Morgunblaðið - 30.01.1979, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 30.01.1979, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1979 35 Ekki lengur unnt að f á þinglýsingu af- greidda samdægurs Ný lög tóku gildi um áramót Eiríkur Tómasson aðstoðarmaður dómsmálaráðherra á fundinum með blaðamönnum. Þorleifur Pálsson deildarstjóri til vinstri, Magnús T. Ólafsson blaðafulltrúi ríkisstjórnarinnar t.h. vinnumanna við Þjóðleik- húsið. Hin fylkingin, undii forystu aðstandenda Söng- skólans í Reykjavík, hefui lagt drög að stofnun óperu- félags óháð ríkishákninu. Hyggst þessi vísir, þessi kjarni áhugamanna, sigla jómfrúarferð sína bráðlega með sýningum á óperunni Pagliacci eftir Leoncavallo. í viðtölum dagsins kynn- umst við viðhorfum ein- söngvara nánar. sé átt við fullvaxnar óperur í íburðarmiklum uppsetningum eins og tíðkast hafa hér til þessa. Þetta ættu annars ekki að vera neinar fréttir. Þau þjóðlönd eru teljandi á fingrum annarrar handar þar sem óperuflutningur borgar sig í peningum." BLM: Hvað með hæfni íslenskra einsöngvara? „Það má segja að ekki nema einstöku söngvari hafi reynslu í óperuflutningi og það eru að sjálf- sögðu þeir sem hafa starfað erlendis, eða haft aðstöðu til að dvelja þar langdvölum við nám. Hinir sitja eftir með sárt ennið. Hitt er aftur annað mál, að flest okkar höfum það góða skólun að baki, að réttlætanlegt er að láta til skarar skríða. Það er slæmt að nýta ekki kunnáttu sem hefur verið keypt svo dýru verði." BLM: Hvernig má auka áhuga almennings á þessari listgrein? „Margvíslega. Sjónvarpið hefur riðið á vaðið. Við vonum að framhald verði á því. Sjónvarpsóperurnar féllu í góðan jarðveg jafnt á meðal leikra sem lærðra. Fólk þekkir þessa list- grein ekki nægilega vel. Við nánari kynni er ég viss um að íslendingar gætu orðið óperuunnendur upp til hópa.“ BLM: Hvað takmarkar óperu- flutning á íslá'ndi annað en peningar? „Það væri helst fjöldi ákveðinna raddtegunda, en hann er mun fjöl- breyttari en flestir gera sér grein fyrir. Við þurfum að eiga sóprana, alta, tenóra og bassa og allar þær raddtegundir aðrar sem þar eru á milli. En við getum sneitt framhjá þessari hindrun með því að tak- marka verkefnavalið við óperur sem hæfa íslenskum söngkröftum hverju sinni. átta einsöngvara árlega, eins og kom til tals fyrir nokkrum árum, og setti á svið tvær til þrjár óperur á ári, má við því búast að óperufélagið leystist upp; þ.e. ef slíkt kynni að styrkja tilburði Þjóðleikhússins. Ef þetta gerist ekki höldum við áfram ■ótrauð." BLM: Er það rétt sem sagt er, að Félag íslenskra einsöngvara hafi í heild verið tregt til að styrkja íslenska óperufélagið? „Nei, þetta er rangt. Söngvarar innan félagsins voru hugmyndinni hliðhollir, þótt stjórn þess væri það ekki. Stjórnin vildi stærri bita af kökunni, vildi taka framtíð óperufé- lagsins í sínar hendur þótt hug- myndin kæmi ekki frá henni. Þannig hefðu hin upphaflegu stofnfélög orðið veikburða þáttakendur, ekki stofnaðilar. Leikurinn hefði snúist við og völdin innan óperufélagsins farið í annarra hendur. Þessu var ég ósamþykkur þar eð ég óttaðist að fyrirtækið myndi daga uppi undir annarra stjórn. Á lokafundi þessara aðila tók ég af skarið og sagði það heppilegast að hinir upprunalegu stofnaðilar stæðu einir að íslenska óperufélaginu án fulltingis F.I.E. Þetta var gert í trausti þeirrar vissu, að söngvarar myndu sameinast um íslenska óperu þrátt fyrir allt. Að lokum vil ég taka það skýrt fram, að eitt af aðaláhugamálum óperufélags- ins er og verður, að taka íslensk óperuverk til æfinga og sýninga. Og þrátt fyrir hjal um annað hefur það sýnt sig að samstaða ríkir meðal söngvara. Söngskólinn sjálfur er talandi tákn, og kannski þá um leið sameiningartákn." Ekki er lengur unnt að fá skjöl þinglýst sama dag og farið er með þau til þinglýsingar samkvæmt nýjum lögum um þinglýsingar sem tóku gildi þann 1. janúar síðast liðinn. Fram að gildistöku hinna nýju laga höfðu gilt um þinglýsingar lög frá árinu 1928. Eiríkur Tómasson aðstoðarráð- herra dómsmálaráðherra og Þor- leifur Pálsson deildarstjóri í dómsmálaráðuneytinu gerðu grein fyrir nokkrum atriðum hinna nýju laga á fundi með blaðamönnum í gær. I hinum nýju lögum er kveðið nánar en áður á um ýmis efnisatriði þinglýsingar svo sem réttaráhrif. Lögin miða að því að greiðari upplýsingar megi fá um réttindi yfir fasteignum og öruggari skráningu fasteignaréttinda og annarra rétt- inda sem háð eru þinglýsingu. Gerð- ar eru meiri kröfur en áður um gerð þinglýsingarskjala og undirritun og með því stefnt að meira réttaröryggi í viðskiptum. Skýrari og fyllri reglur er í lögum þessum um framkvæmd þinglýsingar en áður giltu. Meðal þeirra atriða er almenning varða einna helst má nefna, að samkvæmt 14. gr. laganna telst skjal eigi afhent til þinglýsingar nema dómara séu jafnframt gefnar þær upplýsingar, sem hann óskar eftir og lögmæt greiðsla sé innt af hendi, þ.e. þinglýsingargjald og stimpilgjald, ef skjalið hefur ekki áður verið stimplað. Þinglýsingar- gjald er fast gjald kr. 1.000 af hverju skjali. Stimpilgjaldið er breytilegt og fer eftir fjárhæð skjals, er t.d. 4 pro mill af afsölum sem þýðir 112 þúsund af 28 milljón króna íbúð. Samkvæmt 14. og 15. gr. laganna teljast forgangsáhrif þinglýsingar frá því skjal er afhent þinglýsingar- dómara. Þegar tvö eða fleiri skjöl, sem ekki geta samrýn«st, eru afhent samdægurs til þinglýsingar, er það meginregla að þau eru þá jafnstæð að þinglýsingargildi. Af þessu leiðir að eigi er unnt að þinglýsa skjali (færa endanlega inn í þinglýsingarbók) og afhenda aftur frumrit þess fyrr en að liðnum skrifstofutíma þess dags er skjal barst til þinglýsingar. Athygli er vakin á reglum um undirritun skjala og vottun undir- skrifta sbr. 22., 24. og 48. gr. laganna. Undirskrift undir skjöl, er þing- lýsa á skal staðfest af: 1. notario publico, (bæjarfógeta, sýslumanni, í Reykjavík borgar- fógeta), 2. héraðsdómslögmanni, hæstarétt- arlögmanni eða fulltrúum þeirra, 3. löggiltum fasteignasala eða 4. tveimur vitundarvottum, sem skulu geta stöðu sinnar og heimilis- fangs. Ljósm. Kristján. Það skal skýlaust tekið fram, að útgefandi hafi ritað nafn sitt eða kannast við undirskrift sína í viður- vist þess, eða þeirra, er undirskrift- ina staðfesta, einnig að hann hafi verið fjárráða er hann ritaði nafn sitt. Á veðbréf er sjálfsvörsluveð í lausafé t.d. bifreið, skipi, sem ekki er skráningarskylt, o.fl., skal einnig votta að dagsetning sé rétt. Skjöl útgefin af stjórnvöldum eða öðrum opinberum aðilum eru und- anskilin ákvæðum um vottun (22., 24. og 48. gr.). Vakin er athygli á því að reglur þessar um vottun undirskrifta gildi t.d. einnig um umboð og veðleyfi. , * Vakin er athygli 12. gr. laganna, sem er svohljóðandi: „Nú gefur veðhafi samkvæmt veðskuldabréfi eða tryggingarbréfi eftir veðrétt sinn að nokkru eða öllu leyti (veðbandsleysing) eða hann samþykkir nýja veðsetningu eða tilfærslu á veðrétti sínum (veðleyfi) eða hann gefur einhverjar áþekkar yfirlýsingar, vegna veðréttar síns. Verður þá slíkum yfirlýsingum ekki þinglýst, nema sjálft veðbréfið sé afhent með áritun um veðbreyting- una ásamt endurriti af henni, rit- aðri á löggiltan skjalapappír, eða veðbréfið sé sýnt þinglýsingardóm- ara um leið og slík yfirlýsing er afhent til þinglýsingar, svo að hann geti gengið úr skugga um, að hennar sé nægilega getið í veðbréfinu sjálfu. Undanþegnir ákvæði 1. málsgr. eru bankar, sparisjóðir og opinberir aðilar." Rétt er sérstaklega að vekja at- hygli á ákvæði í 7. gr. reglugerðar um þinglýsingar er sett var með heimild í þinglýsingarlögunum og er svohljóðandi: „Nú er þinglýst skjali er varðar skrásetta bifreið. Skal skjalinu þá fylgja staðfesting skráningarvalds- manns um að útgefandi skjalsins eða sá sem samþykkt hefur útgáfu þess, sé skráður eigandi bifreiðar- innar. Nú er þinglýsingardómari jafnframt skráningarvaldsmaður og er þá eigi þörf slíkrar staðfesting- ar.“ Ákvæði þetta tekur aðeins til bifreiða skráðra í Reykjavík, þar sem utan Reykjavíkur eru sýslu- menn og bæjarfógetar bæði skráningarvaldsmenn og þing- lýsingardómarar. Samkvæmt 9. gr. reglugerðar um þinglýsingar er heimilt að nota löggiltan skjalapappír af stærðinni A 4. M.a. úrvals flauels-og denimefni SKYRTUTILBOÐ Allar skyrtur á Kr. 3000.- í dag Aðalstrceti 4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.