Morgunblaðið - 30.01.1979, Síða 26
26
'MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1979
Skíðaíþróttir fyrir almenning
— Reglur um skíðamerki SKÍ
AFANGAMERKI
SKÍ
TlMABUJÐ 19 -
NAPN ............
NAFNNlJMER.......
HEIMILI .........
OAGS. hvert farid
K M KVITT.
SAMT. KM
Sýnishorn af skíðakorti fyrir áfangamerki SKÍ. T.v. er forsíðan og t.h.
er ein af 5 innsíðum þessa litla pésa og þar færa menn inn kílómctra
sem farnir cru á skíðum.
Reglur um skíðamerkin
Til þess að vinna til SKÍ
stjörnunnar eru ekki gerðar mikl-
ar kröfur. Merkið á að gefa það til
kynna að handhafi þess sé byrjað-
ur í skíða-trimmi. Að vera
byrjaður í skíða-trimmi er einfald-
lega að vera byrjaður á skíða-
æfingum í göngu, svigi eða stökki,
þar sem ekki er krafist neinna
ákveðinna afreka. Merki þetta
geta menn keypt í eitt skipti fyrir
öll eða í upphafi hvers skíðatíma-
bils, sem hefst 1. október ár hvert.
Til að vinna sér rétt til Áfanga-
merkis SKÍ eiga menn að „safna“
kílómetrum, leggja að baki
ákveðnar vegalengdir í göngu,
svigi eða stökki samkvæmt þeim
reglum sem hér fara á eftir:
Skíðaganga
Kröfur fyrir Áfangamerki SKÍ í
skíðagöngu eru sem hér segir og
miðast þær við eitt ár og að
skíðatímabilið hefjist 1. október.
Aldur er miðaður við 31. 12.
Brons
Silfur
Gull
8 ára og
yngri 10 kml5 km 30 km
9-10 ára 15 km25 km 50 km
11-13 ára 25 km 50 km 100 km
14-55 ára 50 km 75 km 150 km
56 ára og eldri 25 km50 km 100 km
Alpagrcinar og stökk
Kröfur til að vinna til áfanga-
merkisins í alpagreinum, svigi,
stórsvigi og bruni er eins og í
göngu að „safna" km og gildir þar
lengd brekkunnar niður.
í skíðastökki gildir stökklengd í
metrum x 30.
Áfangakort
Þátttakendur skrá fengna kíló-
metra á sérstakt kort, „áfanga-
kort“ sem SKÍ gefur út, þar sem
dálkar eru fyrir dagsetningar,
hvar gengið er, fjölda km og
dálkur þar sem einhver t.d. félagi,
18 ára eða eldri, starfsfólk skíða-
staðar, þjálfari eða kennari
staðfestir að rétt sé innfært. Gert
er ráð fyrir að 18 ára og eldri færi
sjálfir inn á sín kort og höfðað er
til drengskapar að það sé rétt gert.
Kortin fást hjá skíðaráðum, skíða-
félögum og afgreiðslum skíða-
staða. Þá þarf einnig að merkja
kortið greinilega með nafni eig-
andans, nafnnúmeri og heimilis-
fangi.
Kortið á að útfylla eins og
yfirskriftin segir til um. Þegar
búið er að uppfylla kröfur til
brons, silfurs eða gullmerkisins,
má framvísa kortinu til skíðaráðs
eða skíðafélaganna á staðnum og
fá keypt viðkomandi merki og láta
jafnframt skrá árangurinn hjá
þeim sem það selur. Vinna má til
brons, silfurs eða gullmerkisins á
einu og sama skíðatímabili.
Nota má kortið í 5 ár eða þar til
það er útfyllt og skal þá senda það
til Skíðasambands Islands, þar
sem það verður skráð og fær
eigandinn endursent nýtt kort, ef
þess er óskað, til að skrá áfram-
haldandi þátttöku í næsta áfanga.
Þessum áfanga er hægt að ná
eftir að hafa verið þátttakandi í
skíða-trimminu í 5, síðan 10, 15
eða fleiri ár og lokatakmark er
afreksbikar SKI eftir minnst 25
ára þátttöku. Gert er ráð fyrir að
hægt sé að vinna til áfangamerkis-
ins úr gulli á hverju ári og getur
viðkomandi keypt sér strax það
merki sem við á. Þegar árangri,
sem svarar til áfangamerkisins úr
gulli, hefur verið náð 5 sinnum og
hægt er að ná á minnst fimm
árum, eða vinna sér inn 15 stig
skv. stigatöflu hér aftar, hefur
skíðamaðurinn unnið sér rétt til
verðlauna sem er bikar eða
emalerað áfangamerki.
Þegar þessum „5 ára áfanga" er
náð getur viðkomandi byrjað að
vinna að áfangamerki SKI, sem er
veggskjöldur með áletrun og
áfangamerkinu.
Til að vinna veggskjöldinn úr
bronsi þarf að uppfylla 5 sinnum
þær kröfur sem gerðar eru til
gullmerkisins á minnst fimm
árum, síðan er hægt að vinna
silfurskjöldinn og loks gullskjöld;
inn. Til að vinna afreksbikar SKÍ
þarf að bæta við fimm fullgildum
tilraunum við gullmerkið á minnst
fimm árum (Alls tekur því minnst
25 ár að ná afreksbikarnum).
Stig
Ákveðið er að frá og með 1. des.
1978 sé hægt að vinna sér inn stig
fyrir framangreindan árangur og
fá menn 3 stig fyrir að ná
áfangamerkinu úr gulli, 2 stig
fyrir silfurmerkið og eitt stig fyrir
bronsmerkið.
Eftirtalinn stigafjöldi veiti rétt
til verðlauna sem hér segir:
Veggskjöld úr bronsi:
15 stig á minnst 10 árum.
Veggskjöld úr silfri:
30 stig á minnst 15 árum.
Veggskjöld úr gulli:
45 stig á minnst 20 árum.
Til að vinna afreksbikar SKI:
60 stig á 25 árum.
Skíðatrimm fyrir fatlaða
Andlega og líkamlega fötluðu
fólki, sem á erfitt með skíðaiðkun
má margfalda km sem lagðir eru
að baki með 2.
Fatlaðir sem einungis geta setið
á sleða eða snjóþotum og ýtt sér
með stuttum stöfum mega marg-
falda km sem lagðir eru þannig að
baki með 5.
Að öðru leyti gilda sömu reglur
fyrir alpagreinar, stökk og skíða-
trimm fatlaðra og í göngu, hvað
við kemur áfangakortum, stigum
og verðlaunum.
Minni kröfur eru gerðar til
fullorðinna til að vinna Afreksbik-
ar SKÍ og gilda eftirfarandi reglur
fyrir þá:
Almennar kröfur um Afreks-
bikar SKI eru 60 stig. Fimm fyrstu
vinningar, þ.e. unnið til áfanga-
merkis SKI úr gulli 5 sinnum,
gildir án tillits til aldurs.
Þar á eftir gildir hver vinningur
um áfangamerki SKI brons, silfur
eða gull sem hér segir: Tvöfalt
eftir að 45 ára aldri er náð og
fjórfalt eftir að 60 ára aldri er náð,
eða þar til veggskjöldurinn úr gulli
er unninn.
Áframhaldandi tilraunir til að
vinna rétt til afreksbikars SKÍ
gildir einfalt.
SKI merkið er veitt fyrir þátt-
töku í almenningsmóti í göngu eða
svigi og ná þar árangri undir
ákveðnum hámarkstíma. Öllum er
heimil þátttaka í þessum mótum
að því tilskyldu að góður undir-
búningur í skíðaíþróttinni hafi átt
sér stað hjá viðkomandi þátttak-
anda og hann af heilsufars-
ástæðum tefli ekki í neina tvísýnu.
Mót þessi er ráðgert að halda fyrir
almenning á öllum skíðastöðum
landsins nokkrum sinnum á
hverjum vetri.
Hægt er að vinna til SKÍ
merkisins í bronsi, silfri, emaler-
uðu merki og gulli. Síðar meir er
hægt að vinna veggskjöld í bronsi,
silfri og gulli og lokatakmarkið er
afreksbikar SKÍ eftir 25 ára
þátttöku.
Það er aðeins hægt að reyna sig
einu sinni á hverju skíðatímabili
við hverja gerð merkja og þá í
réttri röð þannig að fyrsta árið
verður að uppfylla kröfur um
bronsmerkið, annað árið um
silfurmerkið, þriðja árið með
emaleruðu merki og loks gullmerki
fjórða árið. Fimmta árið er hægt
að velja um hvort unnið er til lítils
bikars, brjóstnælu eða erma-
hnappa úr gulli og eru sömu
kröfur gerðar til þess og gull-
merkisins. Þegar þessum „5 ára
áfanga" er náð er hægt að hefja
vinnu að næsta áfanga sem er
veggskjöldur SKÍ úr bronsi (þetta
er veggskjöldur með áletrun og
SKI merkinu).
Mótstjórn er heimilt að leyfa
fleiri tilraunir ef ástæður hafa
verið slæmar eða óhöpp hafa
komið fyrir.
Þegar öllum kröfum í sambandi
við skíðamerkið er fullnægt, stað-
festir framkvæmdaaðili móts það í
sérstakri skýrslu um SKI merkið.
Þá strax getur þátttakandi keypt
viðkomandi merki hjá mótstjórn,
skíðaráði eða skíðafélagi á staðn-
um. Afrit af framanritaðri nióts-
skýrslu skal senda SKÍ eins og
mótsskýrslur annarra skíðamóta
úr héraðinu.
Einnig er árangur skíðamanns-
ins færður inn á hans eigið
skíðakort (hvítt) sem honum er
látið í té eftir þátttöku hans í
fyrsta skíðamótinu um SKI
merkið og gildir það fyrir næstu 4
tilraunir sem uppfylla kröfur til
gullmerkisins.
Veggskjöldur SKÍ
Til þess að vinna veggskjöldinn
úr bronsi, þarf að uppfylla kröfur
SKI merkisins úr gulli fimm
sinnum, einu sinni á hverju
skíðatímabili.
Eftir að hafa náð „5 ára
áfanganum" fær þátttakandinn
grænt skíðakort sem hann notar
til að færa inn á næstu tilraunir
við gullkröfurnar.
Þegar kortið er útfyllt skal
senda það til Skíðasambands
Islands sem þá fyrst færir viðkom-
andi inn á spjaldskrá. Til baka fær
hann sendan bronsskjöldinn og
rautt skíðakort til þess að færa inn
á tilraunir sínar við næsta verk-
efni sem er silfurskjöldurinn og
unninn verður á sama hátt og
bronsskjöldurinn. Þá er einnig
unnið til gullskjaldarins á sama
hátt. Fyrir hann gildir blátt
skíðakort.
Afreksbikar SKÍ
Til þess að vinna afreksbikar
SKI þarf að þreyta keppni þessa
alls 25 sinnum eða 5 sinnum eftir
að gullskildinum er náð og með
sama hætti og honum. Síðustu 5
tilraunirnar til að ná afreks-
bikarnum eru færðar inn á gult
skíðakort.
Skíðaganga
Fyrirkomulag skíðakeppninnar:
Öll íþróttafélög innan ISÍ, skól-
ar, klúbbar og önnur félög geta
haldið mót til þess að ná SKÍ
merkinu. Mótstjórn fær auglýs-
ingaspjöld og önnur gögn varðandi
mótið frá viðkomandi skíðaráði
eða SKI. Auglýsa skal mótin í
blöðum staðarins og á annan hátt
svo almenningi sé vel kunnugt um
þau.
Heppilegt er að keppni fari fram
um hádaginn eða á tímabilinu kl.
10—14. Þátttöku skal tilkynna á
staðnum að öðrum kosti skal
auglýsa vel hvar eigi að gera það.
Æskilegt er að þátttakendur hafi
aðstöðu nálægt mótstað til að
skipta um föt, fara í bað og fá
heitan drykk eftir keppni. Til að
hafa upp í kostnað við þetta mætti
taka þátttökugjöld.
Þá getur trimm-keppni sem
þessi verið hluti af stærri göngu-
keppnum og miðast þá tímatakan
við ákveðna vegalengd í henni, sem
uppfylla kröfur til SKÍ merkisins.
Göngukeppnin>
Göngukeppnina skal skipuleggja
þannig að allir geti tekið þátt í
henni, þó skal skipta í aldurs-
flokka ef þátttakendur eru margir
og ræsa t.d. yngri aldursflokkana í
annarri braut eða á öðrum tíma.
Göngubrautin á að vera uppmæld,
vel tróðin og merkt og greiðfær.
Nota má sömu gönguleiðir allt
skíðatímabilið og jafnvel ár eftir
ár. Brautin skal vera tiltölulega
auðveld, létt í byrjun en síðar með
auknu álagi, æskilegt að hafa hana
breytilega en ekki með bröttum
brekkum.
Að öðru leyti skal leggja braut-
ina samkvæmt reglum SKÍ um
göngumót.
Aldursskipting, lengd göngu-
brautar og hámarkstími eru sem
hér segir:
Alpagreinar
Svo sem áður er sagt er einnig
hægt að vinna til SKÍ merkisins í
alpagreinum. Kröfurnar eru ekki
meiri en svo að með nokkurri
æfingu ættu menn á öllum aldri
sem stunda alpagreinar, að ná
þeim. Hér er miðað við svig í braut
sem er um 150—200 metrar.
Fyrirkomulag
Öll félög innan ÍSÍ klúbbar,
skólar og félagasamtök geta haldið
skíðamót til þess að ná SKÍ
merkinu. I öllum sérstökum
keppnum s.s. félagsmótum,
héraðsmótum, landsmótum, skóla-
Fulltrúar SKI á eftirtöldum stöðum
gefa nánari upplýsingar um skíðatrimmið.
Reykjavík Páll Guðbjörnsson, Garðscnda 6 s. 91-31239
ísafjörður Sigurður Jónsson, Engjav. 22 s. 94-3186-3223
Fljót Trausti Sveinsson, Bjarnargili s. 96-73230
Sigluíjörður Kristján Möller, Hverfisgötu 32 s. 96-71133
Olafsfjörður Björn Þór Óiafsson, Hlíðarvegi 61, s. 29715
Dalvík Jón Halldórsson. Drafnarbr. 8 s. 61409-61382
Akureyri Ilallgrímur Indriðason, Einilundi 4d. s. 21275
Ilúsavík Þröstur Brynjólfsson. Sólbrekku 21 s. 41456
Egilsstaðir Iljálmar Jóelsson, Lagarás 18 s. 97-1470
Seyðisfj. Þorvaldur Jóhannss. Miðtúni 13 s. 2293-2172
Neskaupst. Ólafur Sigurðsson, Sverristúni 1 s. 7369
Eskifjörður Guðný Aradóttir, Lambeyrarbr. 12 97-6183
Laugarv. Árni Árnason, f.K.Í. 99-6115
SKl
Gonga. Svig.
MERKIÐ
Aldursil.
Nafn
Heimili
Fædd(ur)
Það vottast hár með að eigandi þessa Icorte
hefur uppfyllt kröfur til SKI merkisins ðr
hronsi á skíðam<5ti sem haldið var
hinn
m<5tst j<5ri
Þetta kort er afhent vinningshafa um leið
og merkið er tekið og verður hann að fram-
visa því I hvert skipti sem hauin vinnur
til æðra merkis.
Sýnishorn af skíðakorti þar sem færður er inn árangur fyrir SKÍ
merkið. Á bakhlið þessa korts er færður inn árangur næstu áfanga,
sem eru fjórir og er sérstök lína fyrir hvern þeirra. Silfurmerkið,
emalerað merki, gullmerki og loks bikar. Við frekari tiiraunir að
næsta áfanga, sem eru veggskyldir og að lokum afreksbikarinn eru
notuð svipuð kort, en breytt um lit og texta.