Morgunblaðið - 30.01.1979, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1979
21
Formadur H.S.Í.:
Gæti skaðaðnor-
ræna samvinnu
— ÞAÐ er hætt viö aö þessi úrskurður skaði samvinnu okkar við
hina Norðurlandaþjóðirnar á handknattleikssviðinu, sagðl
formaður HSÍ, þegar Mbl. ræddi við hann í gærkvöldi um úrskurð
þann sem framkvæmdarnefnd IHF hefur kveðið upp, um að
Vfkingar séu dæmdir frá bikarkeppni Evrópu í handknattleik, &
þessu keppnistímabili.
— Frændur okkar á Norðurlöndum hafa lagt stein í götu
Víkinga, og þetta er mikið áfall fyrir íslenskan handknattleik,
sagði Júlíus Hafstein. — Ég harma þessa ákvörðum, málsmeðferð
alla, svo og þann mikla drátt sem varð á að kveða upp úrskurðinn.
Stjórn HSI hefur staðið við hlið Vfkinga f málinu og mun gera það
áfram. — Ég mun leggja til að málið verði tekið fyrir á
Norðurlandaþinginu sem fram fer í umsjá HSÍ í maí. — öll
málsmeðferð er í hæsta máta óvenjuleg, að ekki sé meira sagt.
— Það er fyrst og fremst í höndum Víkinga hvert framhald
verður á þcssu máli, og hvaða óskir þeir kunna að koma með
varðandi okkar hlut í málinu, sagði Júlfus að lokum.
þr.
Ámi þjálfar
skídafólkid
í nýlcgu tölublaði fslendings
á Akureyri, er frá því greint,
að hihn kunni skfðakappi Árni
Óðinsson hafi verið ráðinn yfir-
þjálfari hjá Skíðaráði Akureyr-
ar í vetur.
Skv. íslendingi, mun Árni
hafa umsjón með þjálfun allra
ílokka, fyrst um sinn a.m.k.
Hugsanlegt sé, að Lena nokkur
Sollander frá Svfþjóð sjái um
elsta flokkinn síðar. Beðið er
eftir ákveðnu svari frá henni
um það mál. Lena þessi hefur
Helvetía Cup:
Tap og sigur
ÍSLENSKA landsiiðið f badminton, sem tekur þátt f hinu tveggja
daga langa „Helvetia Cup“, B-keppni landsliða Evrópu, þessa
dagana stóð sig vel fyrri keppnisdaginn, einn landsleik, en tapaði
öðrum. Áður höfðu íslendingarnir unnið frækilegan sigur á
landsliði Portúgals í æfingamóti fyrir keppnina.
fslcnska liðið lék í tvískiptum 5 liða riðli. Var fsland í 3.
hlutanum og lék fyrst við Svisslendinga, sem sigruðu landann
5—2. Síðan léku fslendingar og Frakkar og vann þar fslenska
liðið góöan sigur, 5—2.
Um önnur úrslit í riðlinum er það að segja, að bæði Sviss og
Malta unni ítali 7—0 og Frakkland vann síðan Möltu 7—0. Er svo
að sjá sem ftalska liðið sé langlélegasta liðið í riðlinum.
Crystal Palace
sló Bristol
City úr bikarnum
Crystal Palace sigraði Brist- leiksins urðu þeir að leika níu.
ol City í bikarkeppninni í Peter Nicholas, Terry Fenwik
gærkvöldi 3—0. Tveimur af og Steve Kemper skoruðu mörk
leikmönnum City var vísað af Palace.
leikvelii svo að mestan hluta
Létt hjá
Spánverjum
SPÁNVERJAR léku um hclgina vináttulandsleik í handknattleik
gegn Alsír. Alsírbúar eru ekki hátt skrifaðir í fþróttinni, enda
töpuðu þeir stórt. 15—28. Um 1000 manns áu viðureignina, sem
fram fór á Spáni.
verið f sænska skfðalandsliðinu
og keppti einu sinni hér á
landi, á Norðurlandamóti ungl-
inga f Hlfðarfjalli árið 1971.
• Gladir og ánægðir \ikingar eítir ao haía sigrað í bikarkeppni HSi, og unnið sér
rétt til þátttöku í bikarkeppni Evrópu íhandknattleik. Þar biðu þeirra þau örlög
að vera dæmdir úr leik. Eru þeir fyrsta handknattleikslið í Evrópu sem dæmt er
frá keppni á vegum IHF vegna slysalegra atburða sem gerast löngu eftir að leik
lýkur. Og öll málsmeðferð er hin furðulegasta.
Áfrýjun Víkinga
ekki tekin
til greina
„Ég verð því miður að tilkynna ykkur það, að stjórn Víkings hefur borist skeyti frá
framkvæmdanefnd IHF, þar sem skýrt er frá því að áfrýjun Víkings hafi ekki verið tekin til greina og
framkvæmdanefndin staðfestir úrskurð aganefndar IHF þar sem Víkingar eru dæmdir úr keppni í
Evrópukeppni bikarhafa í handbolta vegna rúðubrotanna margumtöluðu í Ystad.“ Þannig hófst
blaðamannafundur sem stjórn handknattlciksdeildar Vfkings hélt í gærkvöldi og það var Eysteinn
Sigurðsson formaður sem þetta mælti.
Og hann hélt áfram: — 1 skeytinu segir, að nánari upplýsingar sem eigi að rökstyðja úrskurðinn séu
á leiðinni í bréfi. Þess má geta, að við fengum nákvæmlega eins orðsendingu þegar úrskurður
aganefndarinnar barst okkur, en ef innihald þessa bréfs er eitthvað í lfkingu við bréfið sem okkur
barst þá, er ekki eftir neinu að bíða, því að það bréf hafði ekki að geyma neinar röksemdafærslur eða
tilvitnanir reglur sem styddu dóminn, þó að aganefndarmenn hafi haldið því fram. Ljóst var á öllu, að
dómurinn væri eingöngu gaðþóttaákvörðun, sem hvergi kæmi nálægt neinum reglum IHF og dómur
þessi á hendur Víkingum getur ekkert annað en skapað slæmt fordæmi.
Frændur vorir
reyndust illa
Það verður ekki sagt, að frænd-
ur okkar á Norðurlöndum hafi
sýnt frændsemina í verki og með
slíka vini er engin þörf fyrir óvini.
Fyrst voru það Curt Wadmark og
Carl Wang í aganefndinni, þáttur
þeirra hefur verið margrakinn. í
framkvæmdanefndinni, sem tók
fyrir áfrýjun Víkings, eiga sæti 6
aðilar, 2 Svíar, Högbom nokkur
og . . . getiði þrisvar ... Curt
Wadmark, einn Dani, Fredslund
Pedersen, en áður hefur birst
viðtal við hann í Mbl. þar sem
hann sagði oftar en einu sinni, að
hann væri sannfærður um. að
rúðubrotin hefðu verið algert slys.
Hinir þrír aðilarnir í nefndinni
eru Spánverji, Sovétmaður og
Vestur Þjóðverji. Atkvæðagreiðsl-
an er leynileg, en samkvæmt því
sem fram kom á blaðamannafundi
Víkings í gær, er nokkuð öruggt að
sjá út hverjir greiddu atkvæði með
Víkingi og hverjir ekki. Svíarnir
tveir hafa verið í fríi síðustu
vikurnar, þannig að stjórnar-
mönnum Víkings tókst ekki að
hafa tal af þeim. En það þarf varla
að spyrja að því hvernig atkvæði
þeirra féllu. Daninn Fredslund
Pedersen dæmdi cinnig Víkingi í
óhag, en er stjórnarmönnum
Víkings tókst að ná tali af honum
í síma, viðurkenndi hann að hafa
dæmt rangt og gert lítið til að
setja sig inn í málið. En hann tók
ekki í mál að breyta atkvæði sínu!
Víkingum tókst með ýmsum
ráðum að ná tali af hinum þrem,
Spánverjanum, Sovétmanninum
Krikov og Vesturþjóðverjanum
Richenburger. Hannes Jónsson
sendiherra íslands í Moskvu rak
erindi Víkinga eystra og Krikov
brá hart við og sendi atkvæði sitt
þar sem talið var fráleitt að
Víkingar yrðu dæmdir úr keppni.
Spánverjinn gaf ótvírætt í skyn að
hann styddi kröfu Víkinga, en
Þjóðverjinn virtist Víkingum vera
á báðum áttum. Hann virðist hafa
brugðist...
Hafa dæmt án greinargerðar
Víkings.
Það skal tekið fram, að Víkingar
sendu öllum nefndarmönnum sem
þeir náðu til umfangsmikla
greinargerð, þar sem rakinn var
gangur málsins, blaðaúrklippur úr
íslenskum, sænskum og dönskum
blöðum með viðtölum við aga-
nefndarmennina Curt Wadmark
og Carl E. Wang. Ragnar Aðal-
steinsson hæstaréttarlögmaður
tók greinargerðina saman og benti
hann auk þess á hinn mikla sæg
atriða í málsmeðferð aganefndar-
innar, sem ekki áttu við lagaleg
rök að styðjast. í þessu sambandi
er athyglisvert og sýnir enn eitt
dæmið um forkastanlega fram-
komu Wadmark og raunar félaga
hans Högbom einnig, að þar sem
þeir hafa verið í fríi að undan-
förnu, hefur ekki tekist að koma í
hendur þeirra greinargerð
Víkings. Það er því ljóst að þeir
hafa sent atkvæði sín án þess
nokkru sinni að hafa barið augum
málsvörn Víkings. Af þessu má
sjá, að áfrýjun Víkings átti aldrei
möguleika, eða eins og einn
stjórnarmanna Víkings orðaði það
á fundinum: „Það er greinilega
erfitt að leita réttar síns, þegar
hrein og klár mafía veður þarna
uppi með geðþóttaákvörðunum
sem eiga sér enga stoð í fáránleg-
um reglum IHF, þar sem ein regla
er líkleg til að stangast á við þá
næstu."
Hafa ekki lagt upp laupana.
Á fundinum í gær kom það skýrt
og ákveðið fram hjá Víkingum, að
það sé af og frá að þeirra fjörbrot
séu hætt. Krikov, hinn sovéski,
hefur lýst því yfir að hann muni
taka málið upp á IHF-þinginu í
Moskvu 1980 og á Norðurlanda-
þinginu í maí er ætlunin að halda
reiðilestur yfir frændum okkar.
Síðast en ekki síst ætla Víkingar
að taka saman mikinn doðrant,
þar sem gangur málsins er rakinn
í smáatriðum. Eintak af doðranti
þessum verður síðan sent til allra
sambanda innan IHF öllum opið
til lestrar „til þess að vara aðra við
og sýna fram á hvers konar vinnu-
brögðum þarna er beitt og hvers
konar náungar vaða þarna uppi.“
Það eru ein 100 sambönd innan
IHF.