Morgunblaðið - 30.01.1979, Page 48
Tillitssemi
kostar
ekkert
jwgttattMðftiibí
Verzliö
sérverzlun meö
litasjónvörp og hljómtæki.
Skipholti 19,
BUÐIN sími
ÞRIÐUDAGUR 30. JANÚAR 1979
Treflar, ullar-
teppi og peysur
fyrir 1,3 millj-
arda til Sovét
SAMNINGAR UM sölu á íslenzkum ullarvörum til Sovétríkjanna á
þessu ári að upphæð rúmlega 1,3 milljarðar króna voru undirritaðir í
Möskvu síðastliðinn fimmtudag. Er hér um verulega aukningu að
ra-ða frá því sem var í fyrra, en þá var sala á ullarvörum héðan til
Sovétríkjanna í lágmarki. Þessir samningar eru sambærilegir við það
sem var árin þar á undan.
Þeir Hjörtur Eiríksson og Val-
ur Arnþórsson undirrituðu samn-
ingana í Sovétríkjunum fyrir
hönd Sambandsins. Hjörtur sagði
í samtali við Morgunblaðið í gær
að um tvo samninga væri að
ræða. Annars vegar hefði ríkis-
Snaggaralegir
veiditúrar á
Ögra og Vigra
SKUTTOGARINN Ögri selur
væntanlega tæplega 300 tonn f
Þýzkalandi á miðvikudag. Skipið
var í 12 daga að veiðum og
uppistaðan f þessum mikla afla er
karfi og ufsi. Hitt skip Ögurvík-
ur, skuttogarinn Vigri, hefur
einnig aflað mjög vel að undan-
förnu, en á aðeins 5 dögum fékk
Vigri 230 tonn.
Skipið seldi afla sinn síðan í
V-Þýzkalandi og fékk 57 milljónir
fyrir. í allri ferðinni, þ.e. á leið á
miðin, við veiðar, sigling til Þýzka-
lands og að nýju í höfn í Reykja-
vík, var skipið aðeins í 13 'A dag.
fyrirtækið Razno Eksport samið
um kaup á ullarvörum fyrir rúm-
lega 24 milljóna Bandaríkjadala
eða sem nemur liðlega 800
milljónum. I þessum samningi er
um að ræða sölu á peysum, værð-
arvoðum og treflum héðan.
Þá var gerður samningur við
sovézka samvinnusambandið, sem
nemur 1,6 milljónum dollara eða
nokkuð á sjöttu milljón íslenzkra
króna. Sá samningur er á vöru-
skiptagrundvelli og hafa íslend-
ingar keypt af samvinnusam-
bandinu vörur fyrir 2,4 milljónir
dollara. Þar skilja því 800 þúsund
dollarar á milli og er reiknað með
að á næstunni verði skrifað undir
samninga á sölu á skinnavörum
frá Sambandinu fyrir 400 þúsund
dollara, eða helming upphæðar-
I fyrra seldu íslendingar ullar-
vörur til Sovétríkjanna fyrir 2,8
milljónir dollara, en það var
minna heldur en árin á undan. Nú
hafa verið undirritaðir samning-
ar upp á rúmlega 4,1 milljón
dollara.
Lækurinn í Nauthólsvík, Læragjá, er enn á sfnum stað, þó að lítið hafi hann verið í fréttum að
undanförnu. Þessa myndtók Ól. K. Mag. þar um helgina af fólki sem var að baða sig í læknum þrátt
fyrir átta stiga frost.
Pilturinn úrskurðaður í
59 daga gæzluvarðhald
Neitar að hafa veitt stúlkunni áverka vísvitandi
Rannsóknarlögregla ríkisins hef-
ur frá þvf aðfaranótt laugardagsins
unnið stöðugt að rannsókn á láti
stúlkunnar, sem fannst í blóði sfnu
við hús f Safamýri og lézt á iaugar-
dagsmorgun af völdum áverka.
Pilturinn sem var með stúlkunni og
var handsamaður á hlaupum frá
húsinu, heldur þvf fram að hann
Stjómin íhugar frestmi hækk-
imar hluta opinberrar þjónustu
Brýtur í bága við yfirlýsingu ríkisstjórn-
ar Islands frá sólstöðusamningunum
INNAN rfkisstjórnarinnar eru nú
uppi hugmyndir um að fresta
hluta þeirrar hækkunar opinberr-
ar þjónustu, sem samkvæmt sam-
komulagi rfkisstjórnar íslands og
launþegahreyfingarinnar eiga að
koma til framkvæmda sfðustu 10
daga fyrir útreikning verðbótavísi-
lóiu. Eru uppi hugmyndir um að
aðeins 'h til 'k þessara hækkana
komi til framkvæmda fyrir 1.
febrúar, allt eftir vægi þessara
hækkunarliða f grundvelli vfsitöl-
unnar, með það fyrir augum að
verðbótavísitala hækki ekki eins
mikið.
Þjónustuhækkanir þessar eru alls
konar þjónustugjöld ríkis og sveit-
arfélaga. Þar á meðal eru hækkanir
á pósti og síma, rafmagni, hitaveitu,
strætisvgnagjöldum og ýmsum
gjaldskrám opinberra þjónustufyr-
irtækja. Þá mun í kjölvatninu
einnig vera hækkun álagningar á
matvöru, sem mun ekki vera af-
greidd fyrr en eftir 1. febrúar, enda
mun vera litið svo á að síkt sé ekki
opinber þjónusta.
Walter Mondale
Bandarfkjanna.
varaforseti
Mondale
r
til Islands
í apríl nk.
Samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið hefur aflað sér, er
Walter Mondale varaforseti
Bandaríkjanna væntanlegur í
opinbera heimsókn til íslands
hinn 13. apríl næstkomandi.
Heimsóknin er liður í ferð
Mondales til Norðurlandanna
allra og Hollands, og mun ísland
verða fyrsti viðkomustaður hans.
Við gerð svokallaðra sólstöðu-
samninga, sem undirritaðir voru í
júnímánuði 1977, lagði Alþýðusam-
band fslands mikla áherzlu á nauð-
syn ýmissa opinberra aðgerða sam-
hliða kjarasmningum. Árangur
þeirrar viðleitni launþegasamtak-
anna varð m.a. sá að ríkisstjórn
íslands gaf út yfirlýsingu, þar sem
m.a. sagði um verðlagsmál:
„Verðhækkanir opinberrar þjón-
ustu koma ekki til framkvæmda
nema síðustu 10 daga fyrir útreikn-
ing verðbótavísitölu, þannig að
launafólk þarf ekki að bera hækk-
anirnar lengi bótalaust. Ríkis-
stjórnin tekur undir það sjónarmið
verkalýðssamtakanna að leggja beri
aukna áherzlu á öflun gagna um
verðlag erlendis og miðlun upplýs-
inga um verðlag hérlendis og lýsir
sig fúsa til þess að treysta aðstöðu
verðlagsskrifstofunnar til þess að
sinna þessum þáttum. Þá er verka-
lýðssamtökunum gefið fyrirheit um
aukna aðild að verðgæzlunni og
áherzla er lögð á aðhald í afgreiðslu
verðhækkana."
Vart mun reynast unnt að fresta
um 3 mánuði þeim hluta hækkana
opinberrar þjónustu, sem ekki mun
taka gildi fyrir 1. febrúar.
Vegna fjárhagsstöðu þeirra opin-
berra fyrirtækja, sem hlut eiga að
máli mun því sá hluti sem frestað
verður, verða að taka gildi áður en
upp rennur næsta 10 daga tímabil
fyrir útreikning verðbótavísitölu
hinn 1. júní næstkomandi.
hafi hrint stúlkunni en ekki barið
hana, og að um algjört óviljaverk
hafi verið að ræða, hafi stúlkan
látist af hans völdum. Njörður
Snæhólm yfirlögregluþjónn tjáði
Mbl. að ekki væri unnt að fullyrða
um dánarorsök fyrr en skýrsla um
krufningu lægi fyrir.
Stúlkan sem lézt hét Sunna Hildur
Svavarsdóttir, 21 árs að aldri og til
heimilis að írabakka 8. Hún og
pilturinn sem heitir Sigurður Jóns-
son, 17 ára, Skúlagötu 64, höfðu hitzt
við Klúbbinn og farið saman í
gleðskap í húsi einu við Háaleitis-
braut, þar sem pilturinn þekkti til.
Voru þau bæði mjög ölvuð. Þau fóru
um líkt leyti úr húsi þessu, enda
ætlaði pilturinn að fýlgja stúlkunni
heim en rétt fyrir 4 aðfaranótt
laugardags urðu síðan íbúar við hús í
Safamýri varir við skarkala og
óhljóð, og maður sem fór út að gæta
hvað um væri að vera, sá stúlkuna
liggja alblóðuga við ruslageymslu
hússins en piltinn standa yfir henni.
Gerði maðurinn lögreglunni aðvart,
sem síðan handtók piltinn þar sem
hann var á hlaupum frá húsinu.
Sjá nánari lýsineru á atvik-
um málsins bls. 30.
Sunna Hildur Svavarsdóttir
Könnun meðal nemenda í M.R.:
Fylgi Alþýðuflokks minnk-
aði í 15,3% — fylgi Sjálf-
stæðisflokks jókst í 44,2%
FYLGI Alþýðuflokksins meðal nemenda í Menntaskólanum í
Rcykjavík minnkaði úr 27,9% í 15,3% frá alþingiskosningum í sumar
þar til í lok september sl. Fylgi Alþýðubandalagsins minnkaði úr 29,5
í 28,4%, en fylgi Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks jókst úr 3,4 í
5,1% og úr 34,6 í 44,2%. Þetta eru m.a. niðurstöður úr könnun á
stjórnmálaskoðunum nemenda, sem Vfsindafélag Framtfðarinnar í
MR. gekkst fyrir 29. september sl.
í skoðanakönnuninni kom
einnig fram að 37,7% töldu sig
„hægrisinnaða" í stjórnmála-
skoðunum, 36,8% sögðust „vinstri-
sinnaðir" og 25,5% töldi skoðanir
sínar fara bil beggja. Hvað þetta
varðar kom fram munur á yngri
nemendum og eldri. Fleiri yngri
nemendur sögðust hægrisinnaðir
og fleiri eldri nemendur vinstri-
sinnaðir en hlutfall þeirra, sem
sögðu skoðanir sínar fara bil
beggja, hélzt nokkuð svipað í
öllum aldursflokkum.
Spurningum um hugmyndakerfi
svöruðu nemendur þannig, að
37,1% sögðust sætta sig helzt við
„frjálst markaðskerfi", 21,5%
aðhylltust jafnaðarstefnu, 19,3%
sósíalisma og 6,3% kommúnisma.
Spurningu um fylgi við aðild
íslands að NATO svöruðu 50%
játandi, 34,2% neitandi og 15,8%
sögðust óákveðnir. Af þeim, sem
afstöðu tóku, voru 47% fylgjandi
erlendri herstöð én 53% á móti.
Sjá: Könnun á stjórnmála-
skoðunum nemenda í M.R. Bls.
14-15.