Morgunblaðið - 30.01.1979, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1979
19
Listamannalaunum úthlutað:
Úthlutunarnefnd listamanna-
launa tilkynnti í gær hvaða lista-
menn hljóta í ár iaun þau, sem
ncfndin úthlutar. 164 menn menn
hljóta listamannalaun í ár fleiri
en nokkru sinni fyrr en í fyrra
hlutu þau 132 listamenn. Lista-
menn í hærri flokknum fá nú 300
þúsund krónur hver en 150 þús-
und fá þeir í lægri flokknum. í
fyrra voru launin 270 þúsund
krónur í hærri flokknum en 135 í
þeim lægri. Ú.thlutunarnefndin
hafði samtals 34 milljónir til
ráðstöfunar í ár f stað 27 millj-
óna á síðasta ári og sagði Helgi
Sæmundsson formaður nefndar-
innar að nefndarmenn hefðu
komið sér saman um að fjölga
heldur listamönnunum sem laun-
in hljóta í stað þess að hækka
upphæð launanna.
Listamenn sem í ár hljóta laun
samkvæmt efri flokknum eru 75 í
ár en voru 68 á síðasta ári. Þeir
sem fengu launin í fyrra voru allir
endurkjörnir utan tveggja sem
létust á síðasta ári. Níu listamenn
hafa því bæst við í efri flokknum:
Einar Bragi, Gunnar Dal, Gunnar
Eyjólfsson, Kristján Karlsson,
Rúrik Haraldsson, Sigfús Hall-
dórsson, Skúli Halldórsson, Stefán
Júlíusson og Vésteinn Lúðvíksson.
Einar Bragi Gunnar Dal
rithöfundur. rithöfundur.
Þrír þessara listamanna hafa ekki
hlotið laun áður, þeir Einar Bragi,
Gunnar Eyjólfsson og Kristján
Karlsson. Greidd voru atkvæði um
28 listamenn í þessi níu nýju sæti.
77 listamenn hljóta 150 þúsund
króna verðlaun í ár en 65 menn
hlutu laun samkvæmt lægri
flokknum á síðasta ári. 29 lista-
menn í þeim flokki hafa aldrei
fengið listamannalaun áður. Þau
eru: Ása Sólveig, Baltasar, Bjarni
Guðjónsson, Bjarni Jónsson frá
Gröf, Bjartmar Guðmundsson,
Egill Ólafsson, Garðar Cortes,
Gísli Sigurðsson, Guðjón Sveins-
son, Guðrún Svava Svavarsdóttir,
Gylfi Gröndal, Haukur Morthens,
sem nú hlýtur listamannalaun
fyrstur dægurlagasöngvara, Há-
kon Waage, Helgi Gíslason, Hjört-
ur Pálsson, Hólmfríður Pálsdóttir,
Jónas E. Svafár, Leifur Breiðfjörð,
Ólöf K. Harðardóttir, Páll P.
Pálsson, Sigríður Ólafsdóttir
Candi, Sigurður Örlygsson, Skgur-
veig Jónsdótir, Snorri Birgissón,
Steinþór Steingrímsson, Þorlákur
Haldorsen, Þorsteinn Gunnars-
son, Þórarinn Eldjárn og Þórhild-
ur Þorleifsdóttir. 48 listamenn
sem nú eru í lægri flokknum fengu
ekki listamannalaun í fyrra.
Greidd voru atkvæði um 183 menn
í þessum flokki en alls hlutu 70
menn atkvæði í kosningunum um
hverjir hljóta skuli listamanna-
launin en hlutu ekki laun í ár.
Úthlutunarnefndin hélt í gær
blaðamannafund þar sem skýrt
Guðnason, Sverrir Haraldsson,
Thor Vilhjálmsson, Tryggvi
Emilsson, Valtýr Pétursson, Vet-
urliði Gunnarsson, Vésteinn Lúð-
víksson, Þorkell Sigurbjörnsson,
Þorsteinn frá Harmi, Þorsteinn Ö.
Stephensen, Þórarinn Guðmunds-
son, Þórleifur Bjarnason, Þórodd-
ur Guðmundsson.
Úthlutunarnefnd listamannalaunanna. Talið frá vinstri: Magnús Þórðarson, Halldór Blöndal, dr.
Bragi Jósefsson, Helgi Sæmundsson, Halldór Kristjánsson og Árni Bergmann. Á myndina vantar
Vigdísi Finnbogadóttur. Ljósm. Emilía.
Fleiri hljóta nú laun
en nokkru sinni áður
150 þúsund krónur:
Alfreð Flóki, Árni Björnsson, Ása
Sólveig, Ási í Bæ, Baltasar, Birgir
Sigurðsson, Bjarni Guðjónsson,
Bjarni Jónson frá Gröf, Bjartmar
Guðmundsson, Björg Þorsteins-
dóttir, Böðvar Guðmundsson
Eggert Guðmundsson, Egill Ólafs-
son, Einar Baldvinsson, Einar
Hákonarson, Einar Þorláksson,
Eyþór Stefánsson, Fjölnir
Stefánsson, Garðar Cortes, Gestur
Guðfinnsson, Gísli Sigurðsson,
Gréta Sigfúsdóttir, Guðjón
Sveinsson, Guðlaugur Arason,
Guðmundur Elíasson, Guðrún
Svava Svavarsdóttir, Gunnar
Reynir Sveinsson, Gylfi Gröndal,
Hafsteinn Austmann, Halldór
Haraldsson, Hallsteinn Sigurðs-
son, Haraldur Guðbergsson,
Haukur Morthens, Hákon Waage,
Helgi Gíslason, Herdís Þorvalds-
dóttir, Hjörtur Pálsson, Hólmfríð-
ur Pálsdóttir, Hrafn Gunnlaugs-
son, Ingibjörg Björnsdóttir, Ingi-
mar Erlendur Sigurðsson, Jakob
var frá nöfnum launþeganna. í
nefndinni sitja Helgi Sæmunds-
son ritstjóri, formaður, Halldór
Kristjánsson frá Kirkjubóli, rit-
ari, Árni Bergmann, ritstjóri, dr.
Bragi Jósefsson námsráðgjafi,
Halldór Blöndal blaðmaður,
Magnús Þórðarson framkvæmda-
stjóri og Vigdís Finnbogadóttir
leikhússtjóri.
Á fundinum skýrði Helgi frá því
að úthlutunarnefndin hefði orðið
sammála um að beina áskorun tii
menntamálaráðherra og Alþingis
þess efnis að lögin um listamanna-
laun frá 17. apríl 1967 verði tekin
til endurskoðunar vegna breyttra
viðhorfa og til að sníða galla af
löggjöfinni.
Árni Bergmann sagði á fundin-
um að hann væri á móti þeirri
stefnu nefndarinnar að beita sér
fyrir fjölgun listamanna sem
launin hljóta í stað þess að hækka
launin. Sagðist hann hafa verið
því fylgjandi að launin í efri
flokknum hækkuðu úr 270 þúsund-
um í 340 þúsund krónur þótt það
hefði orðið til þess að enginn
listamaður hefði verið færður upp
í efri flokkinn.
Eftirtaldir menn hljóta lista-
mannalaun í ár:
Áður veitt af Alþingi
1000.000 krónur hver:
Ásmundur Sveinsson, Finnur
Jónsson, Guðmundur Daníelsson,
Guðmundur G. Hagalín, Halldór
Laxness, Indriði G. Þorsteinsson,
Kristmann Guðmundsson, María
Markan, Snorri Hjartarson, Tóm-
as Guðmundsson, Valur Gíslason,
Þorvaldur Skúlason.
Veitt af nefndinni 300
þúsund krónur
Ágnar Þórðarson, Atli Heimir
Sveinsson, Ágúst Petersen, Ár-
mann Kr. Einarsson, Árni Krist-
jánsson, Benedikt Gunnarsson,
Björn J. Blöndal, Björn Ólafsson,
Bragi Ásgeirsson, Einar Bragi,
Eiríkur Smith, Eyjólfur Eyfells,
Gísli Halldórsson, Guðbergur
Bergsson, Guðmunda Andrésdótt-
ir, Guðmundur L. Friðfinnsson,
Guðmundur Frímann, Guðmund-
ur Ingi Kristjánsson, Guðrún 'Á.
Símonar, Gunnar Dal, Gunnar
Eyjólfsson, Gunnar M. Magnúss,
Hallgrímur Helgason, Hannes
Pétursson, Hannes Sigfússon,
Heiðrekur Guðmundsson, Hringur
Jóhannesson, Jakobína Sigurðar-
dóttir, Jóhann Briem, Jóhann
Hjálmarsson, Jóhannes Geir,
Jóhannes Jóhannesson, Jón Ás-
geirsson, Jón Björnsson, Jón
Helgason, prófessor, Jón Helga-
son, ritstjóri, Jón Norðdal, Jón
Óskar, Jón Þórarinsson, Jón úr
Vör, Jórunn Viðar, Karl Kvaran,
Kristján Davíðsson, Kristján frá
Djúpalæk, Kristján Karlsson,
Leifur Þórarinsson, Matthías
Johannessen, Oddur Björnsson,
Ólafur Jóh. Sigurðsson, Olöf Páls-
dóttir, Pétur Friðrik, Róbert Arn-
finnsson, Rúrik Haraldsson,
Rögnvaldur Sigurjónsson, Sigfús
Halldórsson, Sigurður Sigurðsson,
Sigurjón Ólafsson, Skúli Halldórs-
son, Stefán Hörður Grímsson,
Stefán íslandi, Stefán Júlíusson,
Steinþór Sigurðsson, Svavar
Jónasson, Jóhannes Helgi, Jón
Dan, Jónas E. Svafár, Kjartan
Guðjónsson, Kristinn Hallsson,
Kristinn Pétursson, Kristinn
Reyr, Leifur Breiðfjörð, Magnús
Á. Árnason, Nína Björk Árnadótt-
ir, Ólafur Haukur Símonarsson,
Ólöf K. Harðardóttir, Páll P.
Pálsson, Pétur Gunnarsson,
Ragnar Kjartansson, Rut Ingólfs-
dóttir, Sigfús Daðson, Sigríður
Ella Magnúsdóttir, Sigríður Ólafs-
dóttir Candi, Sigurður Örlygsson,
Sigurveig Jónsdóttir, Snorri
Birgisson, Steinar Sigurjónsson,
Steinunn Sigurðardóttir, Steinþór
Steingrímsson, Vilhjálmur Bergs-
son, Þorgerður Ingólfsdóttir, Þor-
lákur Haldorsen, Þorsteinn
Gunnarsson, Þorsteinn Stefáns-
son, Þóra Júnsdóttir, Þórarinn
Eldjárn, Þórhildur Þorleifsdóttir,
Örlygur Sigurðsson.
„Viðurkenning fyrir dægurlagasönginn”
Haukur Morthens söngvari
fékk í gær fyrstur dægurlaga-
söngvara listamannalaun en
Haukur hefur sungið dægurlög f
um 35 ár. Morgunblaðið spjallaði
stuttlega við Hauk í gærkvöldi.
„Ég var fyrst að heyra það í
útvarpinu nú áðan að ég hefði
fengið iistamannalaun. Mér finnst
það viðurkenning fyrir dægur-
lagasönginn. Vissulega er það líka
viðurkenning fyrir sjálfan mig, en
ég hef aidrei ætlast til neins í
lífinu þannig að það snart mig
ekki mikið persónulega.
Ég hef alltaf litið á dægurlaga-
flutning sem spursmál um túlkun.
Það er spurning um það hvernig
lag eða ljóð er túlkað, ekki hvort
það er kallað dægurlag eða eitt-
hvað annað. Mér finnst danslag
vera eins og þjóðlag eða alþýðulag
og hvað annað.
Dægurlag er oft notað í
niðrandi merkingu um tónlist en
það að ég skuli hafa fengið lista-
mannalaun er vissulega viður-
kenning fyrir þessa tegund tón-
listar," sagði Haukur að lokum.
Sigfús Halldórsson
tónskáld.
Gunnar Eyjólfsson
leikari
Kristján Karisson
rithöfundur.
Rórik Haraldsson
leikari.
Skúli Halldórsson
tónskáld.
Stefán Júliusson
rithpfundur.
Vésteinn Lúóvfksson
rithöfundur.
Frá Félagi Loftleiðaflugmanna:
Athugasemd
Morgunblaðinu hefur borizt
cftirfarandi athugasemd frá Félagi
Loftleiðaflugmanna:
Örn Ó. Johnson aðalforstjóri
Flugleiða skrifar grein í Morgun-
blaðið síðastliðinn laugardag undir
fyrirsögninni: „Skylt er að hafa það
heldur er sannara reynist". Sitthvað
er þó missagt í fræðum aðalforstjór-
ans, og í ljósi fyrirsagnar greinar
hans vill stjórn Félags Loftleiða-
flugmanna aðeins benda á eftirtalin
atriði.
1) Varðandi fyrirhugaða nafna-
breytingu félagsins liggur ljóst fyrir
að bæði innlendu nöfnin verða lögð
niður, og upptekið nafnið Flugleiðir.
Hvað erlendu nöfnin áhærir verður
hið erlenda nafn Loftleiða lagt
niður, en upptekið hið erlenda nafn
Flugfélags Islands, og nafn Loft-
leiða þar með þurrkað út. Þessum
staðreyndum fær forstjórinn ekki
haggað. Þær eru það sem sannara
reynist varðandi þennan lið málsins.
2) Á aðalfundi Flugleiða 1978 var
gerð samþykkt um að sameina allan
flugrekstur félaganna tveggja. Um
það mál voru mjög skiptar skoðanir,
enda slík sameining í andstöðu við
þær forsendur er fyrir lágu, er ríkið
beitti sér fyrir sameiningunni. Þá
var skýrt tekið fram, að félögin ættu
hvort um sig að halda sínu nafni og
flugreksturinn að vera aðskilinn. Á
aðalfundinum lýsti forstjórinn yfir
að stjórnin mundi sameina flug-
reksturinn hvort sem hlutháfar
samþykktu eða ekki. Hluthafar
samþykktu með naumum meirihluta
að sameina flugreksturinn, sú sam-
þykkt náðist þannig fram að hluta-
bréf ríkisins í Flugleiðum voru
notuð til að knýja hana fram. Ðeila
má um hvort slíkt séu bolabrögð.
Allavega voru það mjög óeðlileg
vinnubrögð og umdeilanleg, að ekki
sé sterkara að orði kveðið.
3) I yfirlýsingu okkar frá 12.
desember sl. vitnuðum við til um-
mæla Arnar Ó. Johnson er hann
viðhafði við komu fyrstu Fokker
Friendship flugvélar Flugfélags ís-
lands. Tilvísun til þeirra ummæla
getur á engan hátt talist aðdróttun.
Aðalforstjóri Flugleiða verður eins
og aðrir menn að standa ábyrgur
orða sinna, undan því getur hann
ekki skotið sér, þótt hann ef til vill
kysi nú að þau orð sem hann mælti
við þetta tækifæri hefðu aldrei verið
sögð, þá fær hann því ekki breytt nú.
Hér var því ekki verið að drótta einu
eða neinu að einum eða neinum,
heldur aðeins vitnað til ummæla,
sem vöktu mikla athygli á sínum
tíma og var rækilega getið í fjöl-
miðlum.
Félag Loftleiðaflugmanna á ekki í
neinum deilum við stjórn Flugleiða.
Við munum standa við gerða samn-
inga um gerð sameiginlegs starfs-
aldurslista, og minnum á að í því
máli hefur ekki strandað á okkur.
Við minnum ennfremur á að í
desember sl. náðu fulltrúar beggja
flugmannafélaganna samstöðu um
hvernig vinna skyldi að gerð sam-
eiginlegs starfsaldurslista. Þar er
við aðra en okkur að sakast um
hvernig nú er komið.
í sama tölublaði Morgunblaðsins
og grein aðalforstjórans birtist er á
baksíðu frétt um víðtækar verkfalls-
aðgerðir flugmanna Flugfélags Is-
lands. Að beim víkur forstiórinn
ekki einu orði og væri þó ærin
ástæða til, þegar það til dæmis er
haft í huga að nú er helmingur
flugmanna er fljúga á áætlunarleið-
um félagsins að krefjast þéss að fá
einkaleyfi til flugs á öllum nýjum
leiðum, sem félagið kann að hefja
flug á í framtíðinni.
í fullri vinsemd viljum við að
lokum benda aðalforstjóra Flugleiða
á að beina nú spjótum sínum að
þeim semþeim sem hann á í alvar-
legum deilum við og sem stofna
framtíðaratvinnuöryggi allra
starfsmanna Flugleiða í verulega
hættu, og láta vera að troða illsakir
við Félag Loftleiðaflugmanna, sem
eins og áður sagði á ekki í neinum
deilum við stjórn Flugleiða. Við
látum að síðustu þær vonir í ljós, að
þær deilur, sem forstjórinn á nú í
við þá, sem hann á fundum með
okkur hefur stundum nefnt „sína
menn“, valdi ekki félaginu óbætan-
legu tióni.