Morgunblaðið - 07.12.1978, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 1978
Sumir versla dýrt —
aðrir versla hjá okkur
Okkar verð
eru ekki tilboð, heldur
árangur af hagstæðum
innkaupum.
Niðursoðnir ávextir
á jólaverði:
Ananas.......1/1 dós 480.
Cocteilávextir .. 1/1 dós 595.
Ferskjur skornar . . . 1/1 dós 480.
Ferskjur heilar . . . 1/1 dós 439.
Perur........1/1 dós 495.
Jarðarber.....1/idós 665.
Grapefruit ..3/4 dós 225.
Mandarínur .... i/3dós 249.
Sveppir skornir . . . 1/2 dós 482.
Opið á laugardag frá kl. 9.00-18.00
STARMÝRI 2 AUSTURSTRÆTI 17
Hallgrímur Björnsson
lœknir - Minningarorð
Fæddur 24. des. 1905
Dáinn 28. nóvember 1978
Entíum kemur það á óvart, þótt
aldnir ástvinir deyi. Eins var það
um vin minn Hallgrím Björnsson,
sem alls ekki hafði gengið heill til
skógar síðustu 18 árin. Við vissum
þetta vel, vinir hans, en hann
auglýsti ekki vanheilsu sína, en
leyndinni verður ekki til lengdar
haldið, og öll vitum við, að eitt
sinn skal hver deyja.
Hallgrímur Björnsson var fædd-
ur 24. nóvember 1905, ættaður af
Suðurnesjum. Hann útskrifaðist
úr Læknadeild Háskóla Islands
árið 1932, og hóf störf á Akranesi
árið 1934. Framhaldsnám stundaði
hann í Danmörku, Kanada og
Bandaríkjunum.
Hallgrímur var mikill lánsmað-
ur að flestu leyti. Hann hóf að
námi loku samstarf með öldnum
öðlingi, einum af þeim bestu í
læknastétt, að því er mér er talið,
og þeirra samstarf var með
miklum ágætum. Þegar ég kom
fyrst til starfa á Akranesi árið
1958, var meira en helmingur allra
Skagamanna skjólstæðingar Hall-
gríms í heilsugæslumálum. Hann
hafði þá starfað sem aðstoðar-
skurðlæknir við sjúkrahúsið þar
frá stofnun þess árið 1952, og
þeirri stöðu hélt hann fram um
1966, en eftir það helgaði hann sig
eingöngu einkasjúklingum sínum,
þar til hann lét endanléga af
störfum á miðju ári 1975.
Hallgrímur kvæntist Helgu
Haraldsdóttur Böðvarssonar frá
Akranesi árið 1939. Þeim varð ekki
barna auðið, en ólu upp tvo drengi
sem sína eigin. Helga andaðist í
maí árið 1971.
Hallgrímur var einstæður mað-
ur að manngöfgi og vinur sjúkra
og lítilmagna. Hann hóf störf sín á
Akranesi á þeim tímum, sem
alþýða þessa lands hefur átt einna
ömurlegust kjör á þessari öld. Þá
bar hverjum sjúklingi að greiða
lækni sínum fyrir öll hans störf,
en engin sjúkrasamlög eða al-
mannatryggingar greiddu læknis-
hjálp né lyf. Því urðu mörg störf
Hallgríms honum til lítilla tekna á
fyrstu starfsárum hans á Akra-
nesi, m.a. vegna þess, að hann var
einstaklega lélegur skattheimtu-
maður, en hitt veit ég, að ýmislegt
var goldið með góðum hugsunum,
þegar gull var ekki til staðar.
Hallgrímur var ekki fjölþreifinn
í félagsmálum, en mér er þó sagt,
að hann hafi verið góður félagi í
deild Rauða krossins og karlakórs-
ins „Svanir", enda hafði hann
fallega söngrödd, en hitt er mér
vel kunnugt um, hversu góður og
tryggur félagi hann var í Lækna-
félagi Vesturlands og Stúdenta-
félaginu á Akranesi, sem var
sérstakt og þarft félag, sem lét
margt gott af sér leiða.
Hann flíkaði lítt skoðunum
sínum, og síst af öllu var, að þann
þvingaði sínu sjónarmiði upp á
aðra, og t.d. allt til síðustu ára
vissu ekki nema örfáir menn um
stjórnmálaskoðanir hans, en undr-
unarefni mundu þær engum verða,
sem þekktu hann vel.
Hallgrími Björnssyni var ekki
lagin sú list að græða fé, en hann
safnaði auði, og það mjög miklum,
af elsku í hjörtum meðbræðra
sinna, og sá auður varir, meðan
þeir lifa, og ef til vill miklu lengur.
Bragi Níelsson
Að morgni 28. nóv. s.l. andaðist
að heimili sínu hér á Akranesi
heiðursmaðurinn Hallgrímur
Björnsson læknir.
A jafn kyrrlátan og mildan hátt
hvarf hann burt frá okkur, líkt og
hann hafði lifað og starfað. Sjötíu
og þriggja ára ævigöngu er lokið
meðal okkar og þreyttur líkami
lagður til hinstu hvíldar.
Eg tel að Hallgrímur hafi verið
öðrum fremur ferðbúinn yfir
landamæri lifs og dauða. Hann
kveið engu, naut stundarinnar,
enda sálin fersk og sívakandi þótt
við sem þekktum, vissum að hann
var oft sárþjáður líkamlega.
Störfum sínum sem læknir hafði
hann skilað af sér fyrir þremur
árum. Yfir 40 ár þjónaði hann
Akurnesingum sem læknir á giftu-
ríkan hátt, allt hans starf ein-
kenndist af yfirvegun, rólegheitum
og öryggi kunnáttumannsins.
Hann var reiðubúinn til þjónustu
hvort sem var á nóttu eða degi,
fyrir það hlaut hann elsku og
virðingu frá þeim sem nutu
lækninga hans.
+
Þökkum auösýnda samúö og viröingu viö fráfall og útför
FRÍÐU Þ. GUDMUNDSDÓTTUR,
Sólvallagötu 2,
Karólína J. Láruadóttir, Sigurður Guðmundaaon,
Lárua Sigurðaaon.
Þakka auösýnda samúö viö andlát og jaröarför
ÞÓRIS G. JÓNSSONAR,
Hringbraut 96, Keflavík.
Anna Sveinadóttir.
ÍOOI nótt
Fö(jur og djarfleg ævintýri úr töfraheimi og furðuveröld austurlanda, sögurnar af Aladin,
Sindbað sæfara og Ali Baba, sögur af kalífum og vesírum, soldánum, þrælum og ambáttum.
Þriggja binda myndskreytt útgáfa í snilldarþýðingu Steingríms Thorsteinssonar, alls um 2000 bls.
Verð á bók kr. 10.080- Allt safnið kr. 30.240-
Félagsverö kr. 8.565- Allt safniö kr. 25.695-
Þetta er sérstakt tilboðsverð sem gildir
aðeins til áramóta. Eftir þann tíma mun
safnið kosta kr. 36.000.-
MÁL 0G
MENNING