Morgunblaðið - 21.11.1978, Side 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 1978
• •
Markús Orn Antonsson:
,, Borgar st j órnar meiri-
hlutinn gengur blygðunar-
laust bak orða sinna”
Á fundi borgarstjórnar sl.
fimmtudaíískvöld lagði Egill Skúli
IngihorKsson borgarstjóri fram
fíreinarfíerð um framkvæmdir á
vegum borgarsjóðs og fyrirtækja
borííarinnar. I t>reinar)íerðinni
kom marfít athyglisvert fram.
311 milljón
króna hækkun
Eiíínabreytintíareiknintíur
borfíarsjóðs er talinn muni hækka
um 311 milljónir króna frá fjár-
hatjsáætlun. Drefíið hefur verið úr
ýmsum framkvæmdum, t.d. bygg-
ingu sundlaugar við Fjölbrauta-
skólann og íþróttahúss við Hlíða-
skóla. Helztu kostnaðarliðir, sem
fram úr áætlun fara, eru í
milljónum: Bláfjallasvæðið 37, nýi
íþróttavöllurinn í Laugardal 22,
umhverfi og útivist 20, stofnkostn-
aður heilbrigðismála 43,5, heilsu-
gæzlustöðvar 7, Arnarholt 30,
áningarstaður á Hlemmi 30.
Heildarkostnaður við gatna- og
holræsagerð er talinn verða 133,5
milljónum lægri en endurskoður
fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir og
kostnaður vegna fasteignakaupa
verður 50 milljónir, en ekki hafði
verið gert ráð fyrir honum.
Framkvæmdir RR lækka um 140
milljónir frá endurskoðaðri áætl-
un, hið sama gildir um 19 milljónir
vegna framkvæmda VR í Heið-
mörk. Hins vegar hækkaði kostn-
aður við aðalæð í Heiðmörk um 35
milljónir. Hjá HR hefur orðið að
fresta byggingu geyma á Hnoðra-
holti og dreifilögn í Hvaleyrarholt.
Kostnaður við boranir Hitaveitur í
Reykjavík nemur trúlega 230
milljónum, aðalæða frá Elliðaám
að Öskjuhlíð 568 milljónir. Fram-
kvæmdakostnaður Reykjavíkur-
hafnar verður trúlega eitthvað
lægri en áætlað var.
Meirihlutinn étur
fullyrðingarnar
sínar
Markús Örn Antonsson (S) tók
mæst til máls. Hann sagði
greinargerðina staðfesta á mjög
athyglisverðan hátt hvernig nú-
verandi meirihluti borgarstjórnar
hefði blygðurnarlaust gengið á bak
orða sinna, sem þrástagast hefði
verið á í kosningabaráttunni á
síðastliðnu vori. Meðan meirihlut-
inn var í minnihluta hafi hann
þótzt geta gagnrýnt alla skapaða
hluti, sem sjálfstæðismenn beittu
sér fyrir í borgarmálum eða áttum
ógert að þeirra mati.
Meirihlutinn
blekkti í dag-
vistunarmálum
Markús Örn sagðist ekki ætla að
ræða þessa greinargerð almennt
en fara nokkrum orðum um það
hvernig kaflinn um framkvæmdir
við dagvistunarstofnanir afhjúp-
aði fullkomlega blekkingar meiri-
hlutans og þó einkaniega Alþýðu-
bandalagsins, sem þar stjórnaði
ferðinni og fjálglegast hefði tjáð
sig um nauðsyn dagvistunarþjón-
ustu. Hvað segði þessi skýrsla um
þann algjöra forgang sem Alþýðu-
bandalagið hafði ætlað að láta
framkvæmdir á þessu sviði hafa
umfram aðrar hjá borginni? Hún
staðfesti það eitt, að forvsta
meirihlutans hefði gjörsamlega
gengið á bak orða sinna, ýmist
dregið úr framkvæmdahraða eða
skorið fjárveitingar til fram-
kvæmda algerlega niður.
Markús Órn sagði, að þegar
sjálfstæðismenn hefðu verið í
meirihluta hefði á sl. vori verið
unnið markvisst að því að taka í
notkun þrjár nýjar dagvistar-
stofnanir á þessu ári. Dagheimili
og skóladagheimili við Suðurhóla
átti að taka í notkun í haust og
dagheimili við Hagamel og skóla-
dagheimili við Völvufell fyrir
áramót. Eitt fyrsta verk forystu-
mann nýja meirihlutans í borgar-
ráði hafi verið að gefa embættis-
mönnum borgarinnar fyrirmæli
um að semja við verktaka um
seinkun framkvæmda, þannig að
þeim lyki ekki á tilsettum tíma.
Hinsvegar hafi þessu verið breytt
vegna athugasemda félagsmála-
ráðs þannig, að heimilið við
Suðurhóla væri í þann veginn að
taka að fullu til starfa fyrst núna
en hinar stofnanirnar tvær látnar
bíða fram á næsta ár. Markús Örn
sagði, að í greinargerðinni kæmi
fram, að dagheimilið við Hagamel
Markús Óm:
„Vinstri menn átu
kosningaloforöin
og svelgdist ekki
á.“_______________
yrði væntanlega tekið í notkun í
byrjun apríl og ætlað að ljúka
skóladagheimilinu við Völvufell
um mánaðanótin marz-apríl á
næsta ári. Þess vegna bæri að taka
sérstaklega fram, að félagsmála-
ráð sem fer með yfirstjórn dag-
vistarmála í umboði borgarstjórn-
ar hefði ekki ákveðið eitt né neitt
um þessar breytingar á
framkvæmdaáætlun.
í mótsögn við
yfirlýsingar
hvalablástur
Markús Örn Antonsson sagði
það talsverða mótsögn við fyrri
yfirlýsingar meirihlutans og þó
einkum Alþýðubandalagsmanna
um, að hinar rétt kjörnu nefndir
og ráð skuli með slíkar ákvarðanir
fara. Félagsmálaráð hefði ekkert
um þetta fjallað að öðru leyti en að
reyna eftir megni að fá áætluninni
haldið þó það hafi ekki tekist. Hins
vegar gerði félagsmálaráð í haust
samþykkt um að tvær nýjar
stofnanir skyldu þá þegar boðnar
út til byggingar. Það eru dagheim-
ili og leikskóli við Iðufell og
dagheimili og leikskóli við Fálka-
bakka, sem búið var að velja lóð
fyrir og samþykkja teikningar að í
Iok síðasta kjörtímabils. Það var
áætlað fyrir byrjunarframkvæmd-
um á fjárhagsáætlur, sem afgreidd
var hér í borgarstjórn 19. jan. sl.
og enn á ný í júlí við endurskoðun
fjárhagsáætlunar eftir að nýr
meirihluti komst til valda. Til
þessara b.vgginga sem vitaskuld
voru settar á framkvæmdaáætlun
vegna brýnnar þarfar fyrir dag-
vistarrúmi handa börnum í Breið-
holtshverfum, standa enn 46 millj-
ónir á fjárhagsáætlun. Samkvæmt
fylgiriti þessarar greinargerðar er
þó ljóst, að þeir sem ferðinni ráða í
þessum efnum ætla ekki að hefja
neinar framkvæmdir við Breið-
holtsheimilin tvö á þessu ári.
Að svelgjast ekki á
Markús Örn sagði, að þannig
litu þá fyrirheit Alþýðubandalags-
manna út og kosningaloforðin,
sem þeir gáfu í vor þegar til
framkvæmdanna kemur. Þeir hafi
étið þau öll ofan í sig og án þess að
láta sér svelgjast á. Nú væri
borgarfulltrúum tjáð, að þessi tvö
heimili yrðu boðin út um áramót.
Hæfilega áætlaður byggingartími
fyrir stofnanir af þessari stærð
hefur verið reiknaður 12—14
mánuðir. Það verður því að teljast
sérstakt lán ef hægt verður að
ljúka framkvæmdum fyrir árs-
Kristján Ben.
„Birgir ísleifur
haföi rótt fyrir
sér.“
byrjun 1980. Þó útboð fari fram nú
um áramót er nefnilega tæpast við
því að búast að framkvæmdirnar
hefjist fyrr en nokkru seinna ef til
vill ekki fyrr en í marz. Þetta væri
í stuttu máli afrekaskrá Alþýðu-
bandalagsins i upphafi stjórnar
þess á borgarmálum Reykvíkinga.
Þetta væri sú staðreynd sem við
blasti þegar litið væri yfir feril
sigurvegaranna frá í vor.
Alþýðubandalagið
í fyrirheitaham
Markús Örn sagði, að enn á ný
væri Alþýðubandalagið í fyrir-
heitaham. Nú væri það hið vænt-
anlegá ár barnsins 1979, sem gefið
hefur menntamálaráðherra
flokksins tækifæri til að slá
svolítið um sig frammi fyrir
uppeldisfrömuðum og barnavinum
og síðast en ekki sízt á undirbún-
ingsráðstefnu barnaársins. Þar
var enn á ný lofað nokkrum
stórátökum í dagvistarmálum.
Gott og vel. Ráðherrann gat enn
innsiglað þennan vilja sinn ef
hann raunverulega var fyrir hendi
með innskoti í fjárlagafrumvarpið
sem þá hafði enn ekki verið lagt
fyrir Alþingi. Ríkið á nefnilega að
taka þátt í stofnkostnaði dagvist-
arstofnana. Og hver væru svo
stórvirkin sem núverandi vinstri
stjórn með aðild Alþýðubanda-
lagsins ætlaði að gera í mála-
flokknum? Þessum forgangsflokki
verklegra.framkvæmda á barnaár-
inu? Jú, í frumvarpinu væri gert
ráð fyrir 230 milljóna framlagi
ríkisins 1979 í stað 180 milljóna í
fjárlögum þessa árs. Hlutfallsleg
hækkun á þessum lið milli ára er
afskaplega lík því og gerist
almennt á öðrum gjaldaliðum eins
og þeir eru í frumvarpinu. Það eru
öll stórmerkin. Ráðherrann megi
heldur betur taka sig saman í
andlitinu og toga í taumana upp í
fjármálaráðuneyti eða niður í
fjárveitinganefnd til að gera sig
ekki að athlægi frammi fyrir
landsins börnum á barnaárinu.
Markús Örn sagði, að ekki yrði
síður fróðlegt að fylgjast með
frammistöðu flokkssystkina ráð-
herrans hér í borgarstjórn, þegar
áætlað verður fyrir dagvistar-
stofnunum á fjárhagsáætlun
næsta árs. Þau mega sannarlega
láta hendur standa fram úr
ermum til að vinna upp frestanir
og niðurskurð framkvæmda á
dagvistarmálum sem þau hafa
staðið að síðustu mánuði og þessi
greinargerð talar skýrustu máli
um. Þetta er enn eitt dæmi um, að
nákvæmlega ekkert mark er tak-
andi á Alþýðubandalaginu og
sagði Markús Örn Antonsson að
lokum.
Borgarbúar,
verið viðbúnir
Ólafur B. Thors (S) sagði
greinargerðina bera merki verð-
bólgu og að því leyti vera dapur-
lega. Ymislegt í mati á endurskoð-
un or aði tvímælis en jafnframt
þvi skoðaðist þessi greinargerð
sem vísbending um fjármálastjórn
meirihlutans. Að svo miklu leyti
sem unnt er að leggja greinargerð-
ina sem mælikvarða þá sýndist sér
ljóst, að borgarbúar yrðu að búa
sig undir misvíxlun.
Markús Örn Antonsson sagði þá
þróun slæma, ef nú hæfust ný-
byggingar við ófullgerðar götur.
Fyrri meirihluti hefði náð því
marki að ganga að miklu leyti frá
götum áður en hús væru byggð og
kvaðst borgarfulltrúinn sannfærð-
ur að slíkt væri vilji borgarbúa.
Lækkun vegna
bygginga aldraðra
Páll Gislason (S) gagnrýndi að
dregið hefði úr framkvæmdum við
B-álmu Borgarspítalans. Áætlanir
um byggingar aldraðra í Furu-
gerði og Hafnarbúðum standast,
en við Lönguhlíð verður líklega
farið um 35 milljónir fram úr
áætlun. Framkvæmdir við' Dal-
braut yrðu fyrir 200 milljón
krónum lægri upphæð en áætlað
var og niðurstaðan væri, að um 165
milljónum minna væri varið til
bygginga aldraðra en ætlað var.
Þeim peningum hafi því verið
varið til einhverra annarra fram-
kvæmda. Ef til vill hafi það verið'
peningarnir sem talað var um í
sumar, að væru í stóra kassanum,
og taka mætti úr eftir þörfum.
Öllum væri ljóst sagði Páll, að
spara þyrfti á öllum þeim sviðum
sem hægt væri en óneitanlega
kæmi þa einkennilega fyrir sjónir
að helzt þyrfti að spara í bygging-
um fyrir aldraða og þar sagðist
hann meina B-álmu Borgarspítal-
ans sem ætlað væri að taka
sérstaklega við öldruðu fólki, enn
fremur heimilið við Dalbraut sem
er sérhannað til að geta veitt meiri
þjónustu en tíðkast á öðrum
dvalarheimilum.
Páll sagði, að sýnilegt væri, að
þetta yrði til að það drægist
verulega að þessar byggingar
kæmust í notkun en bygging
B-álmu væri áreiðanlega stærsti
áfanginn í því að koma öldrunar-
lækningum og hjúkrun aldraðra í
viðunandi horf og það eina sem nú
væri á döfinni sem verulega leysti
vandann. Páll sagði, að á síðustu
sjö árum hefði Reykvíkingum eldri
en 70 ára fjölgað úr 5211 í 6720 eða
um 1509. Það mætti því vera ljóst,
að ekki væri skynsamlegt að draga
umræddar framkvæmdir. Páll
beindi því síðan til borgarráðs-
manna, að þeir athuguðu mál þessi
gaumgæfilega við gerð fjárhags-
áætlunar 1979.
Þetta er
hvalblástur
Adda Bára Slgfúsdóttir (Abl)
sagði, að ummæli Markúsar Arnar
Antonssonar væru eins og hvala-
blástur. Engu okkar er ljóst hvað
vera skuli forgangsverkefni sagði
Adda Bára. Æskilegt hefði verið
að halda áfram bæði með bygg-
ingu slysadeildar og B-álmu Borg-
arspítalans. Adda Bára sagði, að
þessar 200 milljónir á Dalbrautina
hefðu ekki verið og væru ekki til.
Almennt sagði hún, að allar
framkvæmdir síðari hluta ársins
væru bundnar því sem fast hefði
verið.
Orð Birgis
ísleifs rétt
Kristján Benediktsson (F)
sagði greinargerð þessa bera þess
vott, að mikið hafi verið til í því
sem Birgir Isleifur Gunnarsson
hafi sagt, að skeea hefði þurft
meira niður ef átt hefði að ná
jöfnuði. Kristján kvaðst undrandi
á málflutningi Markúsar Arnar og
Ólafs B. því með málflutningi
sínum væru þeir að ræða um eigin
framkvæmdaáætlun að verulegu
leyti. I sumar hafi því verið
bjargað sem hægt var. Rangt væri
hjá Ólafi B. Thors, að skýrslan
bæri vott um hvað meirihlutinn
vildi heldur hve þrotabúið hefði
verið mikið. Kristján sagði, að
tekist hefði að bjarga nokkru, en
rétt hefði verið hjá Birgi ísleifi
Gunnarssyni, að meirihlutinn
hefði átt að beita sér fyrir meiri
niðurskurði.
Sjálfstæðismenn
hefðu skorið nið-
ur annars staðar
Albert Guðmundsson (S) sagði
rétt, að rætt hefði verið um að
skera niður, en ef Sjálfstæðis-
flokkurinn hefði fengið að ráða
hefði verið tekið af sumum öðrum
liðum en núverandi meirihluti
gerði.
Ábyrgðin ólærð
Markús Örn Antonsson sagði
að í lagi værj þó hvalablástur
heyrðist meðan Greenpeace-menn
væru hérlendis. Sjálfstæðismenn
hefðu sínar meiningar um niður-
skurð en mestu máli skipti, að
niðurskuður væri framkvæmdur á
ábyrgan hátt hvað Alþýðubanda-
lagið ætti enn ólært. Sakleysisleg-
ar yfirlýsingar meirihlutans stæð-
ust því greinilega ekki þegar á
hólminn væri komið, sízt af öllu
hvað snerti dagvistunarstofnanir.
Hvar eru
peningarnir?
Davíð Oddsson spurði fyrst um
700 milljónirnar sem hefðu verið
til í sumar, hvar væru þær nú?