Morgunblaðið - 30.01.1979, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1979
Félag ísl. stórkaupmanna:
Raunhæfasta lausnin að
heimila frjálsa álagningu
Neitar dylgjinn um umboðslaunaskil
MORGUNBLAÐINU barst síð-
degis í gær athugasemd Félags
ísl. stórkaupmanna við skýrslu
verðlagsstjóra til viðskiptaráð-
herra um athugun á innflutn-
ingsver/.luninni. Þar segir:
I skýrslu verðlagsstjóra kemur
fram að hagur heildverzlunar er
mjög slæmur um þessar mundir
og flestar greinar sem eru undir
hámarksálagningu hafa átt í
rekstrarerfiðleikum á s.l. ári og
enn frekari erfiðleikar fyrirsjáen-
legir á þessu ári. Jafnframt stað-
festir þessi skýrsla þær fullyrð-
ingar Félags ísl. stórkaupmanna á
undanförnum árum að verðlags-
kerfi það sem við búum við leiði
almennt til hærra verðs til neyt-
enda, en í skýrslu verðlagsstjóra
segir m.a.: ... að hið lítt sveigjan-
lega hundraðstöluálagningarkerfi
sem notað hefur verið um áratuga
skeið, hafi ekki verkað hvetjandi
þar sem tekjur innflytjenda hafi
hreinlega minnkað við að gera
hagkvæm innkaup."
F.Í.S. heldur því fram að raun-
hæfasta lausnin á þessum málum
sé að hverfa frá núgildandi verð-
lagskerfi, en það verði bezt gert
með því að heimila frjálsa álagn-
ingu, sem byggist á aðhaldi neyt-
enda og virku verðlagseftirlti.
í skýrslunni er vitnað til áætl-
ana Rekstrarstofunnar og mats á
helztu áhrifaháttum sem valdið
geta hækkun á innflutningsverði
til landsins og eru niðurstöðum
14—19% sem er mun lægra en
gefið var í skyn með hinni svoköll-
uðu „samnorrænu verðkönnun" á
síðasta ári.
Við athugun á helstu
áhrifaþáttum kemur í ljós, að
leiðréttingar á þeim flestum er
aðeins á valdi stjórnvalda. Þeir
liðir sem beint má rekja til núgild-
andi kerfis eru, óhagkvæmni,
þvingaðir milliliðir, fjármagns-
kostnaður og hluti umboðslauna,
en þessir liðir vega ca 8—12%
miðað við áætlanir Rekstrarstof-
unnar, sem er að sjálfsögðu aðeins
mat þesaa aðila. Sérstaða landsins
sem metin er 2—3% er nokkuð
sem erfitt er að ráða við.
Um umboðslaun er fjallað all
ítarlega, þau bæði skilgreind og
siðan reiknuð úr áætluð mynduð
umboðslaun sem hlutfall af heild-
arinnflutningi og síðan reiknuð úr
raunveruleg umboðslaunaskil sem
hlutfall af áætluðum mynduðum
umboðslaunum. í töflum er þetta
sett upp sem ákveðnar tölur og
reiknað út frá því, en í texta er
sagt að ofangreindar tölur séu
mjög gróflega áætlaðar.
Félag íslenzkra stórkaupmanna
vill vekja athygli á því að hér er
aðeins um áætluú að ræða byggt
upp á viðtölum við nokkra inn-
flytjendur og síðan fært yfir á
prósentu af heildarinnflutningi.
Slíkar áætlanir hljóta að vera
mjög ónákvæmar og ekki koma
fram í skýrslunni upplýsingar um
útreikning þessara talna.
Félag ísl. stórkaupmanna neitar
alfarið fyrir sitt leyti þei~ dylgj-
um um umboðslaunaskil sem fram
koma í skýrslu verðlagsstjóra.
Varðandi helztu niðurstöður
skýrslunnar í heild má segja að
þær sýna fram á að afkoma
heildverzlunar er mjög bágborin
um þessar mundir og greinilegt að
verðlagskerfið hefur, eins og
margoft hefðr komið fram, haft í
för með sér að verð til neytenda er
mun hærra heldur en nauðsynlegt
væri með frjálst verðlagskerfi, en
eins og fram kemur í skýrslu
verðlagsstjóra þá telur hann ekki
að aðstæður í þjóðfélaginu leyfi
frelsi en benda má á að aðstæður
hafa ekki þótt leyfa slíkt á undan-
förnum áratugum þó mönnum sé
ljóst í dag að málin væru mun
betur komin ef leyft hefði verið
frelsi í verðlagsmálum samfara
auknu verðlagseftirlti í stað þess
álagningareftirlits sem viðgengist
hefur undanfarna áratugi.
Skýrsla verðlagsstjóra:
Birgðastöð SIS með 40
milli. kr. rekstrarhalla
Niðnrstaða verðiagsstjóra:
Þriðjungur umboðslauna skil-
ar sér ekki — álagningarregk
ur valda haerra innkaupsverði
VERÐLAGSSTJÓRI blrtl ( iprr | • Fimm þættir vald» me
.......- •"•"T 11 /T I
I • Innllytjendur h»l» bættupp
mmmami
Þorvarður Elíasson, framkvæmdastjori Verzlunarraðs:
Niðurstöður verðlagsstjóra eru
órökstuddar ogeinskis verðar
„ÉG TEL í fyrsta lagi að niðurstöður verðlags-
stjóra í þessari skýrslu sinni séu algjörlega
órökstuddar og ekki gerð minnsta tilraun til
þess að tengja þessar niðurstöður sjálfri
skýrslunni né heldur reynt að gera grein fyrir
því hvernig þær eru fengnar, þvf að í
skýrslunni er hvergi getið um það hvernig
staðið var að útreikningunum og gagnasöfn-
un,“ sagði Þorvarður Elfasson, framkvæmda-
stjóri Verzlunarráðs íslands, í samtali við
Mbl. þegar hann var spurður álits á skýrslu
verðlagsstjóra.
Þorvarður sagði, að af þessum sökum væri
niðurstöður verðlagsstjóra í skýrslunni í reynd
einskis verðar, aðeins pappírsgagn sem hann
hefði sent frá sér og kæmi engum að gagni
nema hugsanlega fyrir hann sjálfan, því að vel
mætti vera að hann hefði í athugun sinni
glöggvað sig á einhverjum þætti í innflutnings-
verzluninni en enginn annar aðili gæti neitt
byggt á þessum niðurstöðum. „Niðurstöðurnar
bera því eingöngu vitni hverju verðlagsstjóri
trúir í þessum efnum ef menn hafa á annað
borð áhuga á hans trúmálum," sagði Þorvarður.
„Það bezta í þessari skýrslu er smásagna-
safnið og það er út af fyrir sig ágætt en sýnir
um leið hversu þessi starfsemi verðlagsstjóra
er fátækleg — að hann skuli ekki hafa neitt
betra fram að færa í þessari skýrslu en
smásögur sínar," sagði Þorvarður. „Hins vegar
þekki ég flestar þessara smásagna hans og veit
hvernig þær eru til komnar. Ég veit því, að það
sem hann byggir á er afskaplega af skornum
skammti.“
„Tillögurnar til úrbóta eru blátt áfram
hlægilegar," sagði Þorvarður. „Það er ekki ein
einasta bitastæð tillaga þarna á meðal. Lang-
mestu máli eyðir hann í að leggja fram útfærða
tillögu um hvernig megi auka kröfur til manna
áður en þeir fái verzlunarleyfi. Þetta jafngildir
því að verðlagsstjóri ætli að lagfæra þetta
ástand á 2—3 mannsöldrum, því að varla getur
þessi ráðstöfun komið að gagni fyrr. En ef
ástandið er svona alvarlegt eins og hann segir,
þá hlýtur að liggja meira á þessari lagfæringu
en það taki 2—3 kynslóðir. Aðrar tillögur eru
bókstaflega engar bitstæðar í skýrslunni."
Um þann þátt skýrslunnar sem lýtur að
umboðslaununum kvaðst Þorvarður nú vera að
reyna að afla sér upplýsinga um hvernig sá
kafli væri unninn en ekki búinn að fá botn í það
ennþá. „Ég fæ ekki skilið hvaða rökstuðningur
er á bak við þessar niðurstöður sem þarna
koma fram um umboðslaunin. Þeir slá því
einungis fram að þau séu ákveðinn hundraðs-
hluti af innflutningnum en af hverju þessi
prósent en ekki einhver önnur fæ ég ekki áttað
mig ái Það er einnig athyglisvert að hann ber
saman umboðslaunaskil sex stórra heild-
verzlana og það kemur í Ijós að þau liggja langt
fyrir ofan þetta mark, sem verðlagsstjóri setur
fram um skilin almennt. En úr því að umboðs-
Iaunaskil stóru heildverzlananna eru svona góð
þá finnst mér verða að krefjast þess af
verðlagsstjóra, að hann geri grein fyrir því
hverjir það eru sem stela umboðslaununum
undan fyrst það eru ekki heildsalarnir. Hann
talar í skýrslunni um þúsundir innflytjenda, en
hverjir eru þeir? Við hér þekkjum ekki allan
þennan fjölda af heildsölum, og þetta sem að
framan er getið gefur tilefni til að ætla að það
séu ekki heildsalarnir sem steli umboðslaunun-
um undan. Hverjir þá?“
29
Friðrik Ólafsson
Listi Alþjóða-
skáksambandsins:
Friðrik
Ólafsson
í 31. sæti
Heimsmeistarinn í skák,
Anatoly Karpov, er einn skák-
manna með yfir 2700 skákstig
samkvæmt nýjasta skákstigalista
Alþjóðaskáksambandsins, en
hann er með 2705 stig. Næstur að
stigum er Viktor Korchnoi með
2695 og tíu aðrir stórmeistarar
eru með 2600 stig og fleiri;
Portisch og Spassky er með 2640
stig, Timman og Polugaevsky
með 2625 stig, Larsen er með
2620 stig, Tai og Mecking með
2615 stig, Petrosjan er mað 2610
stig og Hort og Balashov eru með
2600 stig. Friðrik Ólafsson er í
31. sæti með 2555 stig og Guð-
mundur Sigurjónsson er í 102.
sæti með 2490 stig og eru sex
aðrir skákmenn jafnir honum að
stigum.
Milli 2590 og 2600 stiga eru 8
stórmeistarar: Beljavsky og
Dorfman frá Sovétríkjunum,
Dzindzindihashvili ísrael, Ribli
Ungverjalandi og Hubner
V-Þýzkalandi með 2595 stig og
með 2590 stig eru: Kavalek Banda-
ríkjunum, Ljubojevic Júgóslavíu
og Sax Ungverjalandi. Gulko So-
vétríkjunum kemur þeim næstur
með 2585 stig.
Næstir Guðmundi Sigurjóns-
wni af Islendingum eru Helgi
Olafsson og Ingi R. Jóhannsson
með 2440 stig, Margeir Pétursson
er með 2420 stig, Jón L. Árnason
með 2410 stig og Haukur Angan-
týsson, Ingvar Ásmundsson og
Olafur Magnússon eru með 2400
stig. Jón Kristinsson er með 2390
stig og Magnús Sólmundarson
með 2380 stig.
Kvenréttindafélag íslands:
Vísindi og listir
á menningarvök-
unni á laugardag
Kvenréttindafélag íslands
minntist stofnunar félagsins á
fjölbrcyttri menningarvöku í
Norræna húsinu á laugardaginn.
Vakan stóð í tvo tfma, og komu
fram margar ungar konur með
fróðleg og gagnorð erindi, og
auk þess túlkendur ýmissa list-
greina, að því er Björg Einars-
dótttir varaformaður K.R.F.Í.
sagði f samtali við Morgunblaðið
í gær.
Kvenréttindafélag íslands var
stofnað 26. janúar 1927 og hefur
félagið jafnan minnst stofnunar-
innar sérstaklega með ýmsu móti.
Meðal erinda á menningarvök-
unni á laugardaginn var erindi
Sigrúnar Helgadóttur um starfs-
svið reiknifræðings, Ragnheiður
Helga Þórarinsdóttir fjallaði um
þjóðfræði og Gerður Steinþórs-
dóttir ræddi um kvenlýsingar í
sex Reykjavíkurskáldsögum eftir
síðari heimsstyrjöldina.
P rá menningarvöku Kvenréttindafélagsins í Norræna húsinu á laugardaginn. Ljósm: Emilia.
Þá fluttu leikararnir Tinna
Gunnlaugsdóttir og Kolbrún
Halldórsdóttir samtal Lóu og ísu
úr fyrsta þætti Silfurtunglsins
eftir Halldór Laxness, Valborg
Bentsdóttir las frumsamda
smásögu, og Magnea Matthías-
dóttir flutti frumort ljóð. Valva
Gísladóttir lék einleik á flautu,
Steinunn Ragnarsdóttir lék á
píanó og Anna Júlíana Sveins-
dóttir söng við undirleik Láru
Rafnsdóttur.
Björg Einarsdóttir sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að góður
rómur hefði verið gerður að þeim
atriðum sem fram fóru, og þótti
nýstárlegt að blanda saman
ólíkum greinum, bæði á sviði lista
og vísinda.