Morgunblaðið - 30.01.1979, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1979
31
Hundraðföldun krónunnar:
Efnahagstillögur stjórn-
arinnar í hlaðvarpanum
- sagði þingmaður Alþýðuflokks
VERIÐ er að leggja síðustu hönd
á sameiginlega stefnu og tillögur
stjórnarflokkanna í efnahags-
málum, sagði Ágúst Einarsson
(A) í umræðum í efri deild AI-
þingis í gær um frumvarp um
verðgildi fslcnzks gjaldmiðils.
Svavar Gestsson, viðskiptaráð-
herra, mælti fyrir þessu frum-
varpi, sem gerir ráð fyrir að
verðgildi íslenzkrar krónu verði
hundraðfaldað frá og með 1.
janúar 1980.
Verðgildi íslenzkrar krónu
• Svavar Gestsson, viðskipta-
ráðherra, vakti í ítarlegri ræðu
sögu og þróun íslenzks gjaldmið-
ils, sem og efnisatriði frumvarps-
ins sem gerir ráð fyrir hundrað-
földun krónunnar frá og með nk.
áramótum.
• Þorvaldur G. Kristjánsson
(S) og Jón G. Sólnes (S) töldu
slíka gjaldmiðilsbreytingu því að-
eins hafa gildi, að hún væri liður í
samræmdum aðgerðum til að
hamla gegn verðbólgu og koma á
jafnvægi í efnahagsmálum okkar.
Ein sér hefði hún takmarkaða
þýðingu. Ekki hefði bólað á slíkum
samhliða aðgerðum í framsögu
ráðherrans.
• Ágúst Einarsson (A) sagði
slíka gjaldmiðilsbreytingu hafa
verið á kosningastefnuskrá Al-
þýðuflokksins. Hún fæli í sér
reikningslega einföldun en væri
ekki efnahagsaðgerð í sjálfri sér.
Hins vegar væru stjórnarflokk-
arnir nú að leggja síðustu hönd á
sameiginlegar efnahagstillögur,
til lengri tíma litið. Bragi Sigur-
jónsson (A) sagði — líkt og Þor-
valdur og Jón — að afstaða sín til
gjaldmiðilsbreytingar kynni að
fara eftir því, hverjar yrðu endan-
legar, samræmdar tillögur stjórn-
arflokkanna í efnahagsmálum.
Varnir gegn mengun sjávar.
• Benedikt Gröndal, utanrík-
isráðherra, mælti fyrir stjórnar-
frumvarpi um heimild fyrir ríkis-
stjórnina til að staðfesta fyrir
íslands hönd þrjá alþjóðasamn-
inga um varnir gegn mengun
sjávar af völdum olíu.
Framhaldsskólar.
• Ragnar Arnalds mennta-
málaráðherra, mælti fyrir stjórn-
arfrv. um framhaldsskóla, sem nú
er lagt fram í þriðja sinn, óbreytt.
Ellert B. Schram (S) gagnrýndi
ýmis atriði frumvarpsins, einkum
þau, er legðu sveitarfélögum á
herðar aukin útgjöld, án þess að
að flytja samhliða tekjur til
þeirra, til að rísa undir auknum
útgjöldum. Gerði hann grein fyrir
samþykktum stjórnar Sambands
íslenzkra sveitarfélaga um þetta
efni og hvatti til samráðs við
sveitarfélögin í meðferð frum-
varpsins. Gagnrýndi hann
menntamálaráðherra fyrir að
leggja fram frumvarp af þessu
tagi án þess að gera þingmönnum
jafnframt grein fyrir þeim kostn-
aði, sem af samþykkt frumvarps-
ins hlyti að leiða. Jóhanna Sigurð-
ardóttir (A) ræddi um fullorðins-
fræðslu, bréfaskóla og námsflokka
og nauðsyn þess að tryggja stöðu
þessara fræðsluþátta.
Tillaga á Alþingi:
Stadfesting á
veiðisamnmgum
við Færeyinga
LÖGÐ var Iram á Alþingi í gær
tillaga til þingsályktunar um
staðfestingu á niðurstöðu við-
ræðna um gagnkvæmar fiskveiði-
heimildir íslendinga og Fær-
eyinga, sem undirrituð var hinn
10. janúar 1979.
Svohljóðandi greinargerð fylgdi
tillögunni:
„Tillaga sú til þingsályktunar,
sem hér liggur fyrir, staðfestir, ef
samþykkt verður, niðurstöðu við-
ræðna milli fulltrúa ríkisstjórnar
Islands og landsstjórnar Færeyja,
sem fram fóru dagana 9. og 10.
janúar 1979 í Reykjavík, um
heimildir annars vegar íslendinga
til kolmunnaveiðar innan fisk-
veiðimarka Færeyja og hins vega
Færeyinga til kolmunna- og loðnu-
veiða við Island. Niðurstaðan gerir
ráð fyrir, að íslendingar hafi
heimild til að veiða allt að 35.500
smálestum af kolmunna og að
Færeyingar hafi heimild til að
veiða allt að 17.500 smálestum
loðnu og 17.500 smálestum kol-
munna. Þau fiskiskip, sem um-
ræddar veiðar stunda, skulu hlíta
sömu reglum og innlend skip við
samskonar veiðar þ.á m. að því er
varðar lágmarksstærð, friðunar-
svæði og lokun svæða yfirleitt.
Einnig telja aðilar æskilegt að efla
samvinnu um rannsóknir á loðnu
og kolmunna og samstarf sín á
milli og við önnur hlutaðeigandi
lönd um skynsamlega hagnýtingu
loðnu og kolmunna.
Hinn 10. janúar 1979 var einnig
undirrituð bókun varðandi aðstöðu
Færeyinga að af heildarafla Fær-
eyinga á íslandsmiðum skuli
þorskafli enn minnka um 1000
lestir, þ.e. úr 7000 smálestum í
6000 smálestir. I bókuninni eru
einnig ákvæði um mjög hert eftir-
lit með veiðum og afla færeyskra
skipa, þ.á m. skyldu þeirra til að
koma til hafnar til skoðunar ef
æskilegt þykir, halda afladagbók
og skila sundurliðuðum aflaskýrsl-
um, margháttaða tilkynninga-
skyldu, sérstakan eftirlitsmann
íslenskra stjórnvalda er fylgist
með löndun í Færeyjum og kanni
aflatökur og fleira. Ennfremur var
undirrituð yfirlýsing um að efnt
skuli að 6 mánuðum liðnum til
viðræðna um endurskoðun fiski-
veiðiheimilda Færeyinga hér við
land.“
FULLKOMIN ÞJÓNUSTA VARÐANDI ÖLL VEISLUHÖLD
BRAUÐTERTUR
HEILAR OG HÁLFAR
BRAUÐSNEIÐAR
KAFFISNITTUR OSTAPINNAR
COCKTAILSNITTUR SAMLOKUR
COCKTAILPINNAR
KRANSAKÖKUR
KRANSAKÖKUHORN
KRANSAKÖKUKÖRFUR
BLANDAÐ
COCKTAILKO N FE KT
RJÓMATERTUR
MARSIFANTERTUR
MARSIPANKÖKUR
RJÓMAKÖKUR
Veislumióstööin
Álíheimum 6 - Sími 39370,36280
Okkar árlega hljómplötuútsala
er á fullu
Hljóðfærahús Reykjavíkur
Laugavegi 96