Morgunblaðið - 07.01.1979, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 07.01.1979, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. JANÚAR 1979 33 Sumum konum verður hætt við blóð- tappa etþær taka pilluna og magnast sú hætta mjög efþær reykja líka (sjá: Tóbak) Flug Yfir Ermar- sund fyrir 200,000 dali Lengi hefur menn dreymt um það að læra að fljúga af eigin kröftum og ekki eru þeir búnir að gefa upp vonina enn. Það verða seint taldar allar þær tilraunir sem' gerðar hafa verið í þessu skyni ellegar þær „flugvél- ar“ sem smíðaðar hafa verið og jafnvel tekizt að koma á loft. En þá fyrst æstist leikurinn er farið var að lofa peningum þeim er fyndi upp flugvél sem flogið gæti fyrir mannafli. Eru hugvitsmenn síðan búnir að eyða margföldum verðlaunaupphæðum en árangur- inn ekki eftir því. Þó hefur tekizt að smíða flugdreka, fótstigna eða handknúna, sem haldizt hafa á lofti skamman veg og má vel vera að fyrr eða síðar verði smíðaður dreki sem maður getur knúið samfellt langan veg. Fyrir tuttugu árum hét brezkur kaupsýslumaður, Kramer að nafni, hverjum þeim jafnvirði 100.000 bandaríkjadala sem knúið gæti flugdreka eigin afli hálfan annan kílómetra. Reyndar mátti ekki fljúga beina leið heldur varð að fylgja braut sem var í laginu eins og talan átta. Það var ekki fyrr en í ágúst 1977 að þetta tókst. Það var Bandaríkjamaður nokkur, Paul MacCready að nafni, sem vann til verðlaunanna. Kramer bætti þá um betur og hét nú jafnvirði 200.000 dollara þeim er flogið gæti af eigin kröftum yfir þvert Ermarsund, það er nærri 30 kílómetra leið. Þetta hefur freistað margra sem vonlegt er. Munu hundruð manna vera að smíða keppnisdreka, og einir 250 búnir að tilkynna þátt- töku. Láta þeir það ekki letja sig þótt engum hafi tekizt fram að þessu að knýja flugdreka eigin afli lengra en tvo kílómetra og þó tæplega það. LÍKAN af loítskrúfu Lconardos da Vinci. Listamanninn vantaði vissulega ekki hugvitið. en mannsaflið eitt saman dugði samt ekki til þess að uppfinning hans kæmi að notum. Vinningsmöguleikarnir eru all- misjafnir ef að líkum lætur og sennilega óhætt að fullyrða að ekki muni allir flugdrekarnir komast á loft hvað þá lengra. Ýmsir hafa verið taldir líklegir, þ.á.m. D.G. Cook nokkur frá Suffolk í Bretlandi: hann vann sér það nefnilega til frægðar í ágúst síðast liðnum að hann komst fyrir Ermarsund á svifdreka knúnum átta hestafla sláttuvélarmótor. Var það glæfraför mikil að sögn Cooks og þakkaði hann sínum sæla að komast yfir lifandi. „Ég flaug í h.u.b. 100 metra hæð,“ segir hann, „og samt lá hvað eftir annað við borð að illa færi þegar ég flaug yfir risaolíuskip. Þau eru geisihá í sjó og loftið mjög órólegt yfir þeim. Ég neyddist til að fljúga yfir þó nokkur. Það er engin leið að sneiða hjá þessum skrímslum". En hann ætlar sem sé að leggja í þau aftur og í þetta skiptið vélarlaus. - JEROME BURNE. Þetta nýstárlega veggspjald sá dags- ins ljós í fyrra þegar bresk stjórnvöld byrjuðu að impra á því hvort ekkiværi þjóðráð á þessum erfiðu tímum að kref jast aðgangseyr is af gestum í minja- og listasöfnum. Hressingarleikfimi fyrir konur Kennsla hefst aftur mánudaginn 8. janúar í leikfimisal Laugarnesskóla. Fjölbreyttar æfingar — músik — slökun. Innritun og upplýsingar í síma 33290. Ástbjörg S. Gunnarsdóttir íþróttakennari. Bifreióaeigendur takið eftir Frumryðvörn og endurryðvörn spara ekki einungis peninga, heldur eykur öryggi yðar í umferöinni. Endurryövörn á bifreiðina viöheldur verögildi hennar. Eigi bifreiðin að endast, er endurryðvörn nauösynleg. Látið ryðverja á 1—2ja ára fresti. Látið ryðverja að innan á 3ja ára fresti. Góð ryðvörn tryggir endingu og endursölu. BÍLARYÐVÖRNhf Skeifunni 17 a 81390 Það er margt sem þér likar vel iþeim nýju amerísku Sparneytin 3.8 lítra 6 cyl. vél. Sjálfskipting Vbkvastýri Styrkt gormafjöðrun að aftan og framan Transistorkveikja Aflhemlar Urval lita, innanogutan Og f leira og f leira Chevrolet Malibu 4dr. Sedan kr. 5.200.000. Þetta er það sem þeir nyju frá General Motors snúast allir um Malibu Classic 4dr. frá kr. 6.100.000.- Innif. 5litraMS véi. by General Motors CHEVROLET PONTIAC aOSMOÖHE GM BUICK CACHLAC L j Véladeild Sambandsins Ármúla 3 Reykiavik Simi 38900

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.