Morgunblaðið - 30.01.1979, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.01.1979, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1979 Bæjarútgerð Reykjavíkur: Togari keyptur í Portúgal — annar smíðaður í Stálvík ÚTGERÐARRÁÐ Bæjarútgerðar Reykjavíkur samþykkti einróma á fundi í gær að kaupa 2 skuttogara af minni gerð og selja einn af eldri skuttogurum útgerðarinnar. Akveðið er að kaupa annan togar- anna frá Portúgal, en láta smiða hinn hjá Stálvik. Nýju togararnir verða um 500 tonn af stærð. Skipið, sem smíðað verður í Portúgal, kostar 1.664 milljónir kr. (5,2 millj. dollara). Ekki er ljóst, hvað togarinn frá Stálvík mun kosta, en hann kann jafnvel að verða ódýrari en Portúgalstogarinn. Togarinn, sem BÚR kaupir frá Portúgal, er annar tveggja togara sem ríkisstjórnin samdi um sl. haust Særður haförn í hjúkrun á Brjáns- læk á Barðaströnd Patreksfirði, 29. janúar SÆRÐUR haförn sást á flugi ásamt tveimur öðrum örnum í Vatnsfirði í gær. Átti örninn greinilega bágt með flug og steyptist hann í sjóinn skömmu eftir að menn urðu arnanna varir. Kalt var í veðri, 11 stiga frost, og hefði örninn varla orðið eldri ef mönnunum hefði ekki tekist að hafa hann upp úr sjónum og hlú að honum. Mennirnir sem til arnanna sáu og náðu þeim sjúka eru Ragnar bóndi á Brjánslæk, bróðir hans og sonur. Við nánari athugun kom í ljós að örninn var með mikið, sár á annarri síðunni, undir vængn- um. Hringt var í héraðsdýra- lækninn, Gunnar Má Gunnars- son á Patreksfirði, og kom hann inneftir og saumaði sárið saman. Deyfði hann örninn, en Ragnar bóndi hélt á honum á meðan saumað var, og hreyfði hann sig ekki á meðan gert var að sárinu. Virtist sem eins konar flipi hefði dottið upp úr síðu arnarins, og sagði dýra- læknirinn að óvíst væri hvort hann greri við, og gæti þá orðið nauðsynlegt að framkvæma á honum skurðaðgerð. Erninum virðist hins vegar heilsast vel, þó hann hafi að vísu enn ekkert etið, en hann er nú í góðu yfirlæti hjá Ragnari bónda á Brjánslæk. Haft hefur verið samband við Náttúrufræði- stofnun Háskólans út af málinu, en væntanlega verður örninn um sinn á Brjánslæk, og verður þar útbúin handa honum stía í fjárhúsi. Talið er að hér sé um að ræða fullvaxinn kvenfugl. Þegar fugl- inn var háfaður úr sjónum og fluttur að Brjánslæk sveimuðu hinir tveir yfir og fylgdust með. — Páll Ágústsson. Ófærð og snjóar veikja markaðina Hluti afla Árna í Görðum skemmdist og meðalverð því aðeins 195 krónur ÁRNI í Görðum var eitt fjögurra íslenzkra fiskiskipa, sem seldi afia sinn erlendis í gær. Báturinn fékk aðeins 195 krónur að meðaitali fyrir hvert kíló, en uppistaðan í aflanum var eigi að síður stórufsi og þorskur. Ástæða þessarar slöku sölu er sú að hluti aflans skemmdist Austurlandsveg- ur lokaðist þeg- ar tengivagn valt í Hofsbrekku TENGIVAGN aftan í vöru- flutningabifreið valt f gærkvöldi milli Hofs og Faugurhóismýrar. Ekki urðu slys á mönnum, en vagninn og nót sem í honum var lá á veginum og lokaði honum. í gærkvöldi var ekki víst hvenær unnt yrði að opna veginn á ný, en vonast var til þess að það gæti orðið í nótt eða nú í morgun að því er lögreglan á Höfn tjáði Morgunblað- inu í' gærkvöldi. Brekkan, sem kölluð er Hofs-brekka og er skammt fyrir vestan Fagurhólsmýri, er allbrött, og þar var talsverð hálka í gærkvöldi. Snjór var ekki mikill á þessum slóðum þegar óhappið varð, en þar byrjaði að snjóa um klukkan 20 í gærkvöldi. Er Morgunblaðið hafði samband við lögregluna á Höfn í gærkvöldi var verið að senda menn með tæki á staðinn til þess að ná nótinni og vagninum af veginum; send var jarðýta, veghefill og krana- bifreið. Bifreiðin var sem fyrr segir á leiðinni til Hafnar með nót er óhappið gerðist, en að sögn lögregl- unnar á Höfn er hún ekki frá Höfn, heldur frá Akranesi eða Reykjavík. á Ieiðinni og var því illseljanlegur. Að auki hefur mikið snjóað í Bret- landi og V Þýzkalandi að undan- förnu og ófærðin gert alla dreifingu mjög erfiða. í Bretlandi bætist svo verkfall vöruflutningsbílstjóra ofan á og markaðurinn er því veikur. Karlsefni seldi 211,5 tonn í Cux- haven fyrir 54,8 milljónir króna, meðalverð 260 krónur. Árni í Görð- um seldi 59 tonn, sömuleiðis í Cuxhaven, fyrir 11,5 milljónir, meðalverð 195 krónur. Fylkir NK seldi 49,4 tonn í Grimsby fyrir 17,3 milljónir, meðalverð 350 krónur. Sævík seldi 60 tonn í Hull fyrir 21,8 milljónir króna, meðalverð 363 krón- ur. til að liðka um saltfisksölur þangað. Hinn togarinn fer til nýstofnaðs útgerðarfélags á Snæfellsnesi. Út- vers. BÚR á að fá togarann afhentan um mitt næsta ár. Viðræður milli BÚR og viðskipta- ráðuneytisins hafa staðið yfir að undanförnu um skuttogarakaupin, að sögn Björgvins Guðmundssonar, stjórnarformanns BÚR. Hann sagði, að ríkisstjórnin hefði heitið fjár- magnsfyrirgreiðslu í þessu sam- bandi. Þannig að BÚR fær heimild til að greiða útborgunina, þ.e. 20% af smíðaverði, með erlendum skamm- tímalánum, sem síðan verða endur- greidd við afhendingu skipsins. Væntanlega verður hægt að ganga frá kaupunum á næstunni. Að sögn Björgvins standa fyrir dyrum' viðræður við forráðamenn Stálvíkur h.f. um smíði togara þar, m.a. um afhendingartíma og fjár- mögnun til smíðanna. Samþykkt stjórnar BÚR verður fljótlega lögð fyrir borgarráð og borgarstjórn. BÚR á nú 3 stóra skuttogara og einn 400 tonna skuttogara. Ekki hefur verið ákveðið, hvaða togari verður seldur til að fjármagna kaupin á þeim tveim nýju. Horft niður Bröttugötu í snjómuggunni í Reykjavík eftir hádegið í gær. Loðna og loðnuhrogn fyrir 4 til 5 milljarða til Japans SAMNINGAR haía tekist um sölu loðnu og loðnuhrogna til Japans fyrir 13 til 15 milljónir dolíara. eða að andvirði 4 til 5 milljarða íslenskra króna, að því er Hjalti Einarsson tjáði Morgunblaðinu í gær. Samningaviðræðurnar fóru fram í Tókýó í Japan, og önnuð- ust þeir Hjalti og Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson samningsgerð af íslands hálfu. Hér er um að ræða loðnu- samning í tvennu lagi; annars vegar er um að ræða loðnu sem veidd er snemma á vertíðinni með lágri hrognafyllingu, en Japanir voru reiðubúnir til að taka slíka loðnu nú vegna skorts á loðnu í Japan. Að sögn Hjalta er vonast til að unnt verði að frysta loðnu upp í þennan hluta samningsins á Austfjörðum fljótlega, en um er að ræða 1500 tonn. — Hins vegar var Meira en þrjátíu árekstar urðu í Reykjavík í gær MILLI 30 og 40 árekstrar urðu í Reykjavík í gær, flestir minnihátt- ar og ekki cr vitað um meiðsli á fólki. Götur eru víða með hálkublettum, og þegar tók að snjóa um miðjan daginn í gær jókst hálkan auk þess sem skyggni versnaði. svo samningur um sölu á loðnu- hrognum upp á 3400 tonn. Þessar tölur geta þó eitthvað breyst, þar sem Japanir eru kaupendur að meiri loðnu að sögn Hjalta, en ekki er ljóst hve mikið verður hægt að selja þeim. Hjalti sagði að gott verð hefði fengist, og um talsverða hækkun væri að ræða frá því í fyrra. Það eru sjö fyrirtæki í Japan sem að samkomulaginu standa, fjögur kaupa loðnu og þrjú kaupa loðnu- hrogn, jafnmörg og í fyrra. Níu félagar í FÍM: Lýsa stuðningi við ráðh- ingu Þóru Kristjánsdóttur NÍU myndlistarmenn og félags- menn í FÍM hafa sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu út af deilum um ráðningu listráðu- nauts að Kjarvalsstöðum: Vegna átaka sem urðu á aðal- fundi Félags íslenzkra myndlist- armanna hinn 22. jan. sl. um vinnubrögð við ráðningu list- ráðunautar að Kjarvalsstöðum, óskum við undirritaðir að taka fram eftirfarandi: Það er bjargföst skoðun okk- ar, að eins og staðan er nú í ágreiningsmálum samtaka listamanna og hússtjórnar Kjarvalsstaða, sé farsælast að nota tímabil bráðabirgðasam- komulagsins til rökræðna um hagkvæmustu lausn á framtíð- arstjórnun hússins. Við álítum, að hér eigi einurð, ásamt samningslipurð og rök- festu, að sitja í öndvegi, enda teljum við málstað listamanna það góðan, að þrjóska ásarnt, hótunum um andóf og bönn verði einungis til þess að gera farsæla lausn þessara mála erf- iðari. Menn f rá Reyð- arf irði í hrakn- ingum á sn jóbíl Reyðarfirði, 29. janúar. Á LAUGARDAGINN var vonskuveður hér á Reyðarfirði, og hafði verið svo nær alla síðustu viku. Klukkan hálf tíu á laugardagsmorgun lagði snjóbfll af stað frá Reyðarfirði með tvo farþega sem ætluðu að ná flugvél á Egilsstöðum. Þegar snjóbfllinn kom ekki fram á tilteknum tíma var haft samband við björgunarsveitina á Egilsstöðum, og hún beðin um að svipast um eftir honum. fundu svo Egilsstaðamenn bílinn fyrir ofan skriður. Níu til tíu vindstig voru, og hafði snjóað inn á vél bílsins svo hann hætti að ganga, auk þess sem talstöð bílsins hafði bilað, svo að mennirnir gátu ekki látið vita af sér. Skyggni var ekki nema um einn metri, þannig að útilokað var að fara út úr bílnum. Egilsstaðamönnum gekk erfiðlega að komast leiðar sinnar af þeim sökum, því að einn maður þurfti sífellt að ganga á undan nokkurra kílómetra leið. Snjóblás- ari var sendur á móti mönnunum frá Reyðarfirði, og var hann tvo tíma á leiðinni sem aðeins er sjö kílómetra löng. Mönnunum í snjóbílnum varð ekki meint af volkinu, en hressing sem þeim var færð var vel þegin. Þegar mennirnir stigu út úr snjó- bílnum sukku þeir í fönn upp undir hendur, svo mikið var fennfergið. Mennirnir voru komnir heim til sín um klukkan tíu um kvöldið. — Gréta. Er slysavarnarmenn komu að slysavarnaskýlinu sem er 17 kíló- metra frá Egilsstöðum höfðu þeir ekki orðið varir við bílinn. Var þá haft samband við Reyðarfjörð, og björgunarsveitin þar fór að taka sig til til leitar, en þá var klukkan orðin sjö um kvöldið. Áður en þeir lögðu af stað. Þar er stjórn FÍM hefur lýst yfir því áliti sínu, að frú Þóra Kristjánsdóttir sé hæf til starfa sem listráðunautur, álítum við hana löglega ráðna. Einar Ilákonarson, Valtýr Pétursson, Hrólfur Sigurðsson, Einar Þorláksson, Bragi Ásgeirsson, Baltasar, Sigurður Sigurðsson, Kristján Davíðsson, Hafsceinn Austmann. Gert í Reykjavík 26. janúar 1979. © INNLENT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.