Morgunblaðið - 21.11.1978, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 1978
29
Flokksráðsfundur Alþýðubandalagsins:
Ráðstafanir
sem jafngildi
10% kauphækk-
un 1. desember
— hækkun launa yrdi þá 6-7%
í stjórnmálaályktun flokks-
ráðsfundar Alþýðubandalagsins
um helgina er sérstakur kafli um
„hinn tímabundna vanda 1. des-
ember“. Þar er bent á ráðstafanir
sem eiga að koma í stað 10%
hækkunar launa og segir í
samþykktinni að með þeim ráð-
stöfunum yrði hækkun launa
6—7%. Þessar ráðstafanir felast í
niðurgreiðslum, lækkun beinna
skatta, framkvæmd félagslegra
réttindamála, komið verði í veg
fyrir hækkun landbúnaðarvara
og að atvinnurekendur beri hluta
án heimildar til þess að velta
honum út í verðlagið. Þessum
Saltað í
rúmar 50
þús. tunn-
uráHöfn
Hornafirði, 20. nóv.
AÐ LOKINNI síldarvertíð á
Hornaíirði voru afurðir sem hér
segiri
Saltað var hjá Fiskmjölsverk-
smiðjunni í 31.587 tunnur og hjá
Stemmu í 19.000 tunnur. Hjá
Kaupfélaginu voru fryst og flökuð
1851 tonn og fiskmjölsverksmiðjan
framleiddi 355 tonn af síldarmjöli
og 249 tonn af lýsi. Þrír efstu
bátar voru Bára með 607 tonn,
Þórir með 539 tonn og Skógey með
426 tonn.
Nokkrir b&ar munu hefja róðra
með línu og troll og sumir nota
tímann til þess að fara í slipp.
— Gunnar.
ábendingum fylgja ekki ábend-
ingar um tekjuöflun til að standa
undir kostnaði af aðgerðunum.
Ráðstafanir þær sem flokkráðs-
fundur Alþýðubandalagsins bend-
ir á eru: 1. Ríkissjóður greiði niður
sem svarar í kaupi 3,5%. 2.
Lækkaðir verði beinir skattar á
launafólki eins og sjúkratrygg-
ingagjald og tekjuskattur á lægstu
tekjur, sem metið yrði í kaupi
2,0%. Kostnaðurinn við þessar
tvær aðgerðir er talinn nema 6
milljörðum króna á ári. 3. Ríkis-
stjórnin skuldbindi sig til að koma
í framkvæmd félagslegum rétt-
indamálum launafólks eftir nán-
ara samkomulagi, sem metin yrðu
í kaupi 2,0% og leggur flokksráðs-
fundurinn áherzlu á að þessi liður
verði framkvæmdur undanbragða-
laust, eins og þáð er orðað. 4.
Komið verði í veg fyrir hækkun
landbúnaðarvara 1. desember, sem
svarar í kaupi 0,5%. 5. Atvinnu-
rekendur veri án heimildar til þess
að velta út í verðlag 2,0%. I
samþykktinni segir að með þessu
væri stefnt að því að draga úr
þeirri hækkun peningalauna sem
ella kæmi til framkvæmda 1.
desember en lífskjör launafólks
tryggð í samræmi við fyrirheit
ríkisstjórnarinnar. Hækkun launa
yrði þá 6—7%. Á þennan hátt ætti
að takast að ná samkomulagi umx
sanngjarna fiskverðshækkun uml
áramót. Þessu þyrfti að fylgja
eftir með lækkun vaxta af
rekstrarlánum atvinnuveganna
eða annars tilkostnaðar til sam-
ræmis við loforð í stjórnarsam-
komulaginu. Tekið er fram að
Alþýðuþandalagið telji sjálfsagt
að þeir aldraðir og öryrkjar sem
aðeins njóta tekjutryggingar fái
við þessar enfahagsaðgerðir meiri
verðbætur en gert er ráð fyrir á
almenn vinnulaun.
Nýr skuttogari til
Hafnarfjarðar
Hlutafélagið Stálskip h/f,
Hafnarfirði, heíir keypt 469
rúmlesta skuttogara frá Aber-
deen í Skotlandi. Hið nýja skip
ber nafnið Ýmir með einkennis-
bókstöfum HF 343.
Skip þetta er 7 ára gamalt byggt
í Aberdeen í Skotlandi eftir
kröfum Lloyds-flokkunarfélagsins
og er mesta lengd þess 48.7 m og
breidd 10.0 m.
Skip þetta hefir reynzt mjög
gott sjóskip og var stærsta skip
Richard Irvin & sons, sem gert var
út frá Aberdeen. Engin lán
fengust til kaupana úr opinberum
sjóðum hér vegna ákvæða ríkis-
stjórnarinnar, samkvæmt upplýs-
ingum frá Stálskip h.f.
Skipstjöri á Ými verður Sverrir
Erlendsson, 1. vélstjóri Pétur
Vatnar Hafsteinsson. Ýmir er
yæntanlegur til Hafnarfjarðar í
dag.
Stálskip h/f átti áður síðutogar-
ann Rán GK 42.
Bflasalinn í 18 daga
gæzluvarðhald
BÍLASALINN, sem handtekinn
var aðfaranótt s.I. laugardags
eins og Mbl. skýrði frá á sunnu-
daginn hefur verið úrskurðaður í
gæzluvarðhald til 6. desember eða
f allt að 18 daga. Öðrum manni,
sem handtekinn var vegna þessa
sama máls var sleppt samdægurs
að loknum yfirheyrslum.
Eins og fram kom í Mbl. er
bílasalinn grunaður um fjársvik í
bílaviðskiptum og er málið keim-
líkt málum annarra bílasala, sem
handteknir hafa verið undanfarn-
ar vikur grunaðir um fjársvik.
Hafa nú þrír bílasalar verið teknir
til sérstakrar athugunar og hefur
Rannsóknarlögreglan haft til með-
ferðar á fjórða tug tilfella, þar sem
fyrrnefndir menn eru grunaðir um
að hafa haft í frammi svik við
viðskiptavini sína.
Hörkuárekstur á
Reykianesbraut
MJÖG harður árekstur varð á
Reykjanesbraut, nánar tiltekið
á Strandaheiðinni miðri um
hálfsexleytið á laugardaginn.
Tvær fólksbifreiðir voru að
mætast þegar önnur þeirra,
Fiatbifreið, rann til á veginum
og i veg fyrir hina bifreiðina,
sem var Cortina. Skullu þær
harkalega saman með þeim
afleiðingum að flytja varð fimm
manns á sjúkrahús en allir
hlutu minni háttar meiðsli.
Bílarnir eru stórskemmdir og
Cortinubifreiðin að öllum lík-
indum ónýt, eins og meðfylgj-
andi mynd ber með sér.
.v.3veaW''un'‘
í6"U"' m ,nanrtnn
*