Morgunblaðið - 07.01.1979, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. JANUAR 1979
Hálir
vegir
hœtta
áferð
Styrkió og fegrið líkamann
Ný 4ra vikna námskeið hefjast 8. jan.
FRÚARLEIKFIMI — mýkjandi og styrkjandi.
MEGRUNARLEIKFIMI — vigtun — mæling — holl ráó.
SÉRTÍMAR fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eöa meira.
Innritun og upplýsingar alla virka daga kl.
13—22 í síma 83295.
Sturtur — Ijós — gufuböð — kaffi — nudd
Júdódeild Ármanns
Ármúla 32.
Karlakórinn
Fóstbræður
getur bætt viö söngmönnum. Upplýsingar í síma
24871, milli kl. 6—8 í dag og næstu daga.
ÖliVflJR GÍSIASOM % CO Slf.
Vonandi hljómar þessi setning ekki á þínu skipi. - En ef, hver
ábyrgist öryggi skipsáhafnarinnar? öryggisútbúnaðurinn? ...
Eflaust.-ERT ÞÚ ÖRUGGUR UM BORÐ?
(Rf> 10 mann|a bátur.
gúmíb jörgunarbátarnir eru samþykktir af
Siglingamálastof nuninni.
gúmíbjörgunarbátarnir er framleiddir
6,8,10,12,1S, 20 og 25 manna.
gúmíbjörgunarbátamir era fyrirliggjandi.
Mjög hagstætt verð - GREIÐSLUKJÖR.
Umboðsaðilar:
&
SUNDABORG 22 - 104 REYKJAVlK ■ SlMI 84800 - TELEX 2028
ö
Aætlun um upp-
byggingu Há-
skóla íslands
næstu fjögur
ár liggur fyrir
HAPPDRÆTTI Háskóla íslands verður 45 ára á þessu
ári. Happdrættið hefur í þessi 45 ár að langmestu leyti
fjármagnað framkvæmdir á vegum Háskóla íslands svo
sem byggingar húsa og húsakaup og enn fremur hefur
tækjakostur Háskóla íslands nær eingöngu verið
keyptur fyrir happdrættisfé. Forráðamenn happdrættis-
ins boðuðu blaðamenn á sinn fund í vikunni og þar
kynntu þeir m.a. fyrirhugaðar framkvæmdir á vegum
Háskólans, sem verða eins og áður að miklu leyti
f jármagnaðar með happdrættisfé. Áætlaður hagnaður af
rekstri happdrættisins á þessu ári eru 425 milljónir
króna og er þá búið að draga frá 20% gjald, sem
happdrættið greiðir til uppbyggingar rannsóknastofn-
ana atvinnuveganna.
Á blaðamannafundinum gerði
Guðlaugur Þorvaldsson háskóla-
rektor grein fyrir byggingar-
málum Háskólans á eftirfarandi
hátt:
Stefnan í byggingarmálum nú
Háskólaráð gerir tillögur um
nýbyggingar á vegum Háskóla
íslands að öðru leyti en því að
sérstök yfirstjórn mannvirkja-
gerðar á Landspítalalóð fer með
byggingamálefni þar á lóðinni
síðan í árslok 1972. Háskólinn á
aðild að þeirri yfirstjórn.
Við fjárlagagerð á þessu ári lágu
annars vegar fyrir ályktun
háskólaráðs um forgangsröðum
bygginga á Háskólalóð og tillaga
að byggingaáætlun fyrir árin
1978—1986 og hins vegar áætlun
Yfirstjórnar mannvirkjagerðar á
Landspítalalóð um byggingu húss
fyrir læknadeild og tannlækna-
deild þar á lóðinni. Ljóst hefur
verið lengi, að þessum áætlunum
verður ekki hrundið í framkvæmd
með æskilegum byggingahraða
nema fjárveiting komi úr ríkis-
sjóði, til viðbótar happdrættis-
fénu, og lá sú niðurstaða raunar
skýrt fyrir í álitsgerð Háskóla-
nefndar, er ríkisstjórnin skipaði á
sínum tíma og skilaði áliti árið
1969. Formaður hennar var Jónas
Haralz. Þá var talið, að um
allmargra ára skeið þyrfti a.m.k.
sama framlag úr ríkissjóði til
byggingamála Háskóla Islands og
kæmi frá happdrættisrekstrinum
eða um 30 millj. kr. á ári. Þessi
upphæð fékkst á fjárlögum 1971,
en hækkaði síðan lítið og var
síðast á fjárlögum 1977. Slíkt er
kannski ekki óeðlilegt, þar sem
undanfarin ár hefur verið unnið
meira að áætlanagerð fyrir fram-
tíðina innan skólans en bygginga-
framkvæmdum. Leiguhúsnæði
hefur að mestu leyst viðbótar-
þarfirnar. Nú verður varla lengra
gengið í þá 'átt. Með tilliti til
annars vegar þarfa læknadeildar
og tannlæknadeildar fyrir bygg-
ingu á Landspítalalóð og annarra
deilda fyrir aukið húsnæði á
Háskólalóð og hins vegar erfiðrar
fjárhagsstöðu ríkissjóðs fól
menntamálaráðherra um miðjan
nóvember s.l. sex mönnum að
mynda samráðshóp er endurmeta
skyldi stööuna hvað varðar fram-
kvæmdir á vegum Háskóla Islands
og á Landspítalalóð og gera
Vinningsupp-
hæð HHÍ 4,5
milljarðar
VINNINGSUPPHÆÐ í
Happdrætti Háskóla ís-
lands nemur rúmum 4,5
milljörðum króna á því
happdrættisrári, sem nú er
að hefjast.
Þetta kom fram á blaða-
mannafundi, sem stjórn-
endur happdrættisins boð-
uðu til í vikunni. Miðaverð
hækkar úr 700 í 1000
krónur og er það 43%
hækkun eða svipað og
hækkun verðbólgunnar.
Sem fyrr fer 70% af heild-
arverði miða í vinninga.
Helstu breytingar á vinninga-
skránni frá árinu 1978 eru þessar:
Lægsti vinningur hækkar úr kr.
15.000 í kr. 25.000 eða um tæp 67%.
50.000 króna vinningum fjölgar
um tæp 3.000.
Fjöldi 500.000 króna vinninga
tvöfaldast og verða þeir 432 á
árinu 1979.
Að þessu sinni þótti rétt að nota
aukninguna á vinningum til að
hækka lægsta vinninginn mjög
verulega. Hins vegar hefur engin
breyting verið gerð á hæstu
vinningunum og verður hæsti
vinningurinn á árinu 1979 því kr.
5.000.000 á einfaldan miða, en
þessi fjárhæð nífaldast og verður
45.000.000 króna, ef vinnandinn á
alla fjóra miðana og trompmiðann
að áuki.