Morgunblaðið - 30.01.1979, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1979
3
Loðnuveiði
hafin á ný
eftir fimm
daga brælu
ALLGÓÐUR loðnuafli var í gær-
morgun og í gærkvöldi eftir
brælu á miðunum í 5 sólarhringa.
Seinni partinn í fyrrinótt slotaði
á miðunum og skipin fundu loðnu
út af Dalatanga. Frá því í gær-
morgun og til klukkan 23 í
gærkvöldi tilkynntu eftirtalin
skjp um afla til loðnunefndar:
Örn 430, Kap II 670, Bergur
200, Súlan 630, Ljósfari 370,
Hilmir 460, Magnús 400, Pétur
Jónsson 500, og Náttfari 430
lestir.
Samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið fékk hjá loðnunefnd
í gærkvöldi var nær allur flotinn
að veiðum og veður var allgott.
Hinsvegar var spáð versnandi
veðri þannig að ekki var vitað hve
lengi bátarnir gætu verið að.
Air Bahama:
Kostur á auknu
flugi fyrir
Air India eða
Nígeria Airways
AIR BAHAMA er um þessar
mundir með í athugun tvo kosti
um leiguflug á DC-8 þotu, annars
vegar fyrir Air India og hins
vegar fyrir Flugfélag Nígeríu.
Air Bahama hefur nú tvær DC-8
vélar í gangi og er önnur leiguflug-
vél í vöruflutningum fyrir Air
India á flugleiðinni London-Bomb-
ay og þaðan til ýmissa staða í
Asíu. Nú á Air Bahama kost á
samstarfi um rekstur annarrar
slíkrar DC-8 vélar á sömu flugleið
fyrir Air India, en jafnframt er
verið að kanna möguleika á leigu-
flugi í vöruflutningum fyrir
Nigeria Airways á flugleiðinni
Kano-Lyn í Frakklandi með bíla-
varahluti. Ef af öðru hvoru þessu
flugi verður þarf að leigja DC-8 í
starfið, en ráðagerðir voru um það
í haust að áttan, sem fórst í Sri
Lanka, færi í þessi verkefni. Ef af
þessu leiguflugi verður þarf að
ráða 6 nýja flugstjóra hjá Air
Bahama og jafn marga aðstoðar-
flugmenn.
Alfreð Elíasson:
Nóg komið
af deilum og
ásökunum
„Ástæða þess að ég skriíaði
ekki undir yfirlýsingu stjórnar
Flugleiða er sú, að mér finnst nóg
komið af deilum og ásökunum í
þessu máli, en að öðru leyti vil ég
ckki ræða þetta mál opin-
berlega,“ sagði Alfreð Elíasson í
samtali við Morgunblaðið f gær
er hann var spurður um ástæður
þess að hann skrifaöi ekki undir
yfirlýsingu stjórnar Flugleiða
h.f. þann 25. janúar síðast liðinn.
Víkingar úr leik
í GÆRDAG barst handknatt-
leiksdeild Víkings skeyti þess
efnis frá framkvæmdanefnd IIIF,
að úrskurður lægi nú fyrir í
áfrýjunarmáli þeirra. Var liðið
dæmt frá bikarkeppni Evrópu f
handknattleik þetta keppnistíma-
bil. Sjá nánar á forsíðu fþrótta-
blaðs.
TORGSINS
IÐNAÐARMANNAHÚSINU
HALLVEIGARSTÍG Jj
hófst í morgun
Barna-
fatnaður
• Gallabuxur
• Peysur
• Úlpur
• Skyrtur
Kven-
fatnaður
• Kápur
• Pils
• Peysur
• Blússur
• Kjólar
• Síöbuxur
• Nærföt
Herra-
fatnaður
• Skyrtur
• Skinnjakkar
• Terelynebuxur
• Gallabuxur
Skó-
fatnaður
• Vinnuskór
• Inniskór
• Stígvél
• Kuldaskór
Metravara
• Gluggatjöld
• Denim
• Rifflaö flauel
• Flónel
• Ullarteppi
Iðnaöarmannahúsinu
F / # / / i m mm
i .1 i i 'mi,, .a.