Morgunblaðið - 30.01.1979, Síða 12
myndum og leikriti
I áþessuári ,
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1979
Hárgreiðslumeistarinn og dansarirm Ricky Villard:
Hef kunnaó vel við
mig hér á íslandi
Leikur í tveimur,
á Broadway
Victor
Russel
Villard nefnist
ungur New York-
búi sem hefur verið
staddur hér á landi
undanfarna daga og sýnt
dans af mikilli list í
veitingahúsinu Óðali.
Ricky, eins og hann
er kallaður, varð nefnilega
nr. 2 í heimsmeistarakeppn-
inni í diskótekdansi rétt
fyrir áramótin. Ricky varð
tvítugur s.l. sunnudag og
hélt því upp á afmæli sitt
hér á Islandi en Ricky er
senn á förum héðan til
Mexico þar sem hann sýnir
einnig dans.
„Mér finnst mjög gaman aö
dansa. Það er góð æfing fyrir
alla og líka sér maður svo
margt fólk skemmta sér og
það er reglulega ánægjulegt.
Það er gífurlega mikil sam-
keppni í dansheiminum nú en
vinni maður keppnir eru
verðlaunin líka mikil. Ég fór
til þess að taka þátt í keppn-
inni um Bandaríkjameistara-
titilinn aðeins til að sjá
hversu langt ég gæti náð.
Mér datt það alls ekki í hug
að ég myndi vinna, ég fór
bara með vini mínum að
gamni mínu. Keppnin stóð í
30 vikur. I undanúrslitunum
dansaði ég fyrsta
kvöldið og var valinn í
úrslitakeppnina
sem ég vann. Þetta var
geysilega spennandi en
kom mér líka
mikið á óvart."
Eftir sigurinn í
keppninni í Bandaríkjunum
og eftir velgengnina í heims-
meistarakeppninni í London
hefur Ricky lagt niður sína
fyrri atvinnu en hann er hár-
greiðslumeistari að mennt.
„Líf mitt hefur breyst mik-
ið síðan ég byrjaði að d^nsa.
Aður vann ég á hárgreiðslu-
stofu á daginn og var með
fjölskyldu minni og vinum er
ég átti frí. En ég hef alltaf
Myndir Emiiía haft gaman af því að dansa
og skemmtanaiðnaði yfir-
leitt. Smám saman hef ég
síðan færst inn í þann iðnað.
Nú kem ég rétt aðeins heim á
milli þess sem ég þýt á milli
landa til að sýna. Eg er
kannski 2—3 daga heima í
einu segi halló og bless, og
fólk er ekki einu sinni visst
um það hvort það hafi verið
ég eða einhver annar sem þar
var á ferð.
Stundum langar mig ákaf-
lega heim þegar ég er á
þessum ferðalögum. Mig
langar bara til að hætta og
fara heim. En þá birta blöðin
fréttir um að Ricky sé með
heimþrá og þá líður mér
virkilega illa.“
Ricky er eins og áður segir
á förum héðan frá Islandi
til Mexico. Seinna á árinu
leikur hann í tveimur
kvikmyndum sem
framleiddar verða í
Hollywood og einni í
leikriti á Broadway.
„Ég hef kunnað
vel við mig hér á
íslandi. Ég var svolítið
hræddur fyrst við að
koma hingað, ég vissi ekki
á hverju ég átti von en
allir hafa verið mjög
vingjarnlegir við mig og
ég hef eignast marga vini hér
í Reykjavík."
Er blaðamenn voru að tala
við Ricky gerði hann sér lítið
fyrir og klippti hár vinar síns
Mickie Gee sem nú vinnur að
því að setja heimsmet í plötu-
snúningi.
Um framtíðaráætlanir
sínar sagði Ricky:
„Áður en ég fer að leika í
myndunum og leikritinu ætla
ég að taka nokkra tíma í
danskennslu. Ég hef aldrei
lært neitt í sambandi við
dansinn fram að þessu.
Einnig stefni ég að því að
komast aftur í heims-
meistarakeppnina og ætla
líka að vinna hana þá,“ sagði
hann og brosti.
Að lokum tók Ricky nokkur
dansspor fyrir blaðamennina
og tók Emilía Björg
myndirnar.