Morgunblaðið - 07.01.1979, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. JANÚAR 1979
5
Utvarp í kvöld kl. 21.00:
Kreppa velferðarríkisins
Sjónvarp mánudag kl. 21.00:
,, Y f irhey rslan ’ ’
IIUGMYNDASÖGUbÁTTUR í
umsjón Hanncsar II. Gissurarson-
ar hofst í útvarpi í kvöld kl. 21.00.
í þættinum ræðir Hannes við
Jónas Haralz bankastjóra um bók
dr. Gylfa Þ. Gíslasonar, Jafnaðar-
stefnuna, og viðhorfin og verkefn-
in í stjórnmálunum og þann
vanda, sem framundan er í ljósi
frjálshyggju og sósíalisma.
„Eg held, að í þessum þætti sé
gripið á veigamestu atriðunum í
stjórnmálunum," sagði Hannes er
Útvarp í dag:
Jón söðli
Jón söðli nefnist þáttur í
samantekt Júlíu Sveinsbjarnar-
dóttur. sem hefst í dag í útvarpi
kl. 15.00.
hann var inntur nánar um þáttinn,
„og það, sem flesta hlýtur að
varða: hagkvæmni og réttlæti,
frjálshyggju og sósíalisma og
síðast en ekki sízt kreppu velferð-
arríkisins.“
Jonas Ilaralz bankastjóri.
Leikritið „Yfirheyrslan" eftir
argentinska rithöfundinn Jacoh
Langsner hefst í sjónvarpi annað
kvöld kl. 21.00. en leikritið er samið
fyrir sænska sjónvarpið.
Leikurinn gerist í Argentínu
síðastliðið sumar, þegar heimsmeist-
arakeppnin í knattspyrnu stóð sem
hæst.
Sagan hefst á því, að eldri kona
kemur til fulltrúa lögreglunnar að
spyrjast fyrir um dóttur sína, en sú
hafði verið tekin. Myndin gengur út
á yfirheyrslur yfir konunni, þar sem
lögreglufulltrúinn reynir með lagni
að fá upplýsingar um dótturina.
Undir niðri er hann ekki hrifinn af
sínu starfi en gerir samt skyldu sína.
Þótt hann sé ekki harðskeyttur í
yfirheyrslunni, reynir hann samt að
brjóta konuna niður sálarlega með
spurningum og athugasemdum, sem
hann telur koma illa viö hana.
Ólafur Jóhannesson forsætisráð-
herra situr fyrir svörum í Beinni
línu. sem hefst í kviild að nýju og
verður næstu fimm sunnudags-
kviild. Er þetta seinni umferð
með raðherrunum. Þútturinn
hefst kl. 19.25 og stendur í rúma
klukkustund. Þeir. sem leggja
vilja spurningar fyrir Ólaf Jó-
hannesson. hringi í síma 22260
moðan á útscndingu stendur og
hafi spurningar stuttar og gagn-
orðar.
„Jón söðli var uppi um aldamót-
in,“ sagði Júlía, er hún var innt
eftir þættinum. „Hann var söðla-
smiður eins og viðurnefnið gefur til
kynna og var frægur um Suðurland
og Reykjavík m.a. fyrir að trúa
statt og stöðugt á útilegumenn og
gekk meira að segja svo langt að
sækja um styrk til Alþingis til að
fara í herðferð gegn þeim.
Hann var einnig mjög vel að sér í
fornsögum og tungumálum og var
leiðsögumaður erlendra ferða-
manna hér. Það var nú það, sem
leiddi til þess að ég fór að grafast
fyrir um manninn til að vita hvort
ekki væri fleira merkilegt við hann
utan þessarar kjánalegu sögu um
útilegumennina.
Jón söðli var frumkvöðull um
fiskverndunarmál hér á landi.
Einnig var hann talinn faðir
Þórsmerkur, benti hann á fegurð
staðarins, að hann væri ekki
einungis gott beitiland. Einnig
hefur komið í Ijós, að það var hann,
sem stuðlaði að því að Þorsteinn
Erlingsson skáld gengi menntaveg-
inn, svo hann hefur gert sitt af
hverju," sagði Júlía að lokum.
Lesarar með Júlíu í þættinum
eru Sveinbjörn I. Baldvinsson og
Sigurður Sigurðarson.
Júlía Sveinbjarnardóttir
Stórkostlegt
úrval
INNRETTINGA
ELDHÚS - BAÐ - FATASKÁPA
HEIMILSTÆKJA
OKKAR BOÐ -
YKKAR STOÐ
ínnréttingaval hf
14 SUNDABORG SIMI 84660 REYKJAVIK
Ójper'xigleÖx
í Háskólabíói, laugard. 13. jan. kl. 3.
Sigríður Ella Magnúsdóttir
Elín Sigurvinsdóttir
Elísabet Erlingsdóttir
Svala Nielsen
Már Magnússon
Sigurður Björnsson
Simon Vaughan
ásamt Sigrúnu K. Magnúsdóttur
Berglindi Bjarnadóttur
Signýju Sæmundsdóttur
Gestur Guðrún Á. Símonar
Kynnir María Markan
Undirleik annast Carl Billich og Ólafur Vignir Albertsson
Aðgöngumiðar fást hjá Bókaverzlun Lárusar Blöndal, Skólavörðustíg og Vesturveri.