Morgunblaðið - 30.01.1979, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 30.01.1979, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1979 23 Valsmenn sigruðu eftir spennandi leik LEIKS Vals og KR í úrvalsdeildinni í körfubolta sem fram fór í Hagaskólanum í fyrrakvöld verður að öllum líkindum ekki minnst sem vel leikins leiks. Á hinn bóginn var spennan í leiknum trúlega eins og hún verður mest í íþróttum. Valsmenn unnu þennan afar spennandi leik með 80 stigum gegn 77, en staðan í hálfleik var 42—37, Valsmönnum í hag. Það sem öðru fremur einkenndi upphafsmínútur leiksins var mikil taugaspenna leikmanna beggja liða, mistök tíð og hittni afleit fram eftir öllum fyrri hálfleiknum. Valsmenn voru þó öllu ákveðnari, einkanlega þó í vörninni þar sem þeir börðust eins og ljón allan leikinn og gáfu KR-ingum aldrei frið. Leikurinn var þó mjög jafn allan hálfleikinn og staðan í hálfleik eins og áður segir 42—37 fyrir Val. í upphafi síðari hálfleiks juku Valsmenn heldur forskotið, en aldrei hleyptu KR-ingarnir þeim þó langt frá sér: sóttu raunar í sig veðrið og þegar um fimm mínútur voru til leiksloka náðu þeir foryst- unni. En það reyndist skammgóð- ur vermir því Valsmenn voru sannast sagna mun ákveðnari á lokasprettinum og KR-ingar að auki mjög mistækir. Körfuknattlelkur Tim Dwyer átti afburðagóðan leik á sunnudaginn, var nánast einráður undir báðum körfunum og réð John Hudson ekkert við hann í fráköstunum. Að auki hitti hann ágætlega og dreif liðsmenn sína áfram ef með þurfti og róaði spilið þegar þess var þörf. Rík- harður Hrafnkelsson átti einnig mjög góðan leik að þessu sinni og hefur í síðustu tveimur leikjum sínum sýnt hvers hann er megnug- ur ef hann lætur ekki skapið hlaupa með sig í gönur. Kristján Ágústsson var einnig góður og raunar átti allt Valsliðið góðan leik sérstaklega þó í vörninni. Hirtu Valsmenn mikið af fráköst- um undir körfu KR-inga og gekk KR-ingum afar illa að halda þeim frá körfunni. Ekki er ég fyllilega sáttur við leik KR-inga þessa stundina. Rétt er að geta þess að þeir tveir leikmenn, sem borið hafa KR-liðið uppi í vetur, John Hudson og Jón Sigurðsson, voru langt frá sínu besta í þessum leik. Sérstaklega á þetta þó við um þann fyrrnefnda því þrátt fyrir stigin sín 27, var skotanýting hans alls ekki góð og varnarleikur ekki heldur. Skaut Hudson alltof mörgum ótímabær- um skotum langt utan af velli, sem fæst rötuðu rétta leið í körfuna. Hinn ungi og bráefnilegi Garðar Jóhannsson var einna bestur STAÐAN 1 u t stigatala stig Valur 14 10 4 1229:1225 20 KR 13 9 4 1181:1031 18 UMFN 13 9 4 1325:1197 18 ÍR 14 7 7 1259:1221 14 ÍS 13 3 10 1114:1196 6 Þór 13 2 11 1038:1276 4 STIGAHÆSTU MENN: stig John Iludson KR 366 13 Mark Christensen Þór 347 13 Ted Bee UMFN 343 13 Paul Stewart ÍR 339 12 Tim Dwyer Val 324 13 Dirk Dunbar ÍS 317 11 Kristinn Jörundsson ÍR 293 14 Jón Sigurðsson KR 265 13 Jón Indriðason Þór 255 13 Kristján Ágústsson yal 244 14 Bjarni G. Sveinsson ÍS 233 13 Jón Jörundsson ÍR 221 14 KR-inga í leiknum og vex nú með hverjum leik. Er Garðar að öllum líkindum eitt mesta efni, sem fram hefur komið hér á undanförnum árum. Sóknarleikur KR-inga var engan veginn nægilega góður í þessum leik; boltinn gekk ekki nógu hratt milli manna, alltof mikið um niðurstungur og óþarfa hnoð. Hraðaupphlaup, sem í eina tíð voru eitt sterkasta vopn KR-inga eru nú næsta fátíð. KR-ingar þurfa að taka sig veru- lega á á næstunni ætli þeir að h'alda sér við toppinn. Stigin fyrir Vai: Tim Dwyer 30, Ríkharður Hrafnkelsson 18, Kristján Ágústsson 14, Torfi Magnússon 10, Lárus Hólm 5, og Hafsteinn Hafsteinsson 3. Stigin fyrir KR: Hudson 27, Einar Bollason 14, Garðar Jóhannsson og Jón Sigurðsson 13 hvor, Birgir Guðbjörnsson 4, Ei- ríkur Jóhannesson, Árni Guð- mundsson. og Gunnar Jóakimsson 2 hver og Ásgeir Hallgrímsson 1. Dómarar voru Kristbjörn Al- bertsson og Erlendur Eysteinsson og komust þeir þokkalega frá erfiðu hlutverki. GI. • Ilinn ungi og efnilegi Garðar Jóhannsson KR skorar í leiknum gegn Val á sunnudaginn. Sigurður Hjörleifsson er til varnar. (Ljósm. GI) I Snæfell vandræðum LIÐ Snæfells í 1. deildinni í körfuknattleik varð að gefa leik sinn gegn Grindvíkingum þar sem liðið hafði ekki nógu mörgum mönnum fram að tefla. Snæfellsmenn hafa átt við mikla erfiðleika að stríða í vetur m.a. vegna mannfæðar og færðar, en liðið verður að leika heimaleiki sína í Borgarnesi og því kostar hver einasti leikur liðsins mikla fyrirhöfn og ekki heiglum hent að gera út lið frá Stykkishólmi, þar sem annars margir góðir körfuknattleiksmenn hafa komið. En annars fóru tveir leikir fram í 1. deildinni um helgina. Á föstu- daginn léku í Njarðvíkum lið ÍBK og KFÍ. Keflvíkingar náðu strax Torystunni og var staðan í hálfleik 42—38 þeim í vil. I upphafi seinni hálfleiks tóku Keflvíkingar mikinn sprett og komust í 57—40, en það sem eftir var leiksins sóttu Isfirð- ingar sífellt á heimamenn og þegar 6 mínútur voru til leiksloka var staðan 69—64 ÍBK í vil. Þá tóku Keflvíkingar aftur við sér og gerðu út um leikinn en lokatölurn- ar urðu 86-74 ÍBK í vil. Daginn eftir ætluðu ísfirðingar að gera sér ferð út til Vestmanna- eyja, en veður hamlaði þeirri ferð. Á föstudaginn léku einnig í íþróttahúsi Hagaskólans Fram og Tindastóll. Tindastólsmenn kom- ust með harðfylgi miklu suður yfir heiðar og léku við Framara. Var sá leikur nánast einvígi milli Kára Maríssonar og John Johnson Fram, og fór oft í skapið á þeim síðarnefnda hversu erfiðlega gekk að skora fram hjá Kára. Tinda- stólsmenn komu annars nokkuð á óvart og héldu lengst af í við Framara, en er á leikinn leið fór getumunurinn að segja til sín og Framarar sigruðu með 82 stigum gegn 61. gíg. isiandsmðtið 1. delld Bikarkeppnin af staó? Valur: Gísli Guðmundsson 1, Hafsteinn Hafsteinsson 2, Kristján Agústsson 3, Lárus Hólm 2, Ríkharður Hrafnkelsson 3, Siguröur Hjörleifsson 1, Torfi Magnússon 2. KR: Árni Guðmundsson 2, Ásgeir Hallgrímsson 1, Birgir Guöbjörnsson 2, Einar Bollason 2, Eiríkur Jóhannesson 1, Garöar Jóhannsson 3, Gunnar Jóakimsson 2, Jón Sigurðsson 2. UMFN: Árni Lárusson 3, Brynjar Sigmundsson 1, Geir Þorsteinsson 3, Guðjón Þorsteinsson 2, Guðsteinn Ingimarsson 3, Gunnar Þorvarðarson 4, Jón V. Matthíasson 2, Jónas Jóhannesson 3, Stefán Bjarkason 2. Þór: Ágúst Pálsson 1, Alfreð Túliníus 2, Eiríkur Sigurösson 2, Ellert Finnbogason 1, Jón Indriöason 3, Sigurgeir Sveinsson 1, Þröstur Guðjónsson 1. SVO virðist sem 1. umferð bikar- keppni KKÍ sé farin af stað, en fyrir tilviljun hafa fregnir borist af einum leikja umferðarinnar. Er það leikur Ármenninga og UMFG. Ármenningar, sem eru í Körluknattlelkur toppbaráttú í 1. deildinni, fóru suður með sjó, en komu tómhentir til baka því Grindvíkingar losuðu þá við allar áhyggjur af bikar- keppninni með því að sigra þá með 94 stigum gegn 87. Grindvíkingar léku mjög vel til að byrja með og komust 20 stig yfir, en það kostaði líka villu- vandræði hjá liðinu. Fóru Ár- menningar því aðeins að sfga á, en staðan í hálfleik var samt 45-32 UMFGívil. í seinni hálfleik var það sama upp á teningnum, að Ármenningar voru smám saman að minnka muninn. Þegar sutt var til leiks- loka fór Mark Holmes útaf með 5 villur, en góður leikur Grind- víkinga sá til þess að sigrinum yrði bjargað og Ármenningar sendir út í kuldann. Lokatölur urðu sem fyrr sagði 94—87. Stigahæstir Grindvíkinga urðu: Holmes með 32 stig, Ólafur Jóhannesson með 17 og Júlíus Halldórsson með 14 stig. Flest stig Ármenninga skoruðu Atli Arason 28, Jón Björgvinsson 19 og Kristján Rafnsson 12. Talsverða athygli vekur, að KKÍ skuli ekki hafa komið frá sér neinum upplýsingum um þessa fyrstu umferð bikarkeppninnar og jafnvel þótt þar taki aðeins þátt ^ lið lægri deilda þá er það virðingarleysi gagnvart þeim að þegja þunnu hljóði þegar leikir liðanna eiga að fara fram. — gíg- 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.