Morgunblaðið - 21.11.1978, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 1978
Þórður Ásgeirsson
frá Fróðá og dóttir
hans Ólína Þorbjörg
Struthers — Minning
Arin 1905—'21 bjuggu á Fróðá á
Snæfellsnesi hjónin Ásgeir
Þórðarson oí; Ólína Guðmunds-
dóttir. Þanjjað höfðu jiau flutzt frá
11rútsholti í Eyjahreppi.
\’orið 190(1 fiuttist móðir mín
með börn sín 4 frá Akri í
Staðarsveit að Arnarhóli í Fróðár-
hreppi. Bæirnir stóðust á, hvor
sínum mejíin á bökkunt Fróðár, og
var nærri kallfært yfir. Éfí var
elztur systkina minna, nýorðinn 1Ö
ára. Var-mér fenninn fylndarmað-
ur til að reka nteð mér kindur
okkar norður yfir Fróðárheiði og
átti éfí að t;æta þeirra á okkar nýju
bújörð, nteðan ntóðir mín var
ókomin að sunnan. Ék fékk inni á
Fróðá. Ekki var þar í kot vísað.
Þessi voru fyrstu kvnni mín af
Fróðárfólkinu.
Náj;rannarnir tóku þessu fálið-
aða aðkomufólki vel. Ólína ot;
móðir mín urðu mjöj; góðar
vinkonur. Fátt man ég frá þessu
eina ári, sem við áttum heima á
Arnarhóli. Tvennt man éj; vel.
Þ-ið, að fyrsta sólskinsdaKÍnn eftir
þrálátar rit;nint;ar brá Ásgeir
bóndi sér yfir ána með allt sitt
valda lið oj; sló allt tún okkar ot;
laKði í flekki. Það annað, að um
haustiö kont Ólína yfir á Arnarhól
ok ræddust konurnar við alllengi
síðdet;is. Heyrði ég þá álengdar, að
Ólína talaði af miklum innileik um
fvrstfæddan son sinn, — Þórð.
Hann var þá þet;ar orðinn hár
inaður ok Kjörvilet;ur mjöt;, á 17.
ári.
Ættir Þórðar Ást;eirssonar virð-
ast auðraktar frá því nokkru fyrir
siðaskipti.
Föðurætt — 3 næstu liðir:
Þórður Jónsson (f. um 1791, d.
1866) ok Kristín Þorleifsdóttir.
Hún var alsystir hins landskunna
„læknis" ot; sjáanda, Þorleifs í
Bjarnarhöfn. (Bjarnarhafnarætt).
Meöal forfeðra þessara s.vstkina
var mart;t kunnra mennta- ok
hattleiksmanna. Sumir voru
auðugir.
Þórður Jónsson vakti á sér á
sínum tíma mikla eftirtekt fyrir
auðsöfnun ot; (án efa) fyrir
kvonfant; sitt. Fæddist að Dag-
verðará sunnan Snæfellsjökuls.
Stundaði ungur sjóróðra (í grennd
frægra fiskimiða þar). Var „hygg-
inn, heppinn og sparsamur". Varð
von hráðar „auðugasti maður
héraðsins". (Lét eftir sig „ekki
minna“ en 10.000 ríkisdali í föstu
og lausu. Reikni hver, sem kann,
til jafnvirðis í ísl. kr. á vorri tíð).
Auðgjarn var þessi maður, en ekki
nirfill. Var oft hjálpsamur við
fátæka, orðheldinn og „leit á það
sem loforð, ef hann synjaði ekki
um bón“. Hann bjó að Rauðkolls-
stöðum í Eyjahreppi. Breytti þar
rýru koti í stórbýli, gerðist
hreppstjóri og sáttanefndarmaður.
Hlaut verðlaunapening og
dannebrogsorðu fyrir búsafrek.
Sonur Þórðar og Kristínar var:
Þórður Þórðarson (f. 8/1 1828, d.
7/5 1899) bóndi, hreppstjóri og
alþingismaður. Fyrri kona hans
var Ásdís Gísladóttir frá Hraun-
höfn í Staðarsveit. Bjuggu að
Hítardal og Söðulsholti, en síðast
og lengst (eftir lát föður hans) að
Rauðkollsstöðum. Eignuðust 4
syni og 3 dætur. Seinni kona
Þórðar var Pálína Hansdóttir
Hjaltalín frá Jörfa í Kolbeins-
staðahreppi. Eftir lát manns síns
hélt hún til Vesturheims með 3
unga syni sína, en hinn yngsti
þeirra dó á hafi úti. Hún lézt
vestanhafs háöldruð. — Þórður
Þórðarson var merkur maður og
mikilsvirtur. Hann var „fram-
kvæmdamaður og héraðshöfðingi,
er setti svip sinn á umhverfið",
„kjörinn til allra opinberra sýsl-
ana, sem bónda verða falinn",
„gáfaður maður og háttvís, er vel
kunni að stilla metnaði sínum í
hóf“. Hann leysti margan vanda.
Erfði mikið fé úr föðurgarði, bjó
stórbúi við — fágæta risnu. Var
dannebrogsmaður að nafnbót.
Sonur hans og Ásdísar (næstelzt-
ur) var:
Ásgeir Jóhann bóndi á Fróðá, f.
að Hítardal 29/3. 1861, d. 1940.
Meðalmaður á hæð, en þrekvaxinn
(ef ég man rétt), greindur og
hóglátur. Um hjálpsemi hans veit
ég af eigin reynd og annarra
umsögn. (Sjá æviskrár og Árbók
Snæfellinga og Hnappdæla
1839-85).
Móðurætt — 3 næstu liðir:
Sér Ólafur Guðmundsson
(1796—1867) og Þórkatla Torfa-
dóttir (1804—41) frá Kolviðarnesi
í Eyjahreppi. Faðir Torfa var
Þorbjörn gullsmiður Ólafsson að
Lundum í Borgarfirði. Faðir sér
Ólafs, Guðmundur Ólafsson, bjó
að Hallbjarnareyri í Eyrarsveit.
Hann var spítalahaldari og kunn-
ur skipasmiður. Fluttist seinna að
Sveinsstöðum á utanverðu
Snæfellsnesi. Séra Ólafur lauk
góðu stúdentsprófi við Bessastaða-
skóla og var þá eitt ár skrifari hjá
Magnúsi Stephensen landsyfir-
dómara í Viðey. Hélt síðan heim
til Sveinsstaða. Varð brátt skrifari
hjá sýslumanni Snæfellinga
(Bonnesen) og fór með sýsluvald í
langri utanför hans (Í821—22),
enda fróður í lögum og sýnt um
slík störf. Hann kvæntist Þórkötlu
1824 og bjuggu þau á Sveinsstöð-
um. Árið eftir tók hann prests-
vígslu og gerðist aðstoðarprestur í
Nesþingum. Hjónin eignuðust
mörg börn, en aðeins 3 þeirra
komust upp. Þórkatla var einka-
barn og auðug. Séð hefi ég því
haldið fram, að hún hafi verið
„önnur ríkasta konan á Islandi".
Vitað er, að svo hjartahlý var hún
og gjafmild, að ekkert mátti hún
aumt sjá. Hún var a£ Bjarnar-
hafnarætt — hálfsystir Kristínar
Þorleifsdóttur, konu Þórðar eldra
á Rauðkollsstöðum, en yngri en
hún. Þórkatla andaðist í ársbyrjun
1841 eftir 17 ára sambúð. — Sama
ár var séra Ólafi veitt Hjalta-
bakkaprestakall norður í Húna-
vatnssýslu. Um haustið kvæntist
hann Bergljótu Jónsdóttur frá
Hallsbæ á Snæfellsnesi. (Þau áttu
ekki börn). Með þeim fóru norður
börn séra Ólafs frá fyrra hjóna-
bandi. Hann var prestur nyrðra í
21 ár. Honum er svo lýst: „Sterkur
maður (þótt brjóstveill væri löng-
um), glaðvær, gestrisinn og
vinsæll af söfnuðum sínum“.
Sonur séra Ólafs og Þórkötlu var:
Guðmundur. Hann var 11 ára er
hann kom að Hjaltabakka og ólst
þar upp. Lærði söðlasmíði á
Akureyri. Leið hans lá austur í
Aðaldal í S.-Þinge.vjarsýslu. Þar
kvæntist hann Halldóru Sveins-
dóttur. Foreldrar hennar voru
Sigríður Skúiadóttir og Sveinn
Sveinsson að Sleitustöðum í
Skagafirði, en afi hennar, sér
Skúli Tómasson að Múla í Aðaldal,
ól hana upp. Eftir nokkur ár
fluttust hjónin vestur í Húna-
vatnssýslu og settust að á Ytra-
Hóli á Skagaströnd. Þau eignuðust
5 dætur. Þrjár hinar eidri,
Skúlína, Ingibjörg Marsilía og
Soffía (gift Ragúel Johnson tré-
smiði í Wynard) fóru vestur um
haf. Þórkatia Júlíana var hús-
freyja að Brekku, Húnavatnss.
Ólína Bergljót yngst. (Nafn föður
og stjópmóður Guðmundar). Móðir
hennar varð skammlíf. Seinni
kona Guðmundar var Anna María
Friðriksdóttir, ættuð úr Víðidal.
Þau bjuggu enn lengi góðu búi að
Ytra-Hóli. En er heilsu hans
hrakaði og búi hans, fluttust þau
til N.-Dakóta og dætur þeirra
þrjár: Ingibjörg, Halldóra og Gróa
(1889). Einnig systur Guðmundar,
Einara og Katrín Guðríður, sem
gift var Kristni Ólafssyni frá
Stokkahlöðum, Eyjafirði. Þau voru
foreldrar séra Kristins K. Ólafs-
sonar í Dakóta og víðar. Gróa og
maður hennar, Hannes Guðjóns-
son, þingeyskur, voru í söfnuði
mínum í Wynyard. Vinátta mín og
barna þeirra helzt enn. — Guð-
mundur var skáldmæitur. Ljóða-
kver í Winnipeg, 1916). Dóttir
Guðmundar og Halldóru var (eins
og nú var sagt):
Ólína Bergljót (f. að Ytra-Hóli
25/11. 1863, d. 12/7. 1921), kona
Ásgeirs Þórðarsonar á Fróðá.
Eftir lát móðurinnar var hún tekin
í fóstur og alin upp á hinu
ríkmannlega heimili frænda síns,
Þórðar yngra á Rauðkollsstöðum.
Hann hafði haft miklar mætur á
Þórkötlu ömmu hennar (og móður-
systur sinni) og sagt Ólínu margt
um líknarlund hennar. Ásgeir og
Ólína voru skyld í 2. og 3. lið. Hún
var greind kona, örlynd og hjarta-
hlý, fríð sýnum og fyrirmannleg.
Börn Fróðárhjónanna:
Halldóra (1886—1962), gift Þor-
leifi Sigurðssyni. Bjuggu lengi að
Þverá í Eyjahreppi. Upp komust 2
börn, piltur og stúlka.
Þórður (19/2. 1890-2/11. 1977.)
D. í Kanada.
Guðmundur (25/12. 1891-25/9.
1916). D. í Frakklandi)
Ólafur (30/5. 1895-----). D. í
Kanada.
Ásgeir (9.8. 1897—21/7. 1978.
Nýlátinn), kenndur við Fróðá,
skrifstofustjóri vegamála í 49 ár,
Rvík. Kv. Karólínu Sveinsdóttur.
Börn: 5 piltar, 1 stúlka.
Kristín Þórkatla, gift Stefáni
Einarssyni, trésmiði, Rvík. Börn: 2
piltar, 1 stúlka.
Soffía (1901-1905).
Magdalena, gift Bergsveini Har-
aldssyni, kennara, Rvík. Hann lézt
1945. Börn: 3 piltar, 3 stúlkur.
Karl, málari, Rvík, Kv. Stefaníu
Maríu Sigurðardóttur. Börn: 5
piltar, 2 stúlkur.
Súsanna, prentiðnaðarkona,
Rvík.
Soffía, býr með Halldóri Stef-
ánssyni, bakara, Rvík.
Sumarið 1910 héldu þrír elztu
synir Fróðárhjónanna til Kanada
og settust að í Winnipeg: Þórður
tvítugur, Guðmundur 18 ára og
Ólafur 15 ára.
Menn setti hljóða við. Var ekki
löngu hætt að tala um vesturferð-
ir? Ýmislegt kom til.
Bræður þessir höföu verið aldir
upp sem bændur að þjóðlegum sið,
við farskólamenntun aðeins. Auð-
ur og góðjarðir Rauðkolls-
staða-Þórðanna höfðu dreifzt á
margar hendur. Þrengja tók að
landbúnaði á íslandi. Vinnufólk
þusti til kaupstaðanna. Stórvirkar
búvélar og tilbúinn áburður áttu
þá enn langt í land. Hinsvegar
höfðu Vestur-Islendingar hrist af
sér frumbýlisokið og áunnið sér
álit. Margir nákomnir ættingjar
bræðranna voru komnir vestur.
Um skeið sótti faðir Ólínu það
allfast, að hún kæmi á eftir
fjölskyldunni. Líklegt er, að hann
og fleiri hafi talið, að vestra
byðust góð tækifæri dugandi
mönnum.
Síðasta veturinn á Islandi hafði
Þórður stundað smíðanám í
Reykjavík. Fékk hann þegar góða
atvinnu í Winnipeg við húsasmíð-
ar, og mun Guðmundur hafa unnið
með honum. Seinna fór Guðmund-
ur til Alberta. Ólafur hafði- hug á
að gerast kennari, en úr því varð
ekki.
Heimsstyrjöld skall á 4 árum
síðar. Vorið 1916 létu eldri bræð-
urnir skrá sig til herþjónustu.
Guðmundur fór beint til Frakk-
lands, var í linnulausum bardög-
um og féll 25. sept. (Hann man ég
vel, einkum hið ljúfmannlega
yfirbragð hans). Han var þrekmik-
ill, stundaði íþróttir vestra, var
„glaðsinna og góður félagi“. Þórð-
ur var um tíma við heræfingar á
Englandi, áður en hann fór til
Frakklands. Vegna iðnar sinnar
var henn settur í tæknisveit 223.
herdeildar. Þar var margt Norður-
landamanna. Var hann síðan
t
SIGRÍDUR BENJAMÍNSDÓTTIR,
Meóalholti 5,
andaöist á Borgarspítalanum 11. nóvember, útförín hefur fariö fram í kyrrþey
aö ósk hinnar látnu. Vandamenn.
t
Móöir mín og amma
GUÐNÝ JÓHANNSDÓTT1R,
lést í Landspítalanum 20. nóvember s.l.
Jarðarförin auglýst síóar.
Birna Jóhannsdóttir,
ValgarA Þór Guómundaaon, Guóni Þór Guómundaaon.
t
Móðir okkar, tengdamóöir og amma
KARÍTAS JÓNSDÓTTIR,
Austurbrún 6,
er lést 13. nóvember veröur jarösungin trá Fossvogskirkju miövikudaginn 22.
nóvember kl. 15.
Einar Sigvaldason Sigríóur Ólafsdóttir
Jóhannes Sigvaldason Kristbjörg Ólafsdóttir
og barnabörn.
t POVL CHR. AMMENDRUP,
kaupmaóur,
Tunguvegi 7,
er lezt i Borgarspítalanum þann 12. nóvember veröur jarösunginn frá
Fossvogskirkju í dag þriöjudag 21. nóvember kl. 13.30.
Tage Ammendrup, María M. Ammendrup,
Páll Ammendrup, Axel Ammendrup,
María J. Ammendrup, Þórdís H. Ammendrup,
Sigrún Ammendrup, Fríóa Ammendrup,
Emelía Samúelsdóttir, Ebba Ammendrup,
Jóhann Georg Möller, Rita og Nils Sloth.
Emmy Rasmusen,
t
Konan mín og móöir okkar,
INGIBJÖRG ÞÓRÐARDÓTTIR,
fré Firöi,
veröur jarösungin frá Dómkirkjunni 24. nóvember kl. 10.30 árdegis.
Jarösett í kirkjugaröi Eyrarbakka.
Þeim, sem vildu minnast hennar er bent á safnaöarsjóöi Hálogalandskirkju í
Langholtsprestakaili í Reykjavík.
Áralíus Nfalsson
og börn.
t
Hjartans þakkir sendum viö öllum er sýndu okkur samúö og hlýhug viö andlát
og jaröarför eiginmanns míns, fööur, tengdafööur og afa, •
ALFREÐS Þ. KRISTINSSONAR,
bakaramoistara,
Áagarói 155.
Sígurvaig Oddadóttir,
Margrét Óaklín Alfreóadóttir, Einar Pálmi Matthíaason,
Lilja B. AHreóadóttir, Guómundur E. Aóalateinaaon,
Eyjólfur K.L. Alfraósaon, Haraldur Gunnar Borgfjörð,
og barnabörn.
Lokað
í dag frá kl. 12 vegna jaröarfarar
POVL AMMENDRUP,
kaupmanns.
Leöurvöruverzlunin Drangey,
Verzlunin Sísí, Laugavegi 58.
*•> *