Morgunblaðið - 30.01.1979, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1979
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Ritstjórn og afgreiósla
Auglýsingar
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson.
Björn Jóhannsson.
Baldvin Jónsson
Aóalstræti 6, sími 10100.
Aöalstræti 6, sími 22480.
Áskriftargjald 2500.00 kr. á mánuði innanlands.
I lausasölu 125 kr. eintakið.
Ný aðferð við
fölsun vísitölunnar
Þx egar sólstöðusamningarnir voru gerðir lýsti ríkis-
* stjórnin því yfir, að verðhækkanir opinberrar
þjónustu kæmu ekki til framkvæmda nema síðustu 10 daga
fyrir útreikning verðbótavísitölu, þannig að launafólk
þyrfti ekki að bera hækkanir lengi bótalaust. Samtök
launafólks töldu þessa yfirlýsingu mikla réttarbót og hafa
lagt áherzlu á, að við hana sé staðið.
I sambandi við efnahagsvandann 1. marz hefur það
sjónarmið komið fram innan stjórnarflokkanna að draga
þær hækkanir á opinberri þjónustu, sem nú liggur fyrir
beiðni um, fram yfir 31. janúar. Þannig yrði hjá því
komizt, að þær yrðu reiknaðar inn í verðbótavísitöluna 1.
marz.
Fróðlegt verður að fylgjast með framvindu þessara
mála.
Eins og nú horfir bendir margt til, að ríkisstjórnin, sem
komst að völdum með loforðinu um „samningana í gildi"
muni nú enn á ný sýna raunverulegan hug sinn til
launþega með nýrri gerð vísitölufalsana. Og ef marka má
reynsluna munu verkalýðsforingjar Alþýðubandalagsins
leggja blessun sína yfir það.
Minnismerki
yfir ríkisafskiptin?
Eins og fram kemur í viðtali við Sverri Hermannsson
alþingismann í Þjóðviljanum sl. laugardag voru það
ráðherrarnir Steingrímur Hermannsson, Ragnar Arnalds,
Benedikt Gröndal og Tómas Árnason m.a., sem tóku
ákvörðun um lóð fyrir hús Framkvæmdastofnunarinnar,
teikningar og byggingu.
Þegar opinber stjórnsýsla er komin úr böndum, er
nauðsynlegt að stinga við fæti og athuga, hvar hægt er að
spara fé skattgreiðenda. Það gæti leitt til þess að ýmsir
þeirra, sem nú eru bókstaflega þjóðnýttir af ríkinu, gætu
um frjálst höfuð strokið. En ráðamenn virðast hafa lítinn
skilning eða áhuga á því.
Bygging Framkvæmdastofnunar ríkisins er t.d. ekki með
brýnustu verkefnum hér á landi. Slíkar byggingar geta
beðið, a.m.k. þangað til okkur vantar talandi minnismerki
yfir „alþýðulýðveldið". En þangað til eigum við að
leiða hugann að brýnni verkefnum.
Flugleiðir fái starfsfrið
Samgöngur eru eyþjóð, sem jafn háð er utanríkisvið-
skiptum og við Islendingar, hornsteinn velferðar.
íslenzkt framtak, bæði á sviði sjó- og loftsamgangna, hefur
unnið þrekvirki á síðustu áratugum, sem þjóðinni er
ómetanlegt og styrkt hefur stöðu hennar meðal sjálf-
stæðra þjóða.
Mbl. vekur athygli á nýlegri samþykkt stjórnar
Starfsmannafélags Flugleiða, þar sem m.a. er lögð áherzla
á eftirfarandi. „Sameining Loftleiða og Flugfélags íslands
er orðinn hlutur og vinna þarf heilshugar að framgangi
Flugleiða hf., bæði í nútíð og framtíð. Deilur örfárra
manna, innan þessa starfssviðs, eru ógnun við lífsafkomu
allra starfsmanna Flugleiða hf. Af þessum sökum skorar
Starfsmannafélag Flugleiða á alla deiluaðila að setjast nú
þegar að samningaborði, með það eitt í huga, að setja niður
deilur, svo hinn almenni starfsmaður Flugleiða hf. fái frið
til að sinna störfum sínum til framgangs íslenzkum
flugmálum."
Mbl. tekur undir þessa samþykkt og telur sig þar tala
fyrir munn þorra þjóðarinnar.
Teng Hsiao-ping og kona hans Zhou Lin við komuna til Andrewsflugstöðvarinnar í Maryland.
Teng vill að Banda-
ríkin, Kína og Japan
sameinist gegn Sovét
WashinKton, 29. janúar AP
í VIÐTALI, sem birtist í dag í bandaríska
vikuritinu Time, segir Teng Hsiao Ping, varafor-
sætisráðherra Kína, að fari svo að Taiwan
sameinist Kína sé ekkert því til fyrirstöðu að
Taiwan hafi eftir sem áður nokkurt herlið á eigin
vegum og að efnahagslífið lúti áfram frjálsu
markaðskcrfi.
í víðtalihu leggur Teng áherzlu á að komið verði
á bandalagi milli Kínverja, Japana og Bandaríkja-
manna, „til að stemma stigu við áhrifavaldi
bjarnarins“, þ.e. Sovétríkjanna, um leið og hann
segir að í Sovétríkjunum sé gróðrarstía fyrir
styrjaldarátök.
Teng segist gera sér vonir um að Kína og Taiwan
geti sameinazt innan árs, en kveðst þó gera sér
ljóst að þetta kunni að vera of mikil bjartsýni.
Hann er enn sem fyrr andvígur vopnasölu Banda-
ríkjanna til Taiwan og segir ástæðuna einkum þá,
að slík viðskipti verði ekki til að greiða fyrir
viðræðum um sameiningu.
í viðtalinu er minnzt á nýja SALT-samninginn
milli Bandaríkjanna og Sovétríkjanna. Teng kveðst
sannfærður um að Sovétmönnum sé ekki treyst-
andi til að standa við slíkan samning, enda sé
útilokað að fylgjast með því að þeir haldi ákvæði
hans. Bendir Teng á, að þrátt fyrir fyrri samninga
af þessu tagi gé það staðreynd, að Sovétmenn hafi
sífellt sótt á, með þeim afleiðingum að þeir standi
nú svo að segja jafnfætis Bandaríkjunum á sviði
hernaðar. „Helzta einkennið á Sovétmönnum er
það að þeir kúga ávallt þá, sem eiga í vök að
verjast, en lúta í lægra haldi fyrir þeim, sem eru
öflugri. Annað einkenni er það að þeir sleppa engu
tækifæri. Ef alvara er með að stemma stigu við
áhrifavaldi bjarnarins þá er eina raunhæfa leiðin
að við sameinumst. Ef við ætlum einungis að
treysta á styrk Bandaríkjanna, þá hrekkur hann
ekki til. Ef við ætlum einungis að treysta á styrk
Evrópu, þá hrekkur hann heldur ekki til.“
Loks segir Teng, að enda þótt ljóst sé að af
ríkjum heims þá séu það ekki nema Sovétríkin og
Bandaríkin, sem talizt geti stórveldi, þá séu
Kínverjar þeirrar skoðunar að styrjaldarhættan
stafi frá Sovétríkjunum en ekki Bandaríkjunum.
Ekki hafi önnur ríki bolmagn til að reka raunveru-
lega heimsvaldastefnu nú um stundir en Sovétríkin
og Bandaríkin, og það hafi verið skoðun Kínverja
frá upphafi þessa áratugar, að Bandaríkin séu
stöðugt að hernaðarlegu undanhaldi.
Börkur með mestan afla:
100 þúsund lestum af
loðnu landað á 11 stöðum
AFLASKIPIÐ Börkur írá Nes-
kaupstað kom á síðasta ári með
meiri afla að landi en nokkurt
annað íslenzkt skip. Áhöfnin á
Berki hefur nú tekið þráðinn upp
að nýju þar sem frá var horfið í
desember er loðnubannið tók
gildi.
Síðastliðið laugardagskvöld
hafði Börkur fengið 3870 lestir af
loðnu, en þá hafði 51 skip tilkynnt
um afla á loðnuvertíðinni, samtals
99.604 lestir. Skipstjórar á Berki
eru þeir Sigurjón Valdimarsson og
Magni Kristjánsson.
Aflahæstu skipin í lok síðustu
viku voru:
Börkur NK 122 ..................3870
Bjami Ólafsson AK 70 ...........3775
Hrafn GK 12 ....................3649
Sigurður RE 4 ..................3474
Gfeli Árni RE 375 ..............3306
Pétur Jónsson RE 69 ............3305
Súlan EA 300 ...................3288
Magnús NK 72 ...................3051
Vfkingur AK 100 ................3034
Vikuaflinn í síðustu viku var
samtals 41.135 lestir. Heildarafl-
inn er nú rétt innan við 100 þúsund
tonn eins og áður sagði, en á sama
tíma í fyrra var heildaraflinn
orðinri 46.793 lestir og þá höfðu 49
skip fengið einhvern afla sam-
kvæmt upplýsingum Fiskifélags
íslands. Loðnu hefur verið landað
á 11 stöðum á landinu, mest hefur
verið landað í Siglufirði, samtals
22836 lestum, 16598 lestum á
Seyðisfirði, 13895 á Raufarhöfn,
12376 á Eskifirði og 12214 lestum á
Vopnafirði.