Morgunblaðið - 30.01.1979, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JANUAR 1979
47
Nixon á ný í
Hvíta húsinu
Washington, 29. janúar. AP.
MIKIÐ ÖRYGGI var viðhaft þegar Richard M. Nixon
fyrrverandi forseti Bandaríkjanna kom með áætlunar-
flugi til Washington á sunnudagskvöld, daginn fyrir
fyrstu heimsókn hans í Hvíta húsið frá því að forsetinn
fyrrverandi hrökklaðist frá völdum vegna Watergate-
málsins fyrir rúmum f jórum árum.
En Nixon hlaut ekki tilkomu-
miklar viðtökur. Enginn embætt-
ismaður var á flugvellinum til að
taka á móti honum, aðeins nokkrir
fulltrúar leyniþjónustunnar. Var
forsetanum fyrrverandi hleypt
niður landganginn á undan öðrum
farþegum vélarinnar. Þar beið
hans bifreið frá Hvíta húsinu sem
flutti hann á sveitasetur í
Virginia, en þar mun Nixon dvelja
meðan á heimsókn hans í
Washington stendur.
Þegar Nixon hélt frá
Dulles-flugvelli blöstu við honum
fánar blaktandi í hálfa stöng.
Flaggað hafði verið í minningu
Nelson A. Rockefellers fyrrverandi
varaforseta landsins, en árið 1968
hrósaði Nixon sigri yfir Rockefell-
er þegar repúblikanar útnefndu
frambjóðanda flokksins við
forsetakosningarnar það ár.
Hápunktur ferðar Nixons til
Washington verður í dag, en þá
situr hann veizlu, sem haldin
verður til heiðurs Teng
Hsiao-ping, varaforsætisráðherra
Kína, en Teng er nú í opinberri
heimsókn í Bandaríkjunum.
Það var Jimmy Carter forseti
sem bauð Nixon til veizlunnar.
Carter sagði við fréttamenn í fyrri
viku að hann hygðist ekki hitta
Nixon að máli sérstaklega eða eiga
við hann einkaviðræður. Forsetinn
sagði þó að áður en veizlan yrði
haldin yrðu Nixon gefnar upplýs-
ingar um gang allra mála í viðræð-
um Kínverja og Bandaríkjanna að
undanförnu. Carter sagði að Nixon
hefði verið mjög hjálplegur við að
gefa núverandi valdamönnum í
Hvíta húsinu upplýsingar og ráð í
sambandi við viðræður Banda-
ríkjamanna og Kínverja.
Þegar Nixon fór í opinbera
heimsókn til Peking árið 1972 var
endir bundinn á 22 ára fjandskap
Bandaríkjamanna og Kínverja og
upphafið markað að fullu stjórn-
málasambandi landanna tveggja,
en samningar um það atriði tókust
í lok ársins 1978.
Ekki hefur Nixon hitt Teng að
máli, þar sem Teng var ekki í
náðinni í Kína þegar Nixon heim-
sótti landið. Stjórn Mao Tse-tung
hafði ýtt Teng út í kuldann.
Símamynd AP.
John Travolta með skegg ásamt Jane Fonda og Fred Astaire við
úthlutun Golden Globes-verðlaunanna um helgina. Ungfrú Fonda
var kjörin bezta leikkonan 1978 og Travolta var valinn eftirlæti
kvikmyndanna.
hans hlífiskjöldur. Hann sagði
að það væri ákaflega sárt að
hann fengi aldrei í hendur bréf
frá tveimur börnum sínum, sem
hefðu látið bugast vegna áreitni
KGB og flutzt til Bandaríkjanna
og póstur frá þeim kæmist
aldrei til hans.
Fréttámaður AP segir enn-
fremur: „Sakharov er nú 58 ára
gamall og lítur út fyrir að vera
eldri og svo virðist sem byrðin
gerist honum æ þyngri. Yfirleitt
bera menn ekki kennsl á hann
þótt þeir mæti honum á götu, en
rödd hans þekkja margir. Hann
býr með Elenu konu sinni í íbúð
í miðborg Moskvu og þar er
mikill straumur gesta og gang-
andi: andófsmenn eiga þar skjól
og vestrænir fréttamenn eru
tíðir gestir og ýmsir aðrir.
„Sumt af því fólki sem kemur á
við geðræn vandamál að stríða.
En langflestir eru bara venju-
legir menn sem eru að reyna að
Þreyttur eftir
10 ára baráttu
Moskvu, 29. jan. AP.
EÐLISFRÆÐINGURINN
Andrei Sakharov Nóbelshafi og
þekktastur andófsmanna í
Sovétríkjunum sagði í dag við
fréttamann AP í Moskvu að
hann væri „ákaflega þreyttur“
á að heyja einsemdarbaráttu
sína fyrir mannréttindum gegn
Kremlarvaldinu í Sovétríkjun-
um.
Hann sagði að þetta stríð
hefði gengið afar nærri honum
og ekki væri unnt að afbera það
nema um nokkra hríð. Hann
sagðist að vísu fá út úr þessu
starfi sínu siðferðilega og per-
sónulega ánægju, en hún hrykki
nú ekki ýkja langt. Hann sagði
að hann hefði nú staðið í þessu
streði í áratug og hann gæti ekki
neitað því að mjög hefði dregið
úr sér kjark eftir réttarhöld og
dóma á sl. sumri yfir fjölda-
mörgum andófsmönnum, þar á
meðal góðum vinum hans eins
og Juri Orlov, Alexander Ginz-
burg og Anatoli Shcharansky.
„I raun miðar ekkert fram á
við og maður fær engu áorkað.
Það er ógerningur að vernda
fólk sem situr bak við lás og slá.
Það eru örfá mál sem hafa
fengið farsælan endi. Og ákaf-
lega mörg mál sem hafa fengið
vond endalok."
Sakharov sagði aðspurður að
hann vissi vitanlega ekki hvað
framtíðin bæri í skauti sér
honum til handa, en fram til
þessa hefði frægð hans, fyrst og
fremst sem vísindamanns, verið
heyja lífsbaráttuna á sæmandi
forsendum. Og þeir eiga erfið-
ast,“ segir hann.
Sakharov segir að stöku sinn-
um fái hann hótunarbréf, og
hefði hann fengið frá Noregi
fyrir tveimur árum 25 bréf með
úrklippum af slysamyndum og
hvers konar afskræmi. Húsleit
er gerð öðru hverju í íbúð hans
og hefur KGB eitthvað á brott
með sér hverju sinni.
Sakharov segir að það hafi
mest bitnað á starfi sínu við
vísindaiðkun og rannsóknir
hversu mjög hann hefur beitt
sér fyrir mannréttindamálum.
Hann vinnur þó í Eðlisfræði-
stofnun Moskvuborgar nokkrar
stundir á hverjum degi. Eftir að
mannréttindaskjal hans sem
hratt öllu þessu af stað eins og
alkunna er var birt 1968 var
honum vísað frá öllu starfi í
Vísindaakademíunni sem
nokkra umtalsverða þýðingu
hefur. Hins vegar heldur hann
enn sæti sínu þar. Hann segist
telja lítils um vert hvað yfirvöld
hafa horn í síðu hans, svo fremi
hann finni hlýhug fólks og
nauðsyn þess að halda barátt-
unni áfram. Hann kveðst ekki
ætla að fara úr landi og telur að
með því að vera um kyrrt og
reyna enn um hrið að berjast
geti hann unnið málstaðnum
meira gagn en með því að vera
utan Sovétríkjanna þótt hann
hefði þar meira aðgerða- og
hugsanafrelsi.
TEHERAN logaði í
bardögum um helgina
Khomeiny neitadi að tala við Bakhtiar í París
Teheran, Marrakech, 28. jan. Reuter.
HUNDRUÐ þúsunda manna flykktust út á götur Teheran um helgina og
lét mannfjöidinn í ljós stuðning við Khomeiny trúariciðtoga og andúð á
Bakthiar forsætisráðherra. Voru haldnir fundir og göngur víðs vegar um
borgina. Við háskólann hafði hópur manna búið um sig í setuverkfalli og
þegar hermenn komu á vettvang til að dreifa honum réðst fólkið á
hermennina. Þcir hófu þá skothríð með þeim afleiðingum að milli tuttugu
og þrjátíu manns létust. Eru þessi átök í Teheran síðustu daga þau verstu
og mannskæðustu í fjóra mánuði.
Mikil reiði greip um sig við skot-
hríðina meðal nærstaddra og höfðu
margir uppi hróp gegn keisara og
forsætisráðherra. Talsmaður
Bakthiars neitaði því eindregið að
hermennirnir hefðu haft skipanir
um að skjóta. Þeir hefðu aðeins átt
að hleypa af byssum upp í loftið, en
svo virtist sem þeir hefðu misst
stjórn á sér þegar aðsúgur var
gerður að þeim.
Um helgina var og gefin út til-
kynning um að forsætisráðherrann
ætlaði að halda til Frakklands á
mánudag. Var sagt að hann myndi
eiga viðræður við Khomeiny trúar-
leiðtoga. Einn samstarfsmaður trú-
arleiðtogans sagði nokkru síðar að
klerkur hafði fallizt á að hitta
Bakthiar. Þóttu þetta mikil tíðindi
bæði heima og heiman, en nokkru
síðar var svo gefin út önnur yfirlýs-
ing í bækistöðvum Khomeinys þar
sem sagði að klerkur hafði nú gert
það upp við sig að hann myndi ekki
tala við forsætisráðherrann nema
hann segði fyrst af sér. Fréttaskýr-
endur töldu einsýnt að þetta b'enti til
að allmikill ágreiningur og ringul-
reið væri með þeim aðilum sem eru í
innsta hring Khomeinys. Khomeiny
ítrekaði síðan fyrri yfirlýsingar
sínar um að hann ætlaði sér að fara
til írans jafnskjótt og flugvellir yrðu
opnaðir þar á ný, en um það hefur
enn ekkert verið látið uppi. Þegar
Bakthiar forsætisráðherra hafði síð-
an fengið síðustu viðbrögð Khomein-
ys, lýsti hann því yfir að hann væri
hættur við Frakklandsferð sína.
Þegar kvöldaði í gær var nokkur ró
komin á, en mikil reiði var í mönnum
og grunnt á því að til tíðinda kynni
að draga eins og raun hefur orðið á.
Frá Marrakech í Marokkó berast
þær fréttir af íranskeisara að hann
hyggist dvelja utan írans í að
minnsta kosti þrjá mánuði. Sagði
Ardeshir Zahedi, sendiherra írans í
Washington, frá því í Marrakech í
dag. Hann kvaðst búast við því að
keisarafjölskyldan myndi vera í
Marokkó í nokkrar vikur enn og
síðan væri allt óákveðið með hvað
við tæki.
Þetta gerðist
30. janúar
1972 — Brezkir hermenn skjóta 13
óbreytta borgara í óeirðum í Lond-
onderry, Norður-írlandi — Pakist-
an fer úr brezka samveldinu.
1971 — Samið um lausn fiskveiði-
deilu Bandaríkjanna og Equador.
1967 — Podgorny forseti gengur á
fund Páls páfa.
1965 — Útför Sir Winston
Churchills.
1964 — Nguyen Khanh hershöfð-
ingi tekur völdin í Saigon.
1948 — Mahatma Gandhi ráðinn
af dögum í Nýju Delhi.
1943 — Rússar tortíma þýzka
hernum suðvestur af Stalíngrad.
1941 — Hersveitir Wavells taka
Derna og sækja til Benghazi.
1933 — Adolf Hitler skipaður
kanzlari Þýzkalands.
1915 — Fyrsta kafbátaárás Þjóð-
verja án viðvörunar út af Le
Havre.
1902 — Bretar gera samning við
Japani með ákvæðum um sjálf-
stæði Kína og Kóreu.
1875 — Lýðveldisstjórnarskrá
samþykkt í Frakklandi með einu
atkvæði.
1840 — Keisarinn í Kína bannar
alla verzlun við Breta.
1835 — Misheppnað banatilræði
við Andrew Jackson forseta —
fyrsta tilraunin til að ráða banda-
rískan forseta af dögum.
1649 — Karl I. Englandskonungur
hálshöggvinn.
1648 — Friðarsamningur Spán-
verja og Hollendinga í Munster.
1641 — Portúgalar láta Malakka
af hendi við Hollendinga — Svíar
ráðast á Regensburg og Ferdinand
keisari III sleppur naumlega.
1522 — Lýbikkumenn segja Dön-
um stríð á hendur og leggja
Borgundarhólm í eyði.
Afmæli: W.S. Landor, brezkur
rithöfundur (1775-1864) - F.H.
Bradley, brezkur heimspekingur
(1846—1924) — Franklin Delano
Roosevelt, bandarískur forseti
(1882—1945) — Vanessa Redgrave
þrezk leikkona (1937 —).
Andlát: Pétur II. Rússakeisari
1730 — Karl Játvarður Stúart,
kröfuhafi brezku krúnunnar, 1788
— Edward Lear, rithöfundur 1888.
— Orville Wright flugmaður, 1948
— Franeis Poulenc, tónskáld, 1963.
Innlent: Fyrsti árgangur „Fjölnis"
1835 — F. Sigfús Einarsson 1877
— Iðnó vígt 1897 — Lög um
niðurfærslu verðlags og kaup-
gjalds gefin út 1959 — Þrír farast í
Látraröst 1962 — F. Þórleifur
Bjarnason 1908 — Ármann Kr.
Einarsson 1915.
Orð dagsins: Grunnhyggnir menn
trúa á heppni — Ralph Waldo
Emerson, bandarískur rithöfund-
ur (1803-1882).
Veður
víða um heim
Akureyri 44 skafrenningur
Amsterdam 0 skýjað
AÞena 19 heiðskírt
Barcelona vantar
Berlín 0 skýjað
Brilssei +1 snjókoma
Chicago 0 skýjað
Frankfurt 2 snjókoma
Genf 3 skýjað
Helsinki 45 heiðskírt
Jerúsalem 16 heiðskirt
Jóhannesarb.25 skýjað
Kaupm.höfn 42 skýjað
Lissabon 12 rigning
London 4 léttskýjað
Los Angeles vantar
Madríd 8 skýjað
Malaga vantar
Mallorca vantar
Miami 21 heiöskírt
Moskva 1 skýjað
New York 6 skýjaö
Ósló 49 heiðskírt
París 5 léttskýjað
Reykjavík 45 snjókoma
Rio De Janeiro 37 skýjað
Rómaborg 15 rigning
Stokkhólmur +4 skýjaö
Tel Aviv 20 léttskýjað
Tókýó 6 skýjað
Vancouver 4-15 skýjað
Vínarborg 7 skýjað