Morgunblaðið - 21.11.1978, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 21.11.1978, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 1978 vlK> M0RödK( K'AFf/NíJ GRANI GÖSLARI Ofsa veizla. — Hver býður? Mér hvolfdi — tók of krappa beygju! Kjaftæði maður! — Portvín hefur aldrei skaðað nokkurn mann! BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Þungur skriður virtist vera kominn á varnarleikinn í spili dagsins. En þegar hæst stóð kom annar leikmannanna ekki auga á mögulegan mótleik sagnhafa, sem hægt var að sjá við. Austur gaf, allir utan hættu. Norður S. Á109542 H. GIO T. 843 L. 75 Austur S. D8 H. ÁK9 T. KD5 L. 109862 Suður S. 6 H. D8643 T. G762 L. ÁK3 Vestur S. KG73 H. 752 T. Á109 L. DG4 Sagnirnar: (C Pl B //j I \^ \ Stóri bróðir á ekkert að fá, því að hann át litla bróður áðan! Of mikill saltaustur? Fyrir stuttu voru hér í dálkun- um nokkrar ráðleggingar öku- manns í vetrarakstri, þar sem hann benti mönnum m.a. á að hafa farg í skottinu og gera bíla með því stöðugri í hálkunni. í framhaldi af því skrifar annar ökumaður nokk- ur orð: „Þær voru ágætar þessar ábend- ingar ökumannsins hjá Velvak- anda á dögunum og er áreiðanlegt að margir sem ekki hafa neina hugsun á því hvernig bezt er að búa bíla sína út í snjó, hafa haft full not af þeim ráðum, þ.e. nenni þeir að fara eftir þeim, en það getur kostað örlitla fyrirhöfn. í ábendingum ökumanns þessa kom m.a. fram að hann notar ekki nagladekk, telur að þau valdi spjöllum á götum og mun það víst rétt vera. En í sambandi við þetta langar mig að ræða hvort ekki sé á einhvern hátt hægt að minnka saltaustur á götur borgarinnar, hún verður hálf óþrifaleg við þetta og óþrifin berast inn í hús og á bíla, þannig að jafnvel verður erfitt um öll þrif. Er það alveg víst að svona nauðsynlegt sé að ausa salti í þessu magni á göturnar? Eg veit að strætisvagnar eru helztu ökutækin, sem gagn hafa af saltinu, því þeir komast varla eitt eða neitt í minnstu hálku. En má samt sem áður ekki takmarka það á einhvern hátt? Eru skemmdirn- ar á götunum ekki vegna þess að saltið og naglarnir fara saman? Getur verið að einungis naglarnir skemmi svo mikið, sem haldið er fram? Og úr því ég er farinn að tala um salt á götunum get ég ekki látið hjá líða að nefna saltausturinn á gangstéttirnar. Hann er hálfu verri. Þegar gengið er t.d. niður Laugaveginn er saltið í heilu hrúgunum og er það víst að slíkt stórskemmir skófatnað og veldur hinum mestu óþrifum t.d. í verzl- unum og íbúðarhúsum ví Lauga- veg. Er ekki hægt að hafa saltdreifingu á gangstéttir örlítið minni og þá jafnari til þess að menn gangi ekki í haugunum? Vegfarandi.“ • Dýrar veigar? „Mikið hefur verið skrifað um heimabrugg undanfarið og sem von er freistast menn til þess að Vestur Norður Austur Suður 1 spaði — 1 lauf 1 hjarta 2 Krðnd — 1 Krand — 3 Krönd allir pass. Suður spilaði út hjartafjarka gegn þrem gröndum og austur tók tíuna með kóng. Hann spilaði strax lágu laufi, sem suður tók með kóngnum en frá borðinu lét sagnhafi gosann. Makker á greini- lega hjartagosann, hugsaði suður þegar hann spilaði aftur lágu hjarta en þá beitti austur bragði sem dugði. Hann gaf hjartagosann og möguleikar varnarinnar voru þar með eyðilagðir. Ekki var lengur hægt að fríspila hjartalit- inn og sagnhafi gaf aðeins fjóra slagi, tvo á lauf og einn á hvorn hálitanna. Það verður að játa, að ekki er auðvelt að koma auga á vörnina, sem dugir. Eftir fyrsta slaginn veit suður að sagnhafi á hjartaní- una úr því norður lét hana ekki og getur því séð, að ekki dugir fyrir hann að spila hjarta, En spili norður hjartagosanum meðan laufásinn er enn fyrir hendi dugir ekki fyrir sagnhafa að gefa því suður getur yfirtekið með drottn- ingu og spilað þriðja hjartanu. Þannig hnekkir suður spilinu meö því að spila spaðasexinu í þriðja slag. Norður tekur þá á ásinn, spilar hjartagosanum og óskastað- an er fram komin. JOL MAIGRETS Framhaldssaga eftír Georges Simenon. Jóhanna Kristjónsdóttir islenzkaói. 39 Á síðasta andartaki sneri hún við og setti oían í litla tösku snyrtidót og undirfatnað. — Komum þái — En maðurinn yðar? - Éggef skítífíflið. — Colette? nún svaraði ekki, en yppti öxlum. Dyrnar á íbúð fröken Donceur voru í hálfa gátt þegar þau gengu hjá. Þegar þau stefndu yfir götuna virtist hún reyna að fela sig milli mannanna tveggja sem hún reyndi að skima í kringum sig í myrkrinu. — Akið henni til Quai des Orfevres. Ég verð hér eftir. Enginn leigubíll var í grenndinni svo að þau urðu að ganga spottakorn og hann ■ fann að hún skelfdist þá tilhugsun að ganga í myrkrinu. — Verið ekki hræddar, Lorilleux er hvergi nærri, — Þér voruð að ljúga að mér...... Maigret snerist á hæli og gekk aftur inn í húsið. Samtalið með Jean Martin stóð yfir í tvo langa klukku- tíma. Bróðirinn var viðstaddur. Þegar Maigret fór ur íbúð- inni um hálf tvö leytið um nóttina sátu mennirnir og horfðu þreytulcga hvor á ann- an. Ilann sá ljósrák undan dyrunum hjá fröken Doncoeur en hún þorði ekki að gefa sig í Ijós. Ilann gekk yfir götuna. Heim til sín. Kona hans sat við borðið og hafði sofnað fram á borðið. Diskurinn hans ósnertur eins og hún hafði lagt á borðið fyrr um kvöldið. Hún hrökk upp. — Ertu einn? Hann leit á hana og hún bætti viði — Ertu ekki með telpuna með þér? — Ekki í nótt. Hún sefur. Á morgun geturðu farið og sótt hana en vertu gætin, einkum verður þú að sýna fröken Doneoeur tillit... — Er þetta satt? — Ég sendi eftir sjúkra- iiðum sem koma með börur og flytja hana hingað yfir til okkar. — En.......eigum við...... — Svona svona. Ekki um alla framtíð .... Þú verður að skilja það. Jean Martin jafnar sig kannski þótt síðar verði.... eða bróðir hans rýkur til og giftir sig aftur. — Svo að hún verður ekki.... til frambúðar hjá okkur? — Nei. Það verðum við að skilja og horfast í augu við. Við höfum hana að láni. en ég hélt kannski að þér þætti það betra en ekkert.... og að þú yrðir glöð.... — Víst er ég Klöð.......hún greip vasa- klútinn sinn, þurrkaði sér ákaft um nefið og gróf andlitið í höndum sér.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.