Morgunblaðið - 13.02.1979, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 13.02.1979, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1979 41 fclk í fréttum + FYRIR skömmu var sagt frá „bezt klædda fólkinu“. Nú er röðin komin að því sem skoðanakönnunin leiddi í ljós varðandi þær konur sem taldar eru vera þær ömurlegustu í öllum kiæðaburði. Hér hafði vestra-söngkonan bandaríska Dolly Parton, gengið með sigur af hólmi. — Á listanum yfir þessar konur eru einnig leikkonan Farrah Fawcett-Majors, svo og milljarðaerfinginn frú Christina Onassis + HVARF. — Þessi ljóshærða kona er dönsk. Heldur hún á fjölskyldumynd af sér, barninu og eiginmanninum. Hún heitir Anne. Eiginmaður hennar er pólskur flóttamaður, sem fékk danskt rikisfang árið 1964. í byrjun janúar hafði hann farið til Póllands einn síns liðs. — En hann skilaði sér ekki. Eftir nokkra eftirgrennslan kom í ljós að pólsku landamæraverðirnir höfðu handtekið hann. Hann situr í fangelsi í Gdansk og hefur verið kærður fyrir njósnir. Anne kona hans hefur skrifað honum en aldrei fengið svar. Danska sendiráðið í Varsjá hefur ekki fengið leyfi til að senda fulltrúa sinn á hans fund í fangelsið. — Maðurinn heitir Sylvester Pucek og er 41 árs, fyrrum íþróttamaður. Hann stakk af frá hópi pólskra íþróttamanna í K-höfn árið 1964. Anne kona hans segist ekki trúa einu orði um að eiginmaðurinn sé njósnari. Til sölu Ný yfirbyggð langferðabifreið Mercedes Benz 1413 41 sæti. undirvagn innfluttur, notaður, en allur yfirfarinn. Gæti verið hvort sem vill eins eða 2ja drifa. Uppl. hjá Guömundi Kjerúlf, um Reykholt. óskar eftir söngkröftum til flutnings á IX. sinfóníu Beethovens. Tónleikar í byrjun júní, æfingar hefjast í lok febrúar. Körstjóri: Marteinn Hunger Friðriksson. Hringiö í síma: 27787, 74135 og 44548. Sinfóníuhljómsveit íslands Auka- tónleikar í Háskólabíói n.k. fimmtudag kl. 20.30. Verkefni: Haydn — oratorían SKÖPUNIN. Einsöngvarar: Ólöf K. Harðardóttir, Siguröur Björnsson, Halldór Vilhelmsson. Kór: Söngsveitin Fílharmonía Stjórnandi: Marteinn H. Friðriksson. Aðgöngumiöar í bókaverslunum Sigfúsar Eymundssonar og Lárusar Blöndal og við innganginn. Sinfóníuhljómsveit íslands. verkfœri & járnvörur h.f. DALSHRAUNI 5. HAFNARFIRÐI. SIMI 53332 Einkaumboösmenn Stóra sambyggða trésmíðavélin. Hjólsög: 1 70 mm Bandsög: 145 mm Slípidiskur: 250 mm þvermál 1 fasa 220 V 1.1 hestafl Verð 330.000,- Fáanlegir fylgihlutir: Fræsari, rennibekkur, afréttari, hulsubor slípibelti og borbarki. emcosíap suPEr Gamalf fi félk gengurJI hœgal

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.