Morgunblaðið - 30.01.1979, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 30.01.1979, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1979 Halldór var hvorttveggja i senn skólastjóri og bóndi. Búið rak hann fyrir eigin reikning. Hjúa- sæll var Halldór frá upphafi. Þeirra meðal voru tvær mikilhæf- ar kónur, Þorbjörg Jónsdóttir (ráðskona) og Kristjana Jónatans- dóttir (rjómabústýra). og spor margra lágu til Hvanneyrar, úr öllum sveitum landsins, og tóku tryggð við staðinn og þá, sem þar réðu húsum. í samkvæmi komudag brúðhjón- anna til Hvanneyrar var allt heim- ilisfólk staðarins viðstatt og sátu þar við háborð blómum skreytt konurnar trygglyndu, sem fyrr voru nefndar, en Halldór skóla- stjóri kynnti konu sína fyrir heimamönnum í ræðu, hress og hreifur, sem jafnan og bauð hana velkomna til Hvanneyrar við fögn- uð allra viðstaddra. Þetta var minnisverð stund og gleðirík og hið milda bros Svövu var ljós vottur þeirrar einlægni og ástúðar, sem voru meðal hennar höfuð- kosta. En það var veglegt og vanda- saqjt hlutverk, sem frá þessari stund var hennar. Hún var nú húsfreyja á höfuðbóli og skóla- setri, sem einnig var heimili allra, en þennan virðingarsess skipaði hún frá þessari stund með þeirri reisn, virðuleika og vinarþeli í allra garð, að ógleymanlegt mun öllum, sem nutu mannkosta henn- ar, og slík kona var Svava Þór- hallsdóttir, að þegar mest á reyndi, var reisn hennar mest, tign og ró. Eg átti því láni að fagna að sjá fyrstu börn þeirra byrja að vaxa úr grasi og man margt frá þessum tíma, sem leiddi í ljós hve við- kvæma lund Halldór skólastjóri átti „undir harðri skel“ Þau Svava og Halldór eignuðust fimm börn, sem öll náðu fullorðins aldri. Valgerði, Sigríði (lést 1956) og Svövu, Björn og Þórhall. Halldór Vilhjálmsson, sem var fæddur 1875, andaðist 1936 og hafði þá átt við erfið veikindi að stríða. Þess ber að minnast,. að órofa tryggð hélst með Svövu og Þor- björgu Björnsdóttur og bjuggu þær saman um áratuga skeið, eða þar til Þorbjörg lést. Það voru blessunarríkir dagar, sem ég átti á Hvanneyri allt frá því ég kom þar fyrst, og þar til ég hafði lokið námi, en ekkert breytt- ist um tryggð og vináttu og sporin lágu þangað síðar og alltaf fannst mér ég koma sem heimamaður — ekki sem gestur. Spor allra fimm sona minna lágu einnig til Hvann- eyrar og luku þrír þeirra námi, en sá fjórði varð að hætta vegna hlutverks, sem hann tók að sér óhjákvæmilega. Minnugur er ég þess að tveir sona minna dvöldust um tíma á barnsaldri á Hvanneyri. Þess hefi ég ávallt minnst þakklát- um huga. Þessum minningarorðum vil ég svo ljúka með þakklátum huga og innilegustu samúðarkveðjum til barna og barnabarna Svövu Þór- hallsdóttur og annarra ástvina hennar. Blessuð sé minning henn- ar. Axel Thorsteinsson Kveðja frá gömlum Hvanneyringi Síðan ég fór að nálgast níræðis- aldurinn koma mér oft í hug þessar frægu ljóðlínur Davíðs Stefánssonar: „Sjá dagar koma, ár og aldir Kfla og enginn Htöðvar tímanH þunga nið“. Ef til vill er það vegna þess, að gamlir menn skilja betur hinn þunga nið aldanna. Kynslóðir koma og fara. Dánarfregnir dynja í eyrum manns daglega og stund- um eru nefnd þar nöfn vina og vandamanna, sem vekja athygli. Það er stundum eins og ljósbjarmi lýsi upp gráan himin ellinnar og skýru ljósi slær á eitthvert löngu liðið atvik, dag eða jafnvel ár. Svo fór mér, er ég heyrði lát frú Svövu Þórhallsdóttur frá Hvanneyri hinn 22. þ.m. Hún var ein þeirra kvenna, sem enginn gleymir, er þekkti hana á æskuárunum. Ég ákvað því að minnast með nokkr- um orðum veru minnar á Hvann- eyri og kynnum mínum af hinni látnu öðlingskonu. Hugur minn stöðvast við árið 1911. Það var örlagaár í sögu okkar beggja. Hinn 10. maí þ.á. giftist Svava hinum glæsilega manni, Halldóri Vilhjálmssyni skólastjóra bændaskólans að Hvanneyri og tók við stjórn á einu stærsta heimili landsins, þá 21 árs gömul. En hún reyndist þeirri stöðu vel vaxin. Hún var ekki eingöngu gáfuð, fögur og glæsileg, heldur einnig virðuTeg og hæversk í framgöngu, svo að hún vann hvers manns hjarta með ljúf- mennsku sinni. Hún var og ágæt- lega menntuð. Hafði fengið hið besta uppeldi, tekið kennarapróf vorið 1909 og verið síðan á kennaranámskeiðum ytra og lært postulínsmálningu, er hún síðar á ævinni stundaði um árabil, enda bæði listræn og listhneigð. Hvað mig sjálfan snertir varð- andi árið 1911, náði ég tvítugsaldri þ.á. og settist á skólabekk í yngri deild Hvanneyraskólans ásamt 17 jafningjum mínum, en fyrir voru 15 nemendur í eldri deild. Þetta var góður hópur og þarna rættist langþráður draumur minn um að njóta meiri menntunar. Og þarna hófst glaðasta tímabil æskuára minna. Við skólasveinar bárum allir virðingu fyrir forystuliði staðar- ins: skólastjóra, kennurum og ekki síst húsfreyjunni, sem ég þegar hefi lýst. Auðvitað höfðum við piltar ekki mikið saman að sælda við heimilisfólk skólastjóra fyrst í stað, því að heimilin voru tvö. Skólapiltar bjuggu í skólahúsinu nýja og höfðu matarfélag út af fyrir sig, sem 2 stúlkur veittu forstöðu. En þjónustu alla höfðum við hjá stúlkum skólastjóra. En til var á staðnum málfunda- félag, sem skólasveinar, kennarar og allt heimilisfólk hafði rétt til að vera í. Voru fundir venjulega vikulega. Svo var okkur leyft að skemmta okkur á sunnudagskvöld- um í forsal skólahússins. Var það óspart notað og kynntust menn því fljótt. Heimilin bæði urðu einn vinahópur. Svo kom tiltölulega fljótt í ljós að í þessum hópi voru allmargir, sem höfðu ást á sameiginlegu áhugamáli, hugsjónum ungmenna- féláganna, sem þá voru kyndill heilbrigðra æskumanna, þó nú sé það mörgum gleymt. í þessum hópi voru nokkrir skólapiltar, allmargt ungt fólk í sveitinni, sumir kennaranna og síðast en ekki síst, hin unga skólastjórafrú. Hún hafði verið virkur og áhugasamur þátttakandi í Umf. Iðunni í Reykjavík, ásamt mörgum vinkonum sínum, því að það var eingöngu kvenfélag. Það vill svo vel til, að til er snjöll grein um ungmennafélagsskapinn, eftir frú Svövu, sem birtist í 30 ára Minningariti Umf. íslands árið 1938. Ég leyfi mér að endurtaka hér hennar eigin orð um ung- mennafélagsskapinn úr nefndri grein: „Ég var svo lánsöm að eiga æsku mína um sama leyti og íslenska þjóðin átti gróanda tímabil og aðdraganda sumars í sínu þjóðlífi í stofnun og starfi ungmennafélag- anna. Það er gott að minnast þess, að hafa verið ungur þátttakandi í þeim straumkvörfum, því æskan lætur mann finna til og trúa á hugsjónir á allt annan hátt en nokkurt annað tímabil á manns- ævinni. Hinar björtu hugsjónir ungmennafélagshreyfingarinnar gripu föstum tökum hugi ung- menna um land allt, er voru að vakna til meðvitundar um tilveru- rétt sinn í íslensku þjóðfélagi". Og síðar segir í sömu grein: „Og eitt er okkur sjálfssagt ógleymanlegt sem vorum í félags- skapnum, hvað það var margt, sem hann gat fengið okkur til að þykja vænt um. Holtin og hólarnir umhverfis okkur urðu önnur í okkar augum, fjöllin tígulegri, málið fegurra og hjartfólgnara. Þjóðin öll var eins og brot af manni sjálfum og sjálfstæði þjóðarinnar var eins og manns eigið fjöregg". Ég efast um að aðrir hafi í færri orðum lýst betur hugsjónum ung- ennafélaganna, enda var Svava prýðilega ritfær og vel máli farin. I fáum orðum sagt gaf frú Svava sér tíma til þess að taka þátt í störfum hins nýja Ungmenna- félags, sem stofnað var 12. des. 1911, á afmælisdegi Skúla fógeta. Starfssvæði þess var Andakíls- sveitin og neðri hluti Skorradals. Páll Zóphóníasson, kennari, var fyrsti formaður þess, frú Svava ritari og Einar Jónsson, kennari, gjaldkeri. Heimili þess var Hvann- eyri, því að vegna góðvilja skóla- stjórans, fékk það að halda fundi í húsnæði skólans. Félagið var skírt Islendingur. Það starfaði með fjöri og áhuga eftir því sem aðstæður leyfðu og hefir oftast gert síðan, þótt lægðir hafi myndast. — Það hélt myndarlegt 65 ára afmælishóf 1976, Ég man ekki betur en eitt hið fyrsta, sem félagið Islendingur tók sér fyrir hendur, væri að biðja frú Svövu, að kenna okkur þjóðdansa. Við vissum að hún hafði lært þá í Svíþjóð og hafði kennt þá í ung- mennafélögunum í Reykjavík. Nokkrum árum fyrr hafði Hulda Garborg verið að endurvekja þjóð- dansa og vikivaka á Norðurlönd- um, því að allar norrænar þjóðir voru búnar að týna þeim, nema Færeyingar. En nú hafði frú Huldu Garborg tekist að endur- vekja þessa þjóðlegu íþrótt að nokkru leyti og öll ungmennafélög á Norðurlöndum höfðu tekið henni fegins hendi. Frú Svava hafði einnig hrifist af þessari hugmynd og lært þessa þjóðdansa í lýðháskólanum að Nesi. Sumt af þessu voru nú eiginlega söngdansar, fremur en vikivakar, en hvað um það, hér nefni ég það þjóðdansar, því að þeim var það sameiginlegt hinum fornu vikivökum að saman fóru vissar líkamshreyfingar, ljóð og texti. Frú Svava tók því vel að kenna okkur dansana og það nám gekk sannarlega vel og því fylgdi mikið fjör og gleði. Við stunduðum þjóð- dansana af hjartans lyst þarna á Hvanneyri báða veturna, sem ég dvaldi þar. Við sungum hástöfum ástarsöngva er fylgdu sumum þeirra. Vakti það oft hina mestu gleði í hringleikjunum, þegar hringurinn nam staðar og hver átti að dansa við þá dömu, sem næst var. Við piltarnir (eða stúlk- urnar) breiddum út faðminn og sungum: „Sú (eða sá), sem að mína hönd nú fær, hún á mitt hjartað unga.“ o.s.frv. en fyrir varð þá einhver af eldra taginu „elskan" okkar var svolítið fjær. En þá var að gæta sín betur næst. Textar þessara söngva voru að vísu marg- ir léttvægir, en sumir ágætir, enda höfðu Iðunarmeyjar í Reykjavík fengið góðskáld til að þýða suma textana t.d. þá Friðrik Friðriks- son, Þorstein Erlingsson o.fl. Ég get þess arna hér, vegna þess að ég sá í nýlegri minningabók konu, að frú Svava hefði ef til vill þýtt suma textana, en svo var ekki. Þjóðdansar þessir þóttu sjálf- sagt skemmtiatriði á öllum sam- komum Hvanneyringa, stórum og smáum, enda þótt við vorum margir hinir mestu dansarar og margar fallegar stúlkur voru á samkomum hjá okkur stundum frá Hvítárvalla og Hvítárbakka skólunum, að ógleymdum ljós- hærðu blómarósunum úr ddíúm Borgarfjarðar. En því segi ég þetta hér að ég minnist hrifningar okkar á dansleikjum, þegar okkur tókst að fá skólastjórahjónin til þess að „færa upp“ mars fyrir okkur. Þau voru bæði svo glæsileg og fyrir- mannleg, að þeirri sjón gleymir enginn. Og við, sem á eftir komum í röðinni, vorum stoltir af þeim og réttum úr kútnum eftir bestu getu. Við fundum svo vel, að við vorum þeirra fólk, sem þau vildu mennta og manna, sem allra best. — Slíkar stundir gleymast aldrei. Ég fullyrði, að frú Svava vann sögulegt afrek með þjóðdansa- kennslu sinni á Hvanneyri, því að þeir breiddust út um allt land með Hvanneyringum og finnast enn í fjarlægum sveitum. Ég tel og líklegt að þessi hreyfing hafi ýft undir vakningu vikivakanna, sem Helgi Valtýsson kom af stað síðar og sýndir voru á Þingvöllum 1930 með glæsibrag. Síðan tók Þjóðdansafélagið við, en ungmennafélögin styðja hreyf- inguna eftir mætti: Þjóðdansa- félagið á mikla þökk skilið af hálfu allra þjóðhollra manna fyrir starf sitt. Það er og gaman að geta þess hér, að Umf. Islendingur hefir æft þjóðdansa seinni árin og hópur frá því félagi var valinn til þess að sýna dansana á norrænu þjóð- dansamóti 1976. Ég vil enda þennan kafla með því að geta þess, hve gaman var að vera gestur þeirra Hvanneyrar- hjóna í jólaboðunum, sem ætíð voru haldin fyrir heimilisfólkið og skólapilta, sem ekki komust heim til sín. Þá var veitt rausnarlega, sungið og leikið. Húsbóndinn stjórnaði söngnum, en húsfreyjan var lífið og sálin í leikjunum, stjórnaði þeim og kenndi nýja leiki, sem hún kunni fjölmarga og kenndi vel. Það voru ánægjulegar stundir, þar sem allir skemmtu sér. II. Aðra mynd á ég í huga mér af frú Svövu, sem ég vil að hér komi fram. Það var að kvöldi hins 29. október 1917 að ég, ásamt aldraðri móður minni, kom að Hvanneyri. Við vorum þreytt og göngumóð, á leið til Reykjavíkur. Þá hafði ég ekki komið að Hvanneyri síðan vorið 1913, að ég lauk þar námi. Húsbændurnir tóku okkur ágæt- lega og við vorum að góðum kvöldverði loknum leidd til sængur í gestaherbergi hússins. En þau undur skeðu þessa nótt, að við vorum vakin með því að rúða var brotin í herberginu og okkur sagt að koma strax út, því að húsið væri að brenna. Við fleygðum okkur í einhver föt. Mömmu var hjálpað út um glugg- ann með eitthvað af fötunum, en ég rétti út um gluggann allt, sem lauslegt var í herberginu og ég réði við, því eldurinn var ekki kominn svo nærri þeim stað. Þegar ut kom var auðvitað allt á ringulreið, allir að vinna við að bjarga því, sem bjargað varð úr húsinu og síðan að verja leikfimis- húsið, sem líka tókst. Nógur var mannaflinn, því að 50 piltar voru komnir til náms' í skólann og heimamenn skiptu tugum. Skóla- stjóri var jafnan fremstur í flokki björgunarmanna og stjórnaði með skörungsskap að vanda. Hann var fyrstur vakinn, þegar eldsins varð vart og v^kti sína heimamenn fyrst. Miklar áhyggjur hafði hann af því að ókunnir djarfhuga piltar færu inn í húsið að reyna meiri björgun. Setti því skólastjóri nokkra öruggustu og æfðustu vinnumenn sína til þess að líta eftir að svo yrði ekki gert. Það tókst vel, því að enginn meiddist — nema skólastjóri sjálfur, sem síðar verður sagt. Ég ætla mér ekki að segja hér sögu þessarar nætur. Það yrði efni í langa ritgerð. En ég ætlaði að segja frá starfi frú Svövu þessa nótt, eins og það kom mér fyrir sjónir. Ég sá hana ganga þarna um klædda samfest- ingi, eins og þeim sem karlmenn notuðu á þeim tíma. Hún gekk þarna um róleg og virðuleg og vann hvað sem fyrir kom, hlynnti að þeim sem eitthvað höfðu skrámast og huggaði þá, sem hugarvíl ásótti. Hún reyndist örugg og sterk í vinnu sinni og stjórn allri. Mest reyndi á þrek hennar að sjálfsögðu þegar maður hennar veiktist og gat ekki stjórnað lengur. Það vildi svo til að ég varð ásjáandi að, hvernig það varð. Eftir var að bjarga dýrmætum bókaskáp út úr norðvestur stof- unni og Halldór kallaði til okkar einhverra, að koma nú og hjálpa sér að ná út skápnum. Ég hlýddi kalli, en reykur var svo mikill að ég ætlaði að kafna, sneri tvívegis við skreið loks inn á fjórum fótum. Halldór var alltaf inni í reyknum. Einhverjir fleiri hjálpuðu og — út fór skápurinn. Þá var skólastjóri örþreyttur og gat varla á fótum staðið, svo að ég varð til þess að verja hann falli. Auðséð var að maðurinn var fárveikur, enda reyndist hann rifbrotinn, hárið sviðið á höfði hans og lungun full af reyk. Verst var, hvað hann ásakaði sjalfan sig átakanlega fyrir þetta óhapp, sem á engan hátt var hægt að kenna honum. Þá komu þær þar að, frú Svava og Kristjana. Við studdum hann öll út í skóla, þar sem hann komst í rúm og læknir var sóttur. Ég minnist þess, hvað frú Svava var þá örugg og reyndi að draga úr þjáningum manns síns, sem og tókst að nokkru. En þegar skólastjóri var kominn í ró fór frú Svava út á „„vígvöllinn" til starfa á ný. Hún unni sér ekki hvíldar fyrr en hættan var liðin hjá og aðrir máttu einnig njóta hvíldar. Svo sterk var hún þá, þessi fíngerða kona, sem ég lýsti í upphafi máls míns. Það er ekki víst, að þessi mynd af henni hafi áður verið dregin og því má hana ekki vanta hér. Allir viðstaddir dáðu þrek og dugnað frú Svövu þessa nótt. III. Hér læt ég staðar numið. Hvanneyri reis aftur úr rústum. Ég átti þess kost að koma þar eitt sinn aftur eftir þessa atburði, meðan þau Svava og Halldór réðu þar ríkjum. Þá var allt í blóma og skemmtilegt að vera gestur þeirra sem fyrr. En svo kom grimm hönd örlag- anna í líki veikinda, sem fjarlægðu húsfreyjuna af heimilinu og lögðu húsbóndann í gröfina um aldur fram. — Um það ræði ég ekki. En geta vil ég þess, að frú Svava náði síðan þeirri heilsu, að hún átti góða elli í skjóli dætra sinna og bjó um tíma með vinkonu þeirra hjóna Þorbjörgu Bjarna- dóttur, er lengri tima var ráðskona á Hvanneyri. Síðasta áratuginn bjó hún hjá Valgerði dóttur sinni. Fram til síðustu stunda greip hún í að mála á postulín og naut þess að hreyfa sig úti í hreinu lofti. Ættingjar og vinir komu og glöddust með sinni ágætu ætt- móður, þegar heilsa hennar leyfði. Þannig kvaddi ástsæll sonarsonur hana fyrir nokkrum dögum. En svo þrutu kraftarnir allt í einu og hún leið burt eins og ljós. Þjáningalaust að því er virtist og mér er sagt að yfir henni látinni hafi hvílt hin sama tiginmannlega ró og friður, sem einkenndi hana heilbrigða. Það er gott þegar menn fá að kveðja heiminn á þann hátt. Það var stór hópur heimilis- manna á Hvanneyri, árin sem ég dvaldist þar. Langflestir þeirra eru nú komnir yfir móðuna miklu og verða nú með í þeim glaða hópi sem taka á móti hinni ástsælu húsmóður og vinkonu í „varpan- um“ svo notuð sé líking Davíðs. Ég veit þó, að eftir eru nokkur gamal- menni víðs vegar um land vort, er sitja með votar brár og minnast, en gleðjast þó í hjarta sínu yfir því að ljóselsk sál er liðin til sælli heima. Fyrir hönd þeirra allra leyfi ég mér að flytja vandamönnum frú Svövu samúðarkveðjur um leið og við blessum minningu hennar og þökkum það sem hún var okkur. Sjálfur trúi ég bókstaflega orðum meistarans mikla um híbýlin mörgu í húsi föðurins og ég trúi því að í einu slíku híbýli hafi himnafaðirinn ætlað hinni gáfuðu og listrænu sál, sem við nú kveðjum, eitthvert starf sem henni hentar vel. Má vera að hún sé strax farin að strá um sig þekkingu, mannúð og mildi, sem lyfti nýjum nemendum á æðra stig, svo að hinn langþráði draum- ur um eina hjörð og einn hirði rætist sem allra fyrst. Reykjavík 25. janúar 1979 Ingimar H. Jóhannesson. Ég sem línur þessar rita átti það sameiginlegt með frú Svövu Þórhallsdóttur að bæði máluðum við á postulín, og því langar mig að minnast hennar og þess þáttar í lífi hennar sem spannar yfir nær fimmtíu ár. Mér hefur alltaf fundist að kynni mín af henni hafi hafist á vissan hátt fyrir nær 40 árum, þó

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.