Morgunblaðið - 07.01.1979, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 07.01.1979, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. JANÚAR 1979 35 Systkinaminning: Sigþóra Ásbjörns- dóttir — Guömund ur Ásbjörnsson Fædd 30. marz 1904. Dáin 28. júní 1978. Fæddur 9. ágúst 1892. Dáinn 15. janúar 1978. Foreldrar þeirra voru merkis- hjónin Hólmfríður Guðmunds-. dóttir, fædd á Purkey á Breiðar- firði, og Asbjörn Gilsson, fæddur á Öndverðarnesi. Þar byrjuðu þau búskap og fluttust þaðan til Hellissands. Hólmfríður var sérstök gæða- kona. Hún stjórnaði heimili sínu með miklum myndarskap, hóg- værð og mildi. Þar áttu fátækir griðland og skjól. Sagt var hún gæfi fátækum og snauðum til beggja handa. Asbjörn var mikill athafna maður, er stundaði útgerð og formennsku á eigin áraskipi. Hann var mikill aflamaður og þótti fara manna best að sjó, það er fljótur á sjó og fljótur til lands þá er veður gerðust vágleg. Sama sið hafði Friðbjörn, sonur hans, er tók við formennsku af honum. Eitt sinn er margir formenn voru samankomnir og biðu róðurs, varð einum þeirra að orði: „Hvern- ig má það ske, að á þig hlaðast efni þótt vitað sé að konan þín gefur fátækum til beggja handa?“ Ás- björn svarar: „Hver veit nema því fylgi gæfa“. Ég minnist þess, er ég var lítill drengur í Bervík, og móðir okkar lá á sæng, þá hafði Hólmfríður systir hennar sent henni jólaköku er hún tók öðru hvoru framan til að bragða á. Þá voru margir litlir lófar fram réttir allt í kringum rúm hennar, því öll vildum við börnin bragða á kökunni frá Fríðu systur, svo mundum við hana alltaf. Löngu seinna var ég kominn í fóstur til Eggerts Guðmundssonar móður- bróður míns og Ingibjargar Pétursdóttur frá Malarifi. Ég var farinn að róa og setti í stóra fliðru sem náðist. Daginn eftir mætti ég Hólmfríði á götu, hún stoppar mig og segir: „Þú varst heppinn í gær að setja í svona stóra fliðru, en hvað gerðir þú við ábatann?" „Ég fer með hann til foreldra minna í Bervík" svara ég og Hólmfríður lagði vanga minn við brjóst sér og sagði: „Ég veit þú verður góður drengur, Karvel minn, því það er leiðin til hamingjunnar." Þannig var sá jarðvegur, er börn Hómfríðar og Ásbjarnar voru vaxin úr. En skyndilega varð snögg breyting. Hólmfríður varð bráðkvödd aðeins 49 ára gömul. Þótt efni væru næg, dreifðist fjölskyldan, þegar þau kærleiks- bönd, er tengd voru lífankeri heimilisins, móðurinni, voru brost- in. Hin efnilegu börn urðu að berjast áfram á eigin spýtur og framkalla aldanna arf þróttmik- illa ættstofna. Leið Sigþóru lá til Reykjavíkur. Hún var ein af glæsilegustu ungum stúlkum okkar byggðar- lags. Þá var lítið um atvinnu fyrir fólk utan af landi nema við hin erfiðustu störf, einkum saltfisk- vöskun. Það þurfti þrek til að vaska fisk í óupphituðum húsum og þegar frost var, þurfti að brjóta klakalagið á körunum á morgnana og standa við vöskun allan daginn, þar sem vatnið er þvegið var úr, var við frostmark. En Sigþóra lét sér ekki nægja að vera í meðallagi. Kappið sagði til sín. Hún var hæst í fiskþvotti ár eftir ár á þeirri stöð er hún vann. í Reykjavík kynntist hún eftir- lifandi manni sínum, Bergsteini Sigurðssyni, bílstjóra. Þau giftust 22. desember 1923 og bjuggu fyrst í Reykjavík, fluttust síðan til Hafnarfjarðar og hafa búið þar síðan. Þau eignuðust einn son, Ásbjörn. Hann er giftur Bryngerði Bryngeirsdóttur og eiga þau 4 mannvænleg börn. Heimili Sigþóru og Bergsteins var allatíð með myndarbrag, þótt hún bæri lengi þann sjúdóm er leiddi hana til dauða. Veitti hún bróður sínum, Guðmundi, heimili og alla umhyggju í fimm ár, þar til hann fluttist að Hrafnistu og dvaldi þar sitt síðasta æviár. Þegar þrek Sigþóru var að þrotum komið, sýndi hún þar sama fórnarvilja og móðir hennar hafði áður gert þeim er ekki áttu athvarf. Sigþóra andaðist 28. júní 1978. SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM Við erum kristin fjölskylda og höfum því alltaf greitt reikninga okkar. En nú erum við í vanda stödd, því að við eigum ekki fyrir skuldunum. Vinsamlegast gefið okkur góð ráð. Það er tvennt, sem þér verðið að gera. Fyrst ættuð þér að athuga vel, hvernig þér notið fé yðar, og komast að raun um, hvort þér eyðið peningum til ónauðsynlegra hluta, sem geta verið ágætir í sjálfu sér, en þér gætuð samt vel án verið. I öðru lagi ættuð þér að athuga hjarta yðar og komast að raun um, hvaða sess Kristur skipar í lífi yðar. Er hann Guð yðar á sunnudögum, en óstöðugur vinur aðra daga vikunnar? Hafið þér í raun og veru látið hann sitja í fyrirrúmi í lífi yðar? Kristur hefur gefið okkur lausn á fjárhagsvanda okkar, en það er svo oft, að við sjáum ekki, hversu einföld og áhrifarík áætlun hans er. Hann segir við okkur í Biblíunni: „Leitið fyrst ríkis hans og réttlætis, og þá mun allt þetta veitast yður að auki“ (þ.e. hús, land, fæði, klæði — lífsnauðsynjarnar). Meginatriði fyrirheitsins (Matt. 6,33) er, að okkur ber að láta hann ráða á öllum sviðum lífsins. Þegar við gerum það, gefur hann okkur allt, sem við þörfnumst. Um leið og ég treysti því að þið njótið ljóss og yls á æðra lífssviði, votta ég ástvinum ykkar innilega samúð. Karvel Ögmundsson. Guðmundur var fæddur að Öndverðarnesi 9. ágúst 1892. Guðmundur var elstur sinna 8 systkina. Hann var ekki gamall þegar hann fór að vinna með föður sínum og Friðbirni sínum yngri bróður. Þá var lífsbaráttan svo hörð að unglingar voru strax látnir vinna eftir því sem getan leyfði, bæði við róðra, sjóverk og einnig vinna í landi, þar sem foreldrar höfðu búskap með sjó- róðrum. Hann var strax duglegur til starfa en hugur hans hneigðist einkum til sjóróðra. Hann var mikill fiskimaður, verklaginn, hógvær í allri umgengni, öðlings- maður í allri framkomu og gerði aldrei á hluta nokkurs manns. Guðmundur kynntist Júlíönnu Ásmundsdóttur á unga aldri, bjuggu þau saman á Hellissandi og eignuðust tvö börn, Ásu og Guðmund Tómas. Eftir lát Júlíönnu fluttist Ása til Reykjavíkur, Guðmundur faðir hennar til Sigþóru systur sinnar og dvaldi hjá henni fimm ár, fluttist þá að Hrafnistu, þar sem hann dvaldi síðasta ár sinnar ævi. Hann andaðist 15. janúar 1978. Sonur hans, Guðmundur Tómas, var víkingsduglegur maður er stundaði sjómennsku frá Hellis- sandi. Giftist hann Unni Péturs- dóttur, þau búa nú við Miðbraut 10, Seltjarnarnesi. Guðmundur var jarðsunginn að Ingjaldshólskirkju. Hann vildi hvíla þar sem hann hafði eytt sinni starfsævi. Megi þau systkin njóta ljóss og yls á æðra lífssviði. Ástvinum þeirra votta ég innilega samúð. Karvel Ögmundsson. t Eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir, afi og langafi, SIGVALDI GUDMUNDSSON, húsasmíöameistari, Snorrabraut 69, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 9. janúar kl. 3 e.h. Guðmunda Sveinbjörnsdóttir, Hrefna Sigvaldadóttir, Birna Sigvaldadóttir, Kristbjörg Sigvaldadóttir, Sigrún Sigvaldadóttir, Aöalheiöur Sigvaldadóttir, Olafur Sigvaldason, Ragnar Karlsson, Ásgeir Sigurðsson, Kristján Torfason, Gunnar Guöjónsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Viö þökkum öllum auðsýnda samúö og vinarhug viö andlát og jaröarför JÓNÍNU GUDRÚNAR HALLDORSDÓTTUR Bergstaöastræti 11, Guömundur Ásbjörnsson, Birgir Ás Guömundsson, Jóhanna Hauksdóttir. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug viö andlát og jaröarför móöur okkar, tengdamóður, ömmu og systir HERBJARGAR ANDRÉSDÓTTUR Kaplaskjólsvegi 65 Ágúst Haraldsson, Stella Ingvarsdóttir, Guörún Haraldsdóttir, Einar Guómundsson, Guðlaug Haraldsdóttir, Garðar Guöjónsson, Elsa Haraldsdóttir, Eggert Konráösson, bóra Haraldsdóttir, Sigurbjörn Haraldsson, Siguröur Haraldsson, Guóbjörg Guömundsdóttir, Ása Haraldsdóttir, Jóhann Björnsson, Lára Haraldsdóttir, Fylkir Ágústsson, Sigurdís Haraldsdóttir, Magnús Harðarson, - barnabörn Valgeröur Andrésdóttir, Jensína Andrésdóttir, Fanney Andrésdóttir, Ásgeróur Andrésdóttir. Sigrióur Andrésdóttir, Elite-platan írá „Norske Skog“ er vatnsþolin. hún þolir með öðrum orðum að notast fyrir steypumót. En þessar steypumótsplötur eru mjög sérstakar — það má nota þær altur sem t.d., þakklæðningu. Elite-platan frá „Norske Skog“ er einnig fyrirtaks klæðningareíni þar sem miklar kröfur eru gerðar til rakaþols, til dæmis í baðherbergjum, þvottahúsum, gripahúsum, í geymsium og svo framvegis. Ending Elite-plötunnar fullnægir ströngustu kröfum varðandi vatnsþol og veðurþol, og er hún því mjög hentug til allra bygginga. Orkla spónaplötur íást hjá flcstum timbursölum og byggingavöruverzlunum um Iand allt. & Norske Skoe ______________________Norske Skogindustrier AS ° Einkaumboð á íslandi MJÖLNIR IIEILDVERZLUN h.f., Síðumúla 33, 105 Reykjavík. Sími 84255.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.