stigin fyrir ÍR: Jón Jörundsson
28, Kristinn Jörundsson 25, Kol-
beinn Kristinsson 18, Erlendur
Markússon 10, Sigurbergur
Bjarnason 8, Stefán Kristjánsson
5 og Kristján Sigurðsson 1.
Stigin fyrir UMFN: Ted Bee 28,
Geir Þorsteinsson 16, Þorsteinn
Bjarnason 11, Jónas Jóhannesson
10, Guðsteinn Ingimarsson 9,
Gunnar Þorvarðarson 8, Jón V.
Matthíasson 6 og Stefán Bjarka-
s°n 1. ÁG
Staöan í 1. deiid í körfuknattleik:
Fram 3 3 0 329:189 6
Tindastóll 4 3 1 266:248 6
Ármann 2 2 0 196:125 4
UMFG 3 2 1 272:256 4
Snæfell 0 0 0 0:0 0
ÍBK 2 0 2 109:156 0
ÍV 2 0 2 126:208 0
KFÍ 4 0 4 215:331 0
Ljósm. Mbli Sigurgeir.
• James Brooker skorar
fyrir ÍBV gegn Fram í leik
liðanna um helgina.
Páll stigahæstur
Gústaf markhæstur
Fjórum umferðum er nú lokið í 1. deild íslandsmótsins í
handknattleik og eru Víkingur og Valur jafnir í
forystusætunum með sjö stig hvort félag. Eina stigið sem
félögin hafa tapað til þessa var í innbyrðisviðureign, sem
lyktaði sem jafntefli. Á hæla Reykjavíkurrisanna kemur
risinn úr Hafnarfirði, FH. Það er þó mál manna og flestum
ljóst sem sjá til þessara liða, að þrátt fyrir að þau skipi
toppsætin að venju, eru yfirburðirnir ekki nálægt því
jafnmiklir og áður hefur verið. Má í því sambandi benda á,
að bæði Valur og Víkingur lentu í hinu mesta basli með
nýliðana, Fylki, og Víkingur rétt hafði það með einu marki í
lokin. Og FH lá fyrir Fram. Fylkir vann síðan Fram. Þetta
sýnir einungis, að allt getur gerst í mótinu.
Að venju hafa blaðamenn Mbl. handknattleiksmönnum í
1. deild einkunn fyrir frammistöðu sína og væri ekki úr vegi
að kanna hvernig staðan í stigakapphlaupinu er að loknum
f jórum fyrstu leikjum mótsins.
Páll Björgvins. Víkingi 14
Jens Einarson ÍR 12
Hörður Harðarss. Haukum 12
Sæmundur Stefánss. FH 11
Geir Hallsteinss. FH 11
Gústaf Björnss. Fram 11
Sigurbergur Sigsteinss. Fram 11
Andrés Kristjánss. Haukum 11
Ólafur Benediktsson Val 11
Árni Indriðas. Víkingi 11
Guðmundur Á. Stefánss. FH 10
Atli Hilmarsson Fram 0
Einar Einarsson Fylki 10
Einar Ágústsson Fylki 10
Árni Hermannss. Haukum 10
Hilmar Sigurgíslas. HK 10
Einar Þorvarðarson HK 10
Guðjón Marteinsson ÍR 10
Jón Pétur Jónsson Val 10
Þorbjörn Guðmundsson Val 10
Erlendur Hermannsson Vík 10
Viggó Sigurðsson Vík 10
Af þessu má sjá, að forysta Páls
er ekki ýkja mikil, en enn er mótið
of skammt á veg komið til að
nokkur hafi haft tækifæri til þess
að stinga af.
25 víti varin
Alls hafa markverðirnir í 1.
deild varið 25 vítaköst og þau
nálgast fjórða tuginn, misnotuðu
vítin, ef með eru talin þau sem
hæft hafa marksúlurnar, eða
beinlínis ekki hitt rammann. Þeir
Jón Gunnarsson hjá Fylki, Gunn-
laugur Gunnlaugsson, Haukum, og
Kristján Sigmundsson, Víkingi,
hafa alls varið 4 víti hver. Afrek
Jóns Gunnarssonar er hvað best,
vegna þess, að hann varði öll sín
víti í sama leiknum, gegn Fram.
Eftir þann leik var Jóhann Ingi
ekkert að tvínóna við hlutina,
heldur valdi hann samstundis í
landsliðshóp7inn. Ef skyggnst er
niður í 2. deild, má þó finna eitt
afrek bera en Jóns, þ.e. þegar hinn
16 ára gamli markvörður Þórs í
Vestmannaeyjum, Sigmar Þ.
Oskarsson, várði 5 vítaköst í leik
gegn Stjörnunni. Ekki nóg með
það, heldur ollu staðsetningar
mínútur og félagi hans hjá FH,
Valgarður Valgarðsson jafnlengi.
Alls hafa leikmenn FH verið
reknir út af í 26 mínútur sam-
fleytt. Fylkir kemur fast á hæla
FH, með 23 mínútur samtals, en
þar munar mestu um, að í leik
Fylkis og Fram var Einar Ágústs-
son rekin fyrst tvívegis af velli í 2
mínútur og síðan í þriðja skiptið
og þá útilokaður. Þegar slíkt er
gert, má annar leikmaður koma
inn á eftir 5 mínútur og skrifar
Mbl. því 9 mínútur á Fylki vegna
þessa. Mestu englarnir eru Vals-
menn, með aðeins einn brottrekst-
ur í 4 leikjum.
Staðan í 1. deild:
Valur
Víkingur
FH
Fram
Haukur
Fylkir
HK
Fram í forystu
Framstúlkurnar hafa eins stigs
forystu í 1. deild kvenna og þær
ásamt FH virðast Hafa á að skipa
bestu liðuiium í kvennaleildinni.
Haukar og Valsarar gætu þó
hugsanlega blandað sér í slaginn.
Víkingsstúlkurnar virtust sterkar
í upphafi mótsins, en síðan fór að
gefa á bátinn hjá þeim. Það er mál
margra, að fallbaráttan verði
geysilega hörð milli fjögurra liða,
Handknalflelkur
2. deild
jafnari en áöur
Keppnin í 2. deild karla hefur
örugglega sjaldan eða aldrei verið
jafnari og skemmtilegri. Ekki
leikur á tveimur tungum hvaða lið
hefur komið mest á óvart, en það
er auðvitað lið Þórs frá Vest-
mannaeyjum. Liðið kom upp úr
þriðju deild á síðasta ári og hefur
óumdeilanlega sett stefnuna á 1.
deild. í liðinu eru bæði sterkir
einstaklingar og mikil efni, svo
sem Hannes Leifsson, reynd
skytta, Herbert Þorleifsson, sem
er efnilegur línumaður, og mark-
varðarundrið Sigmar Óskarsson.
Þessir menn, ásamt Andrési
Bridde, eru máttarstólpar liðsins.
Þór frá Eyjum hefur nú forystuna
í 2. deild, en skammt undan eru
KR og Akureyrarliðin KA og Þór.
Ármann á einnig ágæta mögu-
leika. Sama má einnig segja um
Þrótt og Stjörnuna, ef þau fara að
hrista af sér slenið. Eina liðið, sem
ólíklegt virðist til að blanda sér í
toppbaráttuna, er Leiknir, en þó
gæti farið að rofa til hjá þeim nú
eftir að liðið hefur fengið sér
þjálfara, sem er Birgir Finnboga-
Staðan í 2. deild er bessi:
Þór VE
Þór Ak
KR
Ármann
KA
Þróttur
Stjarnan
Leiknir
Markhæstu menn eru:
Hannes Leifsson Þór VE 35
Sigurður Sigurðsson Þór A 30
Úrvalið nær sigri
ÍR: Erlendur Markússon 2, Jón
Jörundsson 4, Kolbeinn Kristins-
son 3, Kristinn Jörundsson 4,
Kristján Sigurðsson 1, Sigur-
bergur Bjarnason 2, Stefón
Kristjánsson 2.
UMFN: Brynjar Sigmundsson
1, Geir Þorsteinsson 3, Guö-
steinn Ingímarsson 2, Gunnar
Þorvaröarson 2, Jón V. Matthías-
son 2, Jónas Jóhannesson 2,
Júlíus Valgeirsson 1, Stefán
Bjarkason 1, Þorsteinn Bjarna-
son 2.
ÞÓR: Jón Indríöason 1, Birgir
Rafnsson 2, Eiríkur Sigurösson
2, Þröstur Guöjónsson 2, Karl
Ólafsson 2, Ágúst Pálsson 1,
Alfreð Tuliníus 1.
VALUR: Kristján Ágústson 3,
Þórir Magnússon 3, Torfi
Magnússon 1, Ríkharóur Hrafn-
kelsson 2, Siguröur Hjörleifsson
1, Hafsteinn Hafsteinsson 1,
Lárus Hólm 1, Óskar Baldursson
1, Helgi Sigurðsson 1.
ÍSLENSKA landsliðið í hand-
knattieik sigraði úrvalsiið það, er
Hilmar Björnsson valdi. 19—18 á
laugardag í fjáröflunarleik sem
fram fór í Laugardalshöllinni.
Leikurinn var nokkuð vel leikinn
þó að liðunum yrðu á slæm
mistök á stundum. Úrvaiið var
síst lakara og ef þeim hefði tekist
að nýta upplögð tækifæri í lok
leiksins hefðu þeir gengið með
sigur af hólmi.
Þegar um 8 mínútur voru til
leiksloka hafði úrvalið tveggja
marka forustu, 18—16, en leikur
þeirra var óyfirvegaður í lokin og
því fór sem fór. Landsliðinu tókst
að jafija metin, er rétt rúm mínúta
var eftir, Þorbirni Guðmyndssyni
tókst að skora sigurmark lands-
liðsins rétt fyrir leikslok.
Það má segja að Jóhanni Inga sé
nokkur vandi á höndum með að
velja landslið. Á liðunum tveimur
sem léku á laugardag var lítill
munur og ef eitthvað var þá lék
úrvalið öllu betur. Bestu menn
liðanna voru markmennirnir.
Brynjar Kvaran varði mark úr-
valsins vel í fyrri hálfleiknum og
bæði Jens Einarsson og Jón
Gunnarsson stóðu sig vel í mark-
inu hjá landsliðinu.
Af útileikmönnum hjá landslið-
inu var Bjarni Guðmundsson mjög
frískur og félagi hans úr Val,
Þorbjörn Guðmundsson, átti einn-
ig ágætan leik. Hjá úrvalinu voru
Viðar Símonarson og Gústaf
Björnsson góðir, svo og Þorbjörn
Jensson sem lék vel í vörninni.
Geir Hallsteinsson var lasínn og
gat ekki leikið með.
Mörk landsliðsins: Þorbjörn
Guðmundsson 3, Hannes Leifsson
3, Olafur Jónsson 2, Stefán Gunn-
arsson 2, Bjarni Guðmundsson 4,
Páll Björgvinsson 2, Hörður Harð-
arson 2, Árni Indriðason 1.
Mörk úrvalsips: Viðar Símonar-
son 6 (3v), Gústaf 5, Stefán
Jónsson 1, Jón Pétur Jónsson 1,
Sigurður Gunnarsson 2 (lv), Jón
Karlsson 1, Sigurberg Sigsteinsson
1, Þorbjörn Jensson 1.
- þ.r.
STAÐAN