Morgunblaðið - 30.01.1979, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1979
Pilturinn sást standa yfir stúlk-
unni, þar sem hún lá í blóði sínu
LÖGREGLAN var kvödd að húsi við Safamýri um fjögurleytið
aðfaranótt laugardagsins vegna manns, sem þarna hefði ráðizt á
stúlku. Þegar lögreglan kom á staðinn sá hún mann á hlaupum
frá húsinu og tók hann í sína vörzlu. Pilturinn hafi sést vera að
bera stúlku meðfram húsinu eftir að fólk þar hafði heyrt skarkala
og óhljóð.
Við nánari athugun fundu
lögreglumenn einnig stúlkuna
þarna við húsið alblóðuga og illa
til reika, og var hún umsvifa-
laust flutt í Borgarspítalann en
lézt þar kl. liðlega 10 á laugar-
dagsmorgun.
Pilturinn sem handtekinn var,
skýrði svo frá að hann hefði hitt
stúlkuna við Veitingahúsið
Klúbbinn um nóttina og fengið
hana til að fara með sér í hús
við Háaleitisbraut, þar sem
hann taldi að hægt yrði að
komast í gleðskap hjá
kunningjafólki. Pilturinn var
töluvert ölvaður þegar í þetta
hús kom og stúlkan þó öllu
meira, því að hún sofnaði þar.
Rétt fyrir kl. 4 fór fólkið að
tygja sig á brott úr húsinu en
stúlkan fór lítið eitt á undan því,
vildi ekki fara með því, enda
þótt það byðist til að aka henni
heim. Að öðru leyti vissi fólkið
engin deili á henni, hvorki
heimilisfang hennar né nafn, en
sjálf kvaðst hún eiga heima í
Safamýrinni. Pilturinn fór á
eftir stúikunni kvaðst ætla að
fylgja henni heim. Fólkið sem
fór út rétt á eftir stúlkunni,
litaðist um eftir henni og piltin-
um og ók m.a. kringum húsið en
sá hvorugt þeirra og engar
manna ferðir.
Skömmu síðar urðu svo íbúar
hússins við Safamýri en það er
lítið eitt vestar en húsið sem
pilturinn og stúlkan komu úr,
vör við skarkala og óhljóð.
Maður fór þá út til að sjá hvað
um væri að vera og sá þá mann
standa yfir stúlku, sem lá í
opinni ruslageymslu hússins.
Maðurinn kvaðst ætla að
hringja í lögregluna en pilturinn
bað um að hringt yrði í leigubíl.
Maðurinn sinnti því ekki heldur
fór inn og hringdi á lögregluna,
en á meðan tók pilturinn stúlk-
una og byrjaði að bera hana
meðfram húsinu, datt þá meðal
annars einu sinni. I þann mund
komu lögreglumennirnir á vett-
vang.
Rannsóknarlögregla ríkisins
hóf þegar í stað rannsókn í
málinu og var unnið að henni
fram á kvöld á laugardag og
síðan allan sunnudaginn. Eftir
kröfu rannsóknarlögreglunnar
var svo pilturinn úrskurðaður í
allt að 59 daga gæzluvarðhald
síðdegis á sunnudag.
Pilturinn sem heitir Sigurður
Jónsson, 17 ára að aldri og til
heimilis að Skúlagötu 64 hefur
ekki verið viðriðinn afbrot áður
svo vitað sé. Hann telur sig hafa
hrint stúlkunni til þarna í rusla-
geymslunni en neitar að hafa
barið hana. Við yfirheyrslur
hefur hann tekið skýrt fram, að
hafi hann orðið stúlkunni að
bana þá hafi það verið algjört
óviljaverk.
Stúlkan sem lézt, hét Sunna
Hildur Svavarsdóttir, til heimil-
is að írabakka 8, Reykjavík, og
var hún 21 árs að aldri. Að sögn
Njarðar Snæhólm, yfirlögreglu-
þjóns í rannsóknarlögreglunni,
hafa ekki fundizt nein barefli.
Bátur í hafvillum
inni á FAXAFLÓA
NÍU TONNA bátur frá Keflavík
lenti í hafvillum á Faxaflóa í
gærdag í þéttri snjómuggu sem
þar gerði eftir hádegið. Landhelg-
isgæzlan kom bátnum til aðstoðar
og beindi honum aftur til Kefla-
víkur.
Báturinn hafði lagt af stað frá
Keflavík skömmu fyrir hádegi í
gær og siglt þaðan í norður, er
snjómugga kom yfir. Skipverjar
sneru þá við og hugðust halda til1
Keflavíkur á ný. Ekki höfðu báts-
verjar lengi siglt er þeir sáu
gríðarstórt fjall framundan sem
þeir töldu sig aldrei hafa séð áður
og könnuðust ekki við. Var þá sent
út skeyti þar sem allir góðir menn
voru beðnir að koma til hjálpar
enda væri kompásinn sennilega
rammskakkur og enga stefnu af
honum að hafa.
Varðskip kom síðan að bátnum
um hálftíma síðar og var báturinn
þá um eina og hálfa mílu norður af
Vogastapa, og hefur það sennilega
verið fjallið torkennilega er báts-
verjar þekktu ekki! Varðskips-
menn vísuðu þeim síðan leiðina
heim til Keflavíkur aftur og er
ekki annað vitað en sú ferð hafi
gengið áfallalaust.
Hasarmynd
í Stjörnubíói
STJÖRNUBÍÓ sýnir um þessar
mundir itölsku myndina Lið-
hlauparnir. Leikstjóri er Pascal
Cerver.
Þarna er um að ræða hasarmynd
og segir frá ráni nokkurra her-
manna á verulegum fjármunum
sem ætlaðir voru til kaupa á vopn-
um. Mennirnir lifa í lystisemdum
með fögrum konum stuttan tíma en
höfuðsmaður þeirra veitir þeim
eftirför til að gera upp sakirnar við
pá fyrir ránið.
Davíð Scheving Thorsteinsson ásamt verðlaunahöfunum þremur, Inga
Árnasyni, Eiríki Einarssyni og Steinunni Karlsdóttur. Ljósm. Kristján.
Verðlaun afhent fyrir
„jólaleik” Smjörlíkis h.f.
SMJÖRLÍKI hf. gekkst fyrir samkeppni fyrir jólin. Keppni þessi var
fólgin í því að svara þeirri spurningu: Hvers vegna hefur Ljómi verið
langt mest selda smjörlíkið á íslandi í áratugi?
I gær tilkynnti Davíð Scheving Thorsteinsson forstjóri Smjörlíkis
hverjir unnið hefðu í keppninni. 1. verðlaun 200 þúsund krónur hlaut
Ingi Árnason, Hraunbæ 70, Reykjavík, 2. verðlaun, 100 þúsund krónur,
hlaut Eiríkur Einarsson, Grýtubakka 30, Reykjavík, og 3. verðlaun hlaut
Steinunn Karlgdóttir Langholtsvegi 105, Reykjavík. 10 önnur svör hlutu
viðurkenningar.
Alls barust um 100 svör við spurningunni og munu alli þeir sem þátt
tóku í keppninni fá þakkarbréf frá Smjörlíki, auk þess 2 kg af Ljóma og 2
lítra af Tropicana.
Flugfélag íslands:
Verkföll og veður leggjast á eitt
ALLT innanlandsflug Flugfélags
íslands lá niðri á sunnudag vegna
verkfallsaðgerða flugmanna, og
raunar lá flug einnig niðri á
laugardag vegna veðurs, nema hvað
flogin var ein ferð. Flogið var til
Norðurlandanna, en þar kom vél
frá Arnarflugi inn í, en það flug
hafði verið ákveðið fyrir löngu
vegna skoðana á Boeing 727 þotun-
um. Annað flug á vegum Flug-
félagsins var því ekki á sunnudag,
því flug tii Færeyja féll einnig
niður að því er Sveinn Sæmundsson
hlaðafulltrúi Flugleiða tjáði
Morgunblaðinu i gær.
Að sögn Sveins átti flug að vera
með eðlilegum hætti í gær, en
truflanir urðu á flugi innanlands
vegna veðurs, þannig að erfitt reynd-
ist að skila þeim farþegum á leiðar-
enda sem urðu fyrir töfum um
helgina, og einnig var ekki unnt að
flytja farþega sem flýta vildu ferð
sinni vegna áframhaidandi verk-
fallsaðgerða í þessari viku. Ekki var
í gær flogið til Vestfjarða, Reykja-
víkurflugvöllur lokaðist vegna snjó-
komu og einnig flugvellirnir á
Sauðárkróki og Akureyri. Fjöldi
farþega bíður því víða um landið.
í dag á millilandaflug Flugfélags
Islands að vera ótruflað, auk þess
sem flug til Luxemborgar og Banda-
ríkjanna er með eðlilegum hætti, þar
sem Loftleiðaflugmenn taka ekki
þátt í yfirstandandi deilu. Þá verður
ekki flogið til Vestfjarða í dag.
Á morgun fellur síðan niður flug
til Kaupmannahafnar og Glasgow,
og ekki verður heldur flogið til
Vestmannaeyja og Hornafjarðar.
Á miðvikudag, þann 1. febrúar,
fellur síðan niður Lundúnaflug, og
einnig flug til Egilsstaða og Norð-
fjarðar.
Á föstudag verður ekki flogið til
Glasgow og Kaupmannahafnar, og
ekki verður heldur flogið til Akur-
eyrar, Sauðárkróks og Húsavíkur.
Laugardaginn þann 3. febrúar
verður flug væntanlega með eðlileg-
um hætti, en frá því klukkan 19 á
laugardagskvöld þar til klukkan 8 á
þriðjudagsmorgun fellur allt flug á
vegum Flugfélags Islands niður, að
því er Sveinn Sæmundsson sagði,
bæði innanlandsflug og millilanda-
flug. Undanskilið er þó flug með
flugvél Arnarflugs til Skandinavíu á
sunnudag, til Óslóar og Stokkhólms.
Að sögn Sveins hefur stjórn Flug-
leiða ekki borist orðsending um
frekari aðgerðir enn sem komið er að
minnsta kosti.
Sem fyrr segir hafa verkfallsað-
gerðirnar ekki áhrif á flug Loftleiða,
og ekki heldur á flug Vængja eða
annarra flugfélaga á leiðum innan-
lands. Þar hefur veður hins vegar
gert erfitt fyrir síðustu daga.
Flug véla Flugfélags íslands hefur
farið meira og minna úr skorðum
síðustu daga, bæði vegna verkfalls-
aðgerða flugmanna og einnig vegna
veðurs hér innanlands og verður
væntanlega áframhald á því út þessa
viku og fram yfir helgi.
Verðlaunamynd
eftir Kurosawa
í Laugarásbíói
LAUGARÁSBÍÓ byrjar nú sýningar á Dersu Uzala eftir japanska
kvikmyndaleikstjórann Akira Kurosawa, einn fremsta kvikmynda-
gerðarmann sem nú er uppi.
Kvikmyndin byggir á endurminningum rússnesks landmælinga-
manns um ferðir hans, er hann var sendur austur að Kyrrahafsströnd
til að kortleggja þar áður ókönnuð skóga- og túndrusvæði rétt eftir
aldamótin síðustu og kemst í kynni við veiðimanninn Dersu Uzala, sem
verður leiðsögumaður hans í landmælingaferðum upp frá því.
Sig. Sverrir Pálsson, kvikmyndagagnrýnandi Morgunblaðsins, sagði
um þessa mynd í grein hér í blaðinu sl. sunnudag „Með því að tefla
saman kortlagningarmanninum og náttúrubarninu skapar Kurosawa
hér einhverja alvarlegustu ádeilu á hin framsæknu vísindi, sem hafa
gleymt manninum sjálfum... Fjölyrða mætti um mörg atriði
myndarinnar en sjón er sögu ríkari og óhætt að hvetja alla sem unna
góðri list að sjá þessa mynd. Með þessari mynd um Dersu Uzala sannar
Kurosawa enn einu sinni yfirburði sína sem kvikmyndagerðarmanns
og skálds ...“
Dersu Uzala er margverðlaunuð mynd og hlaut hún m.a. bandarísku
Óskarsverðlaunin sem bezta erlenda kvikmyndin árið 1976.