Morgunblaðið - 30.01.1979, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1979
!
I
§
I
I
i
Luscher vegur hart
að Stenmark
Ilinn ungi og bráðefniiegi skíðamaður frá Sviss, Peter Luscher,
skaut Ingimar Stenmark ref fyrir rass í svigkeppninni sem fram fór í
Garmisch Parten-Kirchen um helgina. Stenmark komst ekki einu sinni
í 2. sætið, heldur varð að gera sér að góðu 4. sætið, því að bæði Phil
Mahre frá Bandarikjunum og Peter Popangelov frá Búlgariu tróðu
sér fram fyrir hann. Er orðið æði langt síðan Stenmark hefur hafnað
svona aftarlega.
Það var fyrri ferðin sem varð Stenmark að falli, en þá náði hann
einhverjum lakasta tíma sem hann hefur áður krækt í. Stenmark var
með besta tímann af öllum í síðari ferðinni, en það dugði ekki til, svo
rækilega klúðraði hann fyrri ferðinni. Tímar fjögurra efstu
mannanna var þessi:
42.71 sek/43,40 sek stls: 86,11 sek.
43,27 sek/42,87 sek stls: 86,14 sek.
42,88 sek/43,38 sek stls: 86,26 sek.
44.71 sek/42,05 sek stls: 86,76 sek.
Peter Luscher Sviss
Phil Mahre Bandar.
Peter Popangelov Búl.
Ingimar Stenmark Sví.
Piero Gros frá Ítalíu varð í 5.
sæti og Andreas Wenzel frá Licht-
enstein varð sjötti. Stenmark
hlaut ekkert stig að sinni, því að
hinar nýju reglur segja, að aðeins
vinnist stig fyrir eitt af þrem efstu
sætunum. Stenmark mátti varla
við slíku í stigakeppninni, því að
með henni reiknast brunkeppnin
og Stenmark hefur til þessa neitað
að keppa í bruni. Stenmark hefur
því misst Peter Luscher fram fyrir
sig í stigakeppninni. Luscher hefur
173 stig, Stenmark 135. Andreas
Wenzel er þriðji með 122 stig, en
síðan er töluvert bil í fjórða mann,
sem er Phil Mahre. Hann hefur
106 stig.
Piero Gros er fimmti með 76
stig, Christian Neureuther kemur
næstur með 65 stig, Peter Muller
frá Sviss hefur 61 stig, Júgó-
slavinn Bojan Kriszai hefur 58
stig, Ken Read frá Kanada hefur
57 stig og Paul Frommelt frá
Lichtenstein er tíundi með 56 stig.
Wirnsbergar vann brunið
Austurríkismaðurinn Peter
Wirnsberger vann sinn fyrsta
sigur á vetrinum í brunkeppninni í
Garmisch-Partenkirchen. Wirns-
berger setti nýtt met á brautinni,
sem er 3320 metra löng með
fallhæð um 920 metrar. Sló hann
gamla metið aldeilis rækilega, eða
um 5 sekúndur. Gamla metið átti
landi hans Franz Klemmer, en
hann missti jafnvægið á brautinni
að þessu sinni og hlaut slæma
byltu. Josepp Walcher, einnig
kunnur kappi, flaug einnig á höf-
uðið á brautinni sem var mjög
erfið.
Uli Spiess, einnig Austurríkis-
maður, varð annar í bruninu, fékk
tímann 1:57,82. Sigurtími Wirns-
bergers var hins vegar 1:57,40
mínútur. Herbert Plank frá Italíu
varð þriðji og Leonard Stock frá
Austurríki varð fjórði.
Moser-Pröll í annað sætið
Aldrei þessu vant hafnaði Anna
María Moser Pröll ekki í fyrsta
sætinu í svigi kvenna í Mellau í
• Stenmark varð að láta sig hafa það að verma fjórða sætið ísviginu
um helgina. Hann er ekki vanur slfku og þykir fiestum ólíklegt að
slíkt endurtaki sig.
0 Peter Luscher vann góðan
sigur um helgina. Hann er nú
stigahæstur í keppninni um
heimsbikarinn.
Austurríki. Maria Rosa Quario frá
Ítalíu varð hlutskörpust, fór ferð-
irnar tvær á samanlagt 1:27,95
mínútum. Pröll krækti þó í annað
sætið, fékk samanlagða tímann
1:28,45 mínútur. Perrine Pelen frá
Frakklandi varð í þriðja sæti, hún
fékk samanlagðan tímann 1:29,00
mínútur. Fabienne Serrat frá
Frakklandi varð í 4. sæti, og
Regina Sackl frá Austurríki varð í
5. sæti.
Claudia Giordiani frá Ítalíu
hefur forystuna í stigakeppni
kvenfólksins, hefur 67 stig eftir
keppni helgarinnar. Regina Sackl
frá Austurríki er önnur með 59
stig og í fjórða sæti kemur loks
Anna María Moser Pröll, en hún
hefur hlotið 54 stig.
Þórsarar flengdir
f Njaróvík
V*
(ljósm. gíg).
Njarðvíkingar flengdu Þórsara í úrvalsdeildinni í körfuknattleik á
sunnudaginn. Ted Bee, sem hér sést taka skot, lék þá nánast á als oddi
og var mikil skemmtun að tiltektum hans. Á myndinni má einnig sjá
Stefán Bjarkason UMFN og Eirík Sigurðsson, Þór og virðast þeir
undrandi hvernig Ted fer fram hjá Mark Christiansen, Þór.
ÞAÐ ER ljóst að leikmcnn Þórs í
úrvalsdeildinni í körfuknattleik
verða þeim deginum fegnastir er
þeir haía gleymt þessari helgi
sem nú er rétt liðin. Á sunnudag-
inn léku þeir nefnilega við UMFN
og töpuðu með 125 stigum gegn
80, en tveimur dögum fyrr höfðu
ÍR-ingar tekið Þórsara í bakaríið
og héldu því norðanmenn hcim
með 248 stig á bakinu, en skoruðu
aðeins 150 stig. Jafnvel þótt tvo
ágæta leikmenn hafi vantað í lið
Þórs, þá er þessi frammistaða
ekki uppörvandi fyrir lið sem
berst fyrir að halda sæti sínu í
úrvalsdeildinni. Njarðvíkingar
eru hins vegar í toppbaráttunni
og má skilja hvers vegna þegar
litið er til leiks þeirra gegn Þór.
í upphafi leiksins gekk mikið á
en uppskeran var heldur rýr hjá
báðum aðilum. Boltinn barst end-
anna á milli, en sjaldnast milli
samherja. Njarðvíkingar tóku þó
fljótlega leikinn í sínar hendur og
hófu þegar að byggja upp góða
forystu. Þó var það ekki fyrr en
um miðjan hálfleikinn, sem
munurinn varð verulegur, en þá
skoraði Arni Lárusson nánast 14
stig í röð í aðeins 8 tilraunum og
sýndi pilturinn þar, að hann getur
gert góða hluti bjóði honum svo
við að horfa. Munurinn í hálfleik
var síðan orðinn 59—37 UMFN í
vil;
í seinni hálfleik hélt munurinn
áfram að aukast,- enda hafði vörn
Þórsara orðið eftir fyrir norðan,
en sóknarleikurinn hefur senni-
lega týnst á leiðinni, því ekki var
heil brú í leik liðsins. Þar að auki
voru Njarðvíkingar í miklum ham,
pressuðu stíft allan völlinn og ekki
Íétu áhorfendur sitt eftir liggja, en
þeir fylltu húsið að vanda. Þegar 7
mínútur voru til leiksloka rufu
Njarðvíkingar 100 stiga múrinn
enn einu sinni og þegar yfir lauk
voru stigin orðin 125, en Þórsarar
skoruðu 80 stig. Hafa nú Njarðvík-
ingar skorað yfir 100 stig að
meðaltali í leik og er mér til efs að
slíkt hafi verið gert áður í íslands-
móti.
Lang bestur Njarðvíkinga var
Gunnar Þorvarðarson. Sýndi hann
geysilegt öryggi við körfu Þórsara
og ekki var hann neitt lamb að
leika sér við í vörninni. Þá voru
þeir Ted Bee, Jónas Jóhannesson,
Geir Þorsteinsson og Árni Lárus-
son góðir, en aðrir áttu einnig
ágætan dag.
Hjá Þórsurum verður Mark
Christiansen að teljast hafa verið
bestur. Hann var þó ekki eins
góður og oft áður enda var honum
nánst engin aðstoð veitt í sókninni.
Þá kom Alfreð Túliníus á óvart
með ágætri baráttu. Undirrituðum
veldur það hins vegar miklum
heilabrotum hvort Jón Indriðason
hafi átt góðan leik eða ekki. Hann
beitti sér lítið í vörninni, skaut 36
skotum, skoraði úr 9, sem er 25%,
en skoraði svo úr 18 skotum af 25
af vítalínunni, sem er mjög gott.
Þetta gerði Jón að stigahæsta
manni liðs síns með 36 stig.
Lesendur verða síðan sjálfir að
meta það hversu góður Jón var.
Stig UMFN skoruðu: Gunnar Þ.
33, Ted Bee 15, Geir Þorsteinsson,
Árni Lárusson, Jónas Jóhannesson
14 stig hver, Guðsteinn Ingimars-
son 12 stig, Stefán Bjarkason 9,
Guðjón Þorsteinsson 7, Jón V.
Matthíasson 6 og Brynjar Sig-
mundsson 1 stig.
Stig Þórs: Jón Indriðason 36
stig, Mark Christiansen 23, Eirík-
ur Sigurðsson 8, Alfreð Túliníus og
. Ellert Finnbogason 4 hvor og
Sigurgeir Sveinsson 2 stig.
Dómarar voru þeir Guðbrandur
Sigurðsson og Sigurður Valur
Halldórsson og áttu þeir góðan
dag, enda leikurinn auðdæmdur.
— gfe-
Frjálsíþróttadeild KR.
óskar eftir aö ráöa áhugasaman og dugmikinn
frjálsíþróttaþjáifara.
Ráöningartími frá 1. marz 1979 til 1. október
1979. Umsóknir sendist Jóni Péturssyni, Kvist-
haga 19, Reykjavík, sími 24032.