Morgunblaðið - 30.01.1979, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1979
Ogri aflahæstur tog
aranna á síðasta ári
Drengirnir komnir heim með Bakkafossi:
Ætludu ad gerast
bændur í Texas
Piltarnir tveir, sem tóku sér
far með Bakkafossi til Bandaríkj-
anna í janúarbyrjun, komu heim
aftur um ki. 22 á sunnudagskvöld
með sama skipi. Ekki höfðu
drengirnir erindi sem erfiði út úr
ferðinni, því að þeir voru sjóveik-
ir og gátu lítið sem ekkert borð-
að. Drengirnir, sem heita Ingvi
Sævar Ingvason og Karl Jóhann
Norman og eru 14 og 15 ára
gamlir fengu þær móttökur þeg-
ar þeir komu til hafnar að
Iögreglulið umkringdi klefa
þeirra í skipinu þar sem þeir voru
læstir inni og voru þeir fluttir í
lögreglubíl til yfirheyrslu. Mæð-
ur þeirra urðu að fylgjast með á
bryggjunni.
„Þetta eru ósköp góðir strákar,"
sagði móðir annars þeirra í sam-
tali við Mbl. í gær, „og þeir hafa
orðið að treysta talsvert á sjálfa
sig. Það, sem þeir gerðu, reynir
enginn að réttlæta, en ég skil ekki
hvers vegna það þurfti að taka á
móti þeim eins og stórglæpamönn-
um. Aðalatriðið er þó að þeir eru
komnir heim heilir á húfi og voru
sjálfir þeirri stundu fegnastir."
Áform þeirra í upphafi ferðar-
innar var að fara til Texas í
Bandaríkjunum og gerast bændur
og að sögn þeirra eftir heimkom-
una kváðust þeir hafa ætlað að
bjóða vinum og vandamönnum á
bú sín eftir nokkur ár.
ÖGRI RE 72 var aflahæst-
ur skuttogaranna á síðasta
ári, en skipið fékk þá 4670
lestir. Af minni skuttogur-
unum var Guðbjörg frá
ísafirði aflahæst með 4626
lestir, en af minni skut-
togurunum voru Vest-
fjarðatogararnir í sér-
flokki. Brúttóandvirði þess
afla, sem Ögri aflaði á
síðasta ári nam 630
milljónum króna.
Ef litið er á afla.stóru togaranna
á almanaksárinu 1978 þá var afli
Ögra 4670 lestir eins og áður sagði.
Harðbakur EA 303 var með 4529
lestir, Bjarni Benediktsson RE 210
með 4449 tonn og Kaldbakur EA
301 með 4441 lest samkvæmt upp-
lýsingum Fiskifélags íslands í
gær. 14 stórir skuttógarar, þ.e. yfir
500 tonn, voru gerðir út á síðasta
ári.
Eins og áður sagði voru Vest-
fjarðatogararnir í sérflokki minni
skuttogaranna á síðasta ári. Guð-
björgin var með 4626 lestir í 42
löndunum. Bessi frá Súðavík var
með 4255 lestir í 46 löndunum.
Áður hefur verið greint frá afla
Vestfjarðatogaranna á síðasta ári,
en aflahæstur annarra skuttogara
af minni gerðinni var Haraldur
Böðvarsson frá Akranesi með 3991
lest.
Af Austfjarðatogurunum var
Kambaröst frá Stöðvarfirði með
mestan afla á síðasta ári, 3156
lestir.
Innbrot og skemmd-
ir á Patreksfirði
Patreksfirði, 29. janúar
BROTIST var inn í Hraðfrysti-
húsið Skjöid á Patreksfirði að-
fararnótt laugardagsins og
miklar skemmdir unnar.
Meðal annars var rafmagns-
tafla hússins stórskemmd, rúður
brotnar í verkstjórasal og fleira.
Um eitt hundrað manns varð frá
að hverfa er það kom til vinnu á
laugardagsmorguninn, vegna
þess að rafmagnslaust var i
húsinu.
Tjónið er metið á eina og hálfa
til tvær milljónir króna, en málið
er enn óupplýst.
- Páll.
Ekki bara okkar stolt. .
heldur líka þitt.
' Þegar þú býður gestum þínum í Þingholt.
Leitaðu upplýsinga hjá okkur, nœst þegar þú þarft á
húsnœði að halda fyrir brúðkaup, fermingu,
árshátíð eða hverskonar mannfagnað. Síminn er 2 10 50.
BERGSTAÐASTRÆTI 37
SfMI 21011
|l
c>
Kaupstefnan hf. kynnir nœstu sýningu
ALÞJÓÐLEG
VÓRUSÝNING
INTERNATIONAL
FAIR =¥11979
verður haldin 1 Laugardalshöll,
Reykjavík, dagana 24. ágúst -9. september.
Almenn sýning — sérsýningar.
Auk sýningar á ýmsum vörutegundum sem ekki eru flokkaðar innan
ákveðinna takmarka, verður stofnað til sérsýninga á eftirgreindum sviðum:
ÚTVEGUR '79
FISHERIES 79
HEIMIUÐ '79 THE HOME 79 SKRIFSTOFUTÆKNI '79 OFFICE TECHNOLOGY 79 HEILSURÆKT '79 HEALTH & LEISURE 79
w? jJj
FATATISKA'79
FASHIONS 79
Útboðsgögn hafa verið send út til um 3000
aðila. Vegna mikillar eftirspurnar eftir
sýningarsvæði, eru þeir aðilar sem fengið
hafa gögn og hyggja á þátttöku, hvattir til
þessað leggjainn pantanirásýningarsvæði.
- Þeir sem ekki hafa fengið útboðsgögn
geta fengið þau send eða pantað strax.
Nú er nauðsyn á skjótum viðbrögðum.
— Missið ekki af tækifæri til að tala beint við
þriðjung þjóðarinnar — augliti til auglitis.
Útboðsgögn og allar frekari upplýsingar á
skrifstofunni Klapparstíg 25-27 og í síma 11517.
K
KAUPSTEFNAN
REYKJAVlK HF