Morgunblaðið - 30.01.1979, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 30.01.1979, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1979 Könnun á stjómmála í Menntaskólanum Föstudaginn 29. sept. sl. gekkst Vísindafélag Framtíðar- innar í Menntaskólanum í Reykjavík fyrir könnun á stjórnmálaskoðunum nemenda. Könnun þessi var allviða- miki) og náði til allra sem sóttu skólann áðurnefndan dag. Hún var gerð þannig að spurningalista með 10 krossa- spurningum var dreift til nemenda. begar nemendur höfðu svarað spurningunum voru þeir beðnir um að gefa upp í hvaða bekk (3., 4., 5. eða G. bekk) og hvaða deild (mála- cða stærðfræðideild) þeir væru. Með þessu móti fengust athyglisverðar upplýsingar um skoðanir ýmissa hópa nemenda. 597 úrlausnir komu til skila þegar frá höfðu verið talin sýnilega ómarktæk og óútfyllt blöð. Yfirleitt var svarað án útúrsnúninga. Af ýmsum óviðráðanlegum orsökum, sem ekki verða ^ilgreindar hér, hefur dregist úr hömlu að birta niðurstöður könnunarinnar. Hins vegar hefur mikil vinna verið lögð í úrvinrislu hennar. Þykir okkur því rétt að birta niðurstöð- urnar nú. Aður en lengra er haldið er hyggilegt að líta á þátttöku nemenda í könnuninni. Þeir sem Fjöldi svöruðu nemenda könnuninni: 6. bekkur: 132 nem. 90 nem. eða 68,2% 5. bekkur: 159 nem. 130 nem. eða 81,8% 4. bekkur: 184 nem. 170 nem. eða 92,4% 3. bekkur: 246 nem. 207 nem. eða 84,2% Samtals: 721 nem. 597 nem. eða 82,8% Þetta atriði var einnig athugað frá annarri hlið: Þeir sem Fjöldi svöruðu nemenda: könnuninni: Máladeild: 163 nem. 122 nem. eða 74,8% Stærðfrd.: 312 nem. 268 nem. eða 85,9% Að þessum tölum fengnum liggur beinast við að líta á spurningarnar í réttri röð. 1. spurning: Hefur þú myndað þér einhverjar stjórnmála- skoðanir? Niðurstöður: Heildarniðurstaða varð: Já: 492 nemendur eða 82,4% Nei: 105 nemendur eða 17,6% Ennfremur kemur í ljós við frekari athugun: 3. bekkur: 4. bekkur: 5. bekkur: 6. bekkur: Já: 77,8% 80,6% 87,7% 88,9% Nei: 22,2% 19,4% 12,3% 11,1% 2. spurning: (Beint framhald af fyrstu spurningu). Ef svo er, telur þú þig. (a) „Vinstrisinnaða(n)“, (b) „hægrisinnaða(n)“, (c) bil beggja. Niðurstöður: Heildarniðurstaða varð: 176 nem. töldu sig vinstrisinnaða eða 36,8% 180 nem. töldu sig hægrisinnaða eða 37,7% 122 nem. töldu sig fara bil beggja eða 25,5% Frekari skipting leiðir í ljós: Vinstrisinnaðir: Hægrisinnaðir: Bil beggja: 3. bekkur: 28,6% 45,8% 25,6% 4. bekkur: 37,5% 36,0% 26,5% 5. bekkur: 38,7% 35,1% 26,2% 6. bekkur: 48,7% 26,3% 25,0% Vinstrisinnaðir: Hægrisinnaðir: Bil beggja: Máladeild: 40,2% 36,3% 23,5% Stærðfrd.: 41,1% 32,4% 26,5% Greinilegt er að afstaða eldri nemenda er allt önnur en afstaða yngri nemenda. Yngri nemendur eru hægrisinnaðri en hinir eldri (sjá mynd). Hins vegar helst „bil beggja" nokkuð svipað í öllum árgöngum. 3. spurning: Hvert eftirfarandi hugmyndakerfa sættir þú þig helst við? (a) Frjálst markaðskerfi, (b) jafnaðarstefnu, (c) kommúnisma, (d) sósíalisma, (e) stjórnleysi, (f) þjóðernisstefnu, (g) annað (nemendur völdu). Niðurstöður: Heildarniðurstaðan varð: 166 nem. sættu sig helst við frjálst markaðskerfi eða 37,1% 96 nem. sættu sig helst við jafnaðarstefnu eða 21,5% 28 nem. sættu sig helst við kommúnisma eða 6,3% 86 nem. sættu sig helst við sósíalisma eða 19,2% 19 nem. sættu sig helst við stjórnleysi 27 nem. sættu sig helst við þjóðernisstefnu 25 nem. sættu sig helst við ekkert ofangr. Skipting milli bekkja: eða 4,2% eða 6,0% eða 5,6% (sjá mynd). 3. bekkur: 4. bekkur: 5. bekkur: 6. bckkur: Frjálst markaðskerfi: 42,8% 37,1% 30,1% 36,5% Jafnaðarstefna: 23,9% 19,7% 23,3% 17,6% Kommúnismi: 5,8% 5,3% 5,8% 9,5% Sósíalismi: 12,3% 22,0% 21,4% 24,3% Stjórnleysi: 2,9% 3,8% 7,8% 2,7% Þjóðernisstefna: 5,1% 6,8% 6,8% 5,4% Annað: 7,2% 5,3% 4,8% 4,0% Skipting milli deilda: Máladeild: Stærðfræðideild: Frjálst markaðskerfi: 32,6% 35,5% Jafnðarstefna: 22,5% 19,6% Kommúnismi: 6,7% 6,4% Sósíalismi: 23,6% 21,8% Stjórnleysi: 3,4% 5,4% Þjóðernisstefna: 7,9% 5,9% Annað: 3,4% 5,4% Eftirtektarvert er hversu lítið fylgi kommúnismi hefur en frjálst markaðskerfi mikið að sama skapi. 150 nemendur svöruðu þessari spurningu ekki. Þau voru aðallega 3. bekkingar en margir þeirra virðast ekki hafa gert sér fulla grein fyrir hugtökum þessum. Flestir þeir sem merktu við g, sætti sig helst við einræði í einni eða annarri mynd. 4. spurning: Ertu fylgjandi lækkuðum kosningaaldri? Niðurstöður: Heildarniðurstaða varð: Já: 184 nem. eða32,l% Nei: 316 nem. eða 55,2% Óákveðnir: 73 nem. eða 12,7% Ef aðeins eru teknir þeir sem tóku afstöðu: Já: 36,8% Nei: 63,2% Frekari athugun leiðir í ljós: 3. bekkur 4. bekkur: Já: 26,7% 38,6% Nei: 58,9% 48,7% Óákveðnir: 14,4% 12,7% Já: Nei: Máladeild: 39,7% 50,0% Stærðfrd.: 32,9% 54,5% 5. bekkur: 6. bekkur: 30,2% 35,7% 55,8% 57,1% 14,0% 7,1% Óákveðnir: 10,3% 12,6% Mikið hefur verið rætt um lækkun kosningaaldurs að undanförnu og er því vert að gefa niðurstöðum þessarar spurningar nokkurn gaum. Oft hefur verið haldið fram að ungt fólk væri fylgjandi lækkuðum kosningaaldri en niðurstöður benda ekki til að það eigi við um nemendur Menntaskólans í Reykjavík. 5. spurning: Hefðir þú haft kosningarétt við síðustu alþingiskosningar, hvaða stjórnmálasamtök hefðir þú þá kosið? (a) Alþýðubandalagið (G-lista), (b) Alþýðuflokkinn (A-lista), (c) engin, (d) Framsóknarflokkinn (B-lista), (e) Fylkinguna (R-lista), (f) Kommúnistaflokkinn (K-lista), (g) Samtök frjálslyndra og vinstrimanna (F-lista), (h) Sjálf- stæðisflokkinn (D-lista), (i) Stjórnmálaflokkinn (S-lista). Niðurstöður: Heildarniðurstaða varð: 121 nem. hefði stutt A-lista eða 22,0% 15 nem. hefðu stutt B-lista eða 2,7% 150 nem. hefðu stutt D-lista eða 27,3% 4 nem. hefðu stutt F-lista eða 0,7% 128 nem. hefðu stutt G-lista eða 23,3% 2 nem. hefðu stutt K-lista eða 0,4% 9 nem. hefðu stutt R-lista eða 1,6% 5 nem. hefðu stutt S-lista eða 0,9% 115 nem. hefðu ekki kosið eða 21,0% Ef flokkarnir eru eingöngu teknir: A-listi: 27,9% D-listi: 34,6% G-listi: 29,5% R-listi: 2,1% B-listi: 3,4% F-listi: 0,9% K-listi: 0,5% S-listi: 1,1% (sjá mynd) Eru með kýr fyrir heimilið — ekki ann- ar búskapur í vetur — Spjallað við Stefán Hall- dórsson á Brú í Jökuldal — ÞETTA er nú heldur lítill búskapur hjá okkur og róleg- heit yfir öllu, sagði Stefán Halldórsson á Brú í Jökuldal er Morgunblaðsmenn slógu á þráðinn til hans í gærmorgun. Ailt fé á bæjunum tveimur á Brú var skorið niður í haust vegna riðuveiki og verður fjár- iaust á hæjunum þennan vetur og þann næsta. Frá Brú var siátrað á milli 7 — 800 fjár síðastliðið haust. — Hjá okkur er engin kind í húsunum, sem standa auð, sagði Stefán. —Við erum með kýr til nota fyrir heimilið og nokkra kálfa að auki. Um annan búskap er ekki að ræða hér í vetur. Langt er að fara til að stunda aðra vinnu svo það er heldur lítið um að vera hjá okkur. Það væri frekar að menn fengju sér einhverja vinnu þegar fer að vora og næsta sumar og ég tel víst að svo verði. Aðspurður um bætur vegna niðurskurðarins sagði Stefán, að næsta haust fengju þeir afurða- tjónsbætur, 75% af lambs- verðinu , eins og það var síðasta haust. Til að kaupa nýjan stofn haustið 1980 fá þeir ekki fjár- magn frá hinu opinbera heldur eiga þeir að nota það fé sem fékkst fyrir féð, sem skorið var niður í haust í fjárkaupin. Sagði Stefán að það fé hrykki skammt til að koma upp nýjum stofni, verðbólga og verðhækkanir hefðu þar sín áhrif, en ekki kæmu sérstakar bætur fyrir ærnar, sem slátrað var í haust. Stefán sagði að færð hefði verið einstök í Jökuldalnum í vetur og bílfært væri um héraðið. Þá þykja það merk tíðindi eystra að enn hefur ekki þurft að moka vegi vegna snjóa á vetrinum. Leiðrétting í FRÉTT á viðskiptasíðu Mbl. síðastliðinn laugardag um út- flutning á kindakjöti er prent- villa og talan 100 hefur fyrir mistök orðið 1000. Það er í 5ta dálki á bls. 34, sem setning hefur brenglast og rétt er málsgreinin svohljóðandi: „Það varð á endan- um fyrir milligöngu Fram- leiðsluráðs landbúnaðarins, að 100 tonn fengust hjá S.S. svo hægt væri að selja nýja kaup- andanum í Danmörku, því S.Í.S. neitaði að selja honum.“ JASÍMINN ER: 22480

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.