Morgunblaðið - 13.02.1979, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 13.02.1979, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1979 Skemmtiþœttir og bíó heim í stofu FYRIRTÆKIÐ Japis, umboðsaðili Sony-sjónvarpstækja og myndsegulbanda hefur nú tekið upp þá nýlundu að bjóða viðskiptavinum myndsnældur með áteknu efni til kaups eða leigu og kemur fram í auglýsingu frá fyrirtækinu áð þegar séu fáanlegir 42 músíkþættir, 40 kvikmyndir og 20 framhaldsþættir. Að sögn forsvarsmanna fyrir- tækisins er þarna um að ræða skemmtiþætti bandarískrá sjón- varpsstöðva, svo sem CBS og ABS, heimsmeistaramótið í knattspyrnu í Argentínu og 3—4 ára gamlar kvikmyndir svo að eitthvað sé nefnt. Hann kvað ráðgert í fyrstu að lána mynd- snældurnar með nýjum mynd- segulböndum, sem keypt væru og þá tíu bönd í einu. Hins vegar væri fyrirhugað síðar meir að leigja snældurnar og kvaðst hann búast við að leigan yrði þá um 5—6 þúsund krónur fyrir 10 myndsnældur í eina viku. Hins vegar væri ekki komið verð á snældurnar. ,JFráleittað kggja heimilið niður” MÆÐRAHEIMILI Reykjavíkur var stofnað í mars 1971 á vegum Fé- lagsmálastofnunar Reykjavíkur- borgar sem rekur heimilið. Eins og kunnugt er hefur nú verið sam- þykkt í borgarstjórn að leggja niður þetta heimili. „Mæðraheimilið er fyrst og fremst stofnað með einstæðar mæður í huga“, sagði Kristín Ottesen for- stöðumaður Mæðraheimilisins er blaðamenn röbbuðu við hana. „Hér hafa verið mæður allt frá 18 ára aldri upp í 42 ára og mér finnst aldur þeirra kvenna sem koma á heimilið alls ekki fara lækkandi. Ég held að þær stúlkur sem eru að eiga sitt fyrsta barn fái meiri stuðning heima hjá sér en verða síðan að fá hjálp þegar börnin verða fleiri. Hér búa 3 mæður eins og er. í húsinu eru 5 herbergi og eitt stórt herbergi ætlað tveimur vanfærum stúlkum. í upphafi var í reglugerð fyrir heimilið gert ráð fyrir að þar gætu vanfærar konur eða konur með ungabörn fengið inni en síðan hafa reglurnar verið rýmkaðar og nú geta hér búið konur með allt frá unga- börnum upp í börn á skólaaldri. Hvaða ástæður liggja bak við dvöl mæðranna hér? „Þær eru ýmsar. Það geta bæði verið félagslegar aðstæður og svo blátt áfram húsnæðisskortur. Við höfum orðið mjög vör við húsnæðis- skort hér í borginni. Á síðasta ári var gift kona hér í 8 mánuði með 3 börn og maðurinn hennar bjó úti í bæ á meðan. Ástæðurnar fyrir dvöl konunnar hér með börnin var ein- faldlega húsnæðisskorturinn. Ég held að mæðraheimilið þjóni sínum tilgangi mjög vel. Hér á Rætt við Kristínu Ottesen forstöðu- mann Mæðra- heimilis Rvíkur skrifborði mínu liggja umsóknir frá fjórum stúlkum sem allar eiga rétt á því að fá hér inni. Aðstæður hjá þeim segja til um það, en nú hef ég fengið þau boð frá yfirmönnum mínum að ekki skuli fleiri mæður teknar hér inn á meðan þetta óvissa ástand ríkir. Það getur því verið að enn fleiri bíði eftir plássi hér þar sem umsóknirnar fara flestar í gegnum félagsmálastofnun áður en ég fæ þær hingað.“ Á mæðraheimilinu starfa 3 stúlk- ur, en aðeins ein þeirra er á vakt í einu. „Dvalartími kvennanna hér getur verið misjafnlega langur allt frá 'k mánuði upp í rúmt ár. Heimilið er mikið notað og á fullan tilverurétt í hverju menningarþjóðfélagi. Því finnst mér fráleitt að ætla að leggja mæðraheimilið niður,“ sagði Kristín að lokum. Um helmingur herbergjanna á Mæðraheimilinu var auður er blaðamenn bar að. Gkki hefur verið leyft að taka þar inn mæður í nokkurn tíma þar sem samþykkt hefur verið í borgar- stjórn að leggja heimiiið niður. l.jósm. Kmilia. Rey k j aví kurborg: Frestað gatnagerð í Selja- hverfi og malbikun iðnhverfa Jóhannes Laxdal látinn JÓHANNES Laxdal bóndi á Tungu á Svalbarðsströnd lézt 10. febrúar sl. Hann fæddist 5. júlí 1891, og var kvæntur Helgu Níelsdóttur frá Hallandi sem lézt fyrir tæpum 2 árum. Þeim varð 7 barna auðið. Jóhannes gegndi mörgum trúnaðarstörfum fyrir sitt byggðar- lag, var m.a. formaður Framfara- félags Svalbarðsstrandar í 10 ár, Ungmennafélagsins Æskunnar um skeið og í 15 ár formaður Búnaðar- félags Svalbarðsstrandar. Hann var hreppsstjóri 1931 til 1973 og sat lengi í sýslunefnd. Jóhannes Laxdal var mikill bar- áttumaður fyrir framfaramálum sveitar sinnar og beitti sér m.a. fyrir því að stofnað var sérstakt félag til að leggja rafmagn um sveitina. Hann var mikill áhugamaður um vegagerð yfir Víkurskarð og yfir Leirurnar, og var forystumaður Sjálfstæðisflokks- ins í sínu byggðarlagi um áratuga skeið. Jóhannes Laxdal Á FUNDI borgarráðs Reykja- víkur var í gær fjallað um hvaða gatnagerðarframkvæmd- ir ætti að skera niður á þessu ári, en sparnaðarnefnd hefur lagt til að skornar verði niður framkvæmdir að upphæð um 670 m. kr. Tillögur borgarráðs um frestun framkvæmda voru m.a.: Malbikunarframkvæmdir í iðnaðarhverfinu við Ártúns- höfða, nýbyggingarfram- kvæmdir gatna í Seljahverfi og gatnagerð í nýjum Miðbæ svo og tenging Stekkjabrautar við Reykjanesbraut. Tillögur þessar verða lagðar fyrir framkvæmda- ráð borgarinnar til umfjöllunar og sagði Birgir ísl. Gunnarsson, að þær þýddu að úthlutað yrði um 160 lóðum færra en áætlað hafði verið, aðallega yrði úthlut- að lóðum í Mjóddinni fyrir um 10 íbúðir. (BYGGINGARVÖRUSÝNING) Brottför 24. feb. Frankfurt (ALÞJÓDLEG VÖRUSÝNING) 4.—8. mars i) ^ JJU LGJÁI PÁSKAFERÐ Brottför 7. apríl. SELJUM FARSEÐLA UM ALLAN HEIM Á HAGSTÆÐASTA VERÐI Ferðamiðstöðin hf. Aðalstræti 9 - Símar 11255 - 12940

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.